Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992 21 Tolli sýn- ir 1 lista- ^ safni ASÍ OPNUÐ verður sýning á málverk- um eftir Þorlák Kristinsson, Tolla, í Listasafni ASÍ á morgun, laugar- daginn 19. september, kl. 15.30. Tolli hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum heima og erlendis. Gief- in hefur verið út sýningarskrá í tengslum við sýninguna, en á henni eru einungis ný verk. Einar Már Guðmundsson, rithöf- undur, segir í sýningarskrá um lista- manninn. „Frá upphafi hefur mynd- listin umkringt Tolla og fóstrað huga hans. A sumrin vann hann á innrömmunarverkstæði sem faðir hans, Kristinn Morthens, rak við Grettisgötuna. Þetta var heimur eft- irprentana þar sem afar ólík mynd- list ruglaði reitum sínum, og menn komu og fóru, því að innrömmunar- verkstæðið var um leið samkomu- staður og spannaði allt litrófíð. Þar birtust vonsviknir listamenn sem . enginn skildi nema Bakkus konungur og af og til mættu heimsborgarar í klæðskerasaumuðum kamelfrökkum með hirð kvenna og spjátrunga í kringum sig. í loftinu sátu ilmvötn ogvindlareykur þegar hersingin fór.“ í fréttatilkynningu frá Listasafni ASÍ vegna sýningarinnar segir að líf sé í tuskunum þar sem Tolli sé á Þorlákur Kristinsson, Tolli. ferð og aldrei logn. „Þannig hefur það verið frá því að hann ferðaðist um landið sem farandverkamaður. Bakgrunnur listsköpunar Tolla hefur lengi verið fjölskrúðugt mannlíf í sjávarþorpum og verbúðum. Slíkt líf er ef til vill sá háskóli sem listamann- inum reynist bestur þegar á reynir. Aðrir háskólar hafa sett mark sitt á Tolla. En án upplifunar verður engin minning, engin saga, og kaldir, sam- ofnir í myndræna heild sem á sér enga aðra forsendu en heita minn- ingu án andlits án forms.“ Sýningin í Listasafni ASÍ stendur til 4. október og er opin alla daga frá kl. 14 til 19. Edda með hundana sína Úu og Fróða. Sigrirvegari hundaræktarsýningar Blíður o g góður - segirEdda Sigurðsson um hundinn Fróða „FRÓÐI er blíður og góður en jafnframt líflegur og getur ver- ið afar fjörugur," segir Edda Sigurðsson um hundinn sinn Fróða frá Götu en hann var valinn besti hundur hundarækt- arsýningar í Laugardalshöll um síðustu helgi. Fróði, sem er ís- lenskur fjárhundur á þriðja ári, kom til Eddu þegar hann var 2ja mánaða. Ræktandi hans er Guttormur Þórarinsson. Edda býr ásamt eiginmanni sín- um og tveimur börnum, 7 og 9 ára, í Þormóðsdal við Hafravatn. Hún segir að hundar séu eitt aðal- áhugamál fjölskyldunnar og 3 hundar séu á heimilinu. „Við erum með Fróða, svo erum við með Úu, 4 ára gamla golden retriever tík, og maðurinn minn er með einn hund fyrir fíkniefnalögregluna í Reykjavík," segir Edda. Hún gerir lítið úr því að þjálfun Fróða hafi tekið mikinn tíma. „Ég hef farið með hann á hlýðninám- skeið og þjálfað hann síðan áfram með því að taka svona 10 mínútur af viðrunartímanum en það geri ég ekki einu sinni á hverjum degi,“ segir Edda. Hún segist hafa valið að skýra hundinn Fróða af því að það hafí henni fundist gott íslenskt nafn á íslenskan fjárhund. Frá Götu er hins vegar ræktunarnafn hunds- ins. Edda segir að Fróði sé blíður og góður en jafnframt líflegur og geti verið afar fjörugur. Hann sé mikill vinur en einn aðalgalli hans sé að honum hætti til að gelta eins og mörgum íslenskum fjár- hundum. Hún segir að Fróði sé afar hrif- inn af börnum og góður við þau og tekur fram að hann þurfi mik- ið frelsi. „Hann er alls ekki hund- ur sem þú getur tekið inn í blokk í Breiðholti og látið bíða heima allan daginn," segir hún. Edda hefur haldið námskeið fyrir hunda en aðspurð um hvaða eiginleikar séu helst metnir í fari hunda eins og Fróða á hundarækt- arsýningum segir hún að miklu máli skipti að hundurinn sé fallega byggður og uppfylli þannig ákveðna viðmiðun fyrir tegundina, að hann sé í góðu formi t.d. vöðva- stæltur og með