Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 31
HALLDÓR KELJAN LAXNESS LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 3JL Skáldið og Ríkisútvarpið Úr fórum Péturs Péturssonar þular Betri tíð með blóm í haga Halldór Laxpess og Páll ísólfsson sögðu frá þátttöku íslendinga í menningarviku sem haldin var í Stokkhólmi haustið 1932, þar sem þeir voru fulltrúai’. Þaðan hélt Lax- ness í austurveg og þar varð hann til þess fyrstur íslenskra útvarpsmanna að flytja ræðu sem útvarpað var á stuttbylgjum. Það var á 15 ára afmæli rússnesku byltingarinn- ar. Ræðunni vai’ útvarpað frá Moskvu. Þegar Halldór var spurður um starfið, sem hann gegndi hjá Ríkisútvarpinu á fyrstu árum þess, sagði hann: „Þetta var þægilegasta og besta starf sem hægt var að fá. Eg þurfti ekki að gera nokkum skapaðan hlut annað en bjóða góðan dag helstu snilldarmönnum og höfðingjum og stjómmálamönnum og músíkmönnum og allskonar syngjandi dömum sem vora tignarlegar og miklar dömur. Það vora konur eins og María Markan. Hún var glæsileg kona.“ Og um viðmót manna, gesta, sem komu fram í útvarpi, kvaðst hann ekki hafa orðið HALLDÓR Laxness mun hafa orð- ið til þess fyrstur íslenskra rithöf- unda að róma útvarp og áhrif þess í ritsmíðum og ljóðum. Löngu fyr- ir daga íslensks útvarps vakti Halldór at- hygli alþýðu á yfirburðum nýrrar tækni sem væri að ryðja sér til rúms, m.a. í grein í Verði, vikublaði Kristjáns Albertssonar. Þeir, sem lesið hafa bemskuminningar Halldórs Kiljans Laxness, minnast þess að amma Halldórs tekur öllum tækninýjung- um með fyrirvara. Henni er lítt gefið um vatn, sem rennur upp í móti og kemur úr krönum, trúir ekki tíðindum sem berast símleiðis. Að sama skapi og amman er fastheldin við forna siði og gefur ekki um tækni er skáldið unga ákafur fram- farasinni og nýjungagjam. Sjálfur færði hann sér tæknina í nyt og féllst á tilmæli framherja í útvarpsrekstri, Ottós B. Amar og félaga hans, um að flytja erindi í útvarpsstöð hlutafélagsins sumarið 1926. Þar sagði hann þjóð sinni til syndanna: „íslendingar eru sem stendur siðspilltir af pólitísku kjaftæði og pólitísku götuhomaskítkasti," en íslenska þjóðin hefði „mörg skilyrði til að verða merkileg- asta þjóðin í Norðurálfu í staðinn fyrir að nú verðum vér að sætta oss við að vera ómerkilegasta þjóðin í Norðurálfu." Dyravörður Ríkisútvarpsins í upphafi fjórða áratugarins var hart í ári og skammtað naumt til menningar- mála, rithöfundum fyrirmunað að draga fram lífið á ritlaunum eimun. Halldór Lax- ness mun hafa tekið því feginsamlega er honum bauðst staða dyravarðar í Ríkisút- varpinu á fyrsta starfsári þess. Frá þeim tíma er lag Þórarins Guðmundssonar við ljóð Halldórs „Vor hinsti dagur er hnig- inn“, hugljúft lag við tregafullan texta. Halldór hefir minnst bræðranna Þórarins og Eggerts Gilfers lofsamlega í endur- minningum sínum. „Þessir bræður nutu mikils álits í höfuðborginni sem kennarar og listamenn.“ Halldór er sendur að spila á orgelharmóníum og nema undirstöðuat- riði í píanói hjá Eggert Gilfer en verður „afhuga tónlist“ um skeið. _Um tvítugt sækir hann tíma hjá Páli ísólfssyni að „frasera Bach“. „Þessir tímar hjá Páli léðu mér lykil að meist- aranum," segir Halldór er hann minnist daganna. „Eins og aðrir hændist ég að Páli, þeim töfra- manni,“ bætir hann við. Halldór mætir hvarvetna góðvinum og kunningjum í fá- brotnum salarkynnum Útvarps- ins. Þar finnur hann á ný forn- vin sinn og herbergisfélaga frá Menntaskólaáram, séra Sigurð Einarsson, sem nú er frétta- stjóri Ríkisútvarpsins. Um ráðningu Halldórs Lax- ness til útvarpsins segir Þórar- inn Guðmundsson fiðluleikari: „En þetta er líka frægasti dyra- vörður sem Útvarpið hefir haft.“ Þórarinn segir frá kynn- um þeirra í Útvarpinu. „Ég gleymi aldrei hvað ég misreikn- aði mig á þessum manni áður en ég kynntist honum. Ég hafði náttúralega lesið eitthvað af bókum hans, sem þá vora komnar út, og það var alls ekki allt ákaflega fallegt sem stóð í þessum bókum. Sumir hötuðu jafnvel Laxness á þessum áram fyrir hispursleysi hans og hrein- skilni.“ Síðan lýsir Þórarinn hvatvíslegri framgöngu sinni og „orðbragði sem auðvitað hæfði ekki hvítum manni“ er hann hugðist ganga fram af Halldóri með óhefluðu tali. „Ég sá strax að ég hafði skotið yfir markið, enda hef ég varla nokkum tíma kynnst kurteisari og siðfágaðri manni en Halldóri Laxness. HALLDÓR KILJAN Laxness við flygilinn að Gljúfrasteini. HALLDÓR LAXNESS að störfum á heimili sínu við Vesturgötuna um 1940. Li°sm.vmi/Jon Kaldal ÞESSA MYND tók óþekktur ljósmyndari í Leith í Skotlandi 1930 af þeim Þórbergi Þórðar- syni, Eggerti Stefánssyni, Sigurði Skagfield og Halldóri Kiljan Laxness. Þórbergur og Hall- dór voru nýkomnir af rithöfundaþingi í Noregi. var andúðar, en vissi þó að „margir vora á móti skáldskaparhætti mínum“. Segja má að þótt oft hafi fyrrum blikað á sverð og glampað á skildi í Rauðuskrið- um í samskiptum Halldórs og Ríkisút- varpsins, hetjur stokkið hæð sína og mörg sé fótskriðan á Markarfljóti þá kom jafnan betri tíð með blóm í haga. Og engum starfsmanni sínum hefir Út- varpið fagnað betur en Halldóri Laxness er hann gekk úr „svítu Ásbjarnar“ á heillaskipinu Gullfossi að hlýða á mál for- seta Alþýðusambands Islands þegar þjóð- in samfagnaði skáldi sínu af tilefni Nóbels- verðlauna. Skáldið, útvarpsmaðurinn, sem áður bar ræðumönnum svaladrykk, var nú kominn heim og „hafði sungið fyrir heim- inn“, eins og Nonni litli í Sumarhúsum. Og íslensk þjóð mun áfram fagna, er hún heyrir um hetjur skáldsins, Sölku Völku, Bjart í Sumarhúsum, Ólaf Kárason Ljósvíking og Ástu Sóllilju. Svo lifandi era þær í huga hlustenda að búast mætti við því að sjálf innheimtudeild Ríkisútvarps- ins hefði þær á skrá um útvarpsgiöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.