Morgunblaðið - 18.08.1992, Blaðsíða 31
):>£ T2A;,Á <■: <,M-. ^.nfSCTftíltWXTOBÍ^flltf f f Ti T /_ fíí^t íHHOl/í
MORGUNBLAÐIÐ VtDSKO’l'lMVlNNUuF ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1992
31
Flugvélaframleiðsla
Daimler með meirihluta íFokker
Yfirvöld í Hollandi hafa samþykkt kaup Deutsche Aerospace AG,
dótturfyrirtækis Daimler-Benz AG, á 51% hlut í Fokker NV flug-
vélasmiðjunum hollenzku.
Fokker NV er vel stætt fyrir-
tæki, og er áætluð velta þess í ár
4,3 milljarðar gyllina, eða rúmlega
140 milljarðar króna. í fyrra nam
heildar hagnaður fyrirtækisins
87,4 milljónum gyllina, eða nærri
2,9 milljörðum króna. En fiugvéla-
smíði og hönnun nýrra gerða flug-
véla er kostnaðarsöm, og þessi
sala hlutabréfa ætti að tryggja
Fokker nauðsynlegt fjármagn auk
þess sem hún tryggir þúsundum
starfsmanna atvinnu í Hollandi.
Auk þess færa kaup Deutsche
Flugfélög
Taprekstur hjá Air
Lingus á sl. ári
ÍRSKA ríkisflugfélagið Air Lingus var rekið með tapi á síðasta
ári, og er það í fyrsta skipti í tíu ár sem tap er á rekstrinum.
Að sögn forsvarsmanna félags-
ins nemur tapið rúmum einum
milljarði ísl. kr., en árinu fyrr var
félagið rekið með hagnaði upp á
um 800 milljónir króna.
Ástæður taprekstrarins eru
fyrst og fremst erfitt efnahags-
ástand í heiminum en einnig hafa
verðstríð og ónýtt flutningsgeta á
nokkrum helstu áætlunarleiðum
félagsins sitt að segja. Forsvars-
menn félagsins segja engin merki
um batnandi afkomu vera í sjón-
máli, efnahagsástandið á helstu
mörkuðum þeirra sé enn í lægð.
Þetta er þriðja árið í röð sem
flugreksturinn sjálfur gengur illa,
en fyrri árin tvö hefur góð rekstr-
arniðurstaða á öðrum sviðum bætt
upp það tap. Flugreksturinn hefur
einkum gengið illa í Bretlandi og
Bandaríkjunum, en það eru mikil-
vægustu markaðir félagsins.
Fyrirtæki
Á sama tíma berast þær fréttir
úr höfuðstöðvum Coca-Cola Ent-
erprises Inc., stærsta áfyllingar-
fyrirtæki heimsins, að á síðasta
ársfjórðungi hafí hagnaður snarm-
innkað í kjölfar kaupanna á Jo-
hnston Coca-Cola. Bottling Group
Inc. um áramótin. Hagnaður móð-
urfélagsins Coca-Cola Co. óx hins-
vegar um 20% á öðrum ársfjórð-
ungi.
Forsvarmenn PepsiCo eru him-
inlifandi yfir niðustöðunum, eink-
um vegna þess að um er að ræða
jafnan og stöðugan vöxt á sölu
og hagnaði innan allra þriggja
megin framleiðslulína félagsins,
hvort heldur sem er innan Banda-
ríkjanna eða utan.
Aerospace á bréfunum Fokker nær
samstarfi þeirra þýzku, frönsku
og ítölsku fyrirtækja sem unnið
hafa saman að smíði Airbus-far-
þegaþotunnar og ætla að vinna
saman að smíði nýrra gerða af
farþegaþotum. Aðilar að þessu
samstarfi eru auk Deutsche Aero-
space, ítölsku flugvélasmiðjumar
Alenia og Aerospatiale SA í
Frakklandi. Alenia er dótturfýrir-
tæki ítölsku samsteypunnar
Finmeccanica SpA, sem átti fyrir
6,02% hlut í Fokker.
Deutsche Aerospace velti á síð-
asta ári 12,35 milljörðum marka
(um 457 milljörðum króna). Það á
fyrir meirihluta í Deutsche Airbus
GmbH, Messerschmitt-Bölkow-
Blohm GmbH og Dornier GmbH
flugvélasmiðjunum, auk þess sem
dótturfyrirtækið Motoren & Turb-
inen Union smíðar flugvélahreyfla.
