Morgunblaðið - 26.03.1993, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
25-
fN*fgmi(Iafrií
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið.
Valdatafl í
skákheimínum
Enn einu sinni skekja harðvítugar
deilur skákheiminn. Þessi göf-
uga íþrótt, sem öðrum fremur bygg-
ist á hinum andlega mætti frekar
en hinum Hkamlega, hefur áratugum
saman verið leiksoppur í oft miður
skemmtilegu valdatafli.
Deilan, sem nú er risin, er hins
vegar um margt annars eðlis en hið
hefðbundna karp sem staðið hefur
um skákíþróttina frá lokum síðari
heimsstyijaldarinnar. Líkt og á svo
mörgum öðrum vígstöðvum eru það
endalok kalda stríðsins sem eru hvati
umskiptanna. Skákin var til skamms
tíma tákngervingur baráttunnar
milli austurs og vesturs á alþjóða-
vettvangi. Hvergi hefur þetta komið
eins greinilega í ljós og í heimsmeist-
araeinvíginu í Reykjavík árið 1972.
Það voru ekki bara Borís Spasskíj
og Bobby Fischer sem glímdu í
Laugardalshöllinni heldur í augum
flestra einnig Sovétríkin og Banda-
ríkin. Kommúnismi og lýðræði.
Alþjóðaskáksambandið, FIDE,
gegndi lykilhlutverki í þessari tog-
streitu og sætti mikilli gagnrýni fyr-
ir. FIDE og formaður þess, Flor-
encio Campomanes, voru sökuð um
baktjaldamakk með sovéska skák-
sambandinu og öðrum fyrrverandi
kommúnistaríkjum. Þetta umtal
gerði skákinni illt auk þess að reka
fleyg milli margra helstu skákmanna
heims og þeirra samtaka sem undir
eðlilegum kringumstæðum hefðu átt
að gæta hagsmuna þeirra og tryggja
framgang þeirrar íþróttar, sem þeir
stunduðu.
Nú snúast deilurnar í skákheimin-
um um peninga en ekki pólitík.
FIDE, sem skipulagt hefur heims-
meistaramótið í skák frá árinu 1948,
hefur löngum verið sakað um að
taka til sín ótæpilega stóran hlut
af verðlaunafé skákmanna, eða
fjórðung. Þó að það hafi vakið
óánægju meðal skákmanna var þetta
hægt á meðan stórveldabaráttan
gegnsýrði skákheiminn og bestu
skákmenn heims komu frá ríkjum
Austur-Evrópu og Sovétríkjunum.
Sú barátta gerði það líka að verkum
að mörkin milli áhugamennsku og
atvinnumennsku í skákinni voru oft
mjög óljós, þrátt fyrir að um veruleg-
ar peningaupphæðir hafi verið að
tefla.
Það hlaut hins vegar að koma að
því að skákmennirnir gerðu kröfu
um að hafa meiri áhrif á gang mála
jafnt hvað varðar keppnisfyrirkomu-
lag sem verðlaunaupphæðir. Sú hef-
ur verið þróunin alls staðar í íþrótta-
heiminum og þrátt fyrir sérstöðu
skákarinnar á mörgum sviðum var
ekki við því að búast að endalaust
væri hægt að standa gegn kröfum
um að hrein atvinnumennska í
íþróttinni yrði tekin upp.
Heimsmeistari síðustu ára, Garrí
Kasparov, hefur gengið fram fyrir
skjöldu í þeirri baráttu. Fyrir nokkr-
um áruin stofnaði hann Stórmeist-
arasambandið og lagði fram tillögu
árið 1990 um að það myndi skipu-
leggja heimsmeistaramótið í stað
FIDE. Sú tillaga fékk hins vegar
ekki hljómgrunn meðal annarra stór-
meistara, Kasparov sagði af sér for-
mennsku og Stórmeistarasambandið
lognaðist út af.
