Morgunblaðið - 06.06.1996, Qupperneq 68
<Ö>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
<o> NÝHERJI í.k.
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 11S1,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Engin laxanet í
Borgarfirði í ár
NORÐUR-Atlantshafssjóðurinn
hefur tekið á leigu netalagnir jarð-
anna Rauðaness I, II og III í
Borgarfirði og voru samningar þar
að lútandi undirritaðir á þriðjudags-
kvöld í Borgarhreppi. Að sögn Orra
Vigfússonar er um að ræða átta
lagnastæði við Stekkjarhöfða,
Rauðanesvík, Runkatanga, Langa-
tanga, Hrafnshreiðurssker, Litla-
læk og við Saltlæk.
Orri segir þennan samning þýða
í raun að í fyrsta skipti, sennilega
í sögu laxveiða hérlendis, verði eng-
in net að finna í Borgarfirði í ár.
„Leigutíminn giidir að svo stöddu
aðeins fyrir þetta ár. Engu að síður
er alltaf ánægjulegt þegar fijálsir
samningar takast,“ segir Orri.
Áður eitt þúsund
laxar í net
Laxarnir sem áður veiddust í
þessi net munu ganga í Norðurá,
Grímsá, Þverá/Kjarrá, Langá, Haf-
fjarðará og Hítará. Um 7.000 laxar
veiddust á stöng í þessum ám á
seinasta ári, en um 1.000 laxar í
net á áðurnefndum stöðum.
NASF festi kaup á laxveiðirétt-
indum jarðarinnar Þursstaða á
Mýrum fyrr á þessu ári en alls
hafa sex jarðir hérlendis haft heim-
ild til laxveiða í sjó samkvæmt sér-
stakri undanþágu frá aðalreglu sem
Alþingi veitti árið 1932.
NASF hefur um sex ára skeið
unnið að samningum um uppkaup
á laxakvótum og veiðiréttindum í
úthafinu og hafa um nokkurn tíma
átt sér stað, að sögn Orra, skoðana-
skipti við eigendur fyrrnefndra
hlunninda sem miða að því að ná
fijálsum samningum um uppkaup
netalagna, sem hafi skilað fyrr-
nefndum árangri.
Hann kveðst telja samninga um
þessi kaup eða leigu eiga að vera
viðkomandi aðilum til hagsbóta,
bæði sjóveiðibændum, eigendum
laxveiðiáa og ríkissjóði.
Fjölgun í
selafjöl-
skyldunni
SÆRÚN í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum kæpti í liðinni viku og
er það í fyrsta sinn sem selir
garðsins fjölga sér, segir Margrét
Dögg Halldórsdóttir dýrahirðir.
Til þessa hafa tvær urtur og einn
brimill átt heimili í garðinum.
Brimillinn heitir Snorri og virð-
ist hafa verið iðinn við kolann því
allt bendir til að hin urtan muni
kæpa innan skamms, að sögn
Margrétar. Kópurinn, sem reynd-
ar er urta, er sprækur og dafnar
vel og verður á spena næstu þijár
vikur. Að því búnu mun hann
væntanlega bjarga sér sjálfur um
síld og loðnu líkt og foreldrarnir.
„Annars veit enginn hvernig
þetta æxlast því urturnar yfirgefa
kópana úti i náttúrunni en hér í
garðinum getur reynst erfitt að
ýta frá sér,“ segir Margrét Dögg.
Munn-
tóbakið
bannað
MUNNTÓBAK og fínkorna
neftóbak er bannað hér á landi,
samkvæmt nýjum lögum um
tóbaksvamir. Munntóbak er
nokkuð mikið notað af knatt-
spyrnumönnum, sérstaklega
svokallað sænskt skro.
Logi Ólafsson, landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu, kveðst ekki
hafa bannað notkun munntób-
aks í landsliðinu, en hann hafi
minnst á málið þegar hann hafi
talað til ungra manna. Hann
segir munntóbaksnotkun sé
geysilega útbreidda meðal
íþróttamanna í Noregi.
