Morgunblaðið - 04.06.1993, Side 52
k LÉTTÖL J
nr
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVAQloALMENNAR
MORGVNBLADIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
StMI 691100, StMBRÉF 691191, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Samskipti bandarískra og íslenskra stjórnvalda í hvalamálinu
Afsökunar beðist á
ummælum Þorsteins
STARFANDI utanríkisráðherra, Jón Sigurðsson, taldi sig í síðasta
mánuði nauðbeygðan til þess að biðjast í reynd afsökunar á ummæl-
um Þorsteins Pálssonar um Bandaríkjaforseta í samtali við starf-
andi sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. Morgunblaðið hefur upp-
lýsingar um að afsökunarbeiðni íslenskra stjórnvalda hafi verið
tekin til greina. „Mér er ókunnugt um það að beðist hafi verið
afsökunar fyrir mína hönd á ummælum mínum,“ sagði Þorsteinn
Pálsson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins gekk Jón Sigurðsson,
sem gegndi embætti utanríkisráð-
herra í fjarveru Jóns Baldvins
Hannibalssonar, á fund starfandi
sendiherra Bandaríkjanna, eftir að
utanríkisráðuneytinu höfðu borist
formleg mótmæli bandarískra yfir-
valda, vegna ummæla Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráðherra.
Þorsteinn sagði m.a. í sjónvarps-
viðtali að Bill Clinton Bandaríkja-
forseti hefði horft á of margar
mafíukvikmyndir.
„Það getur enginn beðist afsök-
unar á ummælum mínum annar
en ég sjálfur," sagði Þorsteinn
Pálsson við Morgunblaðið.
Ekki stefna ríkisstjórnarinnar
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun Jón Sigurðsson
jafnframt hafa tekið skýrt fram
við starfandi sendiherra Bandaríkj-
anna að ummæli Þorsteins endur-
spegluðu á engan hátt stefnu ríkis-
stjómar íslands.
Eftir að þessi samskipti ís-
lenskra og bandarískra stjómvalda
höfðu farið fram, var fallið frá
fyrirætlunum um að halda fund
íslenskra og bandarískra stjóm-
valda um tvíhliða vamarsamning
ríkjanna og framtíðarfyrirkomulag
herstöðvarinnar í Keflavík, en til
stóð að hann að yrði haldinn fyrir
20. maí sl.
Fundur embættismanna banda-
rískra og íslenskra stjórnvalda hef-
ur nú verið ákveðinn og verður
hann hér í Reykjavík nú á mánu-
dag og þriðjudag, þann 7. og 8.
júní.
Sjá miðopnu: „Stjórnarand-
staðan á leik“
Brenndist á
geymasýru
GEYMASÝRA skvettist yfir ungan
mann sem var að störfum i Hval-
firði í gærkvöld. Hann var fluttur
á slysadeild i Reykjavík þar sem
hugað var að meiðslum hans.
Maðurinn var að vinna í malar-
vinnslu skammt frá gömlu Hvítar-
nesbryggjunni þegar atvikið átti sér
stað á sjöunda tímanum. Mun hann
hafa verið að tengja á milli raf-
geyma, þegar annar þeirra sprakk.
Maðurinn fékk yfir sig sýru úr
geyminum, en hann var fljótur að
skola hana af sér með vatni. Hann
var einn á vinnusvæðinu og óskaði
strax aðstoðar. Neyðarbíll slökkvi-
liðsins í Reykjavík sótti manninn.
MorgunDiaoio/Kinar raiur
Fundu sprautu í ruslatunnu
BJÖRG og Atli með sprautuna sem þau fundu í ruslatunnu.
Stakk sig til blóðs
LÍTDL stúlka, Björg Ásgeirsdóttir, sem er að verða 9 ára, varð fyr-
ir þeirri óskemmtilegu reynslu að stinga sig á einnota lyfjasprautu
sem hún og féiagi hennar, Atli Skúlason, sjö ára, fundu f rusla-
tunnu skammt frá heimili þeirra i gærdag, en þau eiga heima við
Óðinsgötu f Reykjavík. Sprautan, sem lá ein og sér ofan á rusli í
tunnunni, var merkt sem insúlinsprauta.
Steinunn Ásgeirsdóttir, móðir
Bjargar, sagði að bömin hefðu
verið að leik úti í garði í námunda
við heimili sitt, þegar þau fundu
sprautuna og var nál í henni.
