Morgunblaðið - 04.06.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1993
Borgarstjórn
Meiríhluti
tapar hlut-
kesti um
fulltrúa í
borgarráð
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði
hlutkesti í kosningu um fulltrúa í
borgarráð til eins árs, sem fram
fór á fundi borgarstjórnar í gær-
kvöldi. Magnús L. Sveinsson var
endurkjörinn forseti borgar-
stjórnar og þau Páll Gíslason og
Katrín Fjeldsted varaforsetar.
Kosið var um fimm fulltrúa í borg-
arráði og lögðu sjálfstæðismenn fram
tillögu um fjóra fulltrúa en minni-
hlutinn um tvo. Hlutkesti var því
varpað um fjórða mann sjálfstæðis-
manna og annan mann minnihluta-
flokkanna, þau Júlíus Hafstein og
Sigrúnu Magnúsdóttur og varð Sig-
rún hlutskarpari. Þetta er í fyrsta
sinn á kjörtímabilinu sem Sjálfstæð-
isflokkurinn tapar hlutkesti í kosn-
ingu um fulltrúa í borgarráð.
í borgarráði eiga þá sæti af D-
lista þau Katrín Fjeldsted, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson og Ámi Sigifússon
og af H-lista þær Guðrún Ögmunds-
dóttir og Sigrún Magnúsdóttir. Guð-
nín tekur nú sæti í borgarráði en
Ólína Þorvarðardóttir var fulltrúi
minnihlutans á síðasta ári.
Varamenn voru kosnir Júlíus Haf-
stein, Anna K. Jónsdóttir og Guðrún
Zoega af D-lista og Siguijón Péturs-
son og Ólína Þorvarðardóttir af H-
lista.
♦ » »
Forseti
Portúgals
í opinbera
heimsókn
FORSETI Portúgals, Dr. Mario
Soares, kemur í opinbera heim-
sókn hingað til lands í dag. í för
með forsetanum verður eiginkona
hans, frú María Barroso Soares,
og sjávarútvegsráðherra Portúg-
als, ásamt fleirum. Ráðgert er að
heimsókninni Ijúki á sunnudag.
í dag er áformað að Portúgalsfor-
seti hitti að máli fiú Vigdísi Finn-
bogadóttur, forseta íslands, og síðar
Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
Utanríkis- og sjávarútvegsráðherrar
munu einnig sitja þann fund af ís-
lands halfu. Þá mun forsetinn heim-
sækja Ámastofnun, Ráðhús Reykja-
víkur, og hitta að máli fulltrúa stjóm-
arandstöðunnar.
Laugardeginum verður að mestu
varið til skoðunarferða, en haldið
verður af landi brott á sunnudags-
morgun, eftir heimsókn á Listasafn
íslands.
Sjá miðopnu: „Einarður..."
í dag
Gleðikokteill___________________
Spaugstofan heldur upp á tíu ára
afmæli sitt með „gleðikokteil“ 4
Listahátíð i Hafnarfirði________
Listamennirnir sjálfir hafa frum-
kvæðið að Listahátíð í Hafnarfirði
sem hefst í dag 11
Betlarqr sýni kurteisi__________
Borgarstjórnin í Washington hefur
samþykkt kurteislegt beti 25
Leiðari
Þjóðarsátt um atvinnuuppbygg-
ingu 26
Mildi að ekki varð stórslys við Sundahöfn skammt frá íbúðarhúsum á ísafirði
Unglingar
fundu 40 kíló
af dínamíti
ísafirði.
UNGLINGAR sem voru að sniglast í gömlum trillum við
Sundahöfnuna á ísafirði í gær fundu 40 kg af sprengiefninu
dínamíti í gamalli trillu sem stendur á þurru landi á uppfyll-
ingunni á Suðurtanga. Einn unglingnna fór með einn staut-
inn upp á lögreglustöð. Dínamítið hefur að sögn lögreglunn-
ar á Isafirði verið um nokkurn tíma í bátnum því nítróglýser-
ín var farið að leka úr stautunum, en við það skapast mikil
sprengihætta.
