Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993 Skammdegishugleið- ingar um kvótakerfið eftir Einar Eyþórsson Spurningar um eignarhald á veiði- rétti og hvort sjómenn eigi að bera kostnað útgerðar af kvótaleigu eru ofarlega á baugi þessa stundina, enda eru þær tilefni verkfallsboðun- ar sjómanna frá áramótum. Það hefur sýnt sig, að þótt hugmyndin að baki kerfisins sé einföld og sann- færandi, þ.e. að framseijanlegur veiðikvóti muni minnka fiotann þannig að hagkvæmar útgerðir kaupi út þær óhagkvæmu og hag- kvæmari rekstur skili sér í hærri þjóðartekjum, þá er ýmislegt óljóst um hið innra gangverk í slíku kerfi. Fyrsta spurning getur verið: Hvaðan koma kvótaverðmætin, sem eru talin vera milli 5Ö og 60 milljarð- ar? Var þetta gjöf frá þjóðinni til útgerðarinnar, eða voru þetta verð- mæti sem útgerðin átti fyrir, í ein- hveiju öðru formi? Ef hægt er að búa allt þetta fjármagn til úr engu, með því einu að gera veiðiréttinn framseljanlegan, þá hlýtur að vera um mikið snilldarbragð að ræða. Varla er hægt að líta á kvótann öðru vísi en sem nýtt eigið fé útgerð- arinnar, verðmæti sem hægt er að kaupa og selja, ávaxta á leigumark- aði og veðsetja fyrir nýjum lánum. Er kvótínn einkaeign? Dómur Hæstaréttar í máli Hrann- ar hf. í nóvember sl. er staðfesting á að kvótinn er einkaeign útgerðar- innar í praktískum skilningi. Því er slegið föstu að útgerðin á að bók- færa hann sem eign og greiða eigna- skatt af honum. Ef kvótinn samt sem áður er enn ekki einkaeign í skiln- ingi stjórnarskrárinnar, má búast við að þess verði ekki langt að bíða. Ef keyptur kvóti á að bókfærast sem eign, þá hlýtur það sama að gilda um kvóta sem útgerðin fékk endurgjaldslaust. Þegar frá líður verður ómögulegt að gera greinar- mun á þessu tvennu, og að sjálf- sögðu er eðlilegt að allir kvótaeig- endur sitji við sama borð. Allur kvóti verður þar með skattskyld eign, og afskrifanlegur á 5 árum. (Hér vakn- ar spurningin um hvort bankar og sjóðir, sem hafa tekið kvótann gildan sem veðsetjanlega eign, eigi að reikna með að veðið rými um 20% á ári.) Þegar kvótinn er þannig eign- færður, skattskyldur og í mörgum tilfellum veðsettur, eru komin sterk rök fyrir því að ákvæði stjómar- skrárinnar um vemdun eignarréttar- ins taki gildi líka. Kvótaskerðingin á milli ára verður þá ólögleg eigna- upptaka, nema greiðsla komi fyrir. Það yrði þá rökrétt að kvótaeigendur krefðust bess að ríkið keypti eða leigði kvóta á markaðsverði til þess að koma í kring nauðsynlegri skerð- ingu milli ára. (Þegar Nýsjálending- ar komu á framseljanlegum kvóta 1986, var hugmyndin að kvótaskerð- ingar færu fram með þessum hætti. Strax 1989 kom þó í ljós að ríkis- sjóði yrði ofviða að kaupa alla skerð- inguna á markaðsverði, en útgerðin sættist á lægri bætur. (Dewees 1989 og 1991.)) Ef hægt verður að auka kvótann milli ára, má svo auðvitað hugsa sér á hinn veginn, að aukning- in verði leigð útgerðinni á markaðs- verði, og svokölluðu veiðigjaldi þar með komið á fyrir þann afla sem bætist við. Hvaðan koma verðmætín? En svo aftur sé núið að upphaf- legu spumingunni, hvemig mynduð- ust þessi miklu verðmæti sem virð- ast liggja í kvótanum, verðmæti sem eru talsvert umfram það yfírverð sem var á skipunum áður en fram- salið var gefíð fijálst? Svarið hlýtur að vera að verðið á kvótanum hefur orðið til á fijálsum markaði, það ræðst af framboði og eftirspurn. Verðmæti húseignar er talsvert háð því hvaða leigutekjur er hægt að hafa af eigninni, og sama ætti að gilda um varanlegan kvóta, verð- mætið er háð ávöxtunarmöguleik- um, sem endurspeglast í verði á leigukvóta. Ymsir hafa spurt hvort leiguverð á þorskkvóta, sem hefur verið u.