Morgunblaðið - 04.06.1993, Side 36
MÖfcGtJtilBLAÉ>IÐ FÖsFtMdtjíií ‘Í9&3
Stúdentar og vélstjór-
ar setja upp húfumar
Framhaldsskóla Vestfjarða á ísafirði slitið í fyrsta sinn
fpafirði.
VELSKOLANEMAR settu upp einkennishúfur sínar við skólaslit
Framhaldsskóla Vestfjarða á dögunum um leið og stúdentarnir settu
upp sínar húfur. Guðmundur Einarsson, vélsljóri og forstöðumaður
farskóladeildarinnar við skólann, hafði forgöngu um að láta hanna
og sauma vélsljórahúfurnar, sem hann vill að verði einkennishúfur
vélstjórnarmanna en vélstjórar á fyrstu áratugum vélbátaútgerðar
gengu gjarnan með slíkar húfur. Sjúkraliðar voru nú í fyrsta sinn
útskrifaðir frá skólanum. Arna Björk Sæmundsdóttir nemandi á
mála- og samfélagsbraut varð dux scholae.
Framhaldsskóli Vestfjarða, í skólaslitaræðu sinni gat Björn
Ísafírði, tók'við af Menntaskólanum Teitsson, skólameistari, þess að fyr-
og Iðnskólanum á síðsta hausti. 230
nemendur stunduðu nám við skólann
á vorönn, þar af 18 á Hólmavík og
Patreksfírði. Auk þess sóttu um 250
manns námskeið við skólann eða
stunduðu fjarnám. Mikil festa er nú
orðin á kennaramálum skólans og
aðeins vitað um einn kennara sem
hættir á þessu vori.
Á árinu bárust skólanum veglegar
bókagjafir, annars vegar um 90
bindi bóka um stærðfræðileg efni
úr eigu Gústafs heitins Lárussonar
kennara og bækur um umhverfís-
og náttúruvemd úr eigu Sigríðar J.
Ragnar kennara.
irhugað væri að hefja byggingu
verkmenntahús við skólann og lagði
áherslu á að hægt yrði að taka það
í notkun haustið 1994. -
Nú brautskráðust frá skólanum
27 stúdentar. Af sálfræðibraut var
Ragnar Torfi Jónasson með hæstu
einkunn, af hagfræðibraut var hæst
Sigríður Laufey Sigurðardóttir, af
mála- og samfélagsbraut Arna Björk
Sæmundsdóttir og af náttúrufræði-
braut Martha Lilja Martheinsdóttir.
Tveir iðnnemar í pípulögnum út-
skrifuðust svo og 1 iðnmeistari, 6
sjúkraliðar, þar hlaut hæstu einkunn
Emma Rafnsdóttir, 4 vélstjórar ann-
ars stigs, það eru þeir sem settu upp
nýju einkennishúfumar en hæstu
einkunn þeirra hlaut Sigurður
Hreinsson, og 12 vélaverðir þar sem
Ægir Öm Valgeirsson var hæstur.
Aðalsteinn Óskarsson flutti ávarp
10 ára stúdenta og Anna Björg-
mundsdóttir formaður Vestfjarða-
déildar Sjúkraliðafélags íslands
ávarpaði nýju sjúkraliðana. Ægir
Hafberg sparisjóðsstjóri á Flateyri
sagði frá verðlaunum sem Iðnnema-
samband íslands og sparisjóðirnir á
landinu standa að og er ætlað að
verðlauna efnilega iðnnema. Af 5
styrkjum á þessu vori komu tveir í
hlut Vestfirðinga, þeirra Sigurðar
Hreinssonar frá Auðkúlu í Arnar-
fírði og Guðjóns Sturlu Halldórsson-
ar á Flateyri en þeir hlutu 60.000
krónur hvor.
í upphafí og við lok athafnarinnar
léku 6 af stúdentunum á hljóðfæri
en þeir hafa jafnframt stúdentanám-
inu numið við Tónlistarskóla ísfjarð-
ar.
- Úlfar.
Fyrstu skólaslit í Miðskólanum
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrstu skólaslitin
KRAKKAR með prófskírteini sín við fyrstu skólaslit Miðskólans.
