Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992 ---------------------------—3—--------- Rúmlega 716 millj. í Ráðhúsið AÆTLAÐUR kostnaður á þessu ári vegna allra framkvæmda við Ráðhúsið er 716,6 milljónir. Þar af er kostnaður á árinu við ráð- húsbygginguna og bílakjallara áætlaður 485,8 milljónir, kostn- aður við húsgögn og búnað 180 milljónir, við Islandslíkan 35,8 milljónir og listskreytingu 14,7 milljónir. Þetta kemur fram í svari Stefáns Hermannsonar að- stoðarborgarverkfræðings við fyrirspurn borgarfulltrúa minni- hlutaflokkanna í borgarráði. I bókun Sigrúnar Magnúsdóttur, Framsóknarflokki, segir að kostn- aður við Ráðhúsið í ár verði 500 milljónir en í áætlun hafi verið gert ráð fyrir 300 milljónum í loka- frágang. „Síðast fengum við tölur í lok júlí sl., en frá þeim upplýsing- um hefur lokafrágangur hússins hækkað um 13 milljónir á þessum sex vikum.“ I svari aðstoðarborgarverkfræð- ings kemur fram að vonir hafi stað- ið til að uppgjöri yrði lokið 1. sept- ember en að það hafi dregist, „... þannig að ekki hafa verið bók- aðir lokareikningar vegna 10 verk- samninga, en þessari vinnu, þ.e. yfirferð á magnbreytingum, lo- kaútreikningi á verðbótum o.s.frv. er nú nýlokið. Tæknilegri lokaút- tekt er þó ólokið á einum verksamn- ingi og enn er unnið við listskreyt- ingu og einstaka viðbót við búnað hefur verið pöntuð.“ ------» ♦ ♦------- Lækkun slátur- og heildsölukostnaðar Vandi slát- urhúsanna tvöfaldur HREIÐAR Karlsson, formaður Landssamtaka sláturleyfishafa, segir að eftir 6-7% lækkun á slátur- og heildsölukostnaði hvíli í raun sá tvöfaldi vandi á slátur- húsunum að mæta auknum sparnaði og fækkun sauðfjár. Hann segist smeykur um að slíkt reynist einhveijum ofraun. „Sú staðreynd að sláturfé fækk- ar í landinu verður náttúrulega engan veginn til þess að kostnaður lækki við meðhöndlunina þannig að á afurðastöðvunum hvílir í raun sá tvöfaldi vandi núna að mæta sparnaðarkröfunni og hins vegar að mæta fækkuninni. Þetta út- heimtir þá líka að ef þjóðfélagið gerir þá kröfu á hendur þessum rekstri að hann nái auknum árangri og aukinni hagræðingu er það mjög brýnt og nauðsynlegt að þessi starfsemi hafi að minnsta kosti við- unandi rekstrarskilyrði. Með öðrum orðum að hún búi við þolanlegan orkukostnað, skattlagningu og annað slíkt,“ sagði Hreiðar. Hann talaði um miðlunarhlut- verk sláturhúsanna. „Verkefni þeirra er að koma þessari landbún- aðarframleiðslu á framfæri við neytendur og það er hlutverk sem maður telur að þurfi að sinna al- mennilega, bæði þurfa menn að gera það af myndarskap varðandi hreinlæti og vinnubrögð og eins þurfa menn að skila þessu með sem ódýrustum hætti til neytenda, þannig að full ástæða er til að sinna þessu af kostgæfni. Þess vegna er maður auðvitað smeykur um að svo hörð framleiðnikrafa geti reynst einhverjum ofraun við þessar að- stæður og þennan samdrátt sem er að verða,“ sagði hann. Iþróttadagar í Grandaskóla íþróttadagar voru nýlega haldnir í Grandaskóla við Keilugranda. Að sögn Bjarkar Ólafsdóttur kennara var hefð- bundið skólastarf fellt niður í tvo daga en dagarnir nýttir til íþrótta. Keppt var í stígvélak- asti, brennibolta og maraþon- hlaupi og hér er Björk með hóp nemenda í morgunleikfimi, sem allir nemendur skólans ásamt kennurum tóku þátt í. Morgunblaðið/Kristinn 30 - 40% AFSLÁTTUR! Gardena útsalan er í fullum gangi hjá Heimilistœkjum hf. að Sœtúni 8. Opið virka daga frá kl. 9 til 18. Laugardagfrá kl. 10 til 16 og sunnudag frá kl. 13 til 17. GARDENA - Garðáhöld - Heimilistæki hf SÆTÚNI8SÍMI691515

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.