Deutsche Aerospace er með
aðalstöðvar í Miinchen, og hafði
áður látið í ljós áhuga á að færa
út kvíamar í smíði farþegaflugvéla
til að mæta minnkandi efturspum
víða um heim eftir herflugvélum.
Kaupin á Fokker ættu að skila
árangri á því sviði.
E.J. Nederkoom, stjórnarfor-
maður Fokker NV, var einn hvata-
manna að sameiningunni við De-
utsche Aerospace, og því ánægður
með árangurinn. „Við misstum af
tækifærinu til að vera með í Air-
bus-samsteypunni. Við fengum
annað tækifæri með Deutsche
Aerospace, sem ætlar sér stórt
hlutverk í flugvélasmíði og það
gemm við einnig. En Hollendingar
geta hreinlega ekki gert þetta ein-
ir,“ sagði Nederkoom.
Heimild: Wall Street Journal.
Tölvunámskeið
20. ágúst-4. september
Windows 3.1 • PC grunnur
26.- 28. ágústkl. 9:00-12:00 eða
2. - 4. september kl. 16:00-19:00
•••
Macintosh fyrir byrjendur
Ritvinnsla, gagnasöfnun og stýrikeríi
20. ág - 3. sep. kl. 19:30-22:30 tvisvar í viku
eða 24.-28. ágústkl. 13:00-16:00
•••
QuarkXpress umbrot
31. ág. - 4. segríd. 16:00-19:00
Kennarabraut Macintosh
Frábært Macintoshnámskeið fyrir kennara
20. ág - 3. sep. kl. 19:30-22:30 tvisvar í viku
eða 24.-28. ágústkl. 13:00-16:00
•••
Word fyrir Windows g
24.- 28. agústkl. 16:00-19:00 %
••• r
Word 5.0 á Macintosh
24. - 28. ágúst kl. 16:00-19:00 eða
kvöldnámskeið mán og mið. 26. ág.-8. sep.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16 • stotnuó 1. mars 1986
Sími 68 80 90
Gottgengi PepsiCo
PEPSICO kynnti nýlega rekstrarniðustöður úr öðrum ársfjórð-
ungi. Tölurnar sýna mjög gott gengi félagsins á öllum sviðum.
Innan allra deilda félagsins hefur sala og hagnaður aukist um 10
til 20%, bæði í Bandaríkjunum og utan þeirra.
Verðbréfamarkaðir hafa tekið
tíðindunum vel og hefur verð á
hlutabréfum í PepsiCo hækkað all
nokkuð. Á sama tíma hafa stjóm-
endur Coca-Cola Co. ákveðið að
grípa til aðgerða vegna óvenju
- Iágs verðs hlutabréfa í félaginu
síðastliðna tvo mánuði. Stjórn fé-
lagsins hefur samþykkt að félagið
kaupi á næstu ámm mikið magn
eigin hlutabréfa á almennum
markaði. Sú ákvörðun þýðir að á
næstu áram verður talsverðum
hluta af hagnaði félagsins varið í
hlutabréfakaup. Engu að síður
telja sérfræðingar að á næstu fjór-
um áram muni félagið hafa yfir 3
milljarða dollara til ýmissa ann-
arra fjárfestinga.
SUZUKIVITARA
5 DYRA LÚXUSJEPPI
Suzuki Vitara er rúmgóður 5 manna lúxusjeppi, búinn öllum helstu þæg-
indum fólksbíls og kostum torfærubíls. Hann er grindarbyggður og má
auðveldlega hækka og setja undir hann stærri dekk. .Suzuki Vitara er
með 4ra strokka, 16 ventla vél með beinni innspýtingu.
SUZUKI
Verð frá kr. 1.576.000.-
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SlMI 68 51 OO
u.
aíSiSÍ®
N
Þol — þakmálning
Þekur, verndar og fegrar
Þarftu að mála þakið? Þá vantar þig Þol
þakmálningu frá Málningu hf. Hún er
sérstaklega framleidd fyrir bárujárn
og aðra utanhússfleti sem I-* "
þarfnast varanlegrar vamar.
Þol er hálfgljáandi alkýð-
málning sem er auðveld í
notkun. Þol þakmálningin dregur nafn af
einstöku veðrunarþoli sínu og litaúrvalið er
fjölbreytt. Þol þakmálningin frá
Málningu hf. er punktur-
inn yfir vel málað hús. -
Það segir sig sjálft.
Imálningbf
Næst þcgar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er — það segir sig sjálft —
+