Morgunblaðið - 17.12.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1995 21
FRETTIR
Hannes bjargaði í hom með þráskák
SKÁK
íþróttahúsiö við
Strandgötu í
Ilafnarfiröi
EINVÍGIÐ UM
ÍSLANDSMEISTARA-
TITILINN
GUÐMUNDAR
ARASONAR MÓTIÐ
14.-22. desember. Teflt frá kl.
17 daglega. Aðgangur ókeypis.
HANNES Hlífar Stefánsson
heldur forystunni í einvíginu
við Jóhann Hjartarson um ís-
landsmeistaratitilinn. Annarri
skákinni lauk með jafntefli á
föstudagskvöldið eftir snarpa
baráttu. Hannes hefur því einn
og hálfan vinning en Jóhann
hálfan. Þriðja skákin verður
tefld í dag, sunnudag og hefst
taflið klukkan 17. Fjórða og
síðasta skákin fer síðan fram
á morgun á sama tíma.
Jóhann fórnaði peði fyrir
hættuleg sóknarfæri, rétt eins
og í skák þeirra á íslandsmót-
inu þegar hann hafði sigur.
Aftur virtist þetta setja Hannes
nokkuð úr jafnvægi og hann
lék af sér og missti drottning-
una fyrir hrók og riddara. En
í tímahraki missti Jóhann af
öflugri leið og Hannes náði að
þráskáka í jafntefli.
Það eru orðnar miklar líkur
á því að Hannes hreppi sinn
fyrsta íslandsmeistaratitil. Það
er mjög erfitt að stöðva menn
sem komast upp með það að
leika af sér drottningunni.
Guðmundar Arasonar mótið
fer einnig fram í Hafnarfírði
og var önnur umferðin tefld á
föstudagskvöldið. íslendingun-
um gekk heldur betur en í þeirri
fyrstu.
Staðan eftir 2 umferðir:
1—5. Þröstur Þórhallsson, Rie-
mersma og Blees, Hollandi, Nilssen,
Færeyjum og Bern, Noregi 2 v.
6—7. Borge, Danmörku og Sævar
Bjamason 1 *A v.
8—17. Martin, Englandi, Christens-
en, Danmörku, Ágiist Karlsson, Gull-
aksen, Noregi, Guðmundur Halldórs-
son, Magnús Örn Úlfarsson, Amar
E. Gunnarsson, Ólafur B. Þórsson,
Bjöm Þorfinnsson og Nolsoe, Færeyj-
um 1 v.
18—23. Björgvin Jónsson, Jón Garð-
ar Viðarsson, Kristján Eðvarðsson,
Bragi Þorfinnsson Jón Viktor Gunn-
arsson og Einar Hjalti Jensson 'A v.
24—26. Burden, Bandaríkjunum,
Torfi Leósson og Sigurbjöm Björns-
son 0 v.
Úrslit í annarri umferð:
Sævar—Borge 'U—'U
Þröstur— Gullaksen 1—0
Amar—Riemersma 0—1
Martin—Nilssen 0—1
Magnús—Blees 0—1
Bern—Nolsoe 1—0
Christensen—Björgvin 'A— 'A
Jón Garðar—Ólafur 'A— 'U
Ágúst—Burden 1—0
Torfi—Guðmundur 0—1
Kristján—Jón Viktor 'U—'U
Bjöm—Sigurbjöm 1—0
Bragi—Einar 'A— 'A
Önnur einvígisskákin:
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Hannes Hlífar Stef-
ánsson
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3.
Rf3 - b6 4. g3 - Bb7 5. Bg2
- Be7 6. 0-0 - 0-0 7. Rc3
— Re4 8. Dc2 — Rxc3 9. Dxc3
- c5 10. Hdl - d6 11. b3 -
Rd7 12. Bb2 - Bf6 13. Dc2
— Dc7 14. e4 — cxd4 15.
Rxd4 — a6 16. De2
Karpov lék 16. Hd2 gegn
ívantsjúk á atskákmóti í Món-
akó fyrr á þessu ári. Hvítur
stendur ívið betur í þessari
„broddgaltarstöðu" sem ein-
kennist af því að öll peð svarts
eru á annarri og þriðju reitaröð-
unum.