MIÐSKÓLANUM var slitið í
fyrsta sinn í Fríkirkjunni
fimmtudaginn 27. maí síðastlið-
inn.
Miðskólinn var settur í septem-
ber í fyrra og er þetta starfsár
hans því hið fyrsta. Skólinn nýtur
nokkurrar sérstöðu enda er skipu-
lag starfseminnar byggt á annars
konar skólastefnu, eins og sagði
í ræðu skólastjórans við skólaslit-
in, með sérstakri áherslu á uppeld-
ismarkmið.
Heildarfjöldi nemenda við skól-
ann þetta skólaár var 60. Við þessi
fyrstu skólaslit voru 16 nemendur
jafnframt útskrifaðir úr 7. bekk í
fyrsta sinn.
DÆMI: Kjðrvari 4 Itr. Alllr litlr.
ferð áðurkr. 2.511,- nú KR. 2.134,
GREIÐ
GRASTEPPI M/TOKKUM15% afsláttur
Verð áður kr. 980,- MÚ kr. 833,-
ÓDÝRU STÖKU TEPPIN
fyrir parketið, flísarnar og í sumarbústaðinn
DÆMI: Sarah 160x230 kr. 4.921,-
;VEGI 18 SÍMI 812444
ERTU AÐ BYGGJA - VILTU BREYTA - PARFTU AÐ BÆTA
Morgunblaðiö/Úlfar Ágústsson
Fyrstu stúdentarnir sem útskrifast frá Framhaldsskóla Vestfjarða,
ísaflrði.
Embættishúfur
FYRSTU vélstjórarnir sem setja upp embættishúfur sínar við út-
skrift. Óiíkt hvítum kollum stúdentanna er þessum húfum ætlað að
vera daglegt höfuðfat starfandi vélstjóra á skipum til sjós og í orku-
verum í landi.
Brautskráning frá
Tækniskóla Islands
Morgunblaðið/Bjami
Útskrift í Tækniskólanum
Á Myndinni sjást f.v. Anna Dóra Guðmundsdóttir, Þórður Höskulds-
son og Jóhanna Gunnarsdóttir en þau fengu öll sérstaka viðurkenn-
ingu við brautskráningu Tækniskóla íslands sl. laugardag.
TÆKNISKÓLI íslands brautskráði í vor 74 nemendur. Þrír nemend-
ur, sem voru brautskráðir, fengu sérstaka viðurkenningu fyrir loka-
verkefni sín. Rektor skólans, Guðbrandur Steinþórsson, sagði meðal
annars í ávarpi sínu að nýútskrifuðum tæknifræðingum hefði geng-
ið allvel að fá vinnu þrátt fyrir erfitt ástand á vinnumarkaðinum.
Prófí í raungreinadeild luku 32
en próf þaðan veitir réttindi til að
hefja nám í tæknifræðideildum
skólans og einnig í verkfræðideild
Háskóla íslands. Þrír luku bygging-
ariðnfræði, einn rafmagnsiðnfræði
og sjö iðnrekstrarfræði. Fyrsta
hluta í rafmagnstæknifræði luku
níu og einn nemandi lauk fyrsta
hluta í véltæknifræði. Sex nemend-
ur luku byggingartæknifræði og
fimmtán iðnaðartæknifræði.
Viðurkenningar
Útflutningsmarkaðsfræði er nýtt
þriggja anna viðbótarnám í Tækni-
skólanum og var útskrifað úr því í
fyrsta sinn í ár. Þrír nemendur luku
prófí í því námi og fengu þeir allir
sérstaka viðurkenningu frá Útflutn-
ingsráði fýrir lokaverkefni sín. Jó-
hanna Gunnarsdóttir fékk viður-
kenningu fyrir verkefni um mark-
aðsmöguleika fiskafurða, sem unn-
ar eru úr hráefni, sem annars mundi
ónýtast. Þórður Höskuldsson fékk
viðurkenningu fyrir verkefni um
markaðssetningu á vélhjólaferðum
um ísland. Loks fékk Anna Dóra
Guðmundsdóttir viðurkenningu fyr-
ir verkefni, sem hún vann með
Berglindu Söbech, en Berglind er í
lengra námi. Verkefnið fjallaði um
markaðssetningu á vörum, sem
unnar eru úr Bláa lóninu.