Morgunblaðið - 04.06.1993, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1993
49
Austurstræti
verði áfram opið
Frá Andrési Pétri Rúnarssyni:
Pjöldi þess fólks sem starfar í
miðbæ Reykjavíkur eða á þangað
viðskiptaerindi undrast mjög þær
hugmyndir, sem heyrst hafa að und-
anförnu, nefnilega lokun Austur-
strætis. Það er varla að menn trúi
því sem þeir lesa um þetta efni svo
óskynsamlegt sem það er að ætla
að snúa þessu öllu við með lokun
götunnar aftur.
Minna má á það að langan tíma
og mikla vinnu tók að fá götuna
opnaða á ný, sem reyndar kostaði
skattborgarana stór fé.
Árið 1991 var gatan opnuð aftur
fyrir bílaumferð, en einungis til
reynslu í eitt ár og er sá tími nú
liðinn og vilja ákveðnir hópar nú
loka götunni aftur og bera meðal
annars fyrir sig mikla mengun. Mín
skoðun er sú að nú liggur reynslan
fyrir að opnun götunnar hleypti nýju
lífí í athafna- og viðskiptalíf miðbæj-
arins, að ógleymdri sjálfri blessaðri
menningunni. Þetta vita þeir best
sem lifa og starfa í miðborginni.
Hér þarf líka að hafa í huga að
heilmikið pláss fer i hið nýja Ingólf-
storg. Ennfremur má minnast þess
að verið er að stórbreyta Bakka-
svæðinu. Er því tvímælalaust verið
að stefna að einangrun alls svæðis-
ins ef tekið væri uppá því að loka
umferð um Austurstræti að hluta.
Það er vissulega mikið tjón fyrir
mannlífið í miðbænum þegar stór-
fyrirtæki eins og Morgunblaðið
hverfur á brott þaðan og nú síðast
lokaði eitt útibú íslandsbanka á
Laugavegi og er vonandi að önnur
fyritæki og athafnalíf komi í stað-
inn. Menn verða nefniiega að horf-
ast í augu við þá staðreynd að veð-
urfar hér er með þeim hætti að farar-
tæki eru nauðsynleg til þess að geta
flutt fólk og varning að húsdyrum.
Að þessu leyti hagar öðruvísi til hér
en sumsstaðar erlendis þar sem veðr-
átta er stöðugri. Þar er ef til vill
auðveldara að hafa stór opin svæði
og göngugötur.
Þá þarf óhjákvæmilega að hafa í
huga að kvosin milli tjarnarinnar og
hafnarinnar verður af landfræðileg-
um ástæðum að hafa opnar umferð-
aræðar. Að öðrum kosti skapast
óleysanieg umferðarvandamál á
miðborgarsvæðinu.
Ég verð að segja eins og er að
ég hef ekki komið auga á góð rök
fyrir því að gera Austurstræti að
göngugötu. Slíkt er í sjálfu sér að-
eins eftiröpun á Strikinu í Kaup-
mannahöfn.
Nógu mikil vandræði og erfiðleik-
ar dynja nú yfir atvinnu- og við-
Hver vill láta þræða
sig upp á öngul?
Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni:
Eitthvert ógeðfelldasta og líklega
óþverralegasta tómstundagaman
sem þessi guðs volaða veiðiþjóð hef-
ur tamið sér er að fara í stangveiði
(les: munnöngulsveiðar á fiskum) og
nota til þess lifandi þrædda ána-
I maðka á öngla.
Mig hefur lengi furðað hversu
ótrúiega fáir sjá nokkuð athugavert
( við þessa ógeðslegu önguliðju þjóð-
arinnar almennt. Að þræða lifandi
ánamaðka upp á öngul til að nota
sem beitu í munnöngulsveiðar á lax
eða silung, eða bara á nánast hvaða
físktegund sem er, er einna helst
talið sýna hreysti og karlmennsku í
þjóðarvitundinni.
Vei þeim sem volar eða vílir eitt-
hvað út af því: „Ertu ekki karlmað-
ur!“ - og „Ertu ekki íslendingur?"
er alltaf sama viðkvæðið ef maður
dregur góðmennskuna við þessa
stórundarlegu afþreyingariðju þjóð-
arinnar í efa. Þessarar annars góð-
hjörtuðu þjóðar almennt þegar flest-
ar aðrar mannþjóðir í hlut eiga. En
, sama gegnir ekki um eintök annarra
' tegunda sem þessa jörð gista í huga
íslensku þjóðarinnar, því miður. Að-
| skilnaðarstefnan er hér í algjöru
hámarki.
