Morgunblaðið - 04.06.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1993
f
...þar sem ferðalagið byrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
101 REYKJAVfk S. 91 -621 780
í SEGLAGERÐINNI ÆGI
FÆST EITT MESTA
ÚRVAL LANDSINS AF
(
ÚTIVISTARVÖRUM.
OG NÚ HÖLDUM VIÐ UPP
Á 80 ÁRA AFMÆLIÐ
UM HELGINA
- MEÐ ÞÉRI
1993
HEIÐUR Baldursdóttir, kennari
og rithöfundur, lést þann 28. maí
síðastliðinn. Hún var þá á þrítug-
asta og fimmta aldursári.
Heiður fæddist 31. maí 1958,
dóttir Baldurs Ragnarsonar, ís-
lenskukennara við Menntaskólann
við Hamrahlíð, og Þóreyjar Mjall-
hvítar Kolbeins, yfirkennara við
Þroskaþjálfaskóla Islands.
Heiður lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
árið 1976 og B.Ed.-prófi frá Kenn-
araháskóla Islands árið 1983. Hún
hóf nám í sérkennslufræðum við
sama skóla 1985 og lauk fyrrihluta
þess ásamt starfsleikninámskeiði
árið 1987. Seinni hluta námsins
lauk hún með BA gráðu árið 1990.
Hún varð að hætta námi í sér-
kennslufræðum við Temple Uni-
versity í Philadelphia vegna veik-
inda árið 1992.
Heiður stundaði kennslustörf og
tók þátt í félagsstörfum, bæði í
verkalýðsmálum og á sviði kennslu-
mála. Hún var í trúnaðarmannaráði
Starfsmannafélagsins Sóknar
1978-79, í stjórn Kennarafélags
Reykjavíkur 1985-1986, í mennta-
málanefnd Þroskahjálpar 1987-
1989 og í skólamálaráði Kennara-
Heiður Baldursdóttir.
sambands íslands 1987-1990. Eftir
Heiði eru fimm barnabækur og
hlaut hún íslensku barnabókaverð-
launin fyrir bókina Álagadalurinn.
Eftirlifandi eiginmaður Heiðar
er Ómar Sævar Harðarson, stjórn-
málafræðingur hjá Hagstofu ís-
lands. Börn þeirra eru: Brynhildur,
f. 31. ágúst 1978 og Þórey Mjall-
hvít, f. 25 ágúst 1980.
Þorsteinn Pálsson á hádegisverðarfundi Félags stórkaupmanna
Verðmætaaukning sjávar-
afurða forsenda hagvaxtar
TÆKIFÆRI til hagvaxtar hér á landi í náinni framtíð helg-
ast fyrst og fremst af verðmætaaukningu sjávarfangs, því
íslendingar eru komnir að endimörkum þess mögulega í aukn-
ingu hráefnis úr sjó um allmörg komandi ár, sagði Þorsteinn
Pálsson, sjávarútvegsráðherra á hádegisverðarfundi Félags
íslenskra stórkaupmanna í gær. Hann kvað mikilvægt fyrir
íslendinga að fjárfesta í vöruþróun, tækni, markaðsstarfsemi
og gæðastjórnun, því átta lélegir þorskárgangar í röð væru
það versta sem þjóðin hefði staðið frammi fyrir, og gæfi
ekki tilefni til að taka neina áhættu.
Þorsteinn sagði mikið velta á
því að byggja upp mikilvæga físk-
stofna, þótt það kynni að valda
tímabundnum erfiðleikum. Það
væri skárri kostur en ef óvarlega
væri farið og Islendingar upplifðu
að þorskveiðar yrðu úr sögunni um
tíma, eins og komið hafi fyrir
Grænlendinga, Færeyinga og
Kanadamenn.
Tvískinnungur EB
Varðandi markaðsmálin lét Þor-
steinn í ljósi þá von, að Bandaríkja-
markaður, sem dregist hefði sam-
an undanfarin ár vegna gjaldeyris-
þróunar, gæti verið að sýna bata-
merki. íslenskar fiskafurðir hefðu
einnig verið að vinna á í Asíu, og
brýnt væri að tryggja framtíðar-
stöðu greinarinnar innan vébanda
EES og GATT, en EB hafi stöðugt
staðið í vegi fyrir fríverslun. Þor-
steinn sagði þetta töluverðan tví-
skinnung af hálfu EB, því meðan
innri markaðurinn byggði á styr-
kjaleysi, stundaði EB einungis frí-
verslun út á við þar sem bandalag-
ið væri sterkari aðilinn, en ekki
þar sem það stæði verr að vígi.
