Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992 Landskeppni í torfæru „Svíamir verða teknir í karphúsið“ Islensku keppendurnir hyggjast hefna ófaranna frá í vor Lokaslagurinn um íslands- meistaratitilinn í torfæru verður um næstu helgi og af því tilefni verður mikið um að vera hjá kepp- endum dagana 18.-20. septem- ber. Keppendur eru frá 16 stöðum á landinu, flestir frá Egilsstöðum, eða fjórir sem allir eru í toppslagn- um. Torfæra tímaritsins 3T og Hreysti verður stærsta keppni ársins og stendur í tvo daga, en hún er skipulögð af Jeppaklúbbi Reylqavíkur og gildir bæði til ís- lands- og bikarmeistara, auk þess að vera landskeppni milli íslands og Svíþjóðar. Keppnin er haldin í Jósepsdal, á tveimur mismunandi svæðum, sinn hvom daginn. Frá Svíþjóð koma Lars Jonson og Henrik Vesa, en annar þeirra keppti hér í vor þegar sænskur jeppi lagði íslensku keppenduma að velli. Sá jeppi verður nú í hönd- um Lars Jonsson sem er einn þriggja sem rekur keppnistækið, sem vakti mikla athygli í vor. „Stefnan er að sigra að nýju, þó við gemm okkur grein fyrir því að íslensku ökumönnunum hefur vaxið ásmegin í mótum ársins. Það er gaman að keppa á ís- landi, en brautimar vom þó gróf- ar í vor, en verða mun betri núna hef ég heyrt,“ sagði Bo Ame, sem leiðir sænska hópinn. Keppt verður á tveimur svæð- um, sinn hvorn daginn. Á laugar- dag verður forkeppni, þar sem 12 bestu sérútbúnu jepparnir komast áfram, en úrslit í meistaramótun- um munu ráðast í flokki götu- jeppa. Á sunnudag verður aðal- keppnin í flokki sérútbúinna jeppa og verður þá flokkur fyrir götu- jeppa á skófludekkjum ekinn, en nýtt svæði verður þá tekið í notk- un í Jósepsdal. „Við verðum með nýjar tegundir af þrautum og nýtt kepprtisfyrirkomulag sem á að skila áhorfendum skemmtilegri áhorfun. Þrautirnar verða mun líflegri en í vor og að sama skapi lengri fyrir keppendur. Þá er öflugasta hátalarakerfi landsins til staðar, svo áhorfendur geti fylgst með framgangi mála, en Jón Axel og Gunnlaugur Helgason verða kynnar keppninnar. Þetta verður fjölmennasta keppni árs- ins, en rúmlega 30 keppendur eru skráðir," sagði Gunnar Ólafsson keppnisstjóri. Slagurinn um meistaratitilinn í sérútbúna flokknum er mjög jafn, en fjórir eiga möguleika á titlin- um, Sigþór Halldórsson, sem vann síðustu keppni, Gísli G. Jónsson, Magnús Bergsson og Stefán Sig- urðsson. Aðeins eitt stig skilur þá Magnús og Stefán að, en falli Sigurjeppinn frá Svíþjóð, sem vann Landskeppni íslands og Svíþjóðar í vor. Þessi jeppi er aftur með og nú undir stjóm Lars Jonson. í vor fylgdust 6.000 manns með keppninni! flokki götujeppa Þorsteinn Ein- arsson, Ragnar Skúlason og Rögnvaldur Ragnarsson. Fremstu keppendurnir ásamt meisturum í ýmsum akstursíþróttum verða kynntir á sérstakri sýningu hjá Bílabúð Benna milli kl. 16 og 18 á föstudag, en síðan fer fram skoðun á keppnistækjunum við Póla, en eftir það verða einhveijir keppendur í miðbænum. „Ég hef grun um að Stefán verði meist- ari, Magnús keppir meira fyrir skemmtunina, en Stefán er í víga- hug. Magnús þarf meiri heppni með sér og er á góðu tæki, hann ætti að hafa þetta ef að líkum lætur. Mig langar að klára mótið með glæsibrag og vinna. Svíarnir verða teknir í karphúsið, þeir mega ekki vinna aftur, það er alveg ljóst,“ sagði Helgi Schiöth, einn íslensku keppendanna í sér- útbúna