Morgunblaðið - 17.12.1995, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
I
i;
)
)
)
)
I
I
í
I
I
•?
}
I
I
I
1
9
I
J
I
I
1
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Bítlaæðið
Frá Konráði Friðfinnssyni:
ÞEGAR bresku Bítlarnir gáfu út
fyrstu breiðskífuna „Please, Please
Me“ 1963 að þá lagði Evrópu, í
fyrstu, við hlustir og líkaði hún vel.
Síðan óx þessi „fiskur“ og hlóð utan
á sig uns hann breiddi sig yfir allan
heiminn.
Kannski er það rangt að halda því
fram, að öll veröldin hafi legið flöt
fyrir fjórmennihgunum frá Liverpool.
Hið rétta er að krakkarnir, ungling-
arnir, eða unga fólkið, svona almennt
séð, var það fólk sem hreifst af þess-
ari tónlist Beatles. En þetta æði
magnaðist með hverri nýrri plötu frá
þeim félögum og náði hámarki að
margra mati 1967 er út kom, Sgt.
Peppers Lonely Hearts Ciub Band,
sem þótti og þykir en tímamótaverk.
Sannleikurinn er að ráðsettari og
reyndari menn og konur í löndunum
hristu mörg hver höfuðið og heyrðu
lítið annað en hávaða í Bítlatónlist-
inni.
Þess ber auðvitað að geta að í
veröldinni er ungt fólk á hveijum tíma
stór hiuti af heni og því ljóst að hópur-
inn er fylgdi Bítlunum og tók þátt í
skrípaleiknum, sem varð til með
þessu svokallaða og margfræga
Bítlaæði, er gríðarlega fjölmennur og
náði til tugi ef ekki hundruð milljóna
ungmenna, víða um heiminn. Eins
og frægt er orðið í Bítlasögunni lét
John Lennan, stofnandi The Beatles,
hafa eftir sér í blaðaviðtali við ein-
hverja blaðakonu, að Bítlarnir hefðu
meira gildi fyrir krakkana á þessum
tíma heldur en Jesú Kristur. Ollu
þessu ummæli Lennons gríðarlegum
viðbrögðum og hneykslun víða um
veröldina. En voru þessi ummæli
mannsins endilega röng, sé miðað við
tíðarandann eins og hann blasti
krökkunum í þann tíð? Gerum okkur
nefnilega grein fyrir einu að ungling-
arnir sem helteknir voru af Bítlaæði,
að þeirra heij»asta ósk flestra var að
fá að sjá þá snerta þá og komast í
tæri við þá, fá eiginhandaráritun og
svo framvegis.
Fullyrða má að það unga fólk, sem
tók þátt í þessum blekkingarleik,
Bítlaæðinu, hugsaði fæst um Jesú
Krist og kærleiksríkan faðm hans, á
meðan þetta ástand varði hjá því.
Öll hugsun unga fólksins snerist um
það á þessum árum að líkjast Bítlnun-
um, fylgjast með Bítlunum, breyta
eins og þeir, líkja eftir þeim í klæða-
burði. Strákarnir létu hár sitt vaxa
vegna þess að Bítlarnir voru með sítt
hár. Einnig voru til sérstök Bítlaföt,
líkt og margir muna eflaust eftir.
Og þannig var staðan á þessum títt-
nefndi Bítlaárum og svo var Bítlunum
kennt um allt saman. Staðreyndin er
sú að þessir 4 ungu Bretar, John,
Paul, George og Ringo, voru fangar
eigin frægðar. Þeir höfðu hvergi frið.
Allstaðar voru æpandi, aðdáendur
hvar sem þeir komu. Unglingarnir
settu þá á stall og hófu til skýja og
tóku að tilbiðja þá á sinn hátt, og
að þeim forspurðum. Því má með
nokkru sanni segja að fólkið hafi
gefíð þeim þann stað í hugum sínum
og hjörtum sem Frelsaranum í raun
ber, án þess þó _að gera sér það sjálft
endilega ljóst. Áður er varði að ultu
líka þessi goð af stalli sínum og skildu
eftir autt rúm í hjarta fólksins. Og
það gekk niðurlútt. Sumir felldu tár.