Ekki er vitað um hver hefur
komið dínamítinu fyrir í trillunni,
en að sögn lögreglu var það ekki
eigandi sprengiefnisins. Ekki hafði
verið tilkynnt um stuld á þvj. Hugs-
anlegt er talið að dínamítið hafi
verið í bátnum í allt að eitt ár, en
böm eru oft að leik á þessum stað.
Gríðarlegur kraftur
Nítróglýserín er afar viðkvæmt
fyrir höggi og getur það eitt orsak-
að sprengingu. Dínamítið var í
tveimur kössum og eru um tuttugu
kílógrömm í hvorum kassa. Mikil
mildi er að ekki varð þama stór-
slys því hefðu drengimir farið að
leika sér með dínamítúburnar
hefðu þær hæglega getað spmngið
í höndum þeirra en gríðarlegur
sprengikraftur er fólginn í slíku
magni af dínamíti. Þar sem
sprengiefnið fannst em um 200
metrar í næstu hús.
Sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar komu til ísafjarð-
ar í gærkvöldi. Eftir að þeir höfðu
skoðað dínamítið var það flutt út
á Arnarnes þar sem það var
sprengt. Úlfar
Könnun Sambands íslenskra sveitarfélaga á staðgreiðslu fyrstu þijá mánuði ársins
Heildarlaun hafa lækk-
að um 931 milljón króna
HEILDARLAUN hafa dregist saman um rúmlega 931 milljón
króna fyrstu þrjá mánuði ársins 1993 miðað við sama tíma-
bil árið 1992, samkvæmt samantekt Sambands íslenskra sveit-
arfélaga. Fram kemur að staðgreiðsluhlutfall sveitarfélaga
hefur dregist saman um 130 milljónir á sama tímabili en hluti
þeirrar lækkunar er vegna lækkunar á útsvari úr 7,05% í
7,04% að meðaltali eða um 5 miHjónir króna.
Yfírlit yfir heildarlaun í hveiju
sveitarfélagi sýnir að munur er milli
landshluta. í Reykjaneskjördæmi eru
15 sveitarfélög og hafa heildartekjur
lækkað í 13 sveitarfélögum en
hækkað í tveimur. Heildarlaun
lækka mest um 17,49% í Kjósar-
hreppi og 10,45% í Kjalamess-
hreppi. Samtals er lækkunin 2,59%
í Reykjaneskjördæmi. í Reykjavík
lækka heildarlaun um 2,04% milli
áranna.
Hækkun í Lundarreykjadal
Af 36 sveitarfélögum á Vestur-
landi lækka heildarlaun í 28 sveitar-
félögum en hækka í átta. í Skógar-
strandarhreppi lækka heildarlaun
um 22,72%. Laun hækkuðu í Lund-
arreykjadalshreppi um 26,58%.
Samtals lækka heildarlaun um
2,22% í kjördæminu.
Af 24 sveitarfélögum á Vestfjörð-
um lækka heildarlaun í 20 sveitarfé-
lögum en hækka í fjórum. Þar lækka
heildarlaun samtals um 7,60% í kjör-
dæminu, mest í Barðastrandarhreppi
eða um 38,55%. í Snæfjallahreppi
hækkuðu laun um 44,32%.
Á Norðurlandi vestra eru 30 sveit-
arfélög og lækka heildartekjur í 18
þeirra. Mest í Skagahreppi í A-
Húnavatnssýslu þar sem heildarlaun
lækka um 32,35%. Heildarlaun
hækka í 12 sveitarfélögum og
hækka heildarlaun samtals um
2,56% í kjördæminu milli ára.
Á Norðurlandi eystra eru 30 sveit-
arfélög og lækka heildarlaun í 19
sveitarfélögum. f Reykjahreppi
hækkuðu laun um 30,9%. Heildar-
tekjur hækkuðu í 11 sveitarfélag-
anna og er hækkun á heildarlaunum
í kjördæminu um 0,23%.
Á Austurlandi eru 30 sveitarfélög
og lækka heildarlaun í 22 en hækka
í átta. í Fljótsdalshreppi lækka heild-
arlaun um 29,54%. Samtals lækka
heildarlaun um 5,08%.
