Morgunblaðið - 04.06.1993, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 4l JÚNÍ 1993
15
Evrópuár aldraðra 1993
Lífsgleði og atorka aldraðra
- eru breytingar í vændum?
eftir Þóri S.
Guðbergsson
Ör þróun
Ör þróun og uppbygging hefur
átt sér stað á undanfömum áratug-
um í málefnum aldraðra.
Allt hefur sinn tíma, einnig
stefnumörkun stjórnarvalda og
skipulagsbreytingar. Á hveijum
tíma erum við „börn okkar tíma“,
skipuleggjum og framkvæmum
samkvæmt reynslu og þekkingu.
Fyrir rúmum tveim áratugum
vom á annað hundrað fullorðnir og
aldraðir sjálfboðaliðar í félags- og
tómstundastarfi hjá Reykjavíkur-
borg. Óhætt er að fullyrða að starf
sjálfboðaliða hafi verið einn af horn-
steinum í félagsstarfinu. Með lífs-
gleði og atorku lögðu þeir lið sem
seint mun gleymast og aldrei verður
fullmetið og þakkað.
Svipuð saga hefur og er enn að
gerast í mörgum sveitarfélögum um
allt land.
Um aldamótin 1900 er talið að
íbúar, 65 ára og eldri í öllum heim-
inum, hafi verið talsvert innan við
17 milljónir, undir 1% af íbúafjöld-
anum.
Árið 1992 voru 342 milljónir í
þessum aldurshópi eða um 6,2% af
íbúafjöldanum. Og árið 2050 er
áætlað að íbúar jarðarinnar, 65 ára
og eldri, verði um 2,5 milljarðar eða
um 1/5 hluti íbúaíjöldans.
í kringum árið 2025, eftir rúma
3 áratugi, er gert ráð fyrir því að
í nær öllum löndum Evrópu verði
þessi aldurshópur yfir 13% af íbúa-
fjöldanum og í mörgum löndum
mun meiri, þar á meðal Islandi.
Við þurfum áfram að vinna með
uppbrettar ermar og skoða vand-
lega hvernig best er að búa í hag-
inn, hvaða gildi við teljum mikil-
vægt í lífínu, í félags- og heilbrigðis-
málum, í mennta- og menningar-
málum og efnahagsmálum þjóðar-
innar.
Lífsgleði aldraðra
Á undanförnum árum hef ég
heyrt marga aldraða spyija með
miklum þunga:
„Getur verið að á sumum sviðum
sé verið að hlaða undir rassinn á
okkur? Getur verið að stefnan sé
of mikið í þá áttina að við fáum
ekkert að gera sjálf, séum sett til
hliðar, séum mötuð og það endi
með því að við verðum eins og
„óþekk böm“ og komandi kynslóðir
verði sífellt kröfuharðari?
Flestir aldraðir búa heima hjá
sér, fy'öldi við þolanlega heilsu,
margir við hestaheilsu.
Flestir aldraðir vilja vinna, vilja
leggja hönd á plóg eftir getu og
Þórir S. Guðbergsson
„Lífsgleði og atorka
margra aldraðra er
með ólíkindum. Þeir
búa yfir reynslu, þekk-
ingu og varfærni sem
við þurfum á að halda.
Þeir eiga að vera virkir
bæði meðal ungra og
gamalla. Þeir eiga ekki
að einangra sig og
draga sig í hlé. Auðvit-
að eru þeir misjafnir
eins og allir aldurshóp-
ar með ólíkar þarfir og
óskir, mismunandi
áhugamál, getu og
hæfni, en samfélagið
þarfnast þeirra.“
hæfni. í bókinni Lífsgleði sem kom
út á síðasta ári kom þetta greini-
lega fram hjá öllum höfundum sem
eru aldraðir og einn þeirra segir
m.a.: „í frumkvæðinu felst ákveðin
lífsfylling og sjálfstæði sem eykur
okkur kjark og eflir okkur til dáða.
við þurfum að fá að gera sem mest
upp á eigin spýtur.“
Eru breytingar í sjónmáli?
í Danmörku er til félag sem
stofnað var fyrir 5 árum og nefnist
Ældre Sagen. Öllum 18 ára og eldri
er opin þátttaka þó að flestir séu
eftirlaunaþegar.
Hátt á þriðja hundrað þúsund
félagar eru nú í félaginu sem hefur
aðalstöðvar í Kaupmannahöfn en
útibú um alla Danmörku.
Félagið gefur út fréttabréf og
heldur uppi þróttmiklu starfi. I
Kaupmannahöfn er rekin sauma-
stofa, dagskóli með fjölbreyttum
námskeiðum, þar er fjöldi klúbba
aldraðra sem hefur þar aðsetur, þar
er verslun með handavinnu og lista-
verslun aldraðra o.s.frv. Eftirlauna-
þegar sjá um þetta allt í sjálfboða-
vinnu en hafa ráðið til sín sérfræð-
inga í ýmis verkefni og hljóta styrk
frá sveitarfélaginu.
