Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992 29 I I '■) í Fyrstu umræðum um stjómarskrár- breytingar og þjóðaratkvæði iokið Stjórnarandstaðan kveðst vilja eyða öllum lögfræðilegum vafa um hvort EES-samningurinn standist gagnvart stjórnarskrá. Því voru lögð fram tvö frumvörp um breytingar á stjórnarskrá. Ennfremur var lögð fram þingsályktunartilllaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um EES. 1. uraræðu um breytingar á 21. grein stjórnarskrárinnar lauk í fyrri viku. í gær var 1. umræða um aðra stjórnarskrárbreytingu sem miðar að því að auðvelda þjóðaratkvæðagreiðslu og einnig var 1. umræða um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæði vegna EES. Ragnar Arnalds (Ab-Nv), for- maður þingflokks Alþýðubanda- lagsins, mælti í gær fyrir frumvarpi stjórnarandstöðunnar um stjómar- skrárbreytingar þess efnis að bæta við nýrri grein í stjómarskrá lýð- veldisins, þess efnis að þriðjungur þingmanna geti krafist þess að samningur sem væri samþykktur á Alþingi samkvæmt 21. grein stjóm- arskrárinnar skyldi borinn undir þjóðaratkvæði. Skulu niðurstöður þessarar atkvæðagreiðslu vera bindandi. Einnig gerir fmmvarpið ráð fyrir að þriðjungur þingmanna geti kraf- ist þess að lagafrumvörp og þings- ályktanir verði bornar undir þjóðar- atkvæði áður en það hlýtur fullnað- arafgreiðslu. Framsögumaður minnti á að stjómarandstaðan hefði lagt fram annað stjórnlagafmmvarp sem ger- ir ráð fyrir að útvíkka 21 gr. stjóm- arskrárinnar þannig að 3A meiri- hluta þarf til að samþykkja samn- inga sem fela í sér kvaðir á landi eða á hvers konar fullveldisrétti í íslenskri lögsögu, eða framsal ein- hvers hluta ríkisvalds til fjölþjóð- legrar stofnunar eða samtaka. Vegna EES Þingflokksformaður Alþýðu- bandalagsmanna dró enga dul á að tilefni beggja þessara frumvarpa væri samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði, EES. Hann taldi að sá samningur fæli í sér fullveldis- afsal og um hann væm mjög skipt- ar skoðanir meðal þjóðarinnar og væri brýnt að þjóðin fengi að segja álit sitt á slíkum samningi sem og í öðrum málum. Stjómarandstaðan flytur einnig sérstaka þingsályktun- artillögu um þjóðaratkvæði um EES-samninginn. Ragnar vísaði þeirri gagnrýni á bug að einhveijir meinbugir væm á þessum málatil- búnaði stjómarandstöðunnar. Sér- staklega þeirri gagnrýni að stjórn- arandstæðingar væru að auðvelda eða greiða fyrir fullveldisafsali. Samþykkt beggja stjórnlagafmm- varpa stjórnarandstöðu myndi leiða til Alþingiskosninga og eftir þær þyrfti % meirihluta til að sam- þykkja samning á borð við EES. Lögfræði en ekki pólitík Ragnar vildi leggja áherslu á að þær deilur sem uppi hefðu verið um hvort EES-samningurinn stæðist gagnvart stjórnarskránni væru lög- fræðilegar en ekki pólitískar. Þessi lögfræðilegu álitamál settu ríkis- stjóm og Alþingi í vanda. Hann hafði vænst þess að menn væru því fylgjandi að taka af allan vafa og breyta þá stjómarskránni. En Dav- íð Oddsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson hefðu tekið annan kost. Þeir höfnuðu stjórnar- skrárbreytingum og þjóðarat- kvæðagreiðslu. Þeir héldu því fram að í EES-samningnum fælist ekki valdaframsal. Ræðumaður taldi að þessi afstaða ætti sér ekki einu sinni stoð í áliti svonefndrar fjögurra manna nefndar sem