Morgunblaðið - 04.06.1993, Page 38
m
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 4. JÚNÍ 1993
Minning
Ólafía G. Jónsdótt-
ir Hallgrímsson
Fædd 12. október 1919
Dáin 29. maí 1993
Ólafía Guðlaug Jónsdóttir eða
Lóló eins og vandamenn kölluðu
hana jafnan fæddist í Reykjavík 12.
október 1919. Að henni komu merk-
ar ættir, en faðir hennar var Jón
Ólafsson skipstjóri og útgerðarmað-
ur og síðar alþingismaður og banka-
stjóri við Útvegsbankann. Hann var
oft kenndur við útgerðarfyrirtækið
„Alliance“. Jón var af merkri ætt á
Suðurlandi. Meðal systkina Jóns
voru þeir bræður Bogi, yfírkennari
við Menntaskólann í Reykjavík, og
Gunnar, kaupmaður í Vestmanna-
eyjum. Jón var sagður „vinsæll
maður og tillögugóður" og „óvenju-
legur drengskaparmaður".
Móðir Lólóar var Þóra Halldórs-
dóttir frá Miðhrauni í Miklaholts-
hreppi. Faðir hennar var Halldór
Guðmundsson, bóndi þar. Móðir
Þóru var Elín Bárðardóttir frá
Flesjustöðum. Báðar voru þær móð-
ir Lólóar og amma hagleikskonur
til handar og hugar. Bróðir Þóru
var sr. Lárus Halldórsson á Breiða-
bólsstað á Skógaströnd. Lárus var
hæfileikaríkur maður, hagmæltur
og bestur leturritari um sína daga.
Hann lést um aldur fram.
Lóló var yngst fímm bama þeirra
Jóns og Þóru. Tvö þau elstu, Olafur
Helgi og Unnur, eru látin fyrir all-
mörgum ánim en tvær systur, Ásta
Lára og Ágústa, lifa systkini sín.
Öll systkinin mægðust vel og hafa
skilað þjóðfélaginu góðu dagsverki
og stórum hópi afkomenda.
Hinn 20. desember 1942 gekk
Lóló að eiga eftirlifandi mann sinn,
Thor G. Hallgrímsson, fulltrúa hjá
Kveldúlfí hf. og síðar framkvæmda-
stjóra þess félags. Foreldrar Thors
vom Guðmundur T. Hallgrímsson,
læknirá Siglufírði, og Camilla Ther-
ese, elsta bam Thors útgerðar-
manns Jensen.
Lóló og Thor eignuðust íjögur
böm, sem öll lifa móður sína. Elst
er Þóra, sem átti Guðna Georg Sig-
urðsson kjarneðlisfræðing. Þeirra
böm eru Þóra, Gunnar og Kjartan.
Margrét Camilla átti Ólaf Má Ás-
geirsson, veggfóðrara- og dúklagn-
ingameistara. Þeirra böm em Thor
og María. Elín Ásta átti Sigurbjöm
Sveinsson lækni. Þeirra börn em
Tómas Öm, Ásta Sóllilja, Friðrik
Thor og Katrín Þóra. Yngstur er
Thor Ólafur verslunarmaður, sem
er ókvæntur og barnlaus.
Eins og áður er getið var Lóló
komin af traustum og hæfileikarík-
um ættboga. Henni var margt ríku-
lega gefíð frá náttúmnnar hendi.
Hún var fögur kona og glæsileg.
Hún hafði góða frásagnargáfu og
var orðheppin í betra lagi. Hún hafði
tónlistarhæfíleika og hélt við kunn-
áttu sinni á píanó, sem hún hafði
öðlast á æskuámm. Allt, sem varð-
aði handmennt og hún fékkst við,
var henni leikur einn. Síðast en
ekki síst var hún umtalaður galdra-
maður við matseld og töfraði oft
fram ótrúlegasta góðgæti.
