Morgunblaðið - 29.11.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1994 19
FRÉTTIR: EVRÓPA
Fjársvik og sameiginlegir sjóðir ESB
Fjögur ríki kærð
vegna kjötsvika
Brussel. The Daily Telegraph.
FJÖGUR aðildarríki Evrópusam-
bandsins, ESB, eiga yfir höfði sér
háar fjársektir fyrir það að hafa
ekki virt reglur sambandsins um
geymslu á kjöti. Skilyrði greiðslna
vegna birgðahalds á kjöti er að regl-
um og gæðastöðlum sé fylgt út í
ystu æsar.
Bretar eru sakaðir um að hafa
ekki virt tilskilda gæðastaðla og er
búist við að þeir verði sektaðir um
4 milljónir punda jafnvel þótt að
um mjög óverulegt magn hafi verið
að ræða. írar eiga aftur á móti
yfir höfði sér um 35 milljóna punda
sekt, þegar framkvæmdastjórnin
greinir frá málsvöxtum í næsta
mánuði.
Italir verstir
Enn liggja ekki fyrir tölur vegna
brota ítala og Frakka en heimildir
innan framkvæmdastjórnarinnar
herma að ítalir beri „höfuð og herð-
ar“ yfir aðrar þjóðir í þessu máli.
Það er landbúnaðarfjármála-
deild framkvæmdastjórnarinnar,
FEOGA, sem fer með um helming
íjárlaga ESB, sem grípur til þess-
ara aðgerða. FEOGA hefur sætt
harðri gagnrýni eftir að endurskoð-
endur ESB greindu frá því í síð-
asta mánuði að gífurlegar fjárhæð-
ir væru sviknar út úr sjóðum sam-
bandsins árlega. Er talið að FE-
OGA muni á næstunni reyna að
sýna að deildin refsi þeim er upp-
vísir verða að svikum.
Kýrnar á Korsíku
í síðustu viku stöðvaði fram-
kvæmdastjómin greiðslur til naut-
gripabænda á frör.sku eyjunni
Korsíku eftir að í ljós kom að þeir
höfðu falsað tölur um fjölda naut-
gripa til að fá aukna styrki. Er
brotið talið það alvarlegt að krafist
verður endurgreiðslu á styrkjum
allt aftur til ársins 1988 nema
Frakkar geti fært sönnur á að þeir
hafi ekki gerst brotlegir.
Frakkar, sem til þessa hafa verið
duglegir við að gagnrýna nágranna
sína á Ítalíu fyrir fijálslega meðferð
tölulegra upplýsinga, reyna nú að
sýna fram á að svik af þessu tagi
séu ekki útbreidd meðal þeirra.
Það var Michel Jacquot, yfirmað-
ur þeirrar stofnunar í Brussel, sem
sér um greiðslur, er hafði persónu-
lega umsjón með rannsókninni á
Korsíku. Fýrr á þessu ári kom hann
upp um umfangssvikið svik meðal
komræktenda í Napólí á Ítalíu.
Jacquot komst að því að sambandið
greiddi tæpan milljarð í varabirgða-
styrki vegna hveitis sem geymt var
í tönkum í Napólí þrátt fyrir að
mikið af því væri ekki lengur
neysluhæft. Þá reyndist mikið af
hveiti ekki vera til staðar er eftirlits-
menn athuguðu málið.
Samhliða þessu var uppgötvað
að eigandi geymslutankanna stund-
aði „útflutning" á hveitinu og fór
fram á „fjárhagslega umbun“ fyrir
að aðstoða við að draga úr hveiti-
birgðum innan sambandsins.
Jacquot neitaði að yfirgefa Nap-
ólí fyrr en að endurgreiðsla bærist
og tveimur vikum síðar voru
geymslugjöldin endurgreidd. Enn
hafa útflutningsstyrkirnir hins veg-
ar ekki fengist aftur. Eigandi
geymslutankanna (sem nú situr í
fangelsi) ber því við að hann sé of
fátækur til að standa undir endur-
greiðslu.
Reuter
Rushdie biður ESB ásjár
VARAFORSETI framkvæmda-
stjórnar ESB, Hollendingurinn
Hans van den Broek (t.v) og for-
seti ráðherraráðsins, Klaus Kin-
kel, utanríkisráðherra Þýska-
lands (t.h), ræða við breska rit-
höfundinn Salman Rushdie í
Brussel í gær. Rushdie bað aðild-
arþjóðir sambandsins að samein-
ast um að fá írani til að aflétta
dauðadómi sem kveðinn var upp
yfir rithöfundinum fyrir meintar
svívirðingar í garð Múhameðs
spámanns.
• TVÍHLIÐA viðræður ESB og
Sviss eiga að hefjast þann 12. des-
ember. Segir í frétt í Neue Ziircher
Zeitung að framkvæmdastjórnin sé
ekki jafnbjartsýn og svissneska
þingið á að viðræðurnar verði auð-
veldar. Þó er vonast til að sam-
komulag náist um frjálst flæði
vinnuafls. Svisslendingar felldu
EES-samninginn á sínum tíma.
David Pury, aðstoðarforstjóri ABB,
segir nauðsynlegt að Svisslendingar
geri gangskör að því að Svisslend-
ingar stefni markvisst að ESB-aðild.
• ALAIN Lamassoure, Evrópuráð-
herra Frakka, segir að Frakkar
stefni að því að fastsetja skilyrði
og tímasetningar vegna aðildar
A-Evrópuþjóðanna er þeir taka við
formennskunni í ráðherraráðinu á
næsta ári.
• Breska blaðið The Times greinir
frá því í gær að haft sé eftir Jacqu-
es Delors, forseta framkvæmda-
stjórnarinnar, i viðtali við þýskt
tímarit, að Bretar eigi sér enga
framtíð fyrir utan ESB. Evrópuand-
stöðu Breta mætti rekja til þess að
þeir söknuðu fyrri stórveldistíma.
• Blaðið Financial Times segir í
forystugrein í gær að áður en Aust-
ur-Evrópuríkjum verði veitt aðild
að sambandinu ætti ESB að taka
á vandamálum ríkja i suðurhluta
þess. Opnun Austur-Evrópu hafi
ekki komið þessum ríkjum til góða
og hætta sé á að hin veika efna-
hagslega staða þeirri muni leiða til
stöðnunar' í sambandinu öllu. Það
sé því kæruleysi að ætla að stækka
sambandið áður en þetta vandamál
hafi verið leyst.
V E I TINGAMAÐUR:
„ÞETTA ER
KAFFIÐsem
BERÁ BÖRÐ FYRIR
MIG OG MÍNAGESTI"
Ny blanda
- ríkara bragð.
Maxwel
HOIISE
i
4.
Þeir sem pekkja gott kaffi, vita
hvað til parf. Úrvals Old Java
kaffibaunir, þurrkun og
brennsla við kjörskilyrði.
Þannig er Maxwell House kaffi.
Maxwell House drekka þeir sem
þekkja kaffi.
MAXWELL HOUSE
...engu ööru líkt!
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA