Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992 Snyrtisérfrœðingur kynnirDior haustlitina ídagkl. 13-17. SAJÍVXA Revkjavíkurvegi 50, Hafnarfirði. Kjúklingar á kostaboöi Velkomin í kjúklingakrœsingamar okkar Fjölskyldupakki fyrir 5. 10 kjúklingabitar, franskar,sósa og salat Verð 1990 kr Athugiö aöeins 398 kr á mann Fjölskyldupakki fyrir 3. 6 kjúklingabitar,franskar,sósa og salat Verö 1290 kr. Pakki fyrir 1 2 kjúklingabitar,franskar,sósa og salat Verö 490 kr SVAKTA PAni>Ai> Hraðrét ta veit i ngastaður í hjarta bomarinnar o Sími 16480 Þú getur bæði tekið matinn með þér heim eða borðað hann á staðnum Aldraðir í Danmörku eftir Gyðu Jóhannsdóttur Danir geta hælt sér af stöðug- leika í efnahagslífi, lágri verðbólgu, hagstæðum greiðslujöfnuði og miklum hagvexti. Þeir eru efstir á lista hjá OECD, sem hefur nýlega birt horfur í efnahagsmálum nokk- urra ríkja, en þar er ísland neðst á blaði. Danir berjast við mikið at- vinnuleysi og þurfa að standa straum af háum greiðslum í at- vinnuleysisbætur. Þrátt fyrir það hefur þeim tekist að halda uppi við- unandi velferðarkerfi og vel skipu- lagðri félagslegri þjónustu, a.m.k. hvað snertir þjónustu við aldraða. Eg fór til Danmerkur í sumar o g skoðaði öldrunarstofnanir í Kaupmannahöfn og Óðinsvéum. í Óðinsvéum, þriðju stærstu borg Danmerkur með 180.000.00 íbúa, stóð yfir norræn ráðstefna í öldrun- arfræðum og meðal þátttakenda voru nokkrir frá íslandi. Eg tók þátt í skoðunarferðum sem ráðstefnugestum var boðið í, til þess að sjá með eigin augum hvernig búið væri að öldruðum þar í borg, og kynntist ýmsu fróðlegu í því sambandi. Þjónustan má ekki draga úr fólki Á síðastliðnum árum hafa Danir unnið markvisst að því að minnka stofnanabrag á umönnunarheimil- um aldraðra og leggja nú mikla áherslu á að fá fólk til þess að gera sem mest sjálft. Þeir hafa komið á móts við nýja kynslóð aldr- aðra, sem gerir aðrar kröfur til þjónustunnar en áður þekktist. „Plejehjem" eða hjúkrunarheimili er nú kallað „Omsorgscenter“, eða umönnunarmiðstöð, þar sem öll þjónusta er fyrir hendi, en fólki gefinn kostur á að velja og hafna. Með því að viðhalda löngun aldr- aðra til athafna er unnt að koma i veg fyrir ótímabæra rúmlegu og draga um leið úr kostnaði í kerfinu. í einu minnsta sveitarfélagi Dan- merkur, Skævinge, var árið 1986 gerð tilraun með að greiða vist- mönnum á öldrunarheimili lífeyrinn beint, og láta þá sjá sjálfa um út- gjaldahliðina, líkt og hjá þeim sem búa á eigin heimilum. Þá kom ýmis- legt athyglisvert í ljós. Þegar karl einn, sem fékk rakstur tvisvar í viku, átti að fara að greiða sjálfur fyrir raksturinn, lýsti hann því yfir að hann gæti vel gert þetta sjálfur. Þeir sem höfðu ekki fríkort á lyf urðu allt í einu mjög áhugasamir um að vita hvaða lyf þeir fengju og hvort þeir gætu verið án þeirra. Mér varð hugsað til þess er ég fór í heimsókn til aldraðrar vinkonu minnar á Droplaugarstöðum fyrir nokkrum árum. Tvær starfsstúlkur voru að enda við að klæða hana og snyrta. Þegar þær voru farnar út spurði ég undrandi: „Hvað, ertu hætt að klæða þig sjálf?“ Hún brosti við hálfafsakandi. „Það er nóg af fólki héma til að þjónusta mann og svo fæ ég líka félagsskap út úr þessu," og bætti svo við: „en mér finnst óþarfi að láta færa mér kaffi að kvöldinu og brauð með“. Hún hafði eldunaraðstöðu og eldhús- skápa sem höfðu að geyma kaffi, kex og annað góðgæti. Starfsreglur þurfa að vera sveigjanlegar Hjúkrunarheimilin hafa fremur einkennst af því að vera vinnu- staður starfsfólks með fastmótaðar starfsreglur, sem miða að því að Gyða Jóhannsdóttir „Þetta nána samstarf stjórnvalda í Óðinsvé- um við eldri borgara, um þau mál sem fyrst og fremst snerta þá sjálfa, hefur skilað þeim árangri að óvíða er uppbygging öldrun- arþjónustu, sem er skipulögð mörg ár fram í tímann, betri en þar.