Sprautuna hafí þeim Björgu og
Atla þótt upplagt að nota í læknis-
leik, en ekki vildi betur til en svo
að Björg stakk sig til blóðs á nál-
inni. Um leið og óhappið uppgötv-
aðist var farið með hana á siysa-
deild Borgarspítalans til skoðunar.
„Okkur var sagt að hætta á
smiti, HIV eða lifrarbólgusmiti,
væri lítil og læknirinn sem tók á
móti henni ítrekaði við mig í gær-
kvöldi að Iíkur á alvarlegu smiti
væru hverfandi. Mér leið betur að
heyra það, en þetta er samt óhugn-
anlegt og það er alltaf einhver ótti
í manni,“ sagði Steinunn. Hún taldi
nokkuð víst að einhver sem leið
átti um hafi fleygt sprautunni.
HÉRAÐSDÓMUR Reylgavíkur
hefur fellt úr gildi úrskurð ríkis-
skattanefndar, sem hafði heimilað
útgerðarfélaginu Hrönn hf á
Isafirði að færa kaupverð lang-
tímakvóta að fullu til gjalda f
rekstrarreikningi á því ári sem
kaupin áttu sér stað. í niðurstöð-
um Héraðsdóms segir að dómur-
inn Ifti svo á að með kaupum á
langtfmakvóta hafl fyrirtækið öðl-
ast réttindi sem falli undir eignar-
hugtak 73. greinar laga um tekju-
"og eignarskatt enda sé aflahlut-
deildin bæði varanlegt og verulegt
verðmæti. Samkvæmt niðurstöð-
um dómsins ber að eignfæra
keyptan Iangtímakvóta og af-
skrifa um 20% á ári.
Ásgeir Guðbjartsson eigandi
Hrannar hf sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær búast við að
málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar
en verði niðurstaða Héraðsdóms
staðfest hefur það í för með sér veru-
lega skattahækkun.
,, í niðurstöðum dómsins segir eins
og að framan greinir að keyptur
langtímakvóti teljist til réttinda er
falli undir eignarhugtak 73. greinar
skattalaga en samkvæmt henni skal
telja til skattskyldra eigna allar fast-
eignir, lausafé og hvers konar önnur
verðmæt eignarréttindi, hvort sem
eignimar gefa arð eða ei.
Mjólkurkvóti eignfærður
í Héraðsdómi var í gær einnig
kveðinn upp dómur um að með full-
virðisrétt í mjólkurframleiðslu skuli
fara sem hann væri eign í skilningi
fyrrgreinds ákvæðis skattalaga.
Sjá fréttir bls. 22 og 23
Sumarblómin sett niður á sólskinsdegi
Á HVERJU sumri eru settar niður stjúpur í blómabeð í kirkjustöllunum á Akureyri, vegfarendum til yndisauka
og notuðu þessar stúlkur sólríkan gærdaginn til þeirra stárfa.
Erlendur
ferðamað-
ur ígildi
tonns af
þorski
GJALDEYRISTEKJUR af
hveijum erlendum ferða-
manni eru nær því þær
sömu og það sem við fáum
fyrir hvert tonn af þorski.
Til að vega upp á móti 50
þúsund tonna minnkun
þorskafla þarf því um
fimmtíu þúsund erlenda
ferðamenn til viðbótar. Til
er í landinu flutningsgeta,
gistirými og flest það sem
þarf til að þjóna þeirri við-
bót en nokkuð þarf að fjár-
festa í afþreyingu, vöruþró-
un og markaðssetningu.
Þetta kemur fram í grein
eftir Magnús Oddsson, mark-
aðsstjóra Ferðamálaráðs í
Morgunblaðinu í dag. Magnús
bendir á að í ferðaþjónustu sé
ekki annar kvóti en takmörk
landsins og fjárfestinganna,
þar sem enn sé gott borð fyr-
ir báru. Og „ferðamannastofn-
inn“ fari vaxandi öfugt við
þorskstofninn og því sé spáð
að hann tvöfaldist á næstu 20
árum.
Magnús Oddsson minnir á
að Ferðamálaráð hafí bent á
að með tiltölulega litlum fjár-
festingum megi auka fjölda
erlendra ferðamanna svo þeir
verði 100 þúsundum fleiri árið
2000 en nú er.
Sjá Daglegt líf bls. 8.
Héraðsdómur breytir úrskurði ríkisskattanefndar um skattameðferð veiðikvóta
Langtímakvóti fellur und-
ir eigiiarliugtak skattalaga