Morgunblaðið - 04.06.1993, Síða 11
' MÖRGUNBLAB'IÐ' FÖáTUDACÍIÍR 41.' ‘JÚNÍ > ‘1993
11
Morgunblaðið/Bjami
Æfing fyrir Listahátíð í Hafnarfirði
Á SETNINGARHÁTÍÐ Listahátíðar í Hafnarfirði í kvöld eru flytjendur Sinfóníuhljómsveit íslands,
hafnfirskir kórar og Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona.
Listahátíð í Hafnarfirði opnuð með tónleikum
Nýsköpun o g fnimkvæði
listamannanna sjálfra
LISTAHÁTÍÐ í Hafnarfirði hefst með tónleikum í Iþrótta-
húsinu í Kaplakrika í kvöld kl. 20.30. Sinfóníuhljómsveit
Islands og hafnfirskir kórar flytja Gloriu eftir Poulenc og
Sinfóníu nr. 1 eftir Brahms. Einsöngvari er Sigrún Hjálm-
týsdóttir, stjórnandi Petri Sakari.
Listahátíð í Hafnarfirði stendur
til 30. júní. Höfuðáhersla hefur
að þessu sinni verið lögð á tónlist
og er boðið upp á fjölda tónleika
með innlendu og erlendu tónlistar-
fólki.
Sverrir Ólafsson, framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að síðast hefði
verið lögð mikil áhersla á mynd-
list. Nú væri það tónlistin, en yrði
að líkindum aftur myndlist 1995.
Áherslur breyttust þannig milli
hátíða. Hann sagði að undirbún-
ingur næstu listahátíðar væri þeg-
ar hafinn, enda þyrfti langan að-
draganda að slíkum hátíðum.
Sverrir sagðist telja það mikil-
vægt að eitthvað nýtt yrði til í
hvert skipti sem listahátíð væri
haldin. Tækifæri þyrftu að gefast
til nýsköpunar. Hátíðin kostaði
gerð nýrrar tónlistar, ieikrita og
dansverka í þeim tilgangi. „Við
erum að reyna að forðast miðstýr-
ingu sem okkur finnst aðrar lista-
hátíðir hafa brennt sig á,“ sagði
Sverrir. „Hafnarfjarðarmódelið er
að listamennirnir hafi frumkvæði
sjálfir, stjórni og beri ábyrgð á því
sem fram fer, en fjárhagslegur
stuðningur komi frá bæjaryfir-
völdum.“
Hann var inntur eftir skýringu
UM HELGINA
Myndlist
Árni Ingólfsson í
Nýlistasafninu
Árni Ingólfsson opnar sýningu á
verkum sínum í Nýlistasafninu á
Vatnsstíg á morgun, laugardaginn
5. júní, kl. 16. Ámi hefur haldið
einkasýningar hér og að heiman allt
frá árinu 1976, og tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum. Sýningin nú
samanstendur af ólíkum efnisheild-
um og er í öllum söium safnsins.
Hún stendur til 20. júní.
Síðasta sýningarhelgi
„Arktika“
„Arktika“-sýningunni lýkur
sunnudagskvöldið 6. júní í sýningar-
sal MÍR, Vatnsstíg 10. Á sýningunni
eru verk þeirra Katrínar Þorvalds-
dóttur og Álexöndru Kjuregej; Katrín
sýnir brúður, strengjabrúður og
grímur en Kjuregej sýnir mundsaum,
„aplíkeruð" verk. Að sýningunni á
Vatnsstígnum lokinni verða verkin
' send á fjölþjóðlega myndlistarsýn-
ingu listamanna frá norðlægum slóð-
um, sem haldin verður seinni partinn
í júní í borginni Jakútsk í Áustur-
Síberíu. Sýningin, sem ber heitið
„Arktika", er liður í listahátíð sem
menningarmálaráðuneyti Sakha
(Jakútíu), eins af lýðveldum Sam-
bandslýðveldisins Rússlands, efnir til
með þátttöku listamanna frá mörg-
um norðlægum löndum. Sex íslend-
ingar taka þátt í listahátíðinni, með-
al þeirra listakonurnar Alexandra
Kjuregej, sem er ættuð frá Jakútíu,
og Katrín Þorvaldsdóttir. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
Barnakór Grensáskirkju.
