Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 11 HALLDÓR KELJAN LAXNESS Þjóðleikhússafn SKÁLDIÐ virðir fyrir sér líknn af leikmynd að sýningu Þjóðieikhússins á Prjónastofunni Sóiinni ásamt leikstjór- anum Baldvini Halldórssyni og höfundi leikmyndarinnar Gunnari Bjarnasyni. Þjóðleikhússafn ÍSLANDSKLUKKAN í Þjóðleikhúsinu 1950. Herdís Þorvaldsdóttir sem Snæfríður Islandssól og Brynjólfur Jóhannesson sem Jón Hreggviðsson. Þjóðleikhússafn ÍSLANDSKLUKKAN í Þjóðleikhúsinu 1985. Tinna Gunnlaugsdóttir sem Snæfríður íslandssól og Helgi Skúlason sem Jón Hreggviðsson. þetta nýja leikhús - absúrd leikhús - í uppsiglingu og ég gekk næstum í svefni á hönd því og setti saman ein fjögur leikrit í þeim stí1 í hvelli, þ.á m. Snæfellsjökulsleikritið upp- úr Kristnihaldinu, Buxnapressar- ann, Strompleikinn og Prjónastof- una. Þetta var í absúrd-stílnum miðjum." Leikhúsgestir vissu fæstir hvemig bregðast skyldi við og voru jafnvel ekki tilbúnir að fylgja skáldinu inn á þessar framandi lendur. I Strompleiknum og Prjónastofunni Sólinni eru persón- urnar ólíkindaleg blanda af þjóð- legum sérvitringum og alþjóðleg- um táknmyndum, tungutakið er rammíslenskt blandið slettum úr nýtilorðnu borgarmáli; skáldið bregður íslensku samfélagi eftir- stríðsáranna undir sjóngler absúrd- ismans og ekki laust við að stund- um fái áhorfandinn glýju í augun. I Strompleiknum er hefðbund- inni aðferð þó enn að nokkru hald- ið til haga, megintákn sett í raun- særra samhengi og persónurnar einnig, þannig að segja má að þrátt fyrir „absúrd spretti" vísi leikritið ekki síður aftur fyrir sig til Silfur- túnglsins en framávið í átt að Prjónas tofunni. • • • Prjónastofan Sólin er tilraun með form. Framúrskarandi djörf tilraun höfundar til að leysa sig úr viðjum hins hefðbundna, reyna á þanþol formsins í allar áttir án til- lits til endanlegrar útkomu. Þar koma engu að síður fyrir kunnug- legir þræðir sem rekja má í gegn- um Strompleikinn til Silfurtúngls- ins og til baka aftur ef vill. Prjóna- stofan Sólin stendur þó sem barn síns tíma í leikritun Halldórs Lax- ness, en nýtur efans enn um sinn þar til fram kemur sýning á verk- inu sem sker úr um lífskraft þess. I Dúfnaveislunni fléttast loks saman þeir þræðir sem spunnir eru í fyrri leikritum. Þó er ástæðu- laust að hefja Dúfnaveisluna á stall og segja það besta leikrit Halldórs. Þegar best tekst til gefa fyrri leik- ritin því ekkert eftir en það er jafn- ljóst að með Dúfnaveislunni náði Halldór tökum á því formi sem hann leitaði eftir í Prjónastofunni og Strompleiknum. Með Dúfnaveislunni er mótaður stíll í íslenskri leikritun sem ber hvað skýrust höfundareinkenni; persónusköpun, inntak og form renna áreynslulaust saman, ís- lenskur veruleiki í fortíð og nútíð er umgjörð og innihald án þess að hinni absúrd sýn sé sleppt. Því má halda fram að Dúfnaveislan sé það leikrit sem standi hvað best undir nafni sem íslenskur absúr- dismi í leikritun okkar á þessari öld. Það er til marks um stærð Halldórs Laxness í íslenskum bókmenntum að samhliða því að vera mestur realistinn í íslenskri skáldsagnagerð tekur hann sæti sem fremstur absúrdistinn í ís- lenskri ieikritun. í ljósi þessa mætti svo skoða eftirfarandi orð sagnameistarans sjálfs um leikrit- un sína. „En tilgangur verkanna, að minnsta kosti ytri tilgangur, er sá að setja saman hugvekjur í skemmtiformi handa