Morgunblaðið - 06.06.1996, Side 60
60 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
í5g> ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 551 1200
W
Stóra svi&ið ki. 20.00:
# TAKTU LAGIÐ LÓA eftir Jim Cartwritht
Fim. 20/6 - fös. 21/6 - lau. 22/6 - sun. 23/6. Ath. aðeins þessar 4 sýningar í Þjóð-
leikhúsinu. Leikferð hefst með 100. sýningunni á Akureyri fim. 27/6.
# SEM YÐUR ÞÓKNAST eftir William Shakespeare
Á morgun - fös. 14/6. Síðustu sýningar.
# ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Lau. 8/6 örfá sæti laus, næstsíðasta sýning - lau. 15/6 síðasta sýning.
# KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner.
Lau. 8/6 kl. 14 næstsíðasta sýning - sun. 9/6 kl. 14 síðasta sýning.
Smíðaverkstaeðið kt, 20.30:
# HAMINGJURÁNIÐ söngleikur eftir Bengt Ahlfors
Fös. 7/6 uppselt - sun. 9/6 nokkur sæti laus - fös. 14/6 - sun. 16/6. Siðustu sýningar
á þessu leikári. Ath. frjálst sætaval.
Utla sviðið kl. 20.30:
# / HVITU MYRKRI eftir Karl Ágúst Úlfsson
Lýsing: Ásmundur Karlsson.
Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórsson.
Leikstjórn: Hallmar Sigurðsson.
Leikendur: Kristbjörg Kjeld, Helgi Skúlason, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Magnús Ragn-
arsson, Ragnheiður Steindórsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson.
Forsýningar á Listahátíð í kvöld uppselt - fös. 7/6.
Gjafakort í leikhús - sígild og skemmtileg gjöf
Miöasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og fram að sýningu
sýningardaga. Einnig simaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga.
Sími miðasölu 551 1200 - Sími skrifstofu 551 1204.
22 BORGARLEIKHUSID sími 56B 8000
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Stóra svið kl 17:
• ÓSKIN eftir Jóhann Sigurjónsson í leikgerð Páls Baldvins Baldvinssonar.
Forsýning v. Norrænna leikhúsdaga lau 8/6.
Miðaverð kr. 500,-. Aðeins þessi eina sýning!
Stóra svið kl. 20.00:
SAMSTARFSVERKEFNI VIÐ LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR:
islenski dansflokkurinn sýnir á Stóra sviði kl. 20.00:
• FÉHIRSLA VORS HERRA eftir Nönnu Ólafsdóttur og Sigurjón Jó-
hannsson.
Sýn. fös. 7/6, sýn. sun. 9/6.
Miðasala hjá Listahátíð i Reykjavík.
Miðasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga, nema mánudaga frá kl. 13-17. Auk þess
er tekið á móti miðapöntunum í síma 568-8000 alla virka daga frá kl. 10-12.
Faxnúmer er 568-0383.
Gjafakortin okkar — frábær tækifærísgjöf!
■CSRjlGI
nÝ ÓPEILA EFtÍRjÓn ÁSCEÍRJSOn
mÍÐASALftn
OPÍn KL. I5-I9
nEmfl món.
sími 55I-I475
ÍSLEnSKO ÓPERðn
I, jOm UPPSELt OG 4. jOní UPPSELt
nÆstu sÝnincöK7. júní s. júní n. júní oc 14. júní
í R e y k i a v í k
Li/sbaháti£ 1 Rejhjavik
Sigurður Flosason
og alþjóðlegi jasskvintettinn,
Loftkastalinn, 7. júní kl. 21.00
Drápa,
Tunglið, 7. júní kl. 21.00
Stórviðburður:
Dimitri Hvorostovsky, Olga Romanko, Keith Ikaia-
Purdy, Rannveig Fnða Bragadóttir ásamt Heimskómum
og Sinfóníuhljómsveit íslands flytja perlur úr þekktum
óperum.
