Morgunblaðið - 29.11.1994, Qupperneq 16
16 MÍIÐJUDAGUR 29. NGVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Nýjar ESB-umræður
um áhrif Hollywood
Briissel. Reuter.
STÖÐUGAR umræður um hvernig veija eigi evrópska menningu gegn flóði
kvikmynda og sjónvarpsefnis frá Hollywood hafa komið af stað nýjum deil-
um. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vinnur að mótun tillagna um
breytingu á lögum frá 1989, sem kveða á um að meirihluti útvarps- og
sjónarpsefnis verði að vera evrópskur, „ef framkvæmanlegt sé.“
Með þessu orðalagi átti að tryggja
stuðning Breta, íjóðveija við hug-
myndir um að hjálpa illa stöddum
framleiðendum kvikmynda og sjón-
varpsefnis í Evrópu níeð reglum um
efni og um það snúast deilurnar nú.
Joao de Deus Pinheiro, sem fer
með útvarps- og sjónvarpsmál í
framkvæmdastjórn ESB, telur orða-
lagið of tvírætt og vill fella það nið-
ur þannig að kvótar verði lögboðnir.
Samkvæmt tillögu hans fengju
nýjar stöðvar hins vegar fimm ára
frest til þess að fullnægja skilyrðun-
um og „þjóðernislegir minnihluta-
hópar“ yrðu undanþegnir. í tillög-
unni er einnig gert ráð fyrir að ríkis-
stjórnum verði heimilt að setja fjár-
festingarkvóta í stað efniskvóta.
Sky og fleiri mótmæla
Sumir hópar evrópskra kvik-
myndaframleiðenda hafa fagnað til-
lögunni; en aðrir, innan ESB og ut-
an, hafa fundið að henni.
Samtök bandarískra kvikmynda-
vera, MPA, barðist gegn lögunum
1989 og eru óánægð með tillöguna.
Gervihnattasjónvarpið British Sky
Broadcasting segir að ESB hafí eng-
an rétt til að setja reglur um efni
sjónvarpsstöðva, sem fái ekki opin-
beran stuðning og noti ekki sjaldgæf
tíðnisvið.
Kvótar kunni að neyða áhorfendur
til þess að taka myndbandsspólur á
leigu og ósanngjamt sé að meina
sjónvarpsstöðvum að nota frétta-,
útvarps- og skemmtiefni til þess að
reglunum sé hlítt.
Samband evrópskra auglýsinga-
stofa (EAAA) og alþjóðsamband
auglýsenda (WFA) hafa einnig
maldað í móinn.
Philippe Kerr, einn framkvæmda-
stjóra tónlistarfyrirtækisins PolyGr-
am NV í Hollandi, kvað nokkrar
aðgerðir nauðsynlegar til verndar
evrópskum kvikmyndaiðnaði, „þar
sem annað viðhorf væri til kvik-
mynda í Evrópu en í Bandaríkjunum
og vegna ólíkrar tungu og menning-
ar.“
Torveldar samkeppni
Strangari reglur um kvóta gætu
á hinn bóginn torveldað evrópsku
fyrirtæki eins og PolyGram að keppa
við stór bandarísk kvikmyndaver á
heimsmælikvarða að sögn Kerrs.
PolyGram framleiðir um átta evr-
ópskar kvikmyndir á ári, en einnig
10-15 bandarískar, og sjónvarps-
stöðvar kynnu að verða tregar til
að kaupa þær samkvæmt ströngu
kvótakerfi, sagði hann.
HLUTABRÉF sem skráð eru á Verðbréfaþingi íslands hafa hækkað jafnt og
þétt frá því snemma á þessu ári og nemur hækkun þingvísitölu frá áramót-
um tæplega 23%, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hlutabréfaviðskipti
gegnum viðskiptakerfi þingsins í síðustu viku námu alls 28,8 milljónum sem
er meira en í fyrri viku. Mest urðu viðskipti með hlutabréf í Hampiðjunni en
einnig var töluvert um viðskipti með hlutabréf í Flugleiðum, íslandsbanka,
Olíufélaginu og Síldarvinnslunni, að því er segir í markaðsyfirliti Landsbréfa.
Athygli vekur að verð hlutabréfa í Flugleiðum hækkaði um 6,85% milli vikna.