Vissulega má rekja illúð Kasp-
arovs út í FIDE til fleiri þátta en
peningadeilna. Frægt er dæmið þeg-
ar hann tefldi um heimsmeistaratitil-
inn við Anatolíj Karpov í Moskvu
árið 1985. Eftir að staðan hafði ver-
ið 5-0 Karpov í vil var Kasparov
búinn að minnka muninn í 5-3 og
virtist sigurstranglegur. Þá greip
Campomanes í taumana og stöðvaði
einvígið á þeirri forsendu að leik-
mennimir væru orðnir þreyttir. Það
hafði þá staðið í fimm mánuði. Boð-
aði hann að einvígið myndi hefjast
að nýju nokkrum mánuðum síðar
og yrði bytjað frá upphafi. Þó svo
að Kasparov hafi síðar náð heims-
meistaratitlinum hefur hann aldrei
fyrirgefíð FIDE og Campomanes,
sem er góðvinur Karpovs, þessa
framkomu.
Öðru sinni leggur nú Kasparov til
atlögu gegn FIDE, í þetta skipti
ásamt Bretanum Nigel Short, sem
á síðasta ári vann sér rétt til að
skora á heimsmeistarann. Short og
Kasparov eru um flest mjög undar-
legir bandamenn og til þessa hefur
ekki andað hlýju milli þeirra. Þegar
Kasparov var spurður hvemig hon-
um litist á að tefla einvígi við Short
sagði hann hæðnislega að hann
byggist við að einvígið yrði „stutt“
[á ensku „short"]. Askorandinn
Short hefur á hinn bóginn lýst
heimsmeistaranum sem „óviðkunn-
anlegasta manni sem hann á ævi
sinni hefur hitt“ og „bavíana".
Ástæða þess að þeir taka nú hönd-
um saman er sú ákvörðun FIDE að
halda heimsmeistaraeinvígið í
bresku borginni Manchester í mars,
en hún var tekin án nokkurs sam-
ráðs við þá Kasparov og Short. Þeir
neituðu að tefla undir merkjum
FIDE og stofnuðu í staðinn Samband
atvinnuskákmanna, sem fengið hef-
ur nokkur væn tilboð frá aðilum, sem
em reiðubúnir að standa að einvígi
þeirra.
Viðbrögð FIDE voru fyrirsjáan-
leg. Kasparov hefur verið sviptur
titlinum og Short réttinum til að
skora á heimsmeistarann. Minnir
þetta á þegar FIDE svipti Bobby
Fischer titlinum vegna ágreinings.
Rétt eins og fæstir efuðust um að
Fischer væri mun betri skákmaður
en Karpov, sem á sínum tíma fékk
titilinn í staðinn, leikur enginn vafí
á því að þeir Kasparov og Short
skari framúr í skákheiminum þessa
stundina. FIDE ætlar áfram að halda
einvígið í Manchester og hefur boðið
Karpov og Hollendingnum Jan
Timman að tefla um heimsmeistara-
titilinn. Short vann þá báða er hann
tefldi um réttinn til að skora á Kasp-
arov. Haldi Kasparov og Short
áformum sínum til streitu mun eng-
inn vafi leika á því að þar sé hið
raunverulega heimsmeistaraeinvígi
og að því mun athyglin beinast. Ein-
vígi milli Karpovs og Timmans yrði
í mesta lagi vandræðalegt. Ef fer
sem horfir stefnir því í róttækar
breytingar í skákheiminum. Til
þessa hafa ekki margir stórmeistar-
ar tekið afstöðu með uppreisnar-
mönnunum. En ef augljóst verður
að mestu athyglina og mestu pening-
ana verður að fínna utan FIDE
munu eflaust fleiri -fylgja í kjölfarið.
Félagsdómur ógildir
uppsögn yfirvinnu-
samnings í Stálsmiðju
FÉLAGSDÓMUR dæmdi í gær ógilda uppsögn Stálsmiðjunnar hf á
sérsamningum við Dagsbrún um fasta yfirvinnu verkamanna fyrir-
tækisins og dæmir fyrirtækið til að standa við sérsamninga sem
Dagsbrún hafði gert við Slippfélagið en þeir samningar tryggja
verkamönnum í brautum a.m.k. 5 yfirvinnutíma á viku. Stálsmiðjan
yfirtók rekstur á brautum Slippfélagsins í ársbyuijun 1989.
Eftir að Stálsmiðjan yfirtók
reksturinn var greitt samkvæmt
samningi Slippfélagsins þar til hon-
um var sagt upp þann 30. septem-
ber 1992 fráogmeð 1. janúar 1993.