Félagið sendir einnig fulltrúa
sína og „fréttamenn“ á bæjarstjóm-
arfundi og á danska þingið í hvert
sinn er málefni aldraðra eru rædd
og eru fréttatilkynningar sendar til
íjölmiðla og greinar skrifaðar í blöð
ogtimarit.
í mörgum nágrannalanda okkar
eins og á Norðurlöndum hafa verið
sett á laggirnar hverfafélög aldr-
aðra.
í einu sveitarfélagi sem ég heim-
sótti fyrir fáeinum árum vom starf-
andi 15 hverfafélög í 100.000
manna borg.
í einu hverfanna höfðu aldraðir
gert upp gamalt hús sem borgin
afhenti þeim. Þar höfðu þeir inn-
réttað í sjálfboðavinnu hlýlegar inn-
réttingar og gert húsið að hverfa-
miðstöð.
Á öðrum stað hafði öldruðum
áskotnast um 150 fm óinnréttað
iðnaðarhúsnæði sem þeir breyttu í
íþrótta- og heilsuræktarsali.
Fyrir rúmu ári var samþykkt á
norska þinginu að í öllum sveitarfé-
lögum landsins skyldu starfa öldr-
unarráð, þar sem aldraðir eru í
meirihluta og er ráðinu ætlað að
fylgjast með og vera til ráðgjafar
um öll mál sveitarfélagsins sem
varðar aldraða.
Lífsgleði og atorka margra aldr-
aðra er með ólíkindum. Þeir búa
yfir reynslu, þekkingu og varfærni
sem við þurfum á að halda. Þeir
eiga að vera virkir bæði meðal
ungra og gamalla. Þeir eiga ekki
að einangra sig og draga sig í hlé.
Auðvitað eru þeir misjafnir eins og
allir aldurshópar með ólíkar þarfir
og óskir, mismunandi áhugamál,
getu og hæfni, en samfélagið þarfn-
ast þeirra.
Einn af höfundum í áðu.nefndri
bók segir: „Það er því einiæg von
mín, að ég fái að njóta þeirrar lífs-
gleði sem felst í því að halda góðri
heilsu, vera í samvistum við sína
nánustu og vera virkur þátttakandi
í lífinu allt til enda. “
Eru kannski miklar bretingar í
sjónmáli?
Höfundur er félagsr&ðgjafi og
fræðslufulltrúi
öldrunarþjónustudeildar
Reykja víkurborgar.
Opel Kadett, árg. '86
Ekinn 90 þús. km., rauöur, beinsk.
Tilboösverö 250.000 kr.
Ókeypis ábyrgöartrygging í 1 ár
Lada Sport, árg. '88
Ekinn 50 þús. km., grænn, beinsk.
Tilboösverö 280.000 kr.
Ókeypis ábyrgöartrygging f 1 ár
Lada Sport, árg. '88
Ekinn 65 þús. km., rauöur, beinsk.
Tiiboösverö 280.000 kr.
Ókeypis ábyrgöartrygging í 1 ár
Toyota Camry, árg. '87
Ekinn 94 þús.,km., grár, sjálfsk.
Tilboösverö 860.000 kr.
Ókeypis ábyrgöartrygging f 1 ár
MMC Colt GLX, árg. '86
Ekinn 117 þús. km., hvítur, beinsk.
Tilboösverö 350.000 kr.
Ókeypis ábyrgöartrygging í 1 ár
Citroén AX 14, árg. '87
Ekinn 70 þús. km., svartur, beinsk.
Tilboösverö 330.000 kr.
Eigum örfáa notaöa bfla f eigu Globus hjá Bílahöllinni á einstöku tilboösveröi og með Ókeypis ábyrgöartrygging f 1 ár
ókeypis ábyrgöartryggingu í kaupbæti. Fáöu þér góöan bíl á góöu veröi og þú sparar
þér iögjald í heilt ár aö auki.
Dodge Ram Wagon, árg. '87
Ekinn 89 þús. km.,12 manna, sjálfsk.
Tilboösverö 85.000 kr.
Ókeypis ábyrgöartrygging í 1 ár
Dodge Shadow, árg. '89
Ekinn 40 þús. km., rauður, sjálfsk.
Tilboösverö 820.000 kr.
Ókeypis ábyrgöartrygging í 1 ár
Chevrolet Celebrity, árg. '86
Ekinn 160 þús. km., blár, sjálfsk.
Tilboösverð 450.000 kr.
Ókeypis ábyrgöartrygging f 1 ár
SÍMI 674949
MB ER OPK> HJÁ OKKUR:
mónud. til föstud. kl. 9.00 - 18.30
og laugardaga kl. 10.30 - 17.00
GOTT FÓLK / SlA