utanríkisráð- AtÞMGI Atkvæðagreiðsla um bráðabirgðalögin Sex þingmenn stj ómarandstöð- unnar á móti en tíu sátu hjá TIU þingmenn stjórnarandstöðunnar sátu hjá við atkvæðagreiðslu eftir aðra umræðu um frumvarp til staðfestingar á bráðabirgðalögnn- um um Kjaradóm í gærkvöldi en sex stjórnarandstöðuþingmenn greiddu atkvæði á móti frumvarpinu. Voru það allar þingkonur Kvennalistans, Guðrún Helgadóttir Alþýðubandalagi og framsóknar- þingmennirnir Ólafur Þ. Þórðarson og Sefán Guðmundsson. Allir viðstaddir þingmenn stjórnarinnar og Margrét Frímannsdóttir, al- þýðubandalagi, greiddu frumvarpinu atkvæði sitt. Því var vísað til þriðju umræðu með 28 atkvæðum stjórnarþingmanna. Alls voru 19 þingmenn fjarverandi við atkvæðagreiðsluna. Frumvarpið til staðfestingar á bráðabirgðalögunum kom úr efna- hags- og viðskiptanefnd til annarar umræðu á Alþingi í gær. Meirihluti nefndarinnar, þingmennirnir Vil- hjálmur Egilsson formaður, Rann- veig Guðmundsdóttir, Ingi Björn Albertsson, Guðjón Guðmundsson og Björn Bjarnason mæltu með samþykkt frumvarpsins { áliti sínu. Fulltrúar stjórnarandstöðuflokk- anna skiluðu tveimur nefndarálitum Halldór Ásgrímsson og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fulltrúar Fram- sóknarflokksins og Steingrímur J. Sigfússon Alþýðubandalagi gagn- rýndu ríkisstjórnina í áliti sínu fyrir að hafa ekki kallað Alþingi saman í sumar til að fjalla um úrskurð Kjaradóms í í stað þess að grípa til bráðabirðgalagavaldsins og lýsa þingmennimir því yfir að þeir geti ekki staðið að afgreiðslu bráða- birgðalaganna og hafí því ákveðið að sitja hjá við afgreiðslu málsins. Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona Kvennalistans, skilaði öðra áliti. Þar segir m.a. að bráðabirgðalögin hafí gefið Kjaradómi næstum því mán- aðarfrest til að kveða upp nýjan dóm og þeir sem heyri undir dóminn hafí fengið laun samkvæmt fyrri niðurstöðu dómsins í einn mánuð. Þetta tvennt bendi ekki til að mjög brýnt hafi verið að nota þann neyð- arrétt sem 28. grein stjórnarskrár feli I sér. Gagnrýndi þingkonan einnig innihald bráðabirgðalaganna og lýsti því að þingkonur Kvenna- listans hefðu ákveðið að greiða at- kvæði gegn framvarpinu. herra skipaði. Hann vitnaði til þess á áliti þessarar nefndar stæði m.a: „... við teljum að reglurnar um vald stofnana EFTA séu vel af- markaðar og feli ekki í sér veralegt valdaframsal sem talið verði íþyng- andi í ríkum mæli.“ Ekki ráðgefandi þj óðaratkvæðagreiðslur Davíð Oddsson forsætisráðherra taldi að umræður um mál þessi öll hefðu víxlast nokkuð og menn nauðugir viljugir talað „þvers og krass“. Hann kenndi sérkennilegum málatilbúnaði og málflutningi stjómarandstöðunnar um þessi bágindi. Fyrra framvarp stjórnar- andstöðunnar miðaði að því að auð- velda afsal á fullveldisrétti og svo væri flutt annað framvarp til að setja undir lekann, þ.e.a.s. þriðjung- ur þingmanna gæti krafist þjóðar- atkvæðis um fullveldisafsalið. Mála- tilbúnaður stjómarandstæðinga væri „stórkostlegt klúður“. Honum var það harmsefni að stjórnarand- stæðingar gætu ekki umgengist stjórnarskána af meiri virðingu en þessi vinnubrögð vitnuðu um. Davíð Oddsson forsætisráðherra benti á að framvarpið gerði ráð fyrir stórkostlegum breytingum á íslenskri stjómskipan hvað varðaði þjóðaratkvæði. Forsætisráðherra