fólki. Eins og þú hefur tekið eftir, virðast margir íslendingar ekki þola hvað ég iegg mikla áherzlu á sjálfan sjónleikinn í leikverkum mínum. Eg hef verið að reyna að ala sjálfan mig upp á gam- als aidri einmitt í þeirri grein. En sannleikurinn er sá, að Islendingar vija bara heyra sögu, en bera yfir- leitt iítið skyn á sjónleik, sem von er. Teater hefur lengstum verið fyrir utan líf þeirra og hugsana- gang. I sagnaskáldskap er skír- skotað til lesandans með því að gera söguna sem trúlegasta, ann- ars missir hann áhugann. En lífið á fjölunum er sérstakur heimur, sannur eða ósannur eftir atvikum, það fer eftir því hvernig maður sldlgreinir satt og ósatt; og hvernig manni tekst með óbeinni mála- færslu að rökstyðja mái sitt á leik- sviðinu. Leikhússena getur birt mikinn sannleika, þó hún sé óhugs- andi í veruleikanum. Hér er allt undir því komið hvernig leikskáidið heldur á máium. Erindi ieikrits er í senn að skemmta áhorfandanum og veita honum fróðiega kvöldstund. Það er ekki ætlazt til að maður komi í leikhúsið með logaritmatöfl- ur upp á vasann til að fá botn í það sem gerist á sviðinu. Maður verður aðkoma eins ogkrakki." Leiksýningaskrá 1928 Laxness semur Söiku Völku sem kvikmyndahandrit í Los Ang- eles. 1934 Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir sjónleikinn Straumi-of 29. nóvember. 1947 Kaflar úr Sölku Völku leiknir í útvarp. 1948 Kaflar úr Sjálfstæðu fólki leiknir í útvarp. 1950 Leikritið Snæfríður íslandssól sýnt undir nafninu íslands- klukkan við opnun Þjóðleikhússins 22. apríl. 1952 íslandsklukkan sýnd að nýju á fimmtugsafmæli skáldsins. 1954 Þjóðleikhúsið frumsýnir Silfurtúnglið 9. október. Salka Valka kvikmynduð. 1955 Þættir úr Sölku Völku, Ljósvíkíngnum, Sjálfstæðu fólki og ís- landsklukkunni leiknir í útvarp. Silfurtúnglið sýnt í Malyleikhúsinu í Moskvu. 1956 íslandsklukkan sýnd að nýju í Þjóðleikhúsinu. Silfurtúnglið sýnt í Suomen Kansallisteatteri í Helsinki. 1959 Silfurtúnglið þýtt og gefið út á kínversku. Leikurinn hefur einnig verið gefínn út á tékknesku og prentaður í frönsku tímariti. 1960 Leikfélag Akureyrar sýnir íslandsklukkuna. 1961 Strompleikurinn frumsýndur I Þjóðleikhúsinu 11. október. 1964 Prjónastofan Sólin kemur út í sænskri þýðingu. 1965 Leikfélag Seyðisfjarðar með Kiljans-k\'öld. 1966 Þjóðleikhúsið frumsýnir Prjónastofuna Sólina 20. apríl, Dúfna- veislan frumsýnd hjá Leikfélagi Reykjavíkur 29. apríl. 1966 íslandsklukkan gefin út á hljómplötu. 1968 íslandsklukkan leikin á ný í Þjóðleikhúsinu. Leikfélag Akur- eyrar sýnir Dúfnaveisluna, 1969 Smásagan Jón í Brauðhúsum leikin í sjónvarp. Leikfélag Nes- kaupstaðar sýnir Dúfnaveisluna. 1970 Leikgerð skáldsögunnar Kristnihalds undirJökU frumsýnd hjá Leikfélagi Reykjavíkur 20. júní. Islandsklukkan flutt í útvarp. Dúfna- veislan sýnd í Árhus Teater í Árósum. 1971 Straumrof leikið í útvarp. Þættir úr Dúfnaveislunni leiknir í út- varp. 1972 Atómstöðin frumsýnd hjá Leikfélagi Reykjavíkur 14. mars. Hús skáldsins leikið í útvarp. Þjóðleikhúsið frumsýnir Sjálfstætt fólk 23. aprfl. Þáttur úr Dúfnaveislunni gefinn út á hljómplötu. Leikfélag Akureyrar sýnir Strompleikinn. 1973 Sjónvarpskvikmynd byggð á Brekkukotsannál frumsýnd í ís- lenska sjónvarpinu og síðar sýnd í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, V- Þýskalandi og víðar. Atómstöðin leikin í útvarp. 