flokknum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Selfyssingurinn Magnús Bergsson leiðir meistarakeppnina í sérút- búna flokknum, en hann er aðeins einu stigi á undan Stefáni Sig- urðssyni frá Egilsstöðum. þeir úr leik eiga hinir tveir mögu- leika á titlinum. Mikil keppni er einnig um bikarmeistaratitilinn, í sérútbúna flokknum eiga Þórir Schiöth, Helgi Schiöth og Stefán Sigurðsson allir möguleika og í Vetrarstarf skákmanna byrjaði með hvelli Skák Margeir Pétursson EINVÍGI Fischers og Spasskis í Sveti Stefan varð til þess að skákmenn tóku mun fyrr við sér í haust en oft áður. Húsfyll- ir varð hjá Skáksambandinu og Taflfélagi Reykjavíkur þeg- ar Fischer lék fyrstu leikina eftir 20 ára hlé. Eftir heims- meistaraeinvígið í Laugardals- höll árið 1972 sprengdu næstu skákmót alla sali utan af sér. Nú verður fróðlegt að sjá hvað gerist þegar Haustmót Taflfé- lags Reykjavíkur hefst á sunnudaginn. Níunda skák Fischers og Spasskís er tefld í dag og verður hægt að fylgj- ast með henni í húsakynnum skákmanna í Faxafeni 12 frá kl. 16. Vissir þú þetta um Bobby Fischer? Fischer fékk fyrst skákstig þeg- ar hann var tólf ára gamall eftir meistaramót bandarískra áhuga- manna árið 1955. Það voru 1.830 stig. Aðeins tveimur og hálfu ári síðar varð hann Bandaríkjameist- ari. Bobby Fischer ritaði á sjöunda áratugnum þætti um skák í banda- ríska skátablaðið „Boys Life“. Um sama leyti kom hann einnig fram í auglýsingu á vegum fyrirtækisins Xerox, sem þekktast er fyrir að framleiða ljósritunarvélar. Rétt fyrir 1960 var orðið ljóst að Bobby Fischer ætti mikla fram- tíð fyrir sér sem skákmeistari, en jafnframt að pilturinn ætti við sál- ræn vandamál að stríða. Nokkrir vinir og velunnarar hans hittust í Marshall-skákklúbbnum í New York og ræddu það hvernig hjálpa mætti Fischer að ráða bót á vanda hans. Einhver stakk upp á því að fá hann til að leita til sálfræðings og upphófst lífleg umræða um það hvem hann ætti að hitta og hvern- ig meðferðin yrði greidd. Þá spurði einhver fundarmanna þessarar saklausu spumingar: „En hvað ef Bobby batnar og hann ákveður síðan að hætta að tefla?" Það sló þögn á hópinn, fundurinn varð ekki lengri og málefnið var aldrei rætt aftur í hópnum. (Heim- ild: Andrew Soltis, bandarískur stórmeistari og greinarhöfundur í bókinni: „Karl Marx plays chess and other reports on the worlds oldest game“, útg. 1991.) Þrátt fyrir frétt Reuters-frétta- stofunnar um að Bobby Fischer hafi aðeins borðað eina máltíð á dag og verið grannur í vexti 20 árin sem hann hélt sig frá sviðsljós- inu hefur skákþáttur Mbl. öruggar heimildir fyrir því að Fischer hefur síðasta árið létt sig um 10 kíló og er þó alls ekkert renglulegur. Bobby Fischer hefur afskaplega góða matarlyst og fer létt með að hesthúsa tíu eggja árbít. Eins og sönnum Bandaríkjamanni sæmir er nautasteik hans uppáhaldsmat- ur og hann lætur sér stundum ekki nægja eina slíka. Maðurinn býr líka yfír gífurlegri orku, hann er þaulsætnastur allra stórmeistara við æfingar og þótt skákir hans við Spasskí í Sveti Stefan hafí staðið allt að sjö klukkustundum stendur hann varla upp frá borðinu. Árin sem Fischer fór huldu höfði fékk orka hans útrás í ígrundun ýmiss konar samsæriskenninga. Nú hefur kappinn hafíð tafl- mennsku að nýju, á í sambandi við unga stúlku og stundar heilbrigða Iifnaðarhætti. Batnandi manni er best að lifa. Skákunnendur