Stálsmiðjan tók á sig
skuldbindingar
í dómi félagsdóms segir að Slipp-
félagið, Stálsmiðjan og VSÍ, sem
hélt uppi vömum í málinu fyrir
hönd Stálsmiðjunnar, hafí ekki haft
ástæðu til að ætla að Dagsbrún
vildi una því að hafa ekki í gildi
sérsamning um störf í brautum á
viðkomandi athafnasvæði eftir að
skipti urðu á rekstraraðila. Við
Steypa, gler og járn lækkar
í byggingariðnaðinum telja menn að niðurfelling vörugjalds af sementi, gleri og járni muni skila sér beint
í verðlækkun til húsbyggjenda.
Seljendur byggíngarvara um niðurfeilingu 9% vörugjalds
Tíinabær adgerð sem skilar
sér beint í lægra vöruverði
TALSMENN steypustöðva, sementsframleiðenda og byggingarvörusala
fagna þeim tillögum fjármálaráðherra að fella niður 9% vörugjald á
ýmsum byggingarvörum, sem leiðir til lægra verðs á steypu, sementi,
gleri og steypustyrktaijámi. Þeir telja að tímabært sé að fella gjaldið
niður, þar sem innfluttir húshlutar hafi ekki borið það og því verið
um mismunun að ræða. Þeir telja niðurfellingu skila sér beint til kaup-
enda í lægra vöruverði.
Verð lækkar
„Þessi niðurfelling á vörugjaldi
skilar sér beint til kaupenda í lægra
vöruverði," sagði Víglundur Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri steypu-
Dæmdur
fyrir að
selja am-
fetamín
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
36 ára mann til fimm mánaða
fangelsisvistar fyrir dreifingu
og sölu á um það bil 40 grömm-
um af amfetamíni, sem er
sama refsing og dæmd var
þegar fjallað var um málið í
héraðsdómi sl. haust. Þegar
maðurinn var handtekinn
fundust á heimili hans um 19
grömm af amfetamíni, auk
þess sem hann var sakaður um
að sjá sér farborða með sölu
efnisins og standa þannig
straum af eigin neyslu.
I Héraðsdómi var maðurinn í
október dæmdur til 5 mánaða
fangelsisvistar fyrir þessi brot
en fáeinum dögum fyrr hafði
hann verið dæmdur til 6 mánaða
fangelsisvistar fyrir þjófnaðar-
brot. Dómaranum sem dæmdi
fíkniefnamálið var ekki kunnugt
um þann dóm en hefði svo verið
hefði borið að dæma refsingu
sem hegningarauka.
Frá því að þessir tveir refsi-
dómar voru kveðnir upp hefur
maðurinn verið dæmdur til refs-
ingar fyrir skjalafals en honum
var ekki refsað sérstaklega fyrir
þau brot umfram þá samtals ell-
efu mánaða refsingu sem hann
hefur þegar verið dæmdur til.
stöðvar BM Vallár hf. „Þá hlýtur
lægra steypuverð að auka mönnum
vilja til að fjárfesta. Þó er það trú
mín, að vaxtalækkun í tengslum við
aðgerðir Seðlabankans séu þýðingar-
meiri í því sambandi, því byggingar-
kostnaður er mikið meira en kostnað-
ur við steypuna eina. Steypan er til
dæmis aðeins um 7-8% af kostnaði
við byggingu venjulegrar íjölbýlis-
húsaíbúðar. Vaxtakostnaðurinn er
gífurlega þýðingarmikill og ef menn
sæu fram á affallalítil eða affallalaus
húsbréf skipti það miklu,“ sagði Víg-
lundur Þorsteinsson.
Mismunun útrýmt
Halldór Jónsson, framkvæmda-
stjóri Steypustöðvarinnar hf. sagði
að með því að fella niður 9% vöru-
gjald á steypu væri verið að útrýma
mismunun sem hefði verið fólgin I
því að innfluttir húshlutar hefðu ekki
borið vörugjald. „Það var mikið
ranglæti og ég fagna að fjármálaráð-
herra skuli hafa tekið svo myndarlega
af skarið í þessu rnáli," sagði hann.
„Eg vona að þetta fái hinn bráðasta
framgang og vonandi örvar þetta
eftirspum eftir steypu. Þá er það
auðvitað fagnaðarefni fyrir skuldug
heimili landsins, að lánskjaravísitalan
lækki í kjölfarið," sagði Halldór
Jónsson.
