Morgunblaðið - 31.08.1989, Qupperneq 42
42
MORGUJvfljj-AÐIÐ IÞRÓTTIR yiMMTUiji^R
31. AGUST 1989
■ 1 I: i ■- ! I 7 U
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Astráður hættur
Astráður Gunnarsson er hættur
störfum sem þjálfari liðs
Keflvíkinga í knattspyrnu. Hann
tiikynnti forráðamönnum knatt-
spyrnuráðs ÍBK þessa ákvörðun
sína munnlega í síðustu viku,
skömmu eftir að Hólmbert Friðjóns-
son hafði verið ráðinn tæknilegur
ráðgjafi liðsins á lokaspretti Is-
landsmótsins. Enginn þjálfari hefur
verið ráðinn í stað Ástráðs, sem er
farinn í frí til útianda.
Að sögn Rúnars Lúðvíkssonar,
formanns knattspyrnuráðs ÍBK,
fannst Ástráði það vera vantraust
á sig sem þjálfara þegar Hólmbert
var fenginn til að aðstoða liðið.
„Hómbert kemur þó ekki til með
að verða þjálfari. Það er frekar ólík-
iegt að ráðinn verði þjálfari í þessa
þijá leiki, sem eftir eru en við erum
að skoða þetta þessa dagana. Auð-
vitað er það mjög ^slpsmt þegar
svona kemur upp á. Ástráður vann
samvizkusamlega en hafði ekki
reynslu af því að þjálfa meistara-
flokk og þess vegna leituðum við
aðstoðar Hólmberts," sagði Rúnar.
Steinar Jóhannsson, sem starfaði
með Ástráði sem aðstoðarþjálfari
mun hins vegar halda áfram störf-
um að sögn Rúnars.
ÍBK er neðst í 1. deild með 11
stig og verður því að hala inn stig
í síðustu leikjununr þremur til að
halda sér uppi. „Allir leikirnir, sem
við eigum eftir, eru mjög mikilvæg-
ir en við erum staðráðnir í að halda
okkur uppi,“ sagði Rúnar.
_ekkl
Lauqardagur kl. 13:55
35. LEIKVIKA- 2. sept. 1989 1 X 2
Leikur 1 Valur - Þór
Leikur 2 Keflavík - Víkingur
Leikur 3 F.H. - Akranes
Leikur 4 K.A. - Fylkir
Leikur 5 Bradford - Portsmouth
Leikur 6 Brighton - Port Vale
Leikur 7 Hull - West Ham
Leikur 8 Ipswich - Bournemouth
Leikur 9 Middlesbro - Sheff. Utd.
Leikur 10 Stoke - Leeds
Leikur 11 Watford - Leicester
Leikur 12 W.B.A. - Sunderland
Símsvarl hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002
TVÖFALDUR POTTUR!
HANDKNATTLEIKUR
„ Af þvi bara-log!
Furðulegar reglur HSÍ setja leikmönnum þröngar skorður
Á ÁRSÞINGI HSÍ fyrir rúmu
ári voru samþykktar reglur
um félagaskipti íslenskra
leikmanna. í þeim segir að
ef leikmaður skipti um félag
verði gamla félagið hans að
skrifa undir félagaskiptin, að
öðrum kosti geti hann ekki
spilað næstu sex mánuðina.
Með þessum reglum, sem
samþykktar voru af öllum fé-
lögunum, átti fyrst og fremst
að koma í veg fyrir óeðlilegt
flakk leikmanna á milli félaga
og styrkja samningsstöðu
íslenskra liða gegn erlendum
liðum. Einnig átti þetta að
vera til að halda íslenskum
handknattleik sem lengst frá
atvinnumennsku. Þessar
reglur hafa snúist upp í and-
hverfu sína og skert verulega
frelsi leikmanna.
Þegar fresturinn til félaga-
skipta rann út, fóru nokkrir
leikmenn í bann þar sem fyrra
félag þeirra samþykkti ekki skipt-
AF in. Þessir leik-
INNLENDUM menn mega ekki
VETTVANGI leika. með iiði sínu
næstu sex mánuð-
ina vegna tregðu
félaganna og þess-
ara furðulegu
LogiBergmann .