er þeg- ar farið að dreyma um einvígi Fisc- hers við Short, Timman, Karpov eða jafnvel Kasparov. Fullyrðingar Kasparovs um Fischer „Fischer er ruglaður," lét heims- meistarinn í skák, Gary Kasparov, m.a. hafa eftir sér í síðustu viku í samtali við franska útvarpsstöð um einvígi Fischers og Spasskís. Hann var greinilega lítt hrifínn. Meðal þess sem Kasparov sagði var að taflmennska þeirra væri gamaldags og gengi ekki upp í dag. Kasparov benti á að Fiseher hefði aðeins teflt við þijá af þeim sem nú eru á meðal 100 snjöllustu skákmanna heims í dag. Það þarf þó ekki annað en að taka sér nýjasta stigalista FIDE og safn allra skáka Bobby Fisc- hers í hönd til að sjá að þessi full- yrðing heimsmeistarans er í meira lagi hæpin. Fischer hefur teflt við tíu skákmenn af þeim hundrað stigahæstu, þá Polugajevskí, Hiibner, Mecking, Andersson, Portisch, Kortsnoj, Tukmakov, Larsen, Hort og Spasskí. Þetta verður að teljast nokkuð eðlilegt hlutfall þegar það er haft í huga að fjórir meistarar á þessum lista voru ekki fæddir þegar Fischer settist í helgan stein árið 1972, margir í vöggu og meira en helm- ingur aðeins tólf ára eða yngri. Fiseher átti þess heldur ekki kost að tefla nema við lítinn hluta fremstu sovésku meistaranna, því þeir höfðu ekki ferðafrelsi eins og nú. Landsbanka-Visa atskákmótið Undanrásir íslandsmótsins í at- skák fóru fram fyrstu helgina í september. Mótið var vel sótt, þátt- SNILLINGUR OG SERVITRINGUR Bobby Fischer að tefla við Spasskí í Reylgavík 1972 og 20 árum síðar í Svartfjallalandi 1992. takendur í Reykjavík voru 56 tals- ins. Úrslit urðu þessi: 1. Hannes Hlífar Stefánsson 7'/2 v. af 9 mögulegum. 2. Áskell Öm Kárason, 7 v. 3. -6. Helgi Áss Grétarsson, Hrannar Baldursson, Arnar Þor- steinsson og Ágúst S. Karlsson 6 Vi v. 7.—11. Bragi Halldórsson, Dav- íð Ólafsson, Tómas Björnsson, Þröstur Þórhallsson og Ásgeir Þór Ámason 6 v. Þar sem Hannes á sæti í úrslit- unum á stigum komust þeir Áskell, Helgi Áss, Hrannar, Arnar, Ágúst og Bragi Halldórsson áfram. Úrslit í riðlinum á Akureyri: 1. Gylfí Þórhallsson 6 v. af 6 mögulegum. 2. Siguijón Sigurbjörnsson 4 v. 3. -4. Rúnar Sigurpálsson og Ólafur Krístjánsson 3 V2 v. 5. Þór Valtýsson 3 v. o.s.frv. Gylfi og Siguijón tryggðu sér sæti í úrslitum. Haustmót TR að hefjast Haustmót Taflfélags Reykjavík- ur hefst sunnudaginn 20. sept- ember nk. kl. 14. I aðalkeppninni verður keppendum raðað í flokka með hliðsjón af Elo-skákstigum. Tefldar verða ellefu umferðir í öll- um flokkum. Umhugsunartími er ein og hálf klukkustund á 36 Ieiki og síðan 45 mínútur til að ljúka skákinni. í efri flokkunum verða tólf manna riðlar, en neðsti flokk- urinn er opinn öllum og er þar teflt eftir Monrad-kerfí. Umferðir verða að jafnaði þrisvar í viku, á sunnudögum kl. 14, miðvikudög- um og föstudögum kl. 19.30. Loka- skráning verður laugardaginn 19. september kl. 14-22 í símum 681690 og 813540. Veitt verða peningaverðlaun í efsta flokki, 65 þús. kr., 35 þús. kr. og 20 þús. kr., en sigurvegarinn öðlast að auki sæmdarheitið „Skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur 1992“. Keppni í unglingaflokki á haust- mótinu hefst laugardaginn 26. september kl. 14. Keppnin tekur þijá laugardaga. Tefldar verða níu umferðir eftir Monrad-kerfi. Um- hugsunartími er 40 mín. á skák.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.