Margur spurði hvað nú tæki við.
Hveijir gætu fyllt það skarð sem
Bítlarnir skildu eftir sig. Og til eru
menn sem aldrei hafa jafnað sig al-
mennilega á missinum.
Ef menn halda að Bítlaæðið sé
eitthvað nýtt í sögunni að þá er það
misskilningur. Á þann hátt er mann-
kynssagan öll skráð í raun. Fólk hef-
ur á öllum tímum freistast til að setja
menn á stall, og suma hefur það tek-
ið í guðatölu. En allt farið á einn veg
og endað með hruni, fyrir þær sakir
að átrúnaðurinn var á sandi byggður.
En sannleikurinn er sá að hvaðeina
bliknar og fölnar í samanburði við
þá dýrð sem fylgir samfélaginu við
Frelsarann, Jesú Krist. Líka Bítlar
allra tíma.
KONRÁÐ FRIÐFINNSSON,
Blómsturvöllum 1, Neskaupstað.
Dýrmætasta gjöfin
er þín - ef þú vilt
Frá Erni L. Guðmundssyni:
EN vorar þjáningar var það sem hann
bar og vor harmkvæli sem hann á
sig iagði. Vér álitum hann refsaðan,
sleginn af Guði og lítillættan en hann
var særður vegna vorra synda og
kraminn vegna vorra misgjörða.
Hegningin sem vér höfðum til unnið
kom niður á honum og fyrir hans
benjar urðum vér heilbrigðir. Vér
fórum aliir villir vegar sem sauðir,
stefndum hver sína leið en Drottinn
lét misgjörð vor allra koma niður á
honum.
Þetta er fagnaðarerindi Guðs
í hnotskurn — Hreint og
ómengað!
Boðskapur þess er fagnaðarboð-
skapur um góðan og óendanlega
kærleiksríkan Föður sem elskaði svo
þennan heim og fólkið í syndarfjötr-
um hans að hann gaf okkur það dýr-
mætasta sem hann átti, son sinn ein-
getinn, til að hver sem á hann trúir
myndi ekki glatast heldur hafa eilíft
líf. Fagnaðarerindið er boðskapur um
hjálpræði, fyrirgefningu og frið,
lækningu og lausn frá sálarfjötrum.
Endurreisn til anda, sálar og lrkama
og samfélag og sátt við skapara okk-
ar og Guð og eilíft líf með honum.
Hið sanna fagnaðarerindi Biblíunnar
inniheldur boðskap um stærstu og
dýrmætustu gjöf sem gefin hefur
verið. Jesús Kristur sonur Guðs dó á
krossi fyrir ca. 2.000 árum síðan fyr-
ir syndir mannkynsins og tók á sig
þá hegningu sem við höfðum til unn-
ið. Við erum dýru verði keypt!
Svo mikilvægur er boðskapur
fagnaðarerindisins að hundruð þús-
unda hafa dáið og þolað fangelsi og
pyntingar fyrir trú sína og þá við-
leitni að gefa öðrum tækifæri til að
bæði heyra fagnaðarerindið um Jes-
úm Krist og taka síðan við því fyrir
náð og trú og endurfæðast. Gegnum
aldirnar hafa óvinir guðs barist gegn
fagnaðarerindinu með öllum tiltæk-
um ráðum og menn hafa deilt um
það allt fram á okkar daga hvernig
það beri að skilja og hvernig við því
skuli tekið. Þjóðkirkjan og fleiri
kirkjudeildir halda því fram að menn
séu hólpnir gegn- um barnaskírn og
síðan fermingu/trúaijátningu og þar
sem við séum hólpin fyrir náð Guðs
þá getum við ekki breytt neinu í lí'fi
okkar. Okkar sé að leggja rækt við
kærleikann og kristilegt líferni. En
hvernig sem við svo veljum að lifa —
þá eigum við samt fyrirgefningu vísa
á himnum og þar munum við öll lenda
að lokum. Mér getur skjátlast í ein-
hveijum atriðum en þannig hef ég
skilið boðskap þjóðkirkjunnar.