16. - Hfe8 17. Hacl - Hac8
18. Hc2 - Db8 19. h4 Da8
20. Hcd2 - Rc5 21. Hel -
Hcd8 22. Hddl - d5!?
Hannesi leiðist þófíð og telur
sig tilbúinn til að láta til skarar
skríða á miðborðinu og jafna
taflið. En Jóhann finnur
skemmtilega leið til að halda
lífi í stöðunni og fómar peði:
23. cxd5 — exd5 24. Rf5! —
Rxe4 25. Bxf6 - Rxf6 26.
Dd2! - Hxel+ 27. Hxel -
He8 28. Hcl - Dd8 29. Df4
- a5 30. Rd6 - He7 31. Rf5
- He8 32. Bh3! - Ba6 33.
Hc7!?
Annar ágætur möguleiki var
33. Dg5 - g6 34. Hc6! og
hvítur stendur betur. Nú leikur
Hannes af sér drottningunni:
33. - Bd3?
34. Hc8! - Dxc8 35. Rh6+ -
gxh6 36. Bxc8 — Hel+ 37.
Kh2 - Re4 38. Bf5?
Missir af vænlegri leið í
tímahraki. Besti möguleiki
hvíts var 38. Db8! - Kg7 39.
Dxb6 - Rxf2! 40. Bf5! (En
síður 40. Dxa5 — Hcl og svart-
ur hefur mótspil) 40. — Rg4+
41. Bxg4 - Be4 42. Bf3 -
Bxf4 43. g4 með mjög góðum
vinningsmöguleikum á hvítt.
38. - Hfl 39. f3 - Hf2+ 40.
Kgl — Hfl+ 41. Kg2 og jafn-
tefli með þráskák.
Margeir Pétursson.
(^^ESEÍÍ)
MEÐ HALLANDI SNUNINGSKORFU:
* Olíunotkun aðeins 1,2 Itr. í
stað 2,5 Itr. í venjul. pottum.
* Styttri steikingartími, jafnari
steiking og 50% orkusparnaður.
* Einangrað ytrabyrði og
sjálfhreinsihúðað innrabyrði.
'* Gluggi á loki og 20 mín.
tímarofi með hringingu.
FALLEGUR FYRIRFERÐARLÍTILL FLJÓTUR.
Verð aðeins frá kr. 7.990,-
til kr. 13.990,- (sjá mynd).
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
'tvarpstam
fiS
SIEMENS
■ að er gaman aðgefa
vandaðar og fallegarjólagjafir.
Gjafir sem gleðja og koma að góðum
notum lengi, lengi.
Þannig eru
heimilistcekin frd Siemens,
Bosch og Rommelshacher.
(Ekki sakarað
kceta búálfana
í leiðinni.)
( Ryks
ugur
Hmrivél meö öllum
fylgihlutum á 16.900 kr. stgr.
CHandryksuga á 3.750 kr. J
Q Brauðrist^r frá 3.600 krC)
^f
Vöfflujám á 5*900 kr. J
Gufustrokjám frá 3*900 kr.j
SIEMENS
SMITH &
NORLAND
Umboðsmenn: Akranes: Rafþjohusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála • Helli!
Hallgrímsson • Stykkishólmur: Skipavík • Búðardalur: Ásubúð • ísafjörður: Póllinn • Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur: R
• Húsavík: öryggi • Þórshöfn: Norðurraf • Neskaupstaður: Rafalda • Reyðarfjörðun Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir: Sveinnl
• Höfn í Hornafirði: Kristall • Vestmannaeyjar: Tréverk • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga • Selfoss: Árvirkinn • Grindavík:
• Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði.
• Grundarfjörður: Guðni
|ið • Akureyri: Ljósgjafinn
Isvík: Stefán N. Stefánsson
ækjaverslun. Sig. Ingvarss.
Nóatum 4 • Simi 5113000
§M9¥0tllllF[ttkÍfr - kjarni málsins!