Beðið um lengi
„Við vonum að þessar hugmyndir
fjármálaráðherra nái fram að ganga,
enda höfum við beðið um svona leið-
réttingu í fleiri ár, því innlendu bygg-
ingarefni hefur verið mismunað
gagnvart ýmsum erlendum efnum,"
sagði Guðmundur Guðmundsson,
tæknilegur framkvæmdastjóri Se-
mentsverksmiðju ríkisins. „Eg tel að
þessi ákvörðun, nái hún fram að
ganga, muni auka sölu á sementi.
Þegar sköttum er létt af fyrirtækinu
hiýtur það að skila sér til kaupenda.
Svo njóta auðvitað fleiri góðs af, því
þama er ekki eingöngu um niðurfell-
ingu vömgjalds af sementi að ræða,“
sagði Guðmundur Guðmundsson.
Til bóta
„Það er alltaf til bóta að geta
lækkað vömverð, en niðurfelling
vömgjalds gerir ekkert útslag fyrir
framkvæmdir í byggingariðnaðin-
um,“ sagði Jón Snorrason, fram-
kvæmdastjóri Húsasmiðjunnar. „Ég
á ekki von á söluaukningu hjá okk-
ur, enda er þetta vömgjald ekki ýkja
stór hluti kostnaðar við húsbygging-
ar. Það er hins vegar gott að sjá á
bak því, til að jafna út þann mun,
sem hefur verið á skattlagningu og
ekki síst til að þessar vömr verði
skattlagðar með sama hætti hér og
í öðmm löndum. Þetta hefur hins
vegar ekki afgerandi áhrif á söluna,
því þar skiptir framkvæmdagleði
fólks og áræði meira máli,“ sagði Jón
Snorrason.
gerð kaupsamningsins hafí Slippfé-
laginu borið annað hvort að til-
kynna Dagsbrún að sérsamningur-
inn félli sjálfkrafa niður þar sem
fyrirtækið væri hætt umræddri
starfsemi svo að verkalýðsfélagið
ætti kost á að endumýja samning-
inn við nýjan rekstraraðila eða
semja um áframhaldandi gildi fyrri
samnings. Með kaupsamningi hafi
Stálsmiðjan tekið á sig að standa
við skuldbindingar gagnvart verka-
mönnum hjá fyrirtækisins og falli
sérsamningurinn undir þær skuld-
bindingar.
Sératkvæði
Málið dæmdi Auður Þorbergs-
dóttir, Bjöm Helgason, Ingibjörg
Benediktsdóttir, Jón Þorsteinsson
og Gunnar Guðmundsson, en hann
skilaði sératkvæði og vildi sýkna
VSÍ, fyrir hönd Stálsmiðjunnar, af
kröfum Dagsbrúnar.
Eftir að formaður Dagsbrúnar
ásamt fleirum kom í veg fyrir sjó-
setningu skips úr brautum Stál-
smiðjunnar einn laugardaginn í
upphafi árs vegna deilna aðilanna
höfðaði Stálsmiðjan skaðabótamál
fyrir félagsdómi gegn Dagsbrún
vegna tjóns sem fyrirtækið taldi sig
hafa orðið fyrir vegna þeirrar að-
gerðar. Ekki hefur verið lagður
dómur á þá deilu með þessum dómi
Félagsdóms en ráðgert hefur verið
að flytja það mál fljótlega.
Flestir eldri
en 65 ára eru
tannlausir
FLESTIR á aldrinum 65 ára og eldri
árið 1990 voru tannlausir, eða 71,6%,
og margir, sem voru enn með eigin
tennur, höfðu það fáar að þeir hafa
vart getað tuggið nógu vel. Þetta kom
fram í könnun á vegum Háskóla ís-
lands.
Aðeins 2,1% fólks 65 ára og eldra
var með allar tennumar, þ.e. 28 eða
fleiri tennur. Hlutfall tannlausra
kvenna var mun hærra en tannlausra
karla, eða 80% á móti 62,1%.