Eiðsson Þessir leikmenn
skrífar eru Óskar Helga-
son (sem ætlaði að
fara úr FH og leika á Spáni),
Dagur Jónsson (úr Fram í Víking)
og Sigutjón Sigurðsson (úr Hauk-
um í Val). Þetta er þó alls ekki
einu málin því nokkur félögþurftu
að borga vænar summur til að
„losa“ leikmenn frá féiögum með
„_doilaramerki“ í augunum. Mál
Óskars er reyndar öðruvísi en hin
því hann hafði ekki fengið stað-
Óskar Helgason er einn af mörg-
um leikmönnum sem hafa verið kyrr-
settir.
festingu frá Spáni en þar vantaði
einnig undirskrift FH-inga.
„Af þvi bara-lög“
Lögfræðingur, sem verið hefur
viðloðandi handknattleik í mörg
ár, kallaði þessi lög „Af því bara-
lög.“ Hann segir að ástæðan fyrir
lögunum sé óskiljanleg. Þau gangi
í berhögg við stjórnarskrána,
áhugamannareglur ÍSÍ og ekki
síst reglur HSI. Ástandið sé bara
eins og í sandkassanum þar sem
röksemdarfærsian fyrir settum
reglum er „af því bara!“
Annar handknattleiksmaður
segír þessar reglur svipaðar
sænskum reglum. I þaim íslensku
séu þó aðeins hagsmunir félag-
anna hafðir að leiðarljósi en frelsi
leikmanna, sem kveðið er á um í
sænsku lögunum, hunsað.
Í upphafi litu þessar regiur
mjög vel út og menn voru bjart-
sýnir á að þær gætu stöðvað flakk
á miili félaga. Þess í stað hafa
þær breytt handknattleiknum í
eitt stórt „matadorborð“ þar sem
leikmenn ganga kaupum og söl-
um, en aðeins lítill hluti auranna
fer í vasa leikmanna og afgangur-
inn til félaga og iögfræðinga
þeirra.
í flestum tilfelium þegar leik-
menn skiptu um félög neituðu lið-
in að skrifa undir. Á hvaða for-
sendum veit enginn og þau þurfu
ekki éinu sinni að sýna fram á
að viðkomandi leikmenn skuldi
félaginu. Skiljanlega er sárt fyrir
félögin að missa bestu leikmenn
sína og eðiilegt að þau vilji halda
í þá. En í landi þar sem atvinnu-
mennska er feimnismál og ekki
viðurkennd geta félögin ekki hald-
ið leikmönrmm á þeim forsendum
að þeir séu skuldbundnir félaginu.
Til þess að losa leikmennina
þurftu liðin að borga vænar
summur til félaganna, í mörgum
tilfellum fyrir ekki neitt.
Þessar reglur koma þó líklega
að gagni í samningum íslenskra
liða við erlend. Reglurnar koma í
veg fyrir að erlend lið geti skropp-
ið til íslands og keypt bestu leik-
menn þjóðarinnar eins og krónu-
kúlur í sjoppu á Vesturgötunni.
íslensk féiög fá þó alltaf eitthvað
fyrir sinn snúð og ekki verður lit-
ið á ísland sem Singapúr hand-
boitaviðskipta.
En ef svo fer sem horfír ráðast
úrslitin í íslandsmótinu ekki á
veliinum, heldur á skrifstofum
iögfræðinga.
golf „FRAMFARA-BIKARINN “ golf
Forgjöf 25-36 18 holur m/án forgjafar
Vegna þess hve margir urðu frá að hverfa í Meistaramóti byrjenda á
Hvammsvelli þann 27. ágúst sl., þá höfum við ákveðið að halda opin
golfmót alla sunnudaga í september fyrir kylfinga með forgjöf 25-36.
Úrslit í meistaramóti byr jenda 1989
Sigurvegarar án forgjafar:
1. sæti Jón Eggertsson 82 högg.