Lóló hafði góðar námsgáfur og
lauk stúdentsprófí frá Menntaskól-
anum í Reykjavík aðeins 17 ára
gömul. Hún fór síðan til Munchen
til listnáms, en seinni heimsstyrjöld-
in batt enda á þá drauma. Hún kom
heim skömmu áður en stríðið hófst
og hvarf ekki til náms að nýju. Flest
allt, sem hún hafði gert í listnáminu
þar, varð eftir í Þýskalandi og varð
eldi og eyðingu að bráð. Trúlegt er,
að lífshlaup Lólóar hefði orðið ann-
að, ef hún hefði náð að þroska bet-
ur þessa hæfíleika sína. Hún nýtti
hins vegar vel þá klassísku mennt-
un, sem hún hafði hlotið í Mennta-
skólanum. Hún tók þátt í leikstarf-
semi hjá Leikfélagi Reykjavíkur,
hún skrifaði lengi skrár fyrir Nýja
Bíó, þýddi sögur og leikrit fyrir
bamatíma útvarpsins og skrifaði í
blöð. Þetta voru þó allt aukastörf,
þar sem hún var fyrst og fremst
húsmóðir á sínu heimili.
Lóló batt ekki bagga sína sömu
hnútum og aðrir. Hún fór að mörgu
leyti sínar eigin leiðir í lífínu. Síð-
asta áratug ævi sinnar var hún far-
in að líkamlegri heilsu, en aldrei
efaðist maður um andlega snerpu
hennar, þegar hún var ekki að fást
við mein sín. Hún fékk hægt andlát
á heimili sínu.
Og hvað þakkar svo tengdasonur
að leiðarlokum? Hann þakkar fyrst
og fremst fyrir að hafa eignast dá-
samlega eiginkonu, dóttur móður
sinnar, og með henni góða fjöl-
skyldu. Fátt annað í lífínu skiptir
einhveiju sem það.
Megi Guð blessa minningu Lóló-
ar.
Sigurbjörn Sveinsson.
Ólafía Guðlaug Jónsdóttir hét hún
fullu nafni, ljóshærða gjörvulega
hnátan sem sleit bamsskónum í
Miðstrætinu. Það var einfaldara lífíð
í Reykjavíkurborg þeirra tíma, kröf-
ur og þarfir náðu ekki því sem dag-
urinn í dag krefst. Leiðir okkar lágu
saman innan við fermingu og hefir
þráðurinn aldrei slitnað síðan. Árin
sem liðin eru hafa treyst vináttu og
skilning okkar þó að lífið hafi stund-
um gefíð okkur rækilega áminn-
ingu.
Aldrei sundraðist neitt milli okkar
Lólóar, eins og ég kýs að kalla hana.
Þegar ég lít um öxl og laða fram
minningar frá Laufásvegsárunum
fær margt á sig aðra mynd. Heim-
ili foreldra hennar var glæsilegt og
vinir ávallt velkomnir. Faðir hennar,
Jón Ólafsson, var mjög vörpulegur
á velli, stórgerður en sterkur per-
sónuleiki. Hann virtist í fyrstu hijúf-
mikið að vera innan um barnabörn-
in.
Georg var hæglátur maður og
dagfarsprúður, hlýlegur og umtals-
góður, honum var meinilla við að
láta hafa fyrir sér. Eigið heilsuleysi
varð honum ekki umræðuefni. Það
kom kannski ekki með öllu á óvart
að endalokin væru nærri, þó að þau
kæmu snögglega. Það er alltaf tóm-
legt og söknuður í huga þegar leið-
ir skilja. Með þakklæti fyrir sam-
verustundirnar, velvild og hlýhug i
minn garð og barna minna.
Blessuð sé minning hans.
Hanna Karen Kristjánsdóttir
Stundin deyr og dvínar burt,
sem dropi í straumaniðinn.
Öll vor sæla er annaðhvort
óséð - eða liðin.
(Einar Ben.)
„Er hann afí minn dáinn, þá get-
ur hann aldrei fengið gleraugun
sín.“ Þetta voru orð litlu dóttur
ur, en undir niðri átti þessi harð-
gerði maður til hlýju, sem meta
varð frá öðru sjónarhorni. Mér
reyndist hann góður vinur og örlát-
ur. Móðir Lólóar, Þóra Halldórsdótt-
ir, var fínleg kona með mjúka og
milda rödd. Hún var gædd eðlis-
lægri hlýju og alltaf reiðubúin að
hlusta á vandamál okkar Lólóar.
Þegar árin liðu og Lóló tók stúd-
entspróf og sigldi til útlanda.kvöddu
vinirnir ekki Laufásveginn, ónei.