Starfsmenn sjúkrahússins á ísafirði lýstu vantrausti á framkvæmdastjórann
Stjórnin heldur fund með fram-
kvæmdastjóranum um málið
DEILUR hafa orðið milli starfsmanna Sjúkrahússins á ísafirði og stjórn-
ar sjúkrahússins. Hafa stai*fsmenn lýst yfir vantrausti á framkvæmda-
stjórann, Guðmund Marínósson. Til stóð að haldinn yrði fundur starfs-
manna og framkvæmdastjóra í gær en honum var aflýst vegna veik-
inda Guðmundar. Frumorsök deilnanna er bókhaldsskekkja sem nú
hefur verið leiðrétt.
„Eins og málið hefur þróast er
bókhaldsskekkja, sem kom öllu af
stað, nánast orðin aukaatriði," sagði
Fylkir Ágústsson formaður stjórnar
Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar
ísafjarðar. „Það hafa blossað upp
deilur og yfírlýsingar verið gefnar
um að þetta og hitt sé í megnasta
ólagi. Mikið er gert úr því að einn
fulltrúinn hafi ekki fengið greidda
yfírvinnu, sem hann hefur þegar
fengið greidda. Það kemur fram í
gögnum þó svo að viðkomandi hafí
þá túlkun að hann hafí ekki fengið
yfirvinnuna greidda. Undir venjuleg-
um kririgumstæðum væri farið með
slíkt mál fyrir launanefnd stjórnar-
innar í stað þess að blása það upp
í fjölmiðlum.“
Fylkir sagði að niðurstaðan væri
sú að framkvæmdastjórinn stæði
frammi fyrir því að starfsmenn hefðu
lýst vantrausti á hann. Hins vegar
hefði ekki komið fram hvaða ásakán-
ir beindust gegn honum. Til stóð'að
halda fund í gær en honum var 'af-
lýst vegna veikinda framkvæmda-
stjórans, sem hefur verið undir miklu
álagi vegna þessa máls. Sagði Fylkir
að fundur yrði haldinn þegar fram-
kvæmdastjórin er orðinn rólfær á
ný og fengist þá væntanlega einhver
botn í málið.
Orsök deilunnar
Fylkir sagði að málið hefði hafíst
þegar rætt var misræmi í bókhaldi
á stjórnarfundi. Eitthvað hefði lekið
út af fundinum og borist til starfs-
manns sem hefði túlkað viðkomandi
upplýsingar þannig að hann væri
vændur um fjárdrátt. Þetta hefði
aldrei verið skilningur stjórnar-
manna sem hefðu tekið þá ákvörðun
að leysa málið innanhúss og fá við-
komandi menn til að fara yfír bók-
haldið sjálfa. Starfsmennirnir voru
hins vegar ekki tilleiðanlegir að fara
í málið og tók stjómin þá ákvörðun
að þeir færu úr húsi í þijá daga á
meðan endurskoðandi kannaði málið.
Reikniskekkjur
Endurskoðandi skilaði stjóminnni
áliti síðdegis á miðvikudag og tekur
fram í greinargerð sinni að um eftir-
litsleysi og mistök sé að ræða. Tvær
reikniskekkjur hafi orðið þar sem þar
sem gleymist að færa í öðru tilfellinu
3 milljónir króna en í hinu rúmlega
eina milljón krónur í ávísanahefti.
Þegar stjórnin var búin að leysa
þetta mál afhenti hún fulltrúunum
tveimur niðurstöður endurskoðanda
og afturkallaði ákvörðun sína um að
þeir væri vikið úr húsi.
„í framhaldi af þessu var meining-
in að við færum á fund stjórnar
starfsmannaráðs en við lentum inná
starfsmannafundi þar sem stóð yfír
atkvæðagreiðsla. Lýstu starfsmenn
þar yfir vantrausti á framkvæmda-
stjórann,“ sagði Fylkir.
Reytingsveiði við Snæfellsnes
Sæmilegur afli
Loðnubátamir hafa aflað sæmilega við Snæfellsnes.
Loðnan á stutt eftir
REYTINGSVEIÐI var á loðnumiðunum við Snæfellsnes í gær. Bræla
hamlaði veiðum og álíta skipsljórar á loðnubátunum að loðnan eigi
stutt eftir.
Reytingsveiði var á loðnumiðunum
við Snæfellsnes í gær, að sögn Gunn-
ars Jónssonar skipstjóar á ísleifi VE.
