Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 48
! MORGVNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SlMl 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKVllEYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Eignarhaldsfélag Lands- banka yfírtekur eignir SIS Bankinn yfirtekur þær eignir sem hann á veð í fyrir skuldum Sambandsins BANKARÁÐ Landsbanka íslands hefur samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins ákveðið að bankinn stofni eignarhaldsfélag til að yfirtaka þær eignir Sambands íslenzkra samvinnufélaga, sem bankinn á veð í fyrir skuldum Sambandsins. Einnig hyggst bankinn leysa til sín eign- ir fyrir þeim ábyrgðum erlendra lána, sem hann hefur gengizt í fyr- ir Sambandið. Stjórn Sambandsins samþykkti á fundi sínum í gær að ganga þegar í stað til samninga við Landsbankann um sölu eigna til þess að fyrirtækið geti staðið skil á skuldum sínum við bankann og aðra lánardrottna. Nettóskuldir Sambandsins eru 3,6 milljarðar króna. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins var samstaða í bankaráði Landsbankans á fundi síðastliðinn föstudag um að stofna eignarhalds- félag til að taka við eignum Sam- bandsins. Sú leið er meðal annars farin til að halda rekstri á þeim fyrir- tækjum, sem hugsanlega yrðu tekin upp í skuldir, aðgreindum frá rekstri bankans. Ákveðið hefur verið að Jakob Bjarnason, viðskiptafræðing- ur hjá útlánastýringardeild Lands- “ankans, verði framkvæmdastjóri hins nýja rfyrirtækis. Bankaráðið setur ýmis skilyrði fyrir því að hlutafélag verði sett á laggirnar, þar á meðal að Samband- ið samþykki allar tillögur bankans um tilhögun mála við skuldauppgjör- ið. Einnig vill bankaráðið að starf- semi eignarhaldsfélagsins teljist fara Húsnæðisstjórn um félagslega kerfið Vextir hækki úr 1% í 2,4% HÚSNÆÐISSTJÓRN samþykkti í gær tillögu til félagsmálaráðherra um að vextir í í félagslega hús- næðiskerfinu Verði hækkaðir úr 1% upp í 2,4% og að vextir í al- menna kaupleigukerfinu verði hækkaðir úr 4,5% í 4,9%. Þórhallur Jósefsson, sem sæti á í Húsnæðisstjórn, segir þessar vaxta- breytingar hafa lengi staðið til. Til- lagan gerir ráð fyrir að vaxtahækk- anir taki gildi eftir 1. mars á næsta ári vegna þess að í tengslum við kjarasamningana í febrúar skuldbatt ríkisstjómin sig til að hækka ekki í félagslega kerfinu út samningstímann. að lögum að mati viðskiptaráðuneyt- isins og bankaeftirlitsins. Jón Sig- urðsson viðskiptaráðherra og ráð- herra bankamála sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að forsvarsmenn Landsbankans hefðu rætt við ráðu- neytið og hann treysti því að þess yrði gætt að fara að eðlilegum ör- yggisreglum er eignarhaldsfélag yrði sett á stofn. Þórður Ólafsson, forstöðumaður bankaeftirlitsins, staðfesti að bankastjórar Lands- bankans hefðu rætt við eftirlitið um áform bankans um eignarhaldsfélag. Sigurður Markússon, stjórnarfor- maður Sambandsins, sagði í samtali við Morgunblaðið eftir stjómarfund SÍS í gær, að það væri mál Lands- bankans hvaða form yrði á kaupum hans á eignum Sambandsins. Að- spurður hvort bankinn væri ekki í raun að taka eignir Sambandsins upp í skuldir, svaraði Sigurður: „Ég myndi túlka þetta þannig, að hugs- anlega verði um að ræða sölu á ein- hveijum eignum til bankans og hugsanlegá til einhverra annarra aðila, en þó með fulltingi bankans. Það er fjarri því að bankinn sé að yfirtaka allar eignir Sambandsins, því að þá fengi bankinn mun meira en Sambandið skuldaði honum.