taldi það í sjálfu sér ekki muna miklu hvort niðurstöður þjóðarat- kvæðis væru bindandi eður ei, ef menn á annað borð vildu koma á slíku kerfi. Hann taldi ólíklegt að Alþingi myndi ekki virða niðurstöð- ur þjóðaratkvæðis þótt niðurstaða væri einungis ráðgefandi að formi til. Forsætisráðherra sagði það sína skoðun að allar slíkar þjóðarat- kvæðagreiðslur ættu að vera bind- andi. Forsætisráðherra sagði eðlilegt að greiða þjóðaratkvæði um mál sem fælu bersýnilega í sér breyt- ingu á fullveldisstöðu okkar, t.d. ef við gengjum inn í Evrópubanda- lagið. Hins vegar væri EES-samn- ingurinn ekki þess eðlis. Þar væri ekki í neinum skilningi um að ræða fullveldisafsal. Hann benti og á að við síðustu kosningar hefði verið vitað að fjórir stærstu stjómmála- flokkarnir stæðu að málinu, meira eða minna. Öll meginmálin og meg- insjónarmið hefðu legið fyrir. Ef Hæstiréttur dæmir Forsætiráðherra þótti ekki mikið til um ótta stjórnarandstæðinga um að þingmenn væra hugsanlega að bijóta sitt drengskaparheit með samþykkt EES koma; að Hæstirétt- ur dæmdi að einhver tiltekin atriði stæðust ekki gagnvart stjórnarskrá. Það hefði komið fyrir að Hæstirétt- ur hefði úrskurðað að tiltekin atriði í lögum stæðust ekki stjórnarskrá. Engum hefði samt til hugar komið að halda því fram að þeir þingmenn sem hefðu samþykkt þau lög hefðu rofíð sinn eið eða drengskaparheit. Ef svo ólíklega vildi til að Hæstirétt- ur úrskurðaði að eitthvert atriði stæðist ekki gagnvart stjómar- skránni væri ekki hægt að halda því fram með neinum rökum að allur samningurinn „væri uppi loft“. Að sjálfsögðu gilti sá íslenski dóm- ur og yrðu menn að ræða hvort menn ætluðu að breyta stjórnarskrá eða samningnum hvað varðaði þessi hugsanlegu tilvik. En það væri reg- infírra að halda því fram að samn- ingurinn væri á bak og burt. 1. umræðu um þetta tiltekna þingmál varð lokið og var þings- ályktunartillaga stjómarandstæð- inga um þjóðaratkvæði tekin til umræðu. Framsögumaður fyrir því máli var Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir (Sk-Rv). Umræðan um þjóðarat- kvæðið var um margt lík þeirri umræðu sem fram hefur farið um EES-samninginn og stjómlaga- framvörp stjómarandstöðu. Þing- menn deildu hart um hvort öll meg- inatriði hefðu verið ljós fyrir síðustu kosningar og um afstöðu flokkanna og einstakra þingmanna til samn- ingsins þá. Það tókst að ljúka fyrstu umræðu um þetta mál. ------».» «----- Jöfnunartolla á skipasmíðaverk- efni erlendis ÞRÍR þingmenn Alþýðubanda- lagsins, Jóhann Ársælsson, Hjör- leifur Guttormsson og Stein- grimur J. Sigfússon, hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi um að fjármálaráðherra verði falið að gefa svo fljótt sem auðið er út reglugerð um jöfnun- artoll á skipasmíðaverkefni sem framkvæmd eru erlendis fyrir íslendinga. í þingsályktunartillögunni segja flutningsmenn m.a. að í skipasmíð- um og þjónustu við útgerðaraðila séu fólgin ein stærstu iðnaðartæki- færi á heimamarkaði sem íslending- ar eigi. Skipasmíðar hér á landi hafí átt undir högg að sækja undan- farin ár. Ástæðurnar séu ekki verk- efnaleysi í þjónustu við útgerðina en erlendir aðilar hafi í krafti niður- greiðslna og ívilnana frá viðkom- andi stjórnvöldum getað boðið lægra verð og ekki sé fyrirsjáanleg breyting á opinberum