Hann sagði að nokkrir bátar hefðu
fengið sæmileg köst um miðjan dag
en veður hefði versnað síðdegis.
Sæmilega hefur aflast við Snæ-
fellsnes að undanfömu en Gunnar
sagði að ekki hefði verið friður til
veiða nema stund og stund vegna
brælu. Grímur Jón Grímsson skip-
stjóri á Guðmundi VE sagði að tölu-
vert væri um loðnu við Snæfellsnes
en hún ætti ekki langt eftir. Hann
sagði að nær eingöngu væri um
hæng að ræða og væri hann að drep-
ast umvörpum og fljóta upp.
Allt land
Húsavík-
urgirtaf
HÚSVÍKINGAR stefna að því að
girða allt land bæjarins á allra
næstu ámm. Er verið að vinna að
samkomulagi um það við nágranna-
sveitarfélög og fjáreigendur á
Húsavík. Astand gróðurs í bæjar-
landinu er fremur slæmt en með
friðun þess verður hægt að hefja
skipulega uppgræðslu á mörg þús-
und hekturum lands. " ^
Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsa-
vík, greindi frá þgssum áformum á
fundi Húsgulls, samtaka áhugamanna
um umhverfí, gróður, landvemd og
landgræðslu. Samtökin hafa séð um
átak landgræðsluskóga á Húsavík og
komið á samstarfi ýmissa aðila um
framgang verkefna f landgræðslu og
skógrækt.
Afgirt beitarhólf
Einar sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ef samkomulag næðist um
girðingu um Húsavíkurland væri hægt
að ráðast í það verkefni á næsta og
þamæsta ári. Hann sagði á fundinum
að jafnframt yrði að endurskoða
reglugerð um búfjárhald í sveitarfé-4**
laginu þannig að lausaganga búfjár
yrði bönnuð og fjöldi kinda og hrossa
takmarkaður.
A
Landskeppni Islendínga og Frakka í skák
Góður sigur íslend-
inga í sjöundu umferð
____________Skák
Bragi Kristjánsson
SJÖUNDA umferð í land-
skeppninni íslendinga og
Frakka í skák var tefld á mið-
vikudagskvöld í Digranesskóla
í Kópavogi. íslendingar mættu
einbeittir til leiks, staðráðnir í
þvi að notfæra sér hvita litinn
á öllum borðum til að snúa
landskeppninni sér í vil. Þeir
létu það ekki setja sig úr jafn-
vægi, að Hannes Hlífar tapaði
slysalega í fáum leikjum, og
sigrar Jóhanns Hjartarsonar,
Helga Ólafssonar, Karls Þor-
steins og Þrastar Þórhallssonar
tryggðu 6-4 sigur í umferðinni.
Þar með hafa íslendingar náð
forystunni með 3514 vinning
gegn 34*4 vinning Frakkanna,
þegar þrjár umferðir eru
ótefldar. Sigurhátíð er enn
ekki tímabær, því að Frakkar
eiga hvítt á öllum borðum í
tveimur af þeim þremur um-
ferðum, sem eftir er að tefla.
í einstaklingskeppninni er stað-
an nú þessi:
1. Jóhann Hjartarson, 6 v.
2. Bachar Kouatly, 5Vi v.
3. -5. Helgi Ólafsson, 4'4 v.
3.-5. Karl Þorsteins, 4*4 v.
3.-5. Manuel Apicella, 4*4 v.
6.-7. Margeir Pétursson, 4 v.
6.-7. Eric Prie, 4 v.
Það fer vel á því, að í tveimur
efstu sætunum eru fyrirliðar
sveitanna, sem gefa öðrum liðs-
mönnum gott fordæmi með frá-
bærri frammistöðu. Um mögu-
leika á alþjóðlegum titlum er að
segja, að Karl virðist eiga allgóða
möguleika á áfanga að stórmeist-
aratitli. Hann hefur unnið þijár
skákir í röð og þarf 2'4 v. í þrem-
ur síðustu skákunum. Björgvin
þarf 1‘4 v. til viðbótar til að ná
alþjóðlegum meistaratitli og Héð-
inn þarf að bæta við sig 2*4 v.
til að ná sama titli. Eini Frakk-
inn, sem enn á möguleika á
áfanga að stórmeistaratitli, er
Manuel Apicella, en hann þarf 214
v. gegn Margeiri, Jóni L. og
Helga.