Þangað lá leiðin og gott var að hitta
frú Þóru sem fagnaði vinum Lólóar.
Þar voru einnig systur hennar og
bróðir sem tóku við því að sinna
vinkonunni. Allar þær góðu stundir
sem undirrituð átti á heimilum þess-
ara vina eru auðæfí hugans. Jón
Ólafsson lést árið 1937, en Þóra
kona hans árið 1950. Eftir það varð
breyting á gamla heimilinu við Lauf-
ásveg.
Árið 1942 gengu þau Lóló og
Thor Hallgrímsson í hjónaband og
áttu þau því 50 ára hjúskaparaf-
mæli hinn 20. desember 1992. Þau
voru glæsilegt par og lífíð brosti við
þeim. Á Iöngum lífsferli eru lagðar
fyrir okkur margþættar gildrur og
mótmæli sem ekki spyr, hvort rétt
sé brugðist við.
Þrátt fyrir margþætt veikindi gat
Lóló brugðið á leik og vorum við
afkastamiklar við nýsmíði orða og
orðaleikja sem urðu að tímabundnu
tungumáli okkar í milli, í þeim til-
gangi að hlæja og hafa gaman af.
Veit ég að systkinum Lólóar ofbauð
orðaforðinn okkar, en við höfðum
lúmskt gaman af.
Með Lóló vinkonu er genginn svo
sérstæður persónuleiki að með ólík-
indum er. Bráðgreind var hún og
hafði mikla námshæfileika. Var hún
mjög víðlesin, gædd bæði leiklistar-
og músíkhæfíleikum. Hún átti mjög
létt með að tjá sig og þá var penn-
inn jafnan tiltækur. Lífíð hefur sitt
lag til að tukta okkur til og fékk
Lóló sannarlega að þreifa á því.
Heilsan var á undanhaldi, sjónin að
dvína, en aldrei heyrði ég hana
kvarta. Hún bar sig eins og hetja
þótt syrti í álinn. Aðeins tveim dög-
um fyrir andlát hennar áttum við
tal saman og sagðist hún ekki gef-
ast upp fyrr en í fulla hnefana, en,
bætti hún við, „þegar við hittumst
næst, sest þú telpa mín við „kom-
móðuna" (það var píanóið) og spilar
lagið mitt“. Þessi síunga vinkona
mín raulaði oft hið ljúfa lag Inga
minnar við andlátsfrétt afa síns.
Við skiljum sjálfsagt ekki til fulls
söknuð bams, en margar hugleið-
ingar hafa komið fram hjá Ástu litlu
núna síðustu daga um að núna
gæti hún ekki sungið fyrir afa sinn
eða sýnt honum föndrið úr leikskól-
anum. Og hvað með skóna hans
afa. Er afí engill núna? Já, börnin
eru hrein og bein í spumingum sín-
um. Og ég veit að Ásta saknar afa
síns sárt og því fínnst mér við
hæfí að hún kveðji afa sinn með
þessum vísum.
Til himins upp hann afi fór,
en ekkert þar hann sér.
Því gleraugunum gleymdi hann,
í glugganum hjá mér.
Og reistu stóra stigann upp,
og styð við himininn.
Svo geng ég upp með gleraugun,
sem gleymdi hann afi minn.
(Þýð. Sig. Júl.)
Mig langar, pabbi minn, að
kveðja þig og minnast þín um leið
með nokkrum orðum. Minnast ár-
anna sem við deildum saman, þau
hefðu mátt verða fleiri, en enginn
ræður sínum náttstað. Mig langar
að muna góðu stundirnar okkar,
styrk þinn og hlýju þegar eitthvað
bjátaði á. Eins og þegar ég lá með
umgangspestar eins og gjamt er
um börn, þá vissir þú alltaf hvað
ætti að gera og hvað væri best fyr-
ir mig. Og tímana sem við gátum
setið saman og gleymt okkur í
spjalli-um „gömlu góðu dagana“.
Ég man þegar ég var lítil og þú
komst frá útlöndum með dót og
sælgæti og sagðir mér sögur af
öllum Iöndunum sem þú hafðir
heimsótt, þú getur ímyndað þér
það, pabbi minn, að það hafi verið
ævintýri líkast fyrir litla stelpu.