þ.b. 40-50% af söluverðmæti þrosksins undanfarin tvö ár, sé ekki óeðlilega hátt. Þetta verð helst að öllum líkind- um uppi vegna mikillar eftirspurnar frá strandveiðiflotanum, sérstaklega í þeim landshlutum sem eru háðast- ir þorskveiðum. Ef til vill er þá til- vist tiltölulega stórs flota af kvóta- litlum og jafnvel kvótalausum bát- um, forsenda þess að verð á þorsk- kvóta haldist hátt. Framboð á þorsk- kvóta til leigu er háð því að leigu- verðið sé hátt. Þær útgerðir sem leigja út sinn kvóta, gera það ekki endilega af nauðsyn, þeim væri í lófa lagið að veiða hann upp með eigin skipum. Hátt verð á þorskkvóta heldur svo væntanlega uppi veðsetningarmögu- leikunum hjá þeim útgerðum sem eiga mikinn kvóta. En svo er eðlilegt að spyija: „Hvemig geta „leiguliðaútgerðim- ar“ náð svo ævintýralegri arðsemi í sínum rekstri, að þær hafi efni á að greiða 40-50% af aflaverðmæti í kvótaleigu? Svarið getur að sjálf- sögðu verið margumrædd þátttaka Einar Eyþórsson „Fljótt á litið benda töl- ur um tonnafjölda og vélarafl flotans síðustu tíu árin til að veiðigetan hafi lítið sem ekkert minnkað.“ sjómanna í kvótakaupum, sem vana- lega felst í því að kostnaður vegna leigu á kvóta dregst frá óskiptum afla, hvort sem um er að ræða beina leigu eða „tonn á móti tonni“. Þann- ig lækkar launaliðurinn vemlega, en þessi sami kostnaður er svo bók- færður í heilu lagi sem rekstrar- kostnaður útgerðar og kemur fram í lægri sköttum. Önnur skýring kann að vera að fjármagnskostnaður sé tiltölulega lítill hjá dæmigerðum „leiguliða“, t.d. eru dæmi um að kvótalausir bátar séu keyptir eða leigðir ódýrt og gerðir út með leigukvóta (sbr. Fiskifréttir 19. nóvember 1993). Ef verð á varanlegum þorskkvóta er 175-185 kr. fyrir hvert kg og leiguverðið 35-40 kr. fyrir hvert kg, þá er ávöxtunarmöguleikinn fyrir fjármagn bundið í þorskkvóta 19-22%. Það gefur augaleið að hlut- hafar í útgerðarfyrirtækjum sem veiða sinn þorskkvóta með eigin skipum hljóta þegar fram í sækir að gera sömu ávöxtunarkröfu til kvótaeignar fyrirtækisins, þ.e. að kvótinn verði annaðhvort settur á leigumarkað eða að markaðsverð á leigukvóta verði dregið frá skipta- verði og laun sjómanna þar með lækkuð. Að öðrum kosti er ljóst að útgerðirnar sitja ekki við sama borð og samkeppni er ekki á jafnréttis- grundvelli. Ef kvótaskerðing síðustu ára hefði ekki komið til, væri ástæða til að ætla að fjárfesting í varanlegum þorskkvóta væri með arðvænlegustu fjárfestingarkostum í landinu. Þang-’ að til í nóvember í ár hefur útgerðin getað bókfært kvótakaupin sem rekstrargjöld á kaupári og þar með fengið lækkaðan tekjuskatt sem nemur allt að 45% af kaupverðinu. Eignin hefur verið undanþegin eignaskatti, en þó skilað u.þ.b. 20% af ársávöxtun með leigu. (Þess má auk þess geta að kvótaviðskipti eru undanþegin virðisaukaskatti.) Arni Johnsen sjálfstæði í útgerð, þar er grunn- skóli sjómannanna og þar eru helstu möguleikar í dag fyrir menn að fíkra sig inn í útgerð og skapa endurnýj- un á vettvangi sem því miður hefur marga þröskulda fýrir athafnamenn á meðan við neyðumst til að búa við núverandi kerfí í fiskveiðistjóm- un. v Það er mín trú að niðurstaða Alþingis varðandi krókaleyfisbáta muni liggja einhvers staðar nærri tillögum Fiskiþings en þó ólíklegt að komist verði hjá því að setja hámark eins og hjá öðrum. Sú niður- staða mun ekki nást vegna nuggs fjölmiðlariddara, heldur vegna þess að þorri þingmanna, óháð flokkum, sameinast um niðurstöðu