Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 52
Gæfan fylgi þér i umferðinni SJOVÁOHaLMENNAR GLEÐILEG JÓL MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I 103 REYKJAVtK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI É MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/Rúnar Þór Blysför til bæjarstjórnar STARFSMENN Slippstöðvarinnar-Odda fylktu liði síðdegis í gær og fóru blysför til bæjarstjórn- ar Akureyrar þar sem þeir skoruðu á bæjarfull- trúa að beita áhrifum sínum til að skapa eðlileg- an starfsgrundvöll fyrir skipasmíðaiðnaðinn í landinu. Starfsmennirnir afhentu forseta bæjar- stjórnar m.a. bréf þar sem segir að erlendar niðurgreiðslur og undirboð hafi leikið iðnaðinn grátt og blaðinu verði ekki snúið við nema með pólitískri íhlutun stjórnvalda til jöfnunar á sam- keppnisforsendum. Sjá bls. 23.: „Pólitísk íhiutun eina leiðin." Næststærsta safn íslenskra bóka erlendis Enginn gætir ís- lensku bókanna ENGINN bókavörður hefur verið ráðinn að Fiske-safninu í Cornell- háskólasafninu í íþöku í Bandaríkjunum síðan seinasti bókavörður lét af störfum 1. júlí sl., en rúmt ár er siðan stjórn Cornell-safnsins vissi að hann hygðist láta af störfum. Fiske-safnið er stærsta safn íslenskra bóka utan íslands ef frá er talið Konunglega bókasafnið og Háskólabókasafnið í Kaupmannahöfn. Philip M. Mitchell, fyrrum bókavörður Fiske-safnsins, var staddur hér á landi í siðustu viku og kvaðst í samtali við Morgunblaðið ^vera í uppnámi vegna ástands mála. „Ég tel ástandið niðurlægjandi fyrir safnið og háskólann, og mér virðist sem stjórn Cornell-háskóla yfirsjáist mikilvægi íslenska safnsins í stað þess að vera stolt yfir að eiga þetta heimskunna og merkilega safn,“. segir Mitchell. „Stjórn Cornell-háskólabóka- safnsins hefur ekkert gert í raun til að finna eftirmann minn og ástandið er hvorki uppörvandi né ánægjulegt. Þrettán mánuðir eru Iiðnir frá því að ég tilkynnti þeim ákvörðun mína um að segja af mér en þrátt fyrir þennan langa tíma hefur ekkert ver- ið gert til að finna annan í stöð- una,“ segir Mitchell. Hann segir að fleiri grundvallar- breytingar hafi verið gerðar á Fiske- safninu seinustu misseri sem hann sé andvígur. Þannig hafi það verið innlimað í „safn sjaldgæfra bóka og handrita" við háskólabókasafnið í Cornell, og því sundrað eftir flutn- ing, sem sé andstætt því sem kveðið er á um í erfðaskrá Williards Fiske. Núverandi skipan torveldi bæði að- gang gesta og starf bókavarðar, þar sem annars vegar sé öllum heimilt að skoða þær bækur sem keyptar Stúlku dæmdar 8,7 milljóna króna skaða- og miskabætur í Héraðsdómi Hæstu dæmdu miska- bætur vegua Ifkamstjóns HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær bónda á Suðurlandi og Vátryggingafélag Islands, þar sem dráttarvél bóndans var tryggð ábyrgðartryggingu ökutækja, til að greiða 19 ára stúlku, Málfríði Þorleifsdóttur, 8,7 milljónir króna með vöxtum frá 1. september 1988 í skaða- og miskabætur. Málfríður missti handlegg að öxl og allt höfuð- leður við það að flækjast í drifskafti dráttarvélarinnar. I dóminum er örorkuijón stúlkunnar metið á 6.250 þúsund krónur en miskabætur 2,5 milljónir sem eru hæstu miskabætur sem dæmdar hafa verið fyrir líkamstjón í íslensku dómsmáli að því er fram kemur í dóminum. Þegar slysið varð í júlí 1987 var stúlkan 13 ára. Hún var í sveit á bæ í Ámessýslu og vann ásamt bóndan- um við að hirða hey af túnum. Notuð : var dráttarvél með heyhleðsluvagni sem fékk afl til lestunar og losunar um drifskaft frá dráttarvélinni. Við losun vagnsins stóð dráttarvélin kyrr en vél hennar dreif losunarbúnað heyhleðsluvagnsins eftir að sérstök Kæfan rangt tollafgreidd GUÐMUNDUR Sigþórsson, skrifstofustjóri í landbúnaðar- ráðuneytinu, telur mistök hafa orðið þegar frönsk «ind- arkæfa til Hagkaupa var toll- afgreidd. Guðmundur sagði vörur úr dýralifur á lista yfir þær vörur sem hafa ber gát á við innflutn- ing. Með réttri tollflokkun hefði átt að koma aðvörun til ráðu- neytisins. Hann segir að leita hefði átt leyfis framleiðsluráðs landbúnaðarins. stöng framan á vagninum rétt við drifskaftið hafði verið