“ ná endum saman í önnum dagsins. Á sumum umönnunarheimilum eru vinnureglur starfsfólks og vinnuskipting ekki til þess fallnar að létta gömlu fólki baráttuna við erfiða öldrunarsjúkdóma. Hjúkrunarkonu á öldrunarheimili í Danmörku, sem var að gefa eldri manni sprautu á herbergi hans, varð það á að koma við blómavasa á náttborðinu. Vasinn fór á hliðina og vatnið rann yfír borðplötuna og niður í náttborðsskúffuna. Gamli maðurinn hafði ekki mikið í kring um sig af veraldlegum munum, en í náttborðsskúffunni geymdi hann fjölskyldumyndir sem honum var mjög annt um. Hjúkrunarkonan hringdi bjöllunni og sjúkraliði kom og þurrkaði vatnið af náttborðinu, en það var ekki í hennar verkahring að gera skúffuna hreina. Til þess þurfti að bjalla á ræsti- tækninn, sem ekki gat komið fyrr en að 20 mínútum liðnum. Þegar hann kom á vettvang var dýrmæt- asta eign gamla mannsins, fjöl- skyldumyndimar, ónýt. Þeim sem eru rúmliggjandi hefur stundum reynst erfítt að halda í sér þvaginu þangað til sá tími var kominn að „bekken“ skyldu borin fram, þar sem ætlast er til þess að allir kasti af sér þvagi á sama tíma. Þessu hafa Danir reynt að ráða bót á og þar sem allir starfsmenn á sömu stofnun heyra undir einn stjórnanda hefur það tekist. Öldrunarþjónusta í samvinnu við eldri borgara Það er vitað að fjöldi eftirlauna- fólks býr yfír starfsorku, mikilli reynslu á ýmsum sviðum og löngun til athafna. í hveiju af hinum 19 borgarhverfum Óðinsvéa (subdistr- icts), eru starfandi samstarfsnefnd- ir skipaðar eldri borgurum, sem vinna hver í sínu hverfí að félags- legu samstarfi. Vinnuhópar með þátttöku fulltrúa frá heilbrigðis- kerfinu, ræstingafólki, heimilis- hjálp, vistmönnum á öldrunarstofn- unum og öldruðum sem búa í heimahúsum, inna af hendi nauð- synlega undirbúningsvinnu og gera tillögur sem lagðar eru til grund- vallar þegar öldrunarstofnanir eru hannaðar og starfsemi þar skipu- lögð. Þetta nána samstarf stjórnvalda í Óðinsvéum við eldri borgara, um þau mál sem fyrst og fremst snerta þá sjálfa, hefur skilað þeim árangri að óvíða er uppbygging öldrunar- þjónustu, sem er skipulögð mörg ár fram í tímann, betri en þar. Bið eftir vistrými er um það bil eitt ár. Aldraðir í Óðinsvéum reka 25 þjónustumiðstöðvar, útvarps- og sjónvarpsstöð og marga klúbba. Félögin fá úthlutað vissri fjárhæð til starfseminnar og eru stjórnir þeirra ábyrgar fyrir rekstrinum. Þær verða að leggja árlega fram reikninga sem sýna hvernig því fé hefur verið varið sem þær hafa fengið til ráðstöfunar. í tímaritinu „Venlig hilsen“, sem gefið er út af eldri borgurum, eru birtar upplýs- ingar um lög, reglur og rétt aldr- aðra í Óðinsvéum, auk greina, gagnrýni og bréfa frá lesendum. Þjónustustofnanir fyrir aldraða Náin samvinna stjórnvalda við aldraða hefur skilað góðum árangri í öldrunarþjónustu víðar en í Oð- insvéum. EGV (Ensomme Gamles Værn) var stofnað 1910 af áhugasömum sjálfboðaliðum. Þetta er nú sjálfs- eignarstofnun, umfangsmikið fyrir- tæki, og í dag rekur Senior Tjenest- en as. 85 þjónustustofnanir fyrir aldraða víðsvegar í Danmörku. Af þeim eru 30 stórar umönnunarmið- stöðvar með „kollektiv“húsum, vernduðum íbúðum, hjúkrunar- deildum, dagheimilum og dagvist. Fjárhagur stofnunarinnar byggist á stuðningi frá mörgum; framlagi frá fyrirtækjum, góðgerðarstofnunum, gjöfum frá einstaklingum, ánöfnun Ijár við dauðsföll og framlögum frá sveitarfélögunum. EGV eða Senior Tjenesten as., sem byggir á 80 ára reynslu, hefur á að skipa sérfræðingum á öllum sviðum öldrunarþjónustu, þ.e. upp- byggingu þjónustumiðstöðva, teikningum á húsnæði, skipulagn- ingu og stjórnun. Þeir auglýsa þjón- ustu sína innan lands og utan og veita ráðgjöf til margra landa. I stjórn EGV, sem er ólaunuð, eru aðilar frá sveitarfélaginu og sjálfs- eignarstofnuninni. Áður en ég fór að heiman hafði ég gengið frá því skriflega að fá að skoða og kynna mér rekstur á Rosengárd, sem er ein af nýjustu þjónustustofnunum sem EGV hefur komið á fót, og átti að mæta tiltek- inn dag hjá forstöðukonunni, Anne- Grethe Sörensen. Ég bauð Maríu Gísladóttur hjúkrunarforstjóra í Seljahlíð að koma með, en hún var á öldrunarráðstefnunni í Óðinsvé- um. Þegar við komum inn í aðal- bygginguna kom á móti okkur ung og glaðleg kona, klædd stuttu bláu kakípilsi og bómullarblússu með uppbretttum ermum og reyndist það vera forstöðukonan. Hún sýndi okkur síðan þetta umfangsmikla „Omsorgscenter“ fyrir aldraða sem var tekið í notkun árið 1980. Á Rosengárd er öll umönnun í þeirri röð sem með þarf þegar eldra fólk er ekki lengur fært um að halda heimili sjálft. Út frá aðalbyggingunni eru 100 lítil raðhús, 59 til 75 fm að stærð. Ferðamálaskóli Islands Höfðabakka 9, Reykjavík. Sími 671466. Starfsnóm fyrir þó, sem starfa vilja viö ferðaþjónustu. Nóm, sem er viðurkennt af Félagi isl. ferðoskrifstofa. Alþjóðleg próf og réttindi (IATA). Ath.: Fjöldi nemenda við skólann takmarkaður. i M C ( » 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.