Gylfi Ægisson í Fjör-
unni
Gylfl Ægisson heldur málverka-
sýningu í Fjörunni, Hafnarfirði, á
morgun, laugardag, og á sunnudag,
þ.e. aðeins þessa tvo daga. Á sýning-
unni verða 20 málverk, og sýna flest
þeirra seglskip frá fyrri tímum.
Tónlist
Álafosskórinn í söng-
för
Álafosskórinn úr Mosfellsbæ verð-
ur á tónleikaferð um Norðurland
dagana 4. til 6. júní. í kvöld kl. 21
syngur hann í Stóru-Tjarnaskóla í
Ljósavatnsskarði, á morgun, laugar-
dag, í Dalvíkurkirkju kl. 16 og í
Freyjuvangi í Eyjafirði kl. 21. Efnis-
skrá kórsins er fjölbreytt. Stjórnandi
kórsins er Helgi R: Einarsson og
undirleik annast Hrönn Helgadóttir
á píanó og Kristjana Helgadóttir á
þverflautu.
Barnakór Grensás-
kirkju á tónleikum
Barnakór Grensáskirkju heldur
sína fyrstu sjálfstæðu tónleika nk.
þriðjudagskvöld, 8. júní, í Laugarnes-
kirkju. Stjórnandi kórsins er Margrét
J. Pálmadóttir, en hún hefur stjórnað
kórnum í þau þijú ár sem hann hef-
ur starfað. I kórnum eru 38 börn á
aldrinum 8-14 ára og hafa þau flest
verið með frá byijun. Á efnisskránni
eru iög trúarlegs eðlis, þjóðlög, ne-
grasálmar, lög úr söngleikjum o.fl.
Undirleik annast þeir Ronald V.
Turner, organisti Laugarneskirkju,
og Óskar Einarsson píanóleikari.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis
og eru allir velkomnir.
Norræna húsið
Vatnslitamyndir frá
N orðurlöndunum
SÝNING á vatnslitamyndum eftir 27 myndlistarmenn frá 5
Norðurlöndum verður opnuð á morgun, laugardaginn 5. júní,
í sýningarsölum og anddyri Norræna hússins. Hún stendur til
27. júní. Þetta er farandsýning sem „Nordiska akvarellsállskap-
et“ stendur að ásamt Listasafni Gautaborgar, en samtökin
voru stofnuð árið 1989 af listamönnum og áhugamönnum sem
vilja efla áhuga almennings og stofnana á þessari gerð mynd-
listar. Þetta er fyrsta sýningin sem þessi samtök standa að.
í samtökunum eru nú um 1.000
meðlimir, skólaðir myndlistarmenn
og sjálfmenntaðir sem fást annars
vegar eingöngu við gerð vatnslita-
mynda og hafa hins vegar sér-
stakan áhuga á þessari listgrein.
Sýningin á vatnslitamyndunum nú
er hluti af því átaki. Fimm til sex
listamenn voru valdir frá hveiju
Norðurlanda sem „sýna þannig á
mismunandi hátt hvernig nota má
vatnslitatæknina — tuttugu og sjö
aðferðir ef mönnum sýnist svo —
til sköpunar. Við lærum af þessu
að þema og inntak verkanna þróar
tæknina og getur af sér frumlega
meðhöndlun þeirra,“ segir i kynn-
ingarbæklingi um sýninguna.
á stórum hlut Suður-Ameríku á
hátíðinni, sérstaklega Mexíkó.
Hann sagðist sjálfur hafa unnið
mikið með listamönnum í Mexíkó
og góð tengsl hefðu myndast af
þeim ástæðum. „Þessi menningar-
heimur hefur verið lokaður, við
höfum kynnst honum nær ein-
göngu gegnum Evrópu og Banda-
ríkin, en þama eru merkilegir hlut-
ir að gerast,“ bætti Sverrir við.