fallegan feld og að hann beri sig vel. Fróði hefur áður unnið til verð- launa. Hann var valinn besti hund- urinn á hundaræktarsýningu í Sólheimakoti í fyrrasumar. Þar voru einungis íslenskir fjárhundar. Hátíðarsamkoma í Borgarleikhúsinu Old frá því kennaranám hófst Kennarahúsið sýnt um helgina í TILEFNI af því að á þessu ári er ein öld liðin frá því að formleg kennaramenntun hófst á Islandi bjóða Kennaraháskóli Islands, Flens- borgarskólinn, Kennarasamband Islands, HIK og Kennarafélag KHI til hátíðarsamkomu i Borgarleikhúsinu i Reykjavík og hefst hún kl. 14. í Borgarleikhúsinu verða flutt stutt ávörp, sagt frá bernskuárum kennaramenntunar, flutt tónlist og leikdagskrá um nemendur og kenn- ara í sögum og’ljóðum. Þeir sem að hátíðardagskránni standa vona að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í samkomunni, en allir eru velkomnir í Borgarleik- húsið á meðan húsrúm leyfir. í tengslum við hátíðarsamkom- una í Borgarleikhúsinu verður gamli Kennaraskólinn við Laufás- veg, Kennarahúsið, tekið formlega í notkun sem húsnæði Kennarasam- bands íslands. Kennarasambandið hefur undan- farið ár unnið að endurbyggingu hússins, en það er gjöf ríkisstjómar- innar til félagsins. Fyrsta áfanga endurbyggingarinnar er að mestu lokið, þar sem gengið hefur verið frá ytra útliti þess og tveim aðal- hæðum. Lóðin er einnig að mestu frágengin. Frá kl. 16.30 til kl. 18.00 á morg- un, laugardag, verður húsið opið öllum sem hafa áhuga á að skoða hvernig endurbyggingu þess miðar. Daginn eftir, sunnudaginn 20. sept- ember, verður einnig opið frá kl. 15 til 17. Kennarasambandið vonar að sem flestir sjái sér fært að koma í Kenn- arahúsið um helgina og sjá hvemig til hefur tekist við endurbyggingu gamla Kennaraskólans við Laufás- veg. Selfoss Ráðstefna og sýning Lagnafélagsins Selfossi. FRÆÐSLUMÁL og orkusparnaður verða efst á baugi á sýningu og ráðstefnu Lagnafélags Islands sem haldin verður í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi um helgina. Ráðstefnan hefst með opnun þjón- ustusýningar klukkan 10.00 á laugardag en eiginlegt ráðstefnuhald hefst klukkan 12.50 þann dag. Framsögumenn á ráðstefnunni koma frá atvinnulífinu og skólum. Þeir verða Þorbjörn Karlsson pró- fessor við Háskóla íslands, Nicolai Jónasson tæknifræðingur frá Fræðsluráði málmiðnaðarins, Einar Þorsteinsson tæknifræðingur deild- arstjóri lagnadeildar Rb., Guð- mundur Gunnlaugsson tæknifræð- ingur frá Sambandi Iðnmennta- skóla og Mike Carman frá Control Techniques. Meðal þess sem fjallað verður um á ráðstefnunni er hvort það fái staðist að ónýt vatnskerfi orsaki 500 milljóna króna tjón á hverju ári og hvort rétt efnisval geti dreg- ið úr þessum skaða. Leiddar verða líkur að því að fresta hefði mátt virkjun Nesja- vallavirkjunar með því einu að jafn- vægisstilla hitakerfi húsa á höfuð- borgarsvæðinu. Ennfremur hvort líklegt sé að íslenskir lagnamenn verði atvinnulausir þegar lagna- menn frá öðrum Evrópulöndum koma til íslands í atvinnuleit. Fjallað verður um fræðslumál lagnamanna, samband og samvinnu forráðamanna skóla og atvinnulífs og samskipti verktaka, iðnaðar- manna, hönnuða og byggingafull- trúa. Ráðstefnuna og sýninguna held- ur Lagnafélagið í samvinnu við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Meistarafélag Suðurlands, pípu- lagningamenn, blikksmiði, bygg- ingafulltrúaembættin, hitaveitur, Félag rafverktaka á Suðurlandi, Búnaðarsamband Suðurlands, Fé- lag byggingariðnaðarmanna i ár- nessýslu og Samband félaga sumar- húsaeigenda á íslandi. A þjónustusýninguna er skráður samtals 51 aðili. Kór Fjölbrauta- skólans syngur á sýningunni, Djass- kvartett Kristjönu Stefánsdóttur kemur fram og félagar úr Félagi harmonikkuleikara á Selfossi leika. Sýningin er öllum opin og aðgangur ókeypis. Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.