Morgunblaðið - 04.06.1993, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1993
VEÐUR
Samkeppnisráð um kvörtun VISA vegna Félags ferðaskrifstofa og Flugleiða
Samningar kortafyrirtækjanna
við ferðaskrifstofur ólöglegur
SAMKEPPNISRÁÐ hefur fellt þann úrskurð, vegna kæru VISA
Islands, að samráð ferðaskrifstofa um verð og afslætti í samning-
um þeirra við greiðslukortafyrirtækin brjóti í bága við ákvæði
samkeppnislaga. Jafnframt telur ráðið að það brjóti í bága við
lögin að Félag íslenskra ferðaskrifstofa (FIF) geri samræmdan
samning um og verð og afslætti fyrir hönd þeirra sem aðild eiga
að félaginu. FIF hefur nú gert drög að nýjum samningi við Kred-
itkort hf. (Eurocard) þar sem hin ólöglegu ákvæði eru felld nið-
ur. Opið er fyrir greiðslukortafyrirtækin að gera samninga um
verð og afslætti við hverja einstaka ferðaskrifstofu.
VISA ísland kærði meint brot
Félags íslenskra ferðaskrifstofa og
Flugleiða hf. á samkeppnislögum til
Samkeppnisstofnunar, en kvörtunin
laut að samráði ferðaskrifstofa um
innheimtu forfallagjalds í pakkaferð-
um og samráði um afslætti til hand-
hafa Atlas-korta og Gullkorta Euroc-
ard.
Að lokinni athugun málsins komst
Samkeppnisstofnun að þeirri niður-
stöðu að þrátt fyrir að forfallagjald
sé hið sama hjá öllum ferðaskrifstof-
um og skilmálar vegna þess hinir
sömu þá hafi ekki verið sýnt fram á
að ferðaskrifstofumar hafi haft með
sér samráð um gjaldtökuna.
í rökstuðningi fyrir úrskurði sam-
keppnisráðs kemur fram að árið 1989
var stofnaður Farkiúbbur Félags ís-
lenskra ferðaskrifstofa í tengslum
við samstarf ferðaskrifstofa og Visa.
Formlegur samningur var gerður um
farklúbbinn og voru allar ferðaskrif-
stofur innan FÍF aðilar að honum.
Meðlimir klúbbsins voru handhafar
Farkorta og gullkorta hjá Visa og
nutu þeir ýmissa foorréttinda, svo
sem afslátta, m.a. hjá þeim ferða-
skrifstofum sem aðilar gerðust að
samningnum. Snemma árs 1992 var
undirritaður nýr samningur á milli
Visa og FÍF svipaður þeim fyrri, en
Visa rifti þó samningnum áður en
hann tók gildi. Gekk FIF þá til samn-
inga við Kreditkort hf. og náðist
samkomulag í apríl 1992 um ferða-
kort sem er efnislega mjög svipað
fyrri samningum FÍF við Visa. Flug-
leiðir hf. gerðust aðili að samkomu-
laginu.
Heimilt að semja beint
Fyrri samningur FÍF við Visa og
sá sem nú hefur verið gerður við
Kreditkort hf. fela í sér afslætti, og
hefur samkeppnisráð fellt þann úr-
skurð að samráð ferðaskrifstofa um
verð og afslætti í samningum þeirra
við greiðslukortafyrirtæki bijóti í
bága við samkeppnislögin. Jafnframt
telur ráðið að það bijóti í bága við
lögin að að Félag íslenskra ferða-
skrifstofa geri samræmdan samning
urri verð og afslætti fyrir hönd þeirra
sem aðild eiga að félaginu. Hins veg-
ar telur samkeppnisráð að drög að
samstarfssamningi um starfsemi
Atlas-klúbbsins sem fyrir ráðið hafa
verió lögð og Kreditkort hf. og Félag
íslenskra ferðaskrifstofa hafa gert
bijóti ekki í bága við ákvæði sam-
keppnislaga, en forráðamenn Euroc-
ard hafa tekið ákvörðun um að semja
beint við einstakar ferðaskrifstofur
og Flugleiðir um áframhaldandi fríð-
indi til handhafa Atlas- og gullkorta
Eurocard. Einnig er opið fyrir Visa
að leita eftir slíkum samningum.