Jesús Kristur segir aftur á móti:
Tíminn er fullnaður og Guðsríki í
nánd. Gjörið iðrun og trúið fagnað-
arerindinu. Iðrun eða afturhvarf er
að sjá eftir einhveiju og snúa síðan
algjörlega frá því til að lifa öðruvísi
en áður. Ef þú játar með munni þín-
um Jesús er Drottinn og trúir að Guð
hafi uppvakið hann frá dauðum þá
muntu hólpinn verða. Þetta er upp-
gjör við Guð og það líf sem lifað er
andstætt orði Guðs. En hvernig get
ég lifað samkvæmt því sem orð Guðs
segir — hvað þá skilið það sem þar
stendur?
Jesús sagði: Ég mun biðja föðurinn
og hann mun gefa yður annan hjálp-
ara að hann sé hjá yður að eilífu í
anda sannleikans!
Hér er átt við Heilagan Anda Guðs
sem Jesús sagði að við mættum biðja
föðurinn um og myndum fá eftir að
við endurfæddumst. Hann mun kenna
okkur allt og minna á það sem Jesús
sagði. Hann er hjálpari okkar og
huggari og útskýrir ritninguna og
upplýkur þeim fjársjóðum sem í henni
er að finna. Jesús sjálfur lifði og starf-
aði með hjálp Heilags Anda og sömu-
leiðis frumkirkjan og margir kristnir
í dag. í krafti andans gerðust mörg
tákn og undur: Sjúkir urðu heilir,
dauðir risu upp og illir andar voru
út reknir. Jafnvel vinda og haf lægði.
Og mörg önnur kraftaverk, tákn og
undur áttu sér stað og eiga sér stað
enn í dag út um allan heim. Jesús
er hinn sami í dag!
Ritningin segir: Lífinu sem ég lifi
nú hér á jörð lifi ég í trúnni á Guðs
son sem elskaði mig og lagði sjálfan
sig í sölurnar fyrir mig. Og hér á
Þakkir
Frá Halli Hallssyni:
KATRÍN Fjeldsted, læknir og gagn-
rýnandi Morgunblaðsins, baðst í vik-
unni velvirðingar á óheppilegum um-
mælum í ritdómi um bókina Karlar
eru frá Mars, konur eiv frá Venus.
Mig langar að koma á framfæri kæru
þakklæti til Katrínar. Með afsökunar-
beiðni sinni er hún maður að meiri.
Bókin Knrlar eru frá Mars, konur
eru frá Venus hefur fengið mjög góð-
ar viðtökur meðal íslendinga, svo góð-
ar að hún trónar nú í fyrsta sæti á
metsölulistum. Landsmenn, ungir og
gamlir, eru staðfastir í að bæta líf sitt.
Til að undirstrika þetta langar mig
að segja stutta sögu af 83 ára gam-
kirkjan stóran þátt og samfélag trú-
aðra.
- Ekki ríkisstofnun, hefðir og dauð
form — heldur líf og samfélag trú-
aðra með Guði. „Biblían talar um
algjört uppgjör við synd og lífsstíl
sem er í andstöðu við orð Guðs. Ef
einhver er í Kristi, þ.e. tekur við hjálp-
ræði hans, þá er hann skapaður á
ný, hið gamla varð að engu, sjá nýtt
er orðið til.
Syndin er raunveruleiki — það
nægir að horfa á heiminn eins og
hann er í dag.
Biblían talar gegn synd því afleið-
ing hennar er dauði og glötun — eilíf-
ur aðskilnaður frá Guði. „En það er
ekki vilji Guðs að neinn glátist heldur
að allir menn verði hólpnir og komist
til þekkingar á sannleikanum. Þess
vegna sendi hann okkur Jesú sem
frelsara frá lífi í synd!