Eða halda menn ekki að ánamaðk-
arnir sem sannanlega hafa mjög
fullkomið taugakerfi og tilfínningalíf
fínni ekki líka til eins og aðrar ver-
ur? Að það sé bara ekkert mál fyrir
þessar litlu en þörfu jarðvegslífverur
að vera þræddar sprellifandi upp á
öngla? Jú, menn þurfa ekki að kunna
mikið í líffræði til að sjá hversu
óhemjukvalir maðkarnir þurfa að
þola á meðan ekki bara þræðingunni
stendur heldur lengi síðan meðan
hægan dauðdaga maðkdýrsins ber
að höndum undir þessum hugsana-
lausum gjörðum okkar mannanna.
Stangveiðimenn, og aðrir góð-
hjartaðir Islendingar! Ég skora hér
með á ykkur að nota allravinsamleg-
ast tilbúnar flugur í beitu við þessa
iðju ykkar, ef þið á annað borð telj-
ið ykkur endilega þurfa að eyða tóm-
stundum ykkar í munnöngulsveiði á
fiskum landsins. Það yrði mikið
framfaraspor í að draga úr þjáning-
arorkunni sem yfir landinu annars
grúfir flesta daga ársins.
Með kveðju,
MAGNÚS H.
SKARPHÉÐINSSON
Grettisgötu 4ÖB, Reykjavík
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gleraugu fundust í Miðdal
GLERAUGU fundust þann 23.
maí sl. fyrir framan þjónustumið-
stöð sumarhúsa bókagerðar-
manna í Miðdal, skammt frá
Laugarvatni. Upplýsingar eru
veittar í síma 37520.
Lýst eftir stoínum
reiðhjólum
TVEIMUR fjallahjóium var stolið
á Ránargötu aðfaramótt 27. maí
sl. Annað hjólið var fjólurautt af
gerðinni Mongoose Iboc Sport en
hitt var gulsanserað Mongoose
Iboc Comp fjallahjól. Þeir sem
kynnu að hafa séð hjólin eða
fundið vinsamlegast hafi sam-
band við Garðar í síma 28947
eftir klukkan 17. Góðum fundar-
launum er heitið.
Bíllykill fannst við
Fríkirkjuna
BÍLLYKILL fannst á bílastæðum
fyrir sunnan Fríkirkjuna á Frí-
kirkjuvegi þann 1. júní sl. Upp-
lýsingar eru veittar í síma 34010.
Leðurhanski tapaðist
SVARTUR leðurhanski hægri
handar tapaðist 1. júní sl. í
miðbæ Reykjavíkur, nánartiltek-
ið í Kvosinni. Finnandi vinsam-
legast hafí samband við eiganda
í síma 36137 eftir klukkan 15.
skiptalífið hér hjá okkur þótt ekki
verði gerðar opinberar ráðstafanir
með ærnum kostnaði til þess að
murka lífið úr miðbænum.
Auðvitað verður að hafa skipu-
lagsreglur um byggð í miðbænum
rétt eins og annars staðar í borg-
inni. En opinberar reglur mega ekki
verða til þess að menn flýi með við-
skipti og athafnir á brott og leiti
þangað sem boð og bonn eru ekki
sífellt á lofti. Verndarstefna og frið-
unaraðgerðir geta átt rétt á sér. En
þá mega yfirvöld ekki vera í ein-
hverjum þykjustuleik.
Afleiðing þess að kofar og kumb-
aldar sem verið er að friða - þótt
þeir geymi í raun og veru hvorki
menningararf né byggingarlist, á
mikinn þátt í flóttanum úr miðbæn-
um. Menn fengu ekki að byggja á
lððum, sem hefðu getað lyft mið-
bænum og skapað rými til aukinna
viðskipta og mannlífs. Þá fóru þeir
annað. Þeir sem þannig vildu sjálf-
sagt af góðum hug efla gildi miðbæj-
arins urðu vegna skammsýni til þess
að gera hann steinrunninn. Svo vilja
sumir hefta og tefja umferð í mið-
bænum. Það er enn eitt reipið um
háls viðskipta og mannlífs á svæð-
inu.
Einn aðalvandinn við umferðina í
miðborginni er skortur á bifreiða-
stæðum að margra áliti. Að vísu
hefur borgarstjórnin bætt úr þessu
og mörg ný stæði hafa verið tekin
í notkun. Én engu að síður er það
útbreidd skoðun að alltaf sé fullt í
bílastæðum á götunum og veldur
því að sumt fólk veigrar sér við að
fara í miðbæinn. Ef til vill er það
ekki búið að venjast lokuðum stæð-
um, svo sem undir ráðhúsinu.
ANDRÉS PÉTUR RÚNARSSON,
atvinnurekandi í Austurstræti.
Seljum banka-
stjórana á sjó
Frá Ingimundi Sæmundssyni:
MIG LANGAR til að vita hvort það
sé í lögum hjá okkur að menn úr
ríkisstjórn séu skipaðir í banka-
stjórastöður þegar þær losna. Séu
þetta lög vil ég að þeim verði breytt
og fráfarandi bankastjóri auglýsi
stöðuna lausa og ráði mann í hana
sem hann álítur hæfan.