stuðningi við skipasmíðar í helstu samkeppnis- löndum á næstunni. Atriði úr Kaliforníumanninum. Saga-bíó sýnir Kalifomíumanninn SAGA-BÍÓ forsýnir í kvöld, föstudagskvöld, myndina Kali- forníumanninn (California Man). Myndin er framleidd af Les May- field og George Zaloom. Leik- sljóri er Les Mayfield. í aðalhlut- j verkum eru Pauly Shore og Sean Astin. „Hér er á ferðinni grínmynd er segir frá ungum menntaskólanem- um er fínna frosinn steinaldarmann í húsgarði annars þeirra. Þeir | ákveða að slá í gegn og afráða að afþýða fundinn og taka hann með í skólann. Tímarnir hafa aðeins breyst síðan á steinöld og úr verða ýmis skondin atvik. PET-mótið á Sauðárkróki Síðasta opna golfmót- ið í sumar um helgina Saudárkróki. HIÐ ÁRLEGA haustmót Golf- klúbbs Sauðárkróks verður haldið á golfvelli félagsins við Hlíðarenda laugardaginn 19. september. þátttöku á síðasta opna golfmóti sumarsins. Skráning til keppninnar fer fram í dag, föstudag, kl. 17-19. - BB. Háskólabíó Lou Phillips og Kiefer Sutherland. Hefndarþorsti frumsýndur Leiknar verða 18 holur í flokk- um kvenna, karla og unglinga, með og án forgjafar. Stuðningsaðili mótsins er PET, nýlega stofnuð heildverslun í eigu Erlings Arnar Péturssonar kaup- manns á Sauðárkróki og Péturs Guðmundssonar körfuknattleiks- manns, sem síðastliðin tvö ár lék með úrvalsdeildarliði Tindastóls. Heildvérslunin, sem aðallega flytur inn ýmsar íþrótta- og sport- vörur frá Bandaríkjunum, gefur glæsileg verðlaun til keppninnar. Þróttmikið starf hefur einkennt starfsemi Golfklúbbs Sauðárkróks á undanförnum árum og vænta þeir Hlíðarendabændur mikillar HÁSKÓLABÍÓ sýnir nú kvik- myndina Hefndarþorsta með Kie- fer Sutherland, Lou Diamond Phillips, Jami Gertz og Rob Knep- per í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Jack Sholder. í fréttatilkynningu segir: „Buster McHenry er einn þeirra lögreglu- manna sem vinnur eftir eigin vinnu- reglum. Hann hefur um langa hríð reynt að koma sér inn undir hjá mafíuhópi sem vinnur með háttsett- um lögreglumönnum. Það á að ræna demöntum og Buster á að taka þátt. En ránið gengur ekki eins og áform- að var og ræningjarnir verða að flýja hver sem betur getur. Á flóttanum stela þeir sverði, sem er helgigripur, og þeir drepa líka indíána nokkum. Bróðir hins drepna, Hank, eltir glæpagengið og finnur Buster, sem farinn er að vera genginu til vand- ræða og fær kúlu í magann. Buster er nú sá eini sem getur vísað honum á morðingjann - og sverðið." Púlsinn Deitra Farr og Vinir Dóra BLÚSSÖNGKONAN, rithöf- undurinn, Ijóðskáldið og laga- höfundurinn Deitra Farr heldur tónleika á Púlsinum ásamt Vin- um Dóra í kvöld og annað kvöld. Þetta verða jafnframt fyrstu tónleikarnir í blústónleikaröð sem Púlsinn stendur fyrir í sam- vinnu við Vini Dóra og Straight Ahead Productions í Chicago sem Chicago Beau veitir for- stöðu. Deitra Farr hóf feril sinn 1975 með því að syngja með hinum ýmsu rytma- og blússveitum Chicago-borgar þar til 1980 að hinn eiginlegi blúsferill hennar hófst. Undanfarin ár hefur Deitra komið víða fram, m.a. á tónleika- ferð um Bandaríkin og Kanada þar sem hún kom fram með Sam Lay Blues Band. Hún lauk nýlega hljómleikaferð um Ítalíu þar sem hún kom fram með þarlendum blú shlj ómlistarmönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.