Á Suðurlandi hækka heildarlaun
um 1,20%. Þar lækka laun í 17 sveit-
arfélögum. í 14 sveitarfélögum
hækka heildarlaunin, mest í Þing-
vallahreppi um 35,03%.
BBAOU61 S, ~*r ciyp
Geislavirk gullkoni notuö í sumum tilfellum í meófctó við lunjpukr*hÉ»jrve« L UV-M Rps? IfalAtlm «4 fetlirm
Fasteignir Daglegt líf
► Aukin eftirspurn eftir húsnæði ^ Renault Nevada reynsluekið -
við Laugaveg - Er bygginga- Nessie eignast norskan keppinaut
markaðunnn mettaður? - Sumir . inn í regnskóga Perú - í doktors-
vefja grænt - Beint úr stofunm á námi á áttræðisaldri - tískumerki
golfvöllinn að detta úr tísku
Heildarlaun í ^
kjördæmunum
Yfirlit yfir greidd laun
í kjördæmum landsins
fyrstu þrjá mánuðina 1992
og 1993, byggt á skrám
-2,04°/«
ríkisskattstjóra Upphæðir I milljónum kr. -2.,o Laun Laun jan.-mars jan.-mars 1992 1993 Mis- munur Hlutfalls- breyting
Reykjavík 18.710 18.329 -381 -2,04%
Reykjanes 12.335 12.015 -320 -2,59%
Vesturland 2.495 2.439 -55 -2,22%
Vestfiröir 1.909 1.764 -145 -7,60%
Norðurl. vestra 1.519 1.559 39 2,56%
Noröurl. eystra 4.413 4.423 10 0,23%
Austurland 2.341 2.222 -119 -5,08%
Suðurland 3.284 3.324 39 1,20%
Samtals: 47.006 46.075 -931 -1,98%
Forsætisráðherra ræðirvið stjórnarandstöðu
Jákvæðir fundir
„MÉR fannst þetta vera jákvæðir
fundir,“ sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra um fundi sína
með forystumönnum stjórnar-
andstöðuflokkanna í gær. Hann
sagðist hafa kallað þá á sinn fund
til að kynna þeim „þau viðhorf
sem lægju til grundvallar þess
að við vildum hafa viðtækt sam-
ráð um þá vinnu sem þarf að
fara fram í tengslum við ákvörð-
un um hámarksafla á næsta ári.“
Davíð sagði að talsmenn stjórn-
arandstöðuflokkanna hefðu farið
yfir sín sjónarmið í málinu og tók
fram að ekki hefði verið óskað eft-
ir svörum þeirra nú heldur ákveðið
að vera í sambandi aftur strax eft-
ir helgi.
„Menn höfðu misjafnar áherslur.
Ég giska ekki á hver niðurstaðan
verður en mér finnst öll rök benda
til þess að menn hafni ekki boði
um að fá að taka þátt í grundvallar-
vinnu af þessu tagi,“ sagði forsætis-
ráðherra. Hann bjóst við að tillaga
sín um skipan tíu manna starfshóps
til að gera tillögur um lausn á vanda
sjávarútvegsins í kjölfar ákvörðun-
ar um hámarksafla yrði afgreidd í
ríkisstjóm á þriðjudag.
-----» ♦ »-----
Hjón flutt
á slysadeild
ELDRI hjón voru flutt á slysa-
deild eftir harðan árekstur í
Hafnarfirði í gærkvöld.
Slysið varð á gatnamótum
Reykjanesbrautar og Hafnarfjarð-
arvegar. Bílunum var ekið í gagn-
stæðar áttir, en öðrum þeirra var
beygt til vinstri í veg fyrir hinn. í
öðmm bílnum voru eldri hjón, kon-
an festist inni í bílnum eftir árekst-
urinn og þurfti að ná henni út með
aðstoð tækjabfls. Hún slasaðist
töluvert, að sögn lögreglu í Hafnar-
fírði.
Báðir bílamir em mikið skemmd-
ir og vom þeir fjarlægðir af slys-
stað með kranabíl.
I
I
I
i
I
I
i
I
i
I
I
1
I
I
|
1