hreyfð. Hlíf vantaði yfír drifskaftið. Stúlkan var í óhnepptri úlpu og stjórnaði losunar- búnaðinum en lenti í óvörðu skaftinu með þeim afleiðingum að vinstri handleggur hennar slitnaði af rétt neðan axlarliðs auk þess sem allt höfuðleður hennar slitnaði af. Eftir slysið gekkst stúlkan undir miklar læknisaðgerðir og var samkvæmt örorkumati 100% öryrki í 15 mánuði en eftir það varanlegur 80% öryrki. Dráttarvélin í venjubundinni notkun Jón Finnsson héraðsdómari hafn- aði kröfum tryggingafélagsins, sem hélt því fram að tjónið félli utan við ábyrgðartryggingu umferðarlaga, þar sem dráttarvélin hafi ekki verið í notkun sem ökutæki heldur sem kyrrstæð vinnuvél, en dráttarvélin var í ábyrgðartryggingu skráningar- skylds ökutækis. Við útreikning 6,2 milljóna ör- orkubóta stúlkunnar var lagður til grundvallar útreikningur trygginga- stærðfræðinga um framtíðartekjutap í samræmi við örorkustig að frá- dregnum bótum almannatrygginga. Miskabætur stúlkunnar voru ákveðn- ar 2,5 milljónir króna en í málflutn- ingi lögmanns Vátryggingafélags Islands kom fram að fyrir þennan dóm hafi hæstu miskabætur vegna líkamstjóns sem dæmdar hafí verið hér á landi numið 2 milljónum króna. Sama um peningana Málfríður sagðist í gær vera ánægð með dóminn. „Mér er annars alveg sama um peningana. Ég vil bara að bændur og allir bændur geti verið öruggir um að þegar slys verða þá geti tryggingafélögin ekki fundið eitthvað upp til að skýla sér á bak við,“ sagði Málfríður. Axel Gíslason, framkvæmdastjóri Vátryggingafé- lags íslands, hafði í gærkvöld ekki kynnt sér dómsniðurstöðuna og vildi því ekki tjá sig um hana. hafa verið eftir andlát Fiske en hins vegar sé upprunalega safnið geymt bakvið læstar dyr og kosti gesti mikla fyrirhöfn að fá inngöngu. Alls eru um 37 þúsund bindi í safninu. Höfuðstóll nauðsynlegur Mitchell segir fullyrt innan há- skólans að kostnaðurinn við að tryggja starf bóka- og safnvarðar til frambúðar nemi um 2 milljónum dala, og er þá miðað við að ávaxta upphæðina og greiða starfsmannin- um laun af vöxtunum. Slíkar fjár- hæðir liggi ekki á lausu. Ráðning Mitchells fyrir sjö árum hljóðaði upp á vinnu hluta úr degi og voru launa- kjör í samræmi við það, um 12.500 dollarar á ári eða um 900 þús. kr. Hann segir nær ómögulegt að fá starfskraft til vinnu fyrir sömu laun og hann þáði, enda hafi honum ekki verið það kleift án eftirlauna sinna frá Illinois-háskóla þar sem hann kenndi áður. Mitchell kveðst álíta fáar leiðir færar í dag til að leysa vandann á ásættanlegan hátt. ÞVÖRUSLEIKIR DAGAR TIL JOLA íslenska járnblendifélagið hf. á Grundartanga Útlit fyrir 70 til 100 milljóna króna hagnað ÚTLIT er fyrir að Islenska járnblendifélagið hf. skili 70 til 100 millj- óna kr. hagnaði á árinu. Rekstrartap félagsins á síðasta ári nam 566 milljónum. Breytingin, sem nemur 600 til 700 miUjónum til hins betra, er árangur neyðaráætlunar sem gripið var til fyrir rúmu ári. Fjárhags- áætlun næsta árs gerir ráð fyrir um 350 milljóna kr. hagnaði. Um 40 manns var sagt upp störf- um og samið við starfsfólk um lækk- un mötuneytiskostnaðar o.fl. Þá voru Á þessu ári hefur náðst hagræðing sem nemur um 400 milljónum. Hrá- efniskostnaður hefur lækkað um 120 milljónir. Samningur við Landsvirkj- un um tengingu verðs orku og af- urða leiddi til 150 milljóna kr. afslátt- ar af orkuverði. Afurðaverð í fyrra og framan af þessu ári var lægra en nokkru sinni áður. laun hinna tekjuhæstu hjá fyrirtæk- inu lækkuð um 6% til 7%. í heild lækkaði launa- og starfsmanna- kostnaður um 90 milljónir og ýmis annar kostnaður um 30 milljónir. Á þessu ári verða skuldir greiddar nið- ur um nærri 200 milljónir kr. Ekki stendur til að fjölga starfs- mönnum, þrátt fyrir batnandi af- komu. Jón segir að um beina fram- leiðniaukningu sé að ræða hjá 140 starfsmönnum félagsins. Afurðaverð járnblendis hækkaði undir árslok. Reiknað er með frekari verðhækkunum vegna verndarað- gerða í Bandaríkjunum og EB. Fjár- hagsáætlun næsta árs gerir ráð fyrir 350 milljóna kr. hagnaði og að skuld- ir verði þá greiddar niður um nærri 400 milljónir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.