Árin liðu og áherslurnar breyttust
og seinna þótti mér einna skemmti-
T. Lárussonar „Lífíð hún sá í ljóma
þeim ...“ og ég sé hana í þeim ljóma
sem hún þráði.
Thor og öll bömin: Þóra, Mar-
grét, Elín og Thor yngri, hljóðlátt
og í einrúmi tek ég þátt í söknuði
ykkar allra. Enn sé ég hana fyrir
mér, glæsilega stúlku, bjarta yfirlit-
um og með glettni í augum. Þannig
man ég hana.
Vinkona og fjölskylduvinurinn
Unnur Arnórs.
í dag verður elskuleg amma mín
borin til hinstu hvíldar. Þó að árin
væru orðin mörg bar fráfall hennar
brátt að og emm við þakklát fyrir
að hafa fengið að hitta hana í síð-
asta sinn fyrir stuttu í fjölskyldu-
boði foreldra minna.
Þar sem fjölskylda mín bjó lang-
dvölum erlendis kynntist ég ömmu
minni á annan hátt en flest önnur
böm. Mér var títt hugsað til afa
Thors og ömmu Lólóar sem voru
svo langt í burtu á íslandi og hlakk-
aði ætíð til að hitta þau. Þá var
alltaf hátíð og mikið um að vera.
Þrátt fyrir fjarlægðina sem skildi
okkur að fylgdust þau vel með okk-
ur systkinum og vom okkur mjög
náin.
Amma var afar listræn og fjölhæf
og mátti glöggt sjá það á heimili
þeirra hjóna. Það var allt svo fínt
hjá afa og ömmu. Amma var mikil
hefðarkona, en það kom ekki í veg
fyrir að 'hún væri frjálsleg í fasi og
skemmtileg. Það var stutt í bamið
í henni og hún var bömum góður
félagi. Amma kunni allar erlendu
vísurnar mínar og barnagælumar
og mér fannst gott að geta sungið
með henni. Afí og amma heimsóttu
okkur oft erlendis á ferðalögum sín-
um um heiminn og amma dvaldist
hjá okkur um tíma þegar bræður
mínir komu í heiminn. Frá þeim tíma
á ég margar góðar og dýrmætar
minningar.
Amma var afskaplega vel gefín
kona og af henni stafaði hlýja og
væntumþykja. Eftir að við fluttumst
heim til Islands kynntist ég henni
sem fullorðinni manneskju og átti
margar góðar kvöldstundir með
henni þar sem þau bjuggu á Lauga-
teignum. Nú kveð ég ömmu mína
með söknuði, en ég veit að hún mun
ávallt vera nálægt þeim sem þótti
vænt um hana. Eg er þakklát fyrir
að hafa átt svo góða ömmu.
Guð blessi þig, elsku Ömchen.
Þóra Guðnadóttir
legast að hlusta á þig tala um upp-
vaxtarár þín og áhugamál sem voru
margvísleg, en þó var aðal áhuga-
mál þitt flugvélar. Þær sögur þótti
mér gaman að hlusta á og þá varstu
virkilega í essinu þínu.
Þú áttir það líka til að snúa al-
vöru í grín og þá minnist ég sérstak-
lega eins atviks. Það var þegar ég
kom heim einn daginn og hafði
keyrt aftan á bíl og þú spurðir
hvemig í ósköpunum ég hefði farið
að þessu? Og ég minnti þig á bíl-
veltu þína í gamla daga, en þú velt-
ir honum aldeilis ekki sagðirðu held-
ur lagðir þú bara bílnum hægt og
rólega á hliðina. Já, það var ekki
langt í húmorinn og léttleikann í
sögum þínum.
En við vorum nú ekki alltaf sam-
mála og áttum það til að þrátta
yfir hlutunum, enda kannski ekki
við öðru að búast þar sem við bjugg-
um undir sama þaki, en innst inni
vissum við alltaf að okkur þótti
vænt hvort um annað og auðvitað
er ég þakklát fyrir það að hafa feng-
ið að hafa þig hjá mér, og þá líka
Ástu vegna, því að það eru ekki
mörg börnin í dag sem fá að kynn-
ast því að hafa afann sinn á heimil-
inu hjá sér.
Þó að söknuðurinn sé mikill hjá
okkur mæðgum, og vegir Guðs séu
órannsakanlegir, þá veit ég að okk-
ur er ætlað að hittast aftur seinna.
