Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993 31 Lauk doktorsprófi í enskum bókmenntum GUÐRÚN Björk Guðsteinsdótt- ir útskrifast sem doktor í ensk- um bókmenntum frá Alberta- háskóla í Edmonton, Kanada, laugardaginn 20. nóvember. Ritgerð Guðrúnar fjallar um formgerð þeirra skáldsagna sem fást við menningarádeilu og kallast á ensku „novels of ideas“. Guðrún lauk stúdentsprófi frá Kennaraháskóla íslands 1974, BA prófi frá Háskóla íslands 1982 og MA prófi frá Alberta-háskóla 1984. Að loknu stúdentsprófi kenndi Guðrún við Héraðsskólann á Laugarvatni í tvö ár, við Grunn- skólann í Njarðvík í þrjú ár og kenndi í eitt og hálft við Alberta- háskóla auk þess að vinna sem aðstoðarmaður prófessora við rannsóknir meðfram námi við skólann. Haustið 1987 var Guðrún ráðin sem stundakennari í ensku við Háskóla íslands en sem lektor 1989 og hefur kennt enskar bók- menntir, bókmenntafræði og bók- menntasögu. Auk rannsókna á samspili hugmyndafræði og form- gerðar í bókmenntum hefur Guð- rún einkum fjallað um kanadískar bókmenntir og er nú að vinna að rannsókn á vesturíslenskum nú- tímabókmenntum sem skrifaðar eru á ensku, fyrst og fremst eftir þau Lauru Goodman Salversson, Kristjönu Gunnars, W.D. Valgard- son og David Arnason. Eiginmaður Guðrúnar er dr. Börkur Hansen, dósent í stjórnun menntamála við Kennaraháskóla Dr. Guðrún Björk Guðsteinsdóttir íslands. Börn þeirra eru Silja Hrund Barkardóttir og Guðsteinn Haukur Barkarson, bæði fram- haldsskólanemar. Guðrún er dóttir Guðsteins Ein- arssonar og Sigrúnar Guðmunds- dóttur. Guðsteinn lést árið 1973, en hann var hreppstjóri í Grinda- vík og framkvæmdastjóri Hrað- frystihúss Grindavíkur. Sigrún starfaði sem barnakennari í Grindavík fram til 1990 en tók einnig við hreppstjóraembættinu að manni sínum látnum, þar til það var lagt niður þegar Grinda- vík varð bær. Blönduós Ljósin tendruð á jólatrénu frá Moss Blönduósi. __ LJÓSIN Á jólatrénu frá Moss í Noregi, vinabæ Blönduóss, voru tendruð á sunnudaginn að viðstöddu fjölmenni. Böðvar Örn Sigurjónsson, for- maður norræna félagsins, afhenti tréð fyrir hönd íbúa Moss í Noregi en Pétur Arnar Pétursson forseti bæjarstjórnar veitti trénu móttöku fyrir hond bæjarbúa og tendraði ljósin. Kirkjukórinn söng jólasálma og jólasveinarnir Stekkjastaur og Giljagaur komu í heimsókn og gengu í kringum jólatréð með öll- um „börnunum“. Jón Sig. Barna- og unglingagleraugu Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Ljósin á jólatrénu frá vinabæ Blönduóss í Noregi, Moss, voru tendruð á sunnudaginn. Verð frá kr. 1.170 5% staðgreiðsluafsláttur, einnig afpóstkröfum s greiddum innan 7 daga. WÚTfLÍFPSHS GLÆSIBÆ . S/Mf 812922 Höfðar til .fólks í öllum starfsgreinum! uvex Áhrifamikil, sönn saga sem vakið hefur heimsathygli Betty Eadie dó eftir uppskurð en vaknaði aftur tii lífsins og mundi i smáatriðum það sem fyrir hana hafði borið. Það sem fyrir hana bar í dánarheimum hefur verið kaiiað áhrifamesta dauðareynslan fyrr og síðar. í faðmi ljóssins kemur um þessar mundir út á 19 tungumálum, auk endurútgáfu á ensku i mjúkri kápu í meira upplagi en dæmi eru til áður. Bókin hefur undanfarnar vikur verið á „topp tiu" sölulista Publishers Weekly. I faðmi ljóssins bók með boðskap sem hefur gefið gjölda fólks bjartari von og endurnýjaðan lífsvilja. Áhrifamesta dauðareynslan fyrr og síðar Bók til að gefa - bók til að eiga FRJALS \.99° FJÖLMIÐLUN HF. Pantanasími 63 * 27 • 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.