Vegna ákvæðis í drögunum um
samráð samningsaðila um kynning-
arstarfsemi á vegum klúbbsins tekur
samkeppnisráð fram í úrskurði sínum
að FÍF sé óheimilt að standa að aug-
lýsingum eða annarri kynningar-
starfsemi um samræmt verð og af-
slætti fyrir hönd aðildarfyrirtækja
sinna.
Tíu ára afmæli
Spaugstofunnar
„Gleði-
kokteilF4
í Borgar-
leikhúsinu
SPAUGSTOFAN ætlar að
halda upp á 10 ára afinæli sitt
með jafn mörgum kabarettsýn-
ingum í Borgarleikhúsinu upp-
úr miðjum ágúst. Örn Árnason
segir að hugmyndin sé að setja
saman „gleðikokteil" fyrir allá
fjölskylduna. Eitt atriði í sýn-
ingunni verður bein útsending
sakamálaleikrits í útvarpi.
Örn sagði að spaugstofumenn
væru nú í óða önn að setja dag-
skrána saman og yrði hún með
fjölbreyttum hætti. Yrði eflaust
deilt á samtímamenn og málefni
og ekki væri ólíklegt að einhveij-
SS af þekktum sjónvarpspersón-
um Spaugstofunnar létu sjá sig
á sviðinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Æft fyrir mótið
UNDIRBÚNINGUR er nú í hámarki fyrir mót í götukörfubolta. Hátt
í 1.000 manns hafa skráð sig til keppni í mótinu en það fer fram á
morgun.
Mikil þátttaka í móti
í götukörfubolta
• •
V V
ÍDAGkl. 12.00
Heimild: Veflurslofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 f gær)
i
i
i
i
i
i
i
VEÐURHORFUR í DAG, 2. JÚNÍ
YFIRLIT: Um 500 km suðsuðvestur af landinu er 988 mb laegð sem
þokast norður og síðar austur. Milli fslands og Noregs er 1025 mb
hæðarhryggur sem þokast austnorðaustur.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Vesturdjúpi og Suðvesturdjúpi.
SPA: Austlæg átt, sumstaðar hvassviðri norðan til en hægari um land-
ið sunnanvert. Norðan til verður rigning fram eftir degi, en um landið
sunnanvert verða skúrir. Undir kvöld dregur úr vindi norðanlands og
þá verða skúrir um allt land. Hiti verður á bilinu 6-14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A LAUGARDAG: Suðvestan kaldi og skúrir um sunnanvert
landið, en hæg suðaustlæg átt og þurrt að mestu nyrðra. Hiti 4 til 10 stig.
HORFUR A SUNNUDAG: Suðaustan kaldi eða stinningskaldi og rigning
um sunnanvert landið, en þurrt að mestu norðan- og norðvestan lands.
Hiti 5 til 11 stig.
HORFUR Á MANUDAG: Hæg breytileg eða vestlæg átt og skúrir um
sunnan- og vestanvert landið, en þurrt og víða léttskýjað norðaustan-
og austanlands. Hiti 5 til 12 stig.
Nýir veðurfregnatimar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
T
Heiðskírt
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
-á & m
Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
* / * * * *
* / * *
/ * / * * *
Slydda Snjókoma
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heilfjöðurer2vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐÁ VEG UM:
T ' —.......... .....
(Kl. 17.30 í gær)
Það er yfirleitt ágæt færð á þjóðvegum landsins. Fært er fyrir létta Píla
um Dynjándis- og Hrafnseyrarheiðar og á Botns- og Breiðadalsheiði á
Vestfjörðum. Fólksbílafært um Lágheiði á Norðuriandi. Á Norðaustur-
landi er ófært um Öxarfjarðarheiði og Hólssand, ágæt færð um Möðru-
dalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Á Austurlandi er fært um Breiðdals-
heiði, Vatnsskarö eystra og Hellisheiði eystri. Hálendisvegir eru lokaðir
vegna snjóa og aurbleytu. Viðgerðir á klæöingum eru víða hafnar og
eru vegfarendur beðnir að virða hraðatakmarkanir sem settar eru vegna
hættu á grjótkasti.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegageröin.