“ Samkvæmt bráðabirgðaefnahags- yfirliti í lok ágúst nema eignir Sam- bandsins 6.249 milljónum króna, en heildarskuldirnar 4.880 milljónum. Að frádregnum veltufjármunum eru nettóskuldir Sambandsins 3.600 milljónir króna. Helztu eignir fyrir- tækisins eru þijár hæðir í Sam- bandshúsiriu á Kirkjusandi, sem bók- færðar eru á 500 milljónir króna, hlutafé í ýmsum dótturfyrirtækjum, sem er bókfært á 2,7 milljarða króna, og hlutabréf upp á 1,5 millj- arða í öðrum samstarfsfélögum. Sjá miðopnu. Lín ræktað á Hvann- eyri til heimanotkunar Hvannatúni í Andakil. JÓHANNA Pálmadóttir, tóvinnukennari og ráðunautur, ætlar næst- komandi vetur að reyna að kenna nemendum sínum að spinna úr heimaræktuðu líni. í þessu skyni útvegaði Magnús Óskarsson, tilraunastjóri við Bændaskólann á Hvanneyri, sér fræ af þremur afbrigðum frá Hol- landi og tveimur frá Svíþjóð. Lín- inu var sáð í vor í reiti milli skjól- belta og hefur dafnað vonum fram- ar þrátt fyrir kalt sumar. Fyrirtæk- ið í Hollandi sem útvegaði fræið ætlar nú að rannsaka línið Bænda- skólanum að kostnaðarlausu. Hluti línsins stendur nú til þerr- is í skrýfum, en hitt liggur á jörð- inni til að hýðið utan um fræin rotni, sem kallað er að feygja. Jó- hanna ætlar síðan að nota línið við spunakennslu fyrir nemendur Bændaskólans og á námskeiðum hjá búnaðarsamtökunum á Vestur- landi. Hún sagði í samtali við fréttaritara að nauðsynlegt væri að láta nemendur kynnast fjöl- breytilegum hráefnum við handa- vinnu. Aðalhráefni til spuna af ís- lenskum uppruna eru ull af sauð- kindinni, kanínufiða, hrosshár og geitaull. - D.J. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Busarnir tolleraðir í MR Nemendur Menntaskólans í Reykjavík halda enn þeim gamla sið að tollera nýnema, „busana", um leið og þeir eru boðnir velkomnir í skól- ann. I gær fóru tolleringamar fram og hvítklæddir sjöttubekkingar hentu busunum hátt á loft. Nýttlyfvið mígreni á markaðinn í október NÝTT LYF við tnígreni, Imi- gran, verður sett á markað hér um næstu mánaðamót. Það hef- ur verið gefið í undanþágutil- fellum í um það bil ár og hefur gefið góða raun, að sögn Sig- urðar Thorlacius, heila- og taugasérfræðings. Lyfíð er ekki ætlað bömum og ekki ráðlagt sjúklingum eldri en 65 ára en allt að 50% sjúklinga eru taldir fínna til einhverra auka- verkana. Hver tafla mun kosta um 400 krónur en auk þess greiðir Tryggingastofnun þrefalda þá upphæð með lyfinu. Imigran kemur ekki í veg fyrir köst heldur er það notað í upphafi kasts og slær ekki aðeins á verk- inn heldur einnig önnur einkenni, svo sem ógleði og ljósfælni, að sögn Sigurðar Thorlacius. Sjá einnig bls. b/1 Bæklunardeild Landspít- alans lokað í þrjá mánuði VEGNA niðurskurðar á fjár- framlögum til ríkisspítalanna verður bæklunardeild Landspít- alans lokuð í þrjá mánuði frá 1. október til 1. janúar 1993. Að sögn Halldórs Jónssonar, Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson UPPSKERAN Jóhanna Pálmadóttir og Magnús Óskarsson við óskorið lín í skjól- beltunum á Hvanneyri. yfirlæknis á bæklunardeild, eru um 200 manns á biðlista eftir aðgerð, þar af eru 90 manns sem bíða eftir mjaðma- og hné- aðgerðum. Halldór sagði að lokunin væri vegna niðurskurðar hjá ríkisspít- ölum en þar hafa ýmsar deildir lokað um tíma og að nú sé röðin komin að bæklunardeildinni að loka í þrjá mánuði. „Biðlistinn mun lengjast sem því nemur, þar sem einungis verður hægt að sinna slysatilfellum,“ sagði hann. „Við höfum þegar fyllt okkar kvóta og framkvæmt jafnmargar aðgerðir í ár og við gerðum í fyrra. Þannig að biðlistinn hefur minnkað fram að þessu en nú stendur hann í stað þar til í janúar þegar við getum aftur farið að skrá sjúkl- inga í aðgerðir.“ Halldór sagði að lokunin kæmi verst við þá sjúklinga sem bíða eftir mjaðma- og hnéaðgerð, þar sem yfirleitt væri um fullfrískt fólk að ræða, en væri orðið hreyfi- skert vegna verkja. Halldór mun einn sjá um að framkvæma þær aðgerðir, sem koma inn á göngu- deild spítalans þann tíma sem lok- að er, þar sem öllum öðrum bækl- unarskurðlæknum deildarinnar hefur verið sagt upp störfum. Þeir geta því ekki lagt inn á biðlista á Landspítalann og má því búast við að biðlistar eftir aðgerðum lengist á Borgarspítala og á Landakoti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.