Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993 Kynþ áttafordóm- ar í vísindum? eftir Geir Viðar Vilhjálmsson Háskóli íslands er nútímalegur að mörgu leyti, þó smár sé. Bóka- safn hans er til dæmis tölvutengt við ýmsa erlenda upplýsingabanka. Þar á meðal er Medline, bandarískt og fjölþjóðlegt safn úrdrátta og greina um læknisfræði og líffræði mannsins. Vilji einhver afla sér ítarlegra upplýsinga um til dæmis ákveðið lyf eða sjúkdómsgreiningu og læknisfræðilega meðferðarkosti þá getur hver enskumælandi ís- lendingur gegn vægu gjaldi fengið aðgang að þeim, prentað út og verið betur fær um að ræða með- ferðarkosti varðandi sína nánustu, eða sjálfa(n) sig við lækna sína. Sé á hinn bóginn leitað til Med- linebankans að fróðleik um óhefð- bundnar aðferðir, í lækningum eða heilsuvernd, þá reynist lítið úrval á markaðnum og þá helst eitthvað gagnrýnivert eða neikvætt, en þó mest ekki neitt. Þetta upplýsinga- tómarúm endurspeglast svo víðar, svo sem í íslensku lyfjahandbók- „Getur verið að álíka afstaða sem varla er hægt að kalla annað en kynþáttafordóm, sé or- sök í vanrækslu rit- stjóranna hjá Medline varðandi rannsóknir sem birtar eru á áður- nefndum ráðstefnum í S-Kóreu?“ inni þar sem umfjöllun svokallaðra náttúrulyfja er bæði fátækleg og ekki einkennd af þeim anda hlut- lækni sem ræður ríkjum þar ann- ars. Annars var útgáfa þessarar Lyfjahandbókar fyrir almenning mikið framfaraskref í því sérstaka ástandi sem ríkir í lyfjamálum á íslandi, þar sem upplýsingamiðar framleiðenda um verkanir, notkun og aukaverkanir/eitrunareinkenni eru íjarlægðir úr lyfjaumbúðunum og stórir flokkar gamalreyndra lyfja af sviði náttúrulækninga og smáskammtalækninga, „hómópat- íunnar", útilokaðir frá markaðn- um. Þetta ástand er afleiðing sam- spils ýmissa áhrifa, allt frá ein- angrun vegna landlegu og tungu- máls, yfir mismunandi hugmynda- fræði og lækningakenningar, til hagnaðar af hefðbundinni lyfj a- dreifingu og tilhneigingar til þess að gera lítið úr hinum neikvæðu hliðum hefðbundna heilbrigði- skerfisins. Það á jú að vera eitt hið besta í heimi. Lyf eiga líka að vera góð. Það eru bara hin ólög- legu „eiturlyf" sem eru eitruð og því ekki við hæfi að fylgiseðlar framleiðenda um eitrunaráhrif og aukaverkanir lyfja komist í hendur neytendanna. Svo gæti fólk orðið ímyndunarveikt, fengið ímyndaðar aukaverkanir eða eitrunaráhrif af lyfjum sínum af því að lesa um slíkt, en þetta sagði háttsettur embættismaður í íslenska Heil- brigðisráðvineytinu, í fyllstu alvöru, að því er mér virtist þegar ég leit- að skýringar á þessum upplýs- ingastuldi í tengslum við útvarps- Geir Viðar Vilhjálmsson þætti um heilbrigðismál fyrir ein- um og hálfum áratug. Það segir sitthvað, sem dæmi um stöðnun íslensks samfélags, að þessi rit- skoðun lyfjaupplýsinga er enn í gildi. Alþjóðlegar ginsengráðstefnur í S-Kóreu Síðan 1974 hafa á fjögurra ára fresti verið haldnar í S-Kóreu ráð- stefnur um ginsengrannsóknir á vegum ríkisrekinnar rannsókna- stofnunar, sem vegna mikilvægis ginsengjurtarinnar fyrir kóreskt þjóðlíf og efnahagslíf á sér helst hliðstæðu hér á landi í okkar Haf- rannsóknastofnun. Sjötta mótið í röðinni, The 6th International Ginseng Symposium, var haldið í Seoul 6.-9. september sl. Með allt að 1.000 þátttakendum og 37 fyr- irlesurum frá 12 löndum er ekki, frekar en á 4. og 5. ráðstefnunum, sem undirritaður fékk í hendur skýrslur um, á ferðinni frum- byggjamót einhverra ginseng- bænda, heldur ígrundaða tilraun til þess að miðla fræðilegum upp- lýsingum og stuðla að raunvísinda- ra,nnsóknum að hætti Vesturianda á heilsujurt sem hefur að minnsta kosti 2.000 ára samfellda hefð að baki í Kóreu og nærliggjandi hér- uðum Kína. En þess er ekki að vænta að skýrslurnar frá þingi þessu komist í gagnasafn Medline á næstunni frekar en hinar fyrri, þrátt fyrir að nýtísku aðferðum og tækni Vesturlanda sé beitt. Það væri helst að einhveijar þessara rannsókna bærust til huga íslenskra lækna eða lyfjafræðinga gegnum venjulega íslenska fjöl- miðla. Svo sem átti sér stað nú síðsumars um gildi E-vítamíns, snefilefnisins selens og