„Þótt við höfum náð 96% toll-
frelsi á íslenskar sjávarafurðir eru
okkar aðstæður enn þær, að við
erum að keppa við ríkisstyrktan
Morgunblaðið/Bjarni
Fjárfesting- í mark-
aðsmálum lausnin
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
segir að skapa verði hagnað í
fiskveiðum og -vinnslu svo verða
megi af nauðsynlegri fjárfest-
ingu í vöruþróun og tækni.
AFMÆLISHÁTÍÐ UM HELGINA
sjávarútveg," sagði Þorsteinn.
„Við höfum ekki möguleika á að
styrkja sjávarútveginn úr ríkis-
sjóði, og hljótum því að byggja á
því að reyna að gera hlutina bet-
ur.“
Hagvöxtur fólginn í auknum
gæðum sjávarafurða
Sjávaútvegsráðherra lagði á það
ríka áherslu, að leiðin til aukins
hagvaxtar hér á landi væri fólgin
í að auka verðmæti þess sem kem-
ur á land. Nýjar og strangari regl-
ur og gæðakröfur í Evrópubanda-
laginu og Bandaríkjunum yllu því
að auka þyrfti gæðin allt frá skipi
og inn á borð hjá neytandanum.
„Við þurfum á fjárfestingu að
halda í vöruþróun, tækni og mark-
aðsstarfsemi,“ sagði Þorsteinn,
sem kvaðst ekki telja að slíkt yrði
að veruleika með afskiptum stjórn-
valda, heldur væri slíkt eðlilegt
framhald af því að vel rekin fyrir-
tæki geti sýnt gróða og leitt slíka
þróun.
V estmannaeyj ar
Skrifstofu-
sljóri sýslu-
manns lætur
af störfum
BÓKHALD og fjárreiður
sýslumannsembættisins í
Vestmannaeyjum eru nú til
rannsóknar hjá Ríkisendur-
skoðun. Georg Kr. Lárusson
sýslumaður kvaðst í samtali
við Morgunblaðið hafa beðið
um slíka úttekt eftir að hafa
komið auga á ákveðnar rang-
færslur í bókhaldi embættis-
ins. Eftir lauslega athugun
Ríkisendurskoðunar sagði
skrifstofusljóri sýslumanns-
embættisins stöðu sinni lausri
um miðjan maímánuð og lét
af störfum samdægurs.
Sýslumaður sagði aðspurður
að engar kærur hefðu verið lagð-
ar fram vegna málsins og engar
kröfur um endurgreiðslur fjár-
hæða. Ekki fékkst upplýst hve
hárra fjárhæða hinar ákveðnu
rangfærslur í bókhaldinu tóku
til en sýslumaður svaraði neit-
andi spurningum um hvort þær
skiptu milljónum króna. Georg
Kr. Lárusson sagði að einungis
tvö atriði hefðu verið könnuð.
Hann kvaðst síðan hafa óskað
eftir nákvæmri skoðun á bók-
haldi og fjárreiðum embættisins.
Heiður Baldursdótt-
ir rithöfundur látin
15% afmælisafsláttur á
DALLAS tjöldum
fjölskylduhústjaldið
TILBOÐSVEISLA
10 % AFSLÁTTUR AF
ÖLLUH FERÐAÚTBÚNAÐI
OG ÚTIVISTARVARNINGI
verslun
verslun okkar aS
Eyjaslóð 7 í Reykjavík
Gl-jÐI
Dagskrá
laugardagur
10:00 Sérverslun ferðafólksins
opnar - tilboðsveisla
13:00 Klifur og sig - utan húss
Hjálparsveit skáu Garðabae
14:00 Grillpylsur og gos fyrir alla
15:00 Fallhllfarstökk
17:00 Verslunin lokar
sunnudagur
13:00 Sérverslun ferðafólksins
opnar - tilboðsveisla
14:00 Klifur og sig - utan húss
14:00 Grillfiylsur og gos fyrir alla
15:00 Fallhlifarstökk
17:00 Verslunín lokar
f
«
I
6
H
!
I
1
I
I
1
I
I
I
+