2. sæti Lárus Sigvaldason 82 högg.
3. sæti Gísli Ö. Böðvarsson 83 högg.
Sigurvegarar með forgjöf:
1. sæti Andrés Guðmundsson 51 högg.
2. sæti Páll Jóhannsson 51 högg.
3. sæti Bjarni Ágústsson 53 högg.
AGANEFND KSI
Þrír Eyjamenn í bann
Aganefnd KSÍ kom saman til
fundar á þriðjudag og voru
23 dæmdir í eins leiks bann.
Sex leikmenn úr 2. deild taka
út ieikbann um helgina. Eyjamenn
verða með þijá leikmenn í banni
mikiivægUm leik gegn Stömunni.
Þeir eru: Friðjón Sæbjörnsson og
Jakob Jónharðsson, sem eru varnar-
menn og markaskorarinn, Tómas
Ingi Tómasson. Einnig fengu þeir
Heiðar Heiðarsson, UBK, Kristján
Olgeirsson, Völsungi og Karl Þor-
g;eirsson, ÍR, eins leiks bann vegna
fjögurra gulra spjalda.
I 3. deild fengu eftirtaldir leik-
menn eins leiks bann: Kristján
Gislason, Gróttu, Kristján Björg-
vinsson, Gróttu, • Þórir Gíslason,
UMFA, Örn Guðmundsson, UMFA,
Helgi Helgason, Magna, Bogi Boga-
son, Austra, Valdimar Hafsteins-
son, Hveragerði og Páll Björnsson.
Gri'ndavík. Auk þess fær Magnús
Jónatansson, þjálfari Þróttar, eins
leiks bann vegna brottrekstrar af
varamannabekk.
Fjórir leikmenn úr 2. flokki fengu
bann, þrír leikmenn úr 1. flokki og
einn leikmaður í 3. flokki.
Aukaverðlaun næst holu Olafur H. Guðmundsson
og Sighvatur Bjarnason.
Veitt verða þrenn verðlaun m/án
forgjafar hvern sunnudag. Þeir kylf-
ingar, sem verða með alla fjóra
sunnudagana, verða sjálfkrafa þátt-
takendur í 72ja holu golfmóti um
„Framfarabikarinn ’89“, þar sem
veitt verða þrenn verðlaun m/án
forgjafar og nöfn sigurvegara verða
áletruð á glæsilega farandgripi.
Þátttökugjald er aðeins kr. 500,-
fyrir hvert 18 holu golfmót.
Skráning fer fram í Golf- og veiði-
húsi, sími 91-667023.
HANDKNATTLEIKUR / SPÁNN
Góð byrjun
hjá Granollers
Granollers, lið Atla Hilmarsson-
ar og Geirs Sveinssonar, sigr-
aði á fjögurra liða æfingamóti sem
fram fór í Cuenca á Spáni um helg-
'na- Granoilers lék
Frá við lið Aifreðs Gísla-
Atla ■ sonar, Bidasoa, í
Hiimarssyni úrslitaleik og sigr-
3 pani aði, 26:25, í spenn-
andi leik.
Auk Granollers og Bidasoa tóku
Alicante og 21 árs lið Frakka þátt
í mótinu. Bidasoa vann franska lið-
ið 24:22. Alfreð skoraði 5 mörk,
en Pólveijinn Bogdan Venta var
markahæstur með 11 mörk. Gran-
ollers sigraði Alicante, 22:18. Geir
skoraði 2 mörk og Atli sex.
Urslitaleikur mótsins milli Gran-
ollers og Bidasoa var mjög sveiflu-
kenndur. Bidasoa komst í 5:0 og
síðan 11:5, en Granollers gerði
síðustu sex mörk fyrri hálfleiks og
breytti stöðunni í 11:12. Síðari hálf-
leikur var jafn en Granollers var
sterkari á endasprettinum og vann,
25:26. Atli gerði 8 mörk og Geir
3. Bogdan Venta var markahæstur
leikmanna Bidasoa með 9 mörk, en
Alfreð kom næstur með 4 mörk.