gulrótar- og gulrófulitarins karótíns fyrir fyrirgirðingar krabbameina. Tvær rannsóknir: Gingseng, æxli og eyðni Frá þessu 6. ginsengþingi er hægt að nefna tvær rannsóknir sem liklegar væru til þess að vekja athygli vesturlenskra fjölmiðla, bærust þær fréttafólki til eyrna. Þarna var stór kóresk hóprann- ATVINNUAUGl YSINGAR Bókhald og skráning Hof sf. (eignarhaldsfélag Hagkaups og Ikea) vill ráða starfsmann á skrifstofu í bókhald og skráningu. Helstu verkefni eru: - Skráning í bókhald. - Umsjón með viðskiptamannabókhaldi. - Afstemmingar. - Önnur tilfallandi skrifstofustörf. - Símavarsla. Nauðsynlegt er að umsækjendur uppfylli eftirfarandi skilyrði: - Séu nákvæmir og samviskusamir, - Séu vanir skráningu og afstemmingum. - Hafi reynslu af viðskiptamannabókhaldi. - Geti unnið langan vinnudag þegar svo ber undir. - Eigi gott með að starfa með öðrum. Um er að ræða tímabundna ráðningu, en gæti þó orðið framhald á. Umsóknum, með upplýsingum um aldur, menntun og starfsreynslu, skal skila til skrif- stofustjóra, Skeifunni 15, 108 Reykjavík, fyr- ir 21. desember næstkomandi. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum svarað. FRAMHALDSSKÓLINN Á HÚSAVlK SKÚLAGARÐI - PÓSTHÚLF 74 - 640 HÚSAVlK SlMI: 96-41344 96-42095 Laus kennslustörf Framhaldsskólann á Húsavík vantar stunda- kennara á vorönn í sálarfræði (6 stundir á viku) og trésmíði (4 stundir á viku). Upplýsingarí síma 96-41344. Skólameistari. RAÐAUGÍ YSINGAR UTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í kaldavatnsdælu fyrir Nesjavallavirkjun. Helstu kennistærðir: Magn: 450 l/sek. Lyftihæð: 140 m. vatnssúlu Snúningshr.: 1.490 sn/mín. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 18. janúar 1994, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REV K JAVIKURBORGAR Frikirkjuvet)! 3 S»m.25800 Metsölublaó á hverjum degi! NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Austurvegur 40b, Seyðisfirði, þingl. eig. Ólöf Bergsdóttir og talin eign Jóhannesar Einarssonar, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður starfs- manna ríkisins, Lífeyrissjóður Austurlands og Samvinnulífeyrissjóður- inn, 20. desember 1993, kl. 14.30. Gilsbakki 1, 3. h.t.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Hreiðar Sigmarsson, gerðarbeiðendur Húsnaeðisstofnun ríkisins, Lífeyrissjóður Austur- lands og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 20. desember 1993, kl. 14.00. 14. desember 1993. Sýslumaöurinn, Seyðisfirði. SJÁLFSTJEDISFLOKKURINN I I- I. A (i S S T A H F Aðalfundur Landsmálafélagsins Varðar Boðað er til aðalfundar Landsmálafélagsins Varðar í dag, miðvikudaginn 15. desember, kl. 20.30 í Valhöll við Háaleitisbraut. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. 2. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, flytur ræðu kvöldsins. 3. Almennar umræður. Landsmálafélagið Vörður. auglýsingor FÉIAGSÚF I.O.O.F. 9 = 17512158'/2 = Jv. □ GLITNIR 5993121519 I Jf. I.O.O.F. 7 = 17512158'/2 = JV Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía f kvöld kl. 20.30 verða okkar árlegu jólatónleikar þar sem fram koma ýmsir tónlistarmenn undir stjórn Óskars Einarssonar. Húsið opnað kl. 1945 og er ókeypis aðgangur meðan hús- rúm leyfir. Á tónleikgnum verða tekin samskot til hjálpar þeim heimilum sem á þurfa að halda. RF.GLA MUSTERISRIDDARA RMHekla 15.12. - VS J É SAMBAND ISLENZKRA f KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl. 20.30 í Kristniboðssalnum. Sr. Sigurður Pálsson, framkvæmdastjóri Biblíufélagsins, talar um Biblfuna og hefur hugleiðingu. Allir eru velkomnir á sam- komuna. FERÐAFELAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533 Áramót í Þórsmörk Upplifun sem engin gleymir. 3 daga ferð með brottför 31/12 kl. 8.00 (nýtt) og 4 daga ferð með brottför 30/12 kl. 8.00. Farmiða þarf að panta og stað- festa strax á skrifstofunni Mörk- inni 6, s. 682533 því pláss er takmarkaö. Gönguferðir, kvöld- vökur, áramótabrenna, flugeld- ar, blysför. Munið Esju um vetr- arsólstöður á sunnudaginn 19. des. kl. 10.30. Feröafélag Islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.