Ég bið Guð að geyma þig, elsku
pabbi minn.
Yfir haf sem heima skilur
héðan leitar sálin þín.
Alvaldshöndin upp þig leiðir
inn í dýraríki sín.
Vertu sæll! Við sjáumst aftur
saman öll, er lífíð þver.
Far vel vinur! Fijáls úr heimi.
Friður Drottins sé með þér.
(Sálmur)
Ragna Jóna og Ásta Karen.
Georg S. S. Jónsson
véistjóri — Minning
Fæddur 1. júlí 1918
Dáinn 29. maí 1993
í dag fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík útför Georgs S. S. Jóns-
sonar vélstjóra. Foreldrar hans voru
Þóra Jónsdóttir og Jón Þorkelsson
skipstjóri. Þau hjón eignuðust þrjú
böm, Guðrúnu sem nú er látin,
Georg og Jónu sem lifír ein þeirra
systkina. Georg var innfæddur
Reykvíkingur, fæddist á Laugavegi
64a og síðar fluttist fjölskyldan á
Njálsgötu 79, en það hús byggði
faðir hans.
Georg lærði jámsmíði og lauk
námi í henni 1939. Síðan fór hann
í Vélskólann í Reykjavík og lauk
prófi þaðan 1951. Georg gerði sjó-
mennskuna að ævistarfi. Hann var
til sjós á ýmsum skipum, byrjaði
hjá Eimskipafélaginu á „Fossun-
um“; Brúarfossi, Goðafossi og Gull-
fossi, var síðan á Hvalfellinu og
starfaði lengi sem vélstjóri hjá
Landhelgisgæslunni.
Ég kom fyrst á heimili Georgs
og Ingigerðar konu hans er ég
kynntist Þóri syni þeirra. Mér var
strax vel tekið. Á þeim árum var
Georg til sjós og þvi mikið að heim-
an. En smá saman og sérstaklega
eftir að hann kom í land kynntumst
við betur. Georg sagði skemmtilega
frá liðnum dögum. Það fólk sem
fætt er í byijun aldarinnar hefur
upplifað gífurlegar breytingar. Þeg-
ar tuttugasta öldin hóf göngu sína
var þjóðin búin að yfírstíga ýmsar
þrautir og komast yfír marga raun.
Þó gat fólk varla látið sér koma til
hugar þau straumhvörf í lífí þjóðar-
innar sem áttu eftir að koma í ljós
næstu áratugina. Það var gaman
að hlusta á hann rifja upp frásagn-
arverða atburði úr íslensku þjóðlífí,
um menn og málefni, stjórnmál, úr
sjómennskunni, frá æskuárunum
og því lífí sem Iifað hafði verið. Það
kom ýmislegt fram og hann var
ekkert fyrir það að fegra hlutina
og síst sinn eigin hlut. Það verður
ekki tækifæri framar til að ræða
við Georg um heima og geima og
sakna ég þess.
Tónlistin átti sess í hug og hjarta
Georgs, hann var innst inni við-
kvæmur maður og þótt menntun
hans væri á sviði véla og tækni
naut hann þess að hlusta og skynja
þá dýpt vitundarinnar sem hljómar
geta komið til skila.
Georg kvæntist Ingigerði Hall-
grímsdóttur árið 1953. Foreldrar
hennar voru Hallgrímur Benedikts-
son prentari og Ásta Guðjónsdóttir.
Georg og Ingigerður eignuðust sex
börn. Þau eru Þórir, f. 1954, kvænt-
ur Hönnu K. Kristjánsdóttur, Guð-
jón, f. 1956, kvæntur Önnu E, Jóns-
dóttur, Guðlaug Ásta, f. 1962, sam-
býlismaður Sigurður Sveinsson,
Ingigerður, f. 1963, sambýlismaður
Ellert Gíslason, Ragna Jóna, f.
1968, fráskilin. Barnabörnin eru
átta. Georg og Ingigerður slitu sam-
vistum.
Georg var sérstaklega barngóð-
ur, hann hafði gott lag á ungvið-
inu. Bamabörnin nutu þess hve hlý-
legur og notalegur hann var við
þau. Síðustu árin var heilsan farin
að bila og var Georg þá búsettur
hjá dætrum sínum. Það gaf honum