Laugardalshöll, laugardaginn 8. júní kl. 16.00
Voces Thules,
Sundhöllin, 8. júní kl. 23.30
Philharmonia Quartett-Berlin,
íslenska óperan 9. júní kl. 16.00
Ljóð og jass,
Loftkastalinn, 9. júní kl. 21.00
jötunninn,
Loftkastalinn, frumsýningu
frestaö til 13. júní kl. 20.30
h á f í ó T wjr/
Miðasata: Upplýsingamiðstöð ferðamáia
Bankastræti 2, Reykjavík, sími: 552 8588 & 562 3045
http://www.saga.is/artfest
FÓLK í FRÉTTUM
Sýrukóngnr hippa-
hreyfingarinnar allur
TIMOTHY Leary var 75 ára þegar
hann lést á föstudag fyrir viku og
átti að baki skrautlegan feril. Hann
gekk í West Point-herskólann og
gegndi herþjónustu, varð prófessor
við Harvard, en gerðist á sjöunda
áratugnum sérlegur talsmaður of-
skynjunarlyfsins LSD, skoraði á fólk
að snúa baki við þjóðfélaginu og fara
sína eigin leið.
Leary greindist með ólæknandi
krabbamein í janúar 1995. Hann
hugðist ganga þannig frá hnútunum
að unnt yrði að fylgjast með andláti
sínu á alnetinu, en þegar til kom var
aðeins greint frá því að hann væri
allur á heimasíðu hans.
Leary verður brenndur. Sjö
grömmum af ösku hans verður kom-
ið fyrir i tveimur litlum hylkjum á
stærð við varalit og skotið út í geim-
inn um borð í gervihnetti ásamt ösku
ýmissa annarra frægra manna, þar
á meðal Genes Roddenberrys, höf-
undar Star Trek-sjónvarpsþáttanna.
Aðdáendur Learys settu hann á
stall, en andstæðingar sögðu hann
hættulegan loddara, sem boðaði fals-
trú reista á tálsýn ofskynjunarlyfs-
ins. Þegar yfirvöld ákváðu að láta til
skarar skríða gegn eiturlyfjadýrkun
sjöunda áratugarins var Leary meðal
þeirra, sem spjótunum var einkum
beint að.
Á flótta frá Alsír til Afganistan
Leary var stungið í fangelsi í Kali-
fomíu fyrir eiturlyfjanotkun, en árið
1970 tókst honum að sleppa. Hann
flúði til Alsír, hélt þaðan til Sviss,
en náðist í Afganistan 1973 og var
settur í fangelsi á ný.
Leary var virtur sálfræðiprófessor
við Harvard-háskóla þegar hann hóf
að gera tilraunir með
LSD eftir að hafa próf-
að ofskynjunarsveppi í
Mexikó. Hann var rek-
inn frá Harvard árið
1963 þegar upp komst
að hann hafði gefið
stúdentum eiturlyf til
að kanna viðbrögð
þeirra.
„Vandinn var sá að
heimurinn var ekki
undir okkur búinn, en
ég fann aldrei til neinn-
ar reiði við Harvard,"
sagði Leary síðar.
Leary var á sínum tíma í innsta
hring bandarískra menningarvita og
umgekkst Aldous Huxley, Allen Gins-
berg, William Burroughs og Charles
Mingus, svo einhveijir séu nefndir.
Frægð Learys jókst eftir því sem
hippahreyfingin breiddist út, hann
varð þekktur um allan heim og hlaut
viðurnefnið „Messías sýrunnar".
Milljónamæringur einn, William
Hitchcock, ákvað að veita Leaty
brautargengi og lét hann hafa 1600
hektara búgarð sinn í New York til
afnota. Þangað streymdi fólk á öllum
aldri til að bryðja sýru og var vitað
til þess að níu ára barn hefði verið
þar _á meðal.