Ég hef valið að trúa á orð Jesú
Krists og svo lengi sem það er til
fólk á meðal okkar sem er andlega
leitandi og er í þjáningum, hvort held-
ur er andlega, sálarlega eða lík-
amlega þá vil ég boða þeim sem vilja
við því taka kærleiksboðskap Krists
og benda á sannleika Biblíunnar.
„Allir menn hafa syndgað og skortir
Guðs dýrð.“ Þessi staða kom til við
syndafallið þegar Adam og Eva féllu
í synd. En leiðin er opin fyrir alla —
fyrirgefningin er til staðar, öll synd
og misgjörð hefur verið lögð á Jesú.
Eina sem við gerum er að taka við
því fyrir náð og í trú og trausti á
Frelsarann og lifa síðan lífí okkar
með honum samkvæmt ritningunum.
Kirkja Jesú Krists er opin öllum
mönnum, konum og bömum — Jesús
Kristur dó fyrir alla menn! Fagnaðar-
erindi Guðs um Jesú Krist er fyrir
þig. Vilt þú taka við því?
Stærsta og þýðingarmesta spurn-
ing sem við stöndum frammi fyrir í
lífinu er: Hvað ætla ég að gera með
það sem ég hef heyrt um Jesúm Krist?
ÖRN L. GUÐMUNDSSON,
Kársnesbraut 49, Kópavogi.
alli konu. Hún kom til mín eftir að
ég hafði lesið upp úr bókinni á Hrafn-
istu og kvaðst endilega vilja festa
kaup á eintaki. Hallur minn, sagði
hún, mér finnst boðskapurinn svo fal-
legur. Og bætti svo við: í dag á ég
65 ára brúðkaupsafmæli. Maðurinn
minn lést fyrir nokkrum árum, hann
var mikill ágætismaður - og mig lang-
ar að gefa mér bókina í tilefni dags-
ins. Bókin er alveg stórkostleg.
Ég læt nafns hennar ekki getið
hér, en hvílík kona, greind, víðlesin
og full af visku og lífí. Þessi gamla
kona er verðugur fulltrái hins breiða
fjölda, sem stöðugt leitar leiða til þess
að bæta líf sitt og ástvina sinna. Enda
er það leiðin til árangurs í lífínu, að
eiga kærleiksrík samskipti við fólk.
HALLUR HALLSSON,
stjórnarformaður Vaxtar.
uxtismti-viMtMio-
SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1995 41
AUKIN OKURETTINDI
ivi
i n? f=» n? c±> r=
Námskeiðum á haustönn er að Ijúka. x
Ný nómskeið hefjast f janúar næstkomandi.
Innritun á nómskeið á vorönn stendur yfir. ^íslímds'
Verið forsjál oa látið skrá ykkur tfmanlega. _ .
... 7 /Wj rrúvO^
Ökuskóli fslands hefur útskrifað rúmlega 500
nemendur með aukin ökuréttindi og býður hagnýtt
nám undir leiðsögn færra og reynslumikilla kennara.
Okkar takmark er slysalaus umferð, auldn þekldng og auidð öryggi
^övublfra^
ÞEKKING
ÖKURÉTTINDI
ATVINNUTÆKIFÆRI
8: 568 38 41
Okuskóli Islands hf. - Dugguvogur 2 -104 Reykjavík
Rolex - heimsþekkt hágæðaúr.
Þar sem saman fer frægð og fágun
Hið eftirsótta Rolex eftirlit með nákvæmum
Datejust-úr ber nafn- tímamælum. Eins og
bótina „Chronométre" flest það sem ótvírætt
en þá viðurkenningu . ber af öðru er úrið
veitir opinber u mjög látlaust og þar
stofnun í Sviss '*r með enn fallegra.
sem annast ROLEX
Erþérfeílt
gftöndunum i
Ótrúlegt úrval af ódýrum
„Úlpuhönskum?
Ungversku gæðahanskarnir
VERÐ FRÁKR.3.500,-
VERÐ KR.1.800.-TIL 2.500,-
^lálávötðuitujl, 101 TQjljávil, 55/ -5814