Halldóra Bjamadóttir, for-
maður tóbaksvamanefndar,
fagnar banninu og rekur aukn-
ingu reykinga unglingspilta m.a.
til munn- og neftóbaksnotkunar.
■ Fjársektir/6
Morgunblaðið/Þorkell
Stórsöngv-
arar til
landsins
STÓRSTJÖRNUR úr öllum Iist-
greinum streyma nú til landsins
á Listahátíð. I gærdag kom
sópransöngkonan Olga Rom-
anko og í gærkvöldi bariton-
söngvarinn Dmitri Hvorost-
ovsky, sem skráir sig inn á hót-
el á meðfylgjandi mynd. Þau
syngja með Heimskórnum og
Sinfóníuhljómsveit íslands í
Laugardalshöll á laugardag
ásamt tenórsöngvaranum Keith
Ikaia-Purdy og messósópran-
söngkonunni Rannveigu Fríðu
Bragadóttur.
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands frestaði þingi í síðasta sinn
Fjármagnstekjuskattur
lögfestur undir þinglok
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, frestaði
í gærkvöldi þingfundum til hausts. Þetta var í
síðasta sinn sem Vigdís gaf út forsetabréf um
þingfrestun, en kjörtímabil hennar er senn á
enda.
Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, færði
Vigdísi, hugheilar þakkir alþingismanna fyrir
ánægjulegt samstarf í forsetatíð hennar um leið
og hann óskaði henni gæfu og guðs blessiinar
í framtíðinni. Þingheimur tók undir orð Ólafs
með því að rísa úr sætum.
Vigdís 'las upp forsetabréf um frestun funda
Alþingis til septemberloka. og tók fram _að um
síðasta embættisverk hennar með Alþingi íslend-
inga eftir 16 ára sarhstarf væri að ræða.
„Ég vil þakka alþingismönnum hveijum og
einum fyrir hollustu við embætti forseta íslands
og vinsemd í minn garð. Jafnframt minnist ég
góðra kynna við alþingismenn sem setið hafa á
þingi í embættistíð minni en eru hér ekki núna,“
sagði hún meðal annars. Að lokum þakkaði hún
þjóðinni af alhug vináttuna löngu og traustu.
127 ný lög
Alls voru 127 lög sett á þinginu sem stóð frá
október á síðasta ári. Síðasta þingdaginn voru
meðal annars sett lög um fjármagnstekjuskatt,
„ Morgunblaðið/Ásdís
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands,
og Ólafur G. Einarsson, þingforseti, við
frestun þings í gærkvöldi.
náttúruvernd, breytt-lögum um stjórn fiskveiða
varðandi krókaleyfisbáta, lögfest eftirlitsgjald
vegna úthafsveiða og lögum um eftirlaun þing-
manna breytt.
í gærmorgun var búist við að hægt yrði að
fresta þingi upp úr hádeginu en samkomulag
hafði náðst milli stjórnar og stjórnarandstöðu
aðfaranótt miðvikudags um afgreiðslu tveggja
af þeim þremur ágreiningsmálum sem eftir voru
á málaskrá ríkisstjórnarinnar. Þannig var frum-
varp um úthafsveiðar að mestu leyti dregið til
baka að undanskildu ákvæði um veiðieftirlits-
gjald sem útgerðir skipa þurfa að greiða vegna
eftirlits með veiðum skipanna.
Fyrir lá að frumvarp heilbrigðisráðherra um
samstarfsráð sjúkrahúsa í Reykjavík og á Reykja-
nesi yrði ekki afgreitt heldur vísað til nefndar.
Einungis var þá eftir frumvarp um náttúru-
vernd en Hjörleifur Guttormsson, Alþýðubanda-
lagi, hefur verið mjög andsnúinn því frumvarpi.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins höfðu
farið fram óformlegar samningaumleitanir um
afgreiðslu málsins án niðurstöðu.
Umræða um málið hófst upp úr klukkan 14
og hélt Hjörleifur ræðu sem stóð í rúma fjóra
klukkutíma. Það varð til þess að umræðan stóð
fram á kvöld en frumvarpið var samþykkt sem
lög áður en þinginu var frestað.
■ 120. löggjafarþing/2
■ 10% skattur/35