í dag, föstudag, verður 9. um-
ferð tefld kl. 16-23 í Digranes-
skóla, og hafa íslendingar hvítt á
öllum borðum: Jóhann-Renet,
margeir-Kouatly, Jón L.-Apicella,
Heigi-Prie, Hannes Hlífar-Bric-
ard, Karl-Houchard, Þröstur-
Koch, Héðinn-Marciano, Björg-
vin-Chabanon, Róbert-Dorfman.
Við skulum að lokum sjá skák
Jóhanns við Apicella úr 7. umferð.
Hvítt: Jóliann Hjartarson.
Svart: Manuel Apicella.
Kóngsindversk vörn.
1. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rc3
- Bg7, 4. e4 - d6, 5. Rf3 -
0-0, 6. Be2 - e5, 7. 0-0 - Ra6,
8. Be3 - Rg4, 9. Bg5 - De8
(Svartur getur einnig leikið 9. —
f6, t.d. 10. Bcl - Kh8, 11. h3 -
Rh6, 12. dxe5 — fxe5, 13. Be2
- Rf7, 14. Dd2 - Rc5, 15. Rg5
- Rxg4, 16. Bxg5 — Bf6, 17.
Be3 — Re6, 18. Bg4! með betra
tafli fyrir hvít (Karpov-Kasparov,
7. skák í heimsmeistaraeinvígi í
New York 1990).
10. dxe5 — dxe5, 11. h3 — h6,
12. Bd2 - Rf6, 13. Be3 - c6,
14. a3-----De7, 15. b4 - Rh5,
16. c5 - Hd8, 17. Dcl - Rf4,
18. Bxf4 - exf4, 19. e5! - g5
(Eftir 19. — Bxe5, 20. Bxa6 —
Bxc3, (annars kemur 21. Hfel)
21. Dxc3 — bxa6, 22. Hfel verð-
ur svarta staðan sundurtætt).
20. Bxa6 — bxa6, 21. Re4 —
Bxe5, 22. Hel! - Bg7
(Svartur getur ekki drepið hrók-
inn: 22. — Bxal, 23. Dxal — Be6
(23. - Db7, 24. Rf6+ - Kf8, 25.
Rd5 - Kg8, 26. Re7+ - Kh7,
27. Df6 - Hf8, 28. He5 ásamt
29. Hxg5 — hxg5, 30. Rxg5+
mát) 24. Rf6+ - Kf8, 25. Rd5 -
Hxd5, 26. Dh8+ mát).
23. Ha2 - Be6, 24. Hae2 -
Dc7, 25. Dc2 - Hd5, 26. Rd6 -
a5
27. Hxe6! - fxe6, 28. Hxe6 -
axb4, 29. axb4 — a5, 30. De4 —
axb4
(Afleiðing fómar Jóhanns í 27.
leik koma nú í ljós. Svartur getur
ekki komið í veg fyrir innrás hvíta
hróksins á e7 og sókn gegn svarta
kónginum í framhaldi af því.)
31. He7 - Dxe7
(Svartur gat reynt 31. — Da5,
32. Re8 - Dal+, 33. Kh2 -
Ha7, en eftir 34. Rc7 er erfitt
að veijast fíölmörgum hótunum
hvíts, t.d. 34. He8+ eða 34. De6+
ásamt 35. Df7 o.s.frv. Svartur
virðist ekkert eiga betra en 34. —
Hxc7, 35. Hxc7 — Hd8, 36. Dxb4
og ólíklegt er, að svartur geti
haldið jöfnu í þeirri óvirku stöðu.)
32. Dxe7 - b3, 33. Df7+ -
Kh8, 34. Rf5 - Hxf5, 35. Dxf5
- b2, 36. Rd2 - Hd8, 37. Rbl
- Hdl+. 38. Kh2 - Hfl, 39.
Dc8+ - Kh7, 40. Dxc6 - Hxf2
(Tímamörkunum er náð og svart-
ur getur gefíst upp. Hann má
ekki leika 40. — Hxbl vegna 41.
De4+ ásamt 42. Dxbl.)
41. De4+ - Kh8, 42. c6
og svartur gafst upp, því að c-peð-
ið rennur upp í borð og önnur
hvít drottning fæðist.