„Ohjákvæmileg markmið LSD-
reynslunnar eru að uppgötva og njóta
ásta við guð, uppgötva og njóta ásta
við sjálfan þig og uppgötva og njóta
ásta við kvenmann," sagði Leary eitt
sinn í viðtali við tímaritið Playboy.
Þegar hippatímabilið fjaraði út fór
að fjara undan Leary. Hann var
ýmist á flótta eða í fangelsi og þegar
hann hafði afplánað síðasta dóminn
ákvað hann að reyna fyrir sér í Holly-
wood. Leiklistartilþrif
hans þóttu hins vegar
ekki beysin og litlum sög-
um fór af tilraunum hans
til að fara með gamanmál
á sviði. Hann bauð sig
fram til ríkisstjóra í Kali-
forníu, en kjósendur létu
sér fátt um finnast.
Það var ekki fyrr en
hann reyndi fyrir sér í
fyrirlestrahaldi að sól
hans fór að rísa á ný og
var umtalað þegar hann
fór í fyrirlestraferð með
G. Gordon Liddy, sem var
einn af höfuðpaurunum í Watergate-
málinu og er nú meðal útvarpskjaft-
aska yst á hægri væng stjórnmál-
anna. Liddy var í bandarísku aln'k-
islögreglunni, FBI, og handtók Leary
að minnsta kosti tvisvar á sjöunda
áratugnum.
Þessir fomu fjendur urðu hinir
mestu mátar og sagði Liddy síðar
að sennilega mætti rekja það til þess
að báðir væru „írskir uppreisn-
armenn".
Leary fæddist í Springfield í
Massachusetts 22. október 1920.
Hann var fjórgiftur og skildi við
fjórðu konu sína 1995.
„Eg veit að hægt er að mistúlka
þetta, en þegar ég komst að því að
ég væri með ólæknandi sjúkdóm fyllt-
ist ég spennu,“ sagði Leary. „Hvern-
ig maður deyr er það mikilvægasta,
sem maður gerir. Það er útgangan,
lokaþáttur stórkostlegrar sögu lífs
manns. Það er þriðji þátturinn og
allir vita að stígandin miðar að því
að ná hámarki í þriðja þættinum.
Eg hef beðið eftir þessu svo árum
skiptir."
Reuter
TIMOTHY Leary
Morgunblaðið/Helgi
Foster
dregur
sig í hlé
ALLT bendir nú til
þess að Jodie Foster
muni hætta við hlut-
verk sitt í myndinni
„Game“ á móti Michael
Douglas. Heyrst hefur
að ágreiningur hafi ris-
ið milli hennar og
framleiðenda myndar-
innar.
Er nú verið að ræða
við Jeff Bridges um að
taka að sér hlutverk
hennar, en tökur áttu
að hefjast í júlí. Ef
Bridges tekur hlutverk
Foster mun uppruna-
lega handrit myndar-
innar verða notað þar
sem aðalpersónurnar
eru tveir karlmenn.
Söngkeppni
Raufarhafnar
► SÖNGKEPPNI Raufarhafn-
ar, sem notið hefur mikilla vin-
sælda í gegnum tíðina, var hald-
in í Hnitbjörgum þar í bæ fyrir
skemmstu. Þrettán keppendur
mættu til leiks og var þeim
fagnað af fullu húsi gesta.
Hljómsveitin Antik sá um
framkvæmd keppninnar, en
kynnir kvöldsins var Arnaldur
Bárðarson. Það tók dómnefnd
55 mínútur að komast að niður-
stöðu, en sigurvegari varð
yngsti keppandinn, Rakel Björk
Haraldsdóttir. Hún söng lagið
„I’ll Stand By You“ og hlaut að
launum ferð til Dublin á írlandi.
í öðru sæti varð Þorbjörg
Stefánsdóttir, með lagið „When
You Tell Me That You Love
Me“ og í því þriðja Reynir Þor-
steinsson oddviti og starfandi
sveitarstjóri, en hann söng lagið
„My Way“, sem Frank Sinatra
hefur gert vinsælt.