Hins vegar lækkuðu Flugleiðabréf lítillega í viðskiptum í gær úr 1,56 í 1,55 og
sömuleiðis lækkuðu bréf Eimskips úr 4,83 í 4,76. Þetta olli lítilsháttar lækkun
á þingvísitölunni.
r
»
r
s
útflytjendur - innflytjendur
ú íslcwdi og í Evrópu
• Við fljúgum fró ReykjavíkurfJugvelli virka daga
kl. 18 með sendingar til Evrópu og móttakandi
fær sendinguna afhenta næsta virka dag .
• Við lendum ó Reykjavíkurflugvelli alla virka
morgna kl. 7 með sendingar fró Evrópu.
Vió tökum við sendingum allt til kl. I 7.
Notfærðu þér hraða og örugga þjónustu DHL
WORLDWIOE EXPPESS ®
VIÐ STÖNDUM VIÐ SKULDBINDINGAR ÞÍNAR
DHL HRAÐFLUTNINGAR HF, Faxafen 9-108 Reykjavík
Sími (91)689822-Fax (91)689865
Sjávarútvegur
Hlutabréf HB seldust öll
til forkaupsréttarhafa
ÖLL hlutabréf í 80 milljóna króna hlutafjárútboði Haraldar Böðvarsson-
ar hf. (HB) á Akranesi sem hófst í byijun mánaðarins hafa nú selst
upp til forkaupsréttarhafa. Bréfin voru boðin á genginu 1,63 og var
heildarsöluverð þeirra því 130,4 milljónir.
Félag milliríkjaverslunar
og vörudreifingar
ISLAND OG ESB
Útbreiðslunefnd Félags íslenskra
stórkaupmanna boðar til fundar
um Evrópumál í dag, þriðjudaginn
29. nóvember, kl. 12.00
í Skálanum, Hótel Sögu.
Gestur fundarins verður Friðrik
Sophusson, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hvaða áhrif hefur niðurstaða
kosninganna f Noregi á
framtíð EES og íslands í
Evrópusamstarfinu?
Að lokinni framsögu verða
fyrirspurnir.
Þátttökugjald með hádegisverði
er kr. 2.500.-
Vinsamlega skráið þátttöku
í síma 888910.
Fundurinn er öllum opinn.
Hluthafar höfðu heimild til að
framselja sinn forkaupsrétt og
bættust af þeim sökum nokkrir
nýir aðilar í hópinn. Lífeyrissjóðir
og fleiri stofnanafjárfestar keyptu
stærstan hluta bréfanna.
Áætlað er að hlutafjáraukningin
leiði til þess að eiginfjárhlutfall
verði um 23% í árslok og veltufjár-
hlutfall 1,15. Hinu nýja fjármagni
verður ráðstafað til kaupa á nýrri
vinnslulínu í frystihúsinu og bún-
aði til mjölblöndunar í fiskimjöls-
verksmiðju.
Kaupþing hafði umsjón með
útboðinu og annaðist einnig milli-
göngu um skráningu bréfanna á
Verðbréfaþingi íslands hf. Bjarni
Ármannsson, forstöðumaður hjá
Kaupþingi, segist telja að góðar
undirtektir við bréfunum skýrist
m.a. af því, að Haraldur Böðvars-
son sé fyrsta fyrirtækið á þessu
ári sem afli sér fjár með þessum
hætti.
Nýtt hlutafé litið
öðrum augum
„Síðan hefur rofað til í sjávarút-
vegi og menn hafa aðlagað sig að
breyttum aðstæðum með sókn í
'utankvótategundir. Þá hefur loðn-
an gefið sig og hagstætt verð
fengist fyrir loðnuafurðir. Afkoma
sjávarútvegsfyrirtækjanna er mun
betri núna en verið hefur, þar sem
gengislækkanir eru að skila sér í
auknum tekjum. Síðast en ekki
síst líta stofnanafjárfestar öðrum
augum á nýtt hlutafé en bréf á
eftirmarkaði. Hér er um að ræða
beina innspýtingu á fé inn í at-
vinnureksturinn meðan hitt er til-
flutningur á fé milli fjárfesta.“
Verð bréfanna
tiltölulega hagstætt
c
c.
Bjarni kvaðst einnig telja að
verð bréfanna hafi verið tiltölulega
hagstætt fyrir kaupendur en innra
virði þeirra er 1,72. Þá kæmi fram
í ársreikningum að aflaheimildir
væru mjög lítill hluti af bókfærð-
um eignum eða einungis 50 millj-
ónir. Félagið hefði engu að síður
til ráðstöfunar mjög mikinn kvóta.
c
c
Ci
‘
c
I
i
c
L
I