sem verð- ur að vera sem ásættanlegust og á nótum skynsemi. Til þess þurfa menn frið svo að umræðan og at- höfnin verði ekki umhverfisvanda- mál. Höfundur er þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Suðurlands- kjördæmi. Omerkilegt hjal Ossur- ar í skakumræðunni Hagsmunir trillukarlanna verða ekki fyrir borð bornir eftirÁrna Johnsen Það er ómerkilegur stíll sem Öss- ur Skarphéðinsson umhverfisráð- herra hefur valið sér, að slá sig til riddara á kostnað samstarfsmanna sinna. Þetta hefur hann verið að leika að undanfömu í tilefni endur- skoðunar fískveiðistefnunnar og þá sérstaklega í sambandi við trilluflot- ann, krókaleyfísbátana. Það er fjarri því að Össur Skarphéðinsson hafi verið einhver sérstakur baráttumað- ur í því að koma í veg fyrir óeðli- lega hlutdeild trillubátanna í heild- arkvóta á fiski enda eru tillögur sjávarútvegsráðherra góður og eðli- legur grundvöllur til umræðu og samkomulags. Það eru margir alþingismenn í öllum flokkum sem vilja gæta þess „Það er mín trú að nið- urstaða Alþingis varð- andi krókaleyfisbátana muni liggja einhvers staðar nærri tillögum Fiskiþings en þó ólík- legt að komist verði hjá því að setja hámark eins og hjá öðrum.“ að eins farsæl leið verði valin í heild og nokkur kostur er og sú leið mun hvorki miða við að trillubátamir fái annars vegar að veiða 4.000 tonn af físki á ári eða 22.000 tonn á ári. Þessi hópur alþingismanna hef- ur haldið sjó eins og skynsamlegast er meðan ferill umræðunnar er að Falleg og gagnlegjólag/öf Fæst hjá öllum bóksölum Ensk-íslensk oröabók 34.000 ensk uppflettiorð íslensk-ensk orðabók 35.000 íslensk uppflettiorð 2.200 blaðsíður Saman í fallegri gjafaöskju á aðeins kr. 3.990.— Gagnleg og glæsileg jólagjöf, sem nýtist vel í nútíð og framtíð Orðabókaútgáfan þroskast og ég er þess fullviss að alþingismenn munu vetja hagsmuni trillusjómanna eins og annarra sjó- manna og útgerðarmanna. Það lá löngu ljóst fyrir að tillögumar sem vom fyrst lagðar á borð í þessum efnum áttu eftir að taka breytingum í meðferð og afgreiðslu. Það þurfti enga hótun um afsögn eða nýjar rósrauðar ráðherranærbuxur. Það hefur hins vegar ekki farið leynt að ýmsir útgerðarmenn eru argir út í trilluútgerðina sérstaklega með tilliti til þess að ekki skuli gilda sömu reglur fyrir alla og það er jafn ljóst að einhver hluti trillukarla hefur misnotað kerfið. Mesta ergels- ið er þó ekki trillukörlum að kenna, heldur er við fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra og ríkisstjóm að sak- ast er trillubátaútgerðinni var gjör- samlega hleypt úr böndunum ekki ósvipað og þegar framsóknarmenn stóðu á sínum tíma fyrir því að dæla lánum til uppbyggingar nýrra og stærri búpeningshúsa fyrir bændur, en síðan var gjörsamlega girt fyrir það að bændur gætu sett bústofn í húsin í samræmi við stærð þeirra og möguleika til þess að fjár- magna fjárfestinguna og framleiða upp í skuldirnar. Ég er sannfærður um að þrátt fyrir að ýmsir útgerðarmenn á öðr- um bátum en trillum séu ósáttir við að mismunandi reglur séu í gildi varðandi aflamark og krókaleyfi þá ætlast flestir útgerðarmenn til þess að alþingismenn sem endanlega þurfa að ákveða aðferðina standi ekki síst vörð um hagsmuni trillu- karlanna. Sérstaða trilluútgerðar- innar er mikil, þar er ugglaust mest Innilegar þakkir til al/ra, sem glöddu mig með heimsóknum, skeytum, simtölum og gjöfum á 90 ára afmœli mínu, 26. nóvember sl. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Sigurðardóttir, Hafnarbraut 17, Hólmavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.