Sverrir Olafsson benti að lokum
á að sumir þeirra sem tækju þátt
í Listahátíð í Hafnarfirði væru
ekki algengir gestir við slík tæki-
færi og ekki auðvelt að fá þá til
að koma. Hann nefndi í því sam-
bandi hinn heimskunna franska
listsagnfræðing Pierre Restany og
einnig þýska framúrstefnulista-
manninn Mario Reis.
J. H.
eSU 09 betri bí/asa/a „ .
/bílasala garðars]
Nóatúni 2, sími 619 615
Opið 10-22 virka daga
10-17 laugard. og 13.30-17 sunnud.
Toyota Touring GLI, '91, blár, ek. 60 þ.
V: 1.290 þ.
VW Vento GL, '93, vínrauður, ek. 10■ þ.
V: 1.330 þ.
Dodge Dakota Club Sport, '91, svartur,
35" dekk, 4/10 hlutföll o.fl. o.fl., ek. 14 þ.
MMC L200 D, CAB, '91, rauður, ek. 29 þ.
Ýmis hjól á staðnum
Vantar bíla á staðinn
Stór sýningarsalur
Sýningarstaðir farandsýningar-
innar' eru auk Norræna hússins,
Gallerí F15 í Moss í Noregi, Nikolaj
í Kaupmannahöfn og Österbotten-
safnið í Vasa, Finnlandi.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
sjöum Moggans!
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
B71800
Opið sunnudaga
kl. 13 - 18.
MMC Pajero turbo diesel ’85, silfurgrár,
vél og kassi nýyfirfarið, 5 g. V. 790 þús.
Nissan Patrol háþekja diesel ’86, hvítur,
5 g., ek. 170 þ., 6T spil o.fl. gott eintak.
V. 1.550 þús.
Subaru 1800 GL Coupé 4x4 '87, blár, 5
g., ek. 100 þ., rafm., í rúðum, sóllúga o.fl.
V. 590 þús. stgr.
Toyota Corolla Liftback GTi '88, svartur,
5 g., ek. 103 þ., álfelgur, sóllúga o.fl. V.
730 þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade Sedan SG '90, blár,
5 g., ek. 35 þ., aflstýri o.fl. V. 690 þús. stgr.
Toyota Hilux Douple Cap diesel '91, vsk-
bíll, blásans, 5 g., ek. 39 þ., álfelgur o.fl.
V. 1690 þús., sk. á ód.
Fjöldi bifreiða af öllum árgerðum
á skrá og á sýningarsvæðinu.
Verð og kjör við allra hæfi.
Honda Civic DL ’87, rauður, sjálfsk., ek.
78 þ. Fallegur bíll. V. 430 þús. stgr.
Buick Electra Park Avenue '85, sjálfsk..
m/öllu, ek. 160 þ. Óvenju gott eintak.
V. 950 þ.
Suzuki Swift Gl ’88, 3ja dyra, 5 g., ek. 64
þ. V. 395 þús. Góður bill.
MMC Colt GLXi '91, 5 g., ek. 34 þ.
V. 980 þús., sk. á ód.
Honda Civic GLi ’90, 5 g., ek. 42 þ.
V. 850 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla Sedan '87, 5 g., ek. 85
þ. Mjög gott eintak. V. 420 þús., sk. á ód.
Dodge Aries '89, 4ra dyra, sjálfsk., ek
120 þús. V. 550 þús., sk. á ód.
Toyota Hi-lux Douple Cap diesel '89, 5
g., ek. 110 þ., m/húsi, ýmsir aukahl.
V. 1320 þús., sk. á ód.
Toyota Ex Cap V-6 m/húsi ’90, vsk-bill,
sjálfsk., ek 19 þ. mílur, álfelgur o.fl.
V. 1490 þÚS.
Toyota Corolla Liftback GTi ’88, svartur,
5 g., ek. 103 þ., álflegur, sóllúga o.fl.
V. 730 þús., sk. á ód.
ODYRIR BILAR:
V.W. bjalla '73. V. Tilboð.
Ford Escort '84, 5 dyra, 5 g., ek. 110 þ.
V. 170 þús.
BMW 320 ’81. V. 160 þús. Gott eintak
Ford Taunus '82, sjálfsk. Gott eintak.
V. 145 þús.
Saab '77. Gott eintak. V. 75 þús.
og margir fleiri.