Einnig vil ég koma öðru máli á
framfæri: Ég vil að þeir menn sem
ríkisstjórnir vilja losna við úr stjórn
og eru búnir að syngja sitt fegursta
fái pláss á togara. Þeim er engin
vorkunn að vinna á sjó því allur
aðbúnaður hefur batnað mikið á
þeim sextíu árum síðan ég var á
sjó. Nú hafa menn öll þægindi um
borð og vinna flest störf undir þilj-
um. Já, sem betur fer hefur þetta
breyst.
INGIMUNDUR SÆMUNDSSON,
Sörlaskjóli 56, Reykjavík.
Pennavinir
Fertuga bandaríska konu drey-
umir um að eignast íslenska penna-
vini. Með áhuga á stangveiðum,
útivist, kvikmyndum, ferðalögum
og sveitatónlist:
Deborah Troutman-Dykstra,
P.O.Box 1952,
Holland,
Michigan 49422-1952,
U.S.A.
LEIÐRÉTTING
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
n eate 0 46.880.000,-
n 5 af 6 Lfl+bónus 0 812.534,-
R1 5 af 6 7 51.532,-
H 4af6 397 1.445,-
ra 3 af 6 t*H+hónus 1.449 170,-
V I K I 1N G A
Vinningstölur r
miövikudaginn:!
2. júní 1993
Aðaltölur:
@@@
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphæð þessa viku
48.873.253,-
á isi.: 1.993.253,-
YStHQ
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Fuglastofninn að
ná sér upp en
ekki minkurinn
í grein Kristjáns Þórhallssonar,
ÍÁgreiningsmál Mývetninga", sem
birtist í fimmtudagsblaði Morgun-
blaðsins urðu þau mistök við vinnslu
hennar, að sajgt var að því miður
benti margt til þess að minkurinn
væri að ná sér á strik við Mývatn.
? handriti Kristjáns var hins vegar,
að sem betur fer benti margt til
þess, að fuglastofninn á Mývatni
væri að ná sér upp á ný og þá fyrst
og fremst vegna dugnaðar við
minkaveiðar.
Morrgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
Ráöstefna Skýrslutæknifélags íslands:
ipti - grunnur framtíðar
Áhrif á þróun netmála á Islandi og í EB
Fjarskipti
Þriðjudaginn 8. jóní 1993, kl. 13:00, verður haldin ráðstefna á Holiday Inn um þetta
mikilsverða málefni.
Aðalfyrirlesari verður hr. Karl Heim Rosenbrock, forstióri ETSI, European
Telecommunicatíons Standards Institute, en hann hefur víoœka þekkingu á þróun
fjarskipta og netmála innan EB.
Erindi sitt nefnir hann: Telecommunicatíons Standards - a Building Block for Europe
Guðmundur Ólafsson, yfirmaður Fjarskiptaeftírlits ríkisins, flytur erindi um það
hverju evrópskir fjarskiptastaðlar og ný (jarskiptalög breyta á íslandi.
Að loknum erindunum verða pallborðsumræður.
Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Skýrslutæknifélag íslands
Hallveigarstíg 1
Sími: 2 75 77
Nú ber vel
í veiði!
Tilboð! Þegar þú kaupir nýja Cardinal Maxxar
hjólið færð þú Abu Garcia veiðivörur að eigin
vali fyrir 1.000 kr. í kaupbæti.
Maxxar hjólin eru hönnuð af Achin Storz, þau
eru með tveim kúlulegum og teflonhúðuðum
diskabremsum. Nú er tækifærið að eignast
þetta frábæra hjól á góðu verði.
Söluaöilar: Sportval-Kringlan Kringlunni 8-12 ■ Útilíf Glæsibæ
Versturröst Laugavegi 178 • Musik & sport Hafnarfiröi ■ Veiðibúö
Lalla Hafnarfriöi ■ Akrasport Akranesi ■ Axel Sveinbjörnsson
Akranesi • Kaupfélag Borgfiröinga Borgarnesi ■ Verslunin Kassinn
Ólafsvík ■ Verslunin Vísir Blönduósi • Kaupfélag Skagfirðinga
Sauöárkróki ■ Siglósport Siglufiröi • Verslunin Valberg Ólafsfiröi
Sportvík Dalvík ■ KEA Akureyri ■ Kaupfélag Þingeyinga Húsavík
Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstööum ■ Verslunin Skógar Egilsstööum
Tröllanaust Neskaupstaö ■ Verslun Elísar Guðnasonar Eskifiröi
Viðarsbúö Fáskrúðsfiröi • Kaupfélagið Djúpavogi ■ Kaupfélag
Árnesinga Kirkjubæjarkiaustrí ■ Sportbær Selfossi
Rás Þorlákshöfn ■ Stapafell Keflavík
HAFNARSTRÆTl S • REYKJAVÍK. • SÍMAR 91-16760 & 91-14800