MIKIL sókn hefur verið í þátttöku í móti í svokölluðum götukörfu-
bolta. Nú er svo komið að ekki er lengur tekið við nýjum liðum,
sem vilja skrá sig. Mótið fer fram á malbikinu við hliðina á gervi-
grasinu í Laugardal á laugardag og taka hátt í 1.000 manns þátt
í mótinu í 232 liðum.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að fsl. tima
Akureyri Reykjavik * hiti 10 9 voöur léttskýjað skýjað
Bergen 14 léttskýjað
Helsinki 13 skýjað
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Narssarssuaq S skýjað
Nuuk -1 þokaígrennd
Osló 17 léttskýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Þórshöfn 7 rigning
Algarve 23 skýjað
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 19 rigning
Chicago lOsúldóaíð.klst.
Feneyjar 16 skúr
Frankfurt 21 skýjað
Glasgow 14 mistur
Hamborg 14 alskýjað
London 16 skýjað
Los Angeles 17 skýjað
Lúxemborg 17 Skýjað
Madríd 25 skýjað
Malaga 24 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Montreal 12 háifskýjað
NewYork 17 alskýjað
Orlando 23 þokumoða
Paris 18 rignlng
Madeira 21 skýjað
Róm 24 léttskýjað
Vín 20 skúrir
Washington 14 súld
Winnipeg 5 skýjað
Götukörfubolti fer þannig fram að
fjórir eru í hveiju liði en aðeins þrír
leika í einu. Notuð er ein karfa og
það lið sigrar, sem fyrr gerir 30 stig
eða er yfir eftir 15 mínútur. „Götuk-
örfubolti breiðist hratt út og er keppt
í Bandaríkjunum og Evrópu á 300
stöðum í sumar,“ sagði Olafur B.
Schram, framkvæmdastjóri Adidas-
umboðsins en öll götukörfuboltamót
eru á vegum þess vörumerkis að
sögn Ólafs.
Engir dómarar
„Það er enginn rekinn út af, það
eru engar villur og engir dómarar.
Vallarstjórar geta þó gefíð viðvörun
og vísað keppendum og liðum úr
keppni ef tilefni er til. En þetta er
bara leikur,“ sagði Ólafur. Þetta er
útsláttarkeppni fyrir utan það að lið
eru ekki úr keppni þótt þau tápi
fyrsta leik sínum.
Liðunum er skipt í flokka eftir
aldri elsta keppanda í hveiju liði.
Flokkamir eru fjórir hjá körlum: 12
ára og yngri, 13 til 15 ára, 16 tii
20 ára og 21 árs og eldri. Einn flokk-
ur er hjá konum enda taka aðeins
16 kvennalið þátt. Hvert lið keppir
svo eingöngu við lið innan síns ald-
ursflokks. Flestir keppendur eru und-
ir 20 ára aldri að sögn Ólafs.
Fjórtán vellir verða notaðir í und-
ankeppninni en auk þess verður einn
stærri völlur með áhorfendapöllum í
kring notaður í úrslitaieikina. Körf-
umar, sem eru notaðar, eru frá
Þýskalandi og er hægt að hækka þær
og lækka eftir því um hvaða aldurs-
hóp er að ræða. .
♦ ♦ ♦
Stórlaxar »
í Norðurá
VEIÐIMENN á Munaðarnes-
svæðinu neðan aðalsvæðisins í
Norðurá drógu þijá stórlaxa á
klukkustund í gærmorgun, misstu
þann Qórða og sáu fleiri fiska, sem
allir vorú stórir.
„Þetta var vægast sagt óvænt eft-
ir rólegheitin héma síðustu daga, en
að sama skapi gleðilegt og skemmti-
legt,“ sagði Sverrir Kristinsson, einn
veiðimannanna á Munaðarnessvæð-
inu. Laxamir voru 13,5, 12 og 11
punda og sá sem slapp var álíka stór.
„Við sáum nokkra til viðbótar, þar
af tvo hörkunagla, svona 14 til 15
punda físka,“ bætti Sverrir við. Þessi
veiði er til marks um að vatnshitinn
hefur farið hlýnandi.
í Þverá var enn rólegt um hádeg-
isbilið í gær. Enginn lax hafði veiðst |
um morguninn, en kvöldið áður hafði
Jón Ingvarsson dregið lax númer tvö
úr ánni. Var það 11 punda lax sem
tók Þingeying, túbuflugu, í Klappar-
fljóti.