1974 Kristnihald undir Jökli sýnt í Tröndelag Teater í Þrándheimi. Strompleikurinn leikinn í útvarp, einnig þættir úr íslandsklukkunni. 1975 Silfurtúnglið sýnt á 25 ára afmæli Þjóðleikhússins. Leikfélag Akureyrar sýnir Kristnihald undir Jökli. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir Atómstöðina. Smásagan Veiðitúr í óbygðum leikin í sjónvaip. Leikfélag Skagfirðinga, Leikfélag Selfoss og Leikfélag Hveragerðis sýna Atómstöðina. 1976 Smásagan LUja kvikmynduð. Leikklúbbur Laxdæla sýnir Silf- urtúnghð. 1977 Straumrof sýnt á ný hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Leikritið kem- ur út í annarri útgáfu hjá Helgafelii. 1978 Silfurtúnglið sýnt í sjónvarpinu. Raatiko-dansflokkurinn í Finnlandi sýnir Sölku Völku. Leikfélag A-Eyfellinga sýnir þætti úr Kristnihakli undir JökU. Umf. Biskupstungna sýnir íslandsklukkuna. Leikfélag Homafjarðar með Halldórs Laxness-dagskrá. 1979 Leikfélag Akureyrar sýnir Sjálfstætt fólk. 1980 Sjónvarpskvikmynd byggð á Paradísarheimt sýnd. Nemenda- leikhúsið sýnir íslandsklukkuna. Skagaleikflokkurinn sýnir Atóm- stöðina. Leikklúbbur Laxdæla sýnir Dúfnaveisluna. 1981 Þjóðleikhúsið sýnir Hús skáldsins. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Sölku Völku. Leikfélag Blönduóss sýnir Kristnihald undh- Jökli. Áhugaleikhús í Norður-Finnlandi og Héraðsleikhúsið í Kajana sýna leikgerð Sölku Völku. 1982 Leikfélag Akureyrar sýnir Atómstöðina. 1983 Ungmennafélagið Skallagrímur sýnir Dúfnaveisluna. Leik- flokkurinn á Hvammstanga með kynningu úr verkum Halldórs Lax- ness. Leikfélag Húsavíkur sýnir Sölku Völku. 1985 Þjóðleikhúsið sýnir Islandsklukkuna. Leikfélag Akureyrar sýn- ir Silfurtúnglið. Leikfélag Flateyrar með Kiljansvöku. Leikhópurinn Máni sýnir Kiistnihald undir Jökli. 1987 Dramaten í Stokkhólmi sýnir Atómstöðina (En liten ö í havet). Leikfélag Ólafsvíkur sýnir Kristnihald undir Jökli. 1988 Salka Valka sýnd í Hjalmar Bergman leikhúsinu í Örebro í Sví- þjóð. 1989 Leikfélag Reykjavíkur sýnir Ljós heimsins og Höll sumar- landsins. Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir Sölku Völku. 1990 Borgarleikhúsið í Ósló sýnir Sölku Völku. Umf. Staf- holtstungna með Laxness-k\>öld. Leikfélag Hveragerðis, Hvert ör- stutt spor, dagskrá. 1991 Leikfélag Mosfellssveitar með Afmælisdagskrá. Leikfélag Fljótsdalshéraðs með dagskrá úr verkum Halldórs Laxness. Umf. Ármann, Stiklað á stóru, dagskrá. 1992 Leikhúsið Frú Emelía flytur Rhodymenya Palmata, kamm- eróperu eftir Hjálmar H. Ragnarsson við Ijóðabálk Halldórs Laxness. Leikfélag Akureyrar sýnir Islandsklukkuna. Þjóðleikhúsið: Hátfðar- dagskrá í tilefni 90 ára afmælis höfundar: Strompleikur, (leiklestur), Straumrof (leiklestur), Pijónastofan Sólin, (leiklestur) Veiðitúr í óbygðum, (leiklestur). Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Innansveitar- kroniku. Leikfélag Dalvdkur sýnir Strompleikinn. 1993 Snúður og Snælda með kynningu á verkum skáldsins. 1994 Leikfélag Kópavogs sýnir Silfurtúnglið. Leikfélag Blöndóss sýn- ir Atómstöðina. Leikfélag Selfoss sýnir Islandsklukkuna. 1996 Leikfélag Reykjavíkur sýnir Hið ljósa man, Umf. Dagrenning, leikdeild sýnir Sjálfstætt fólk. Leikfélag Hveragerðis sýnir Sölku Völku. 1997 Leikfélag Akureyi-ar sýnir Vefarann mikla frá Kasmír. Borgar- leikhúsið í Tampere í Finnlandi sýnir Sölku Völku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.