Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 HALLDÓR KILJAN LAXNESS efni og undirbúa sögu hans í drögum og lauk verkinu Heimsljós 1940. Til að glöggva mig á mynd persónunnar vitjaði ég flestra þeirra staða sem skáldið var teingdur meðan hann lifði í holdinu, því umhverfið er partur per- sónuleikans - og öfugt. Ég skoðaði leiksvið hans, talaði við fólk sem haft hafði áhrif á hann og hann á það. Þessir staðir voru flestir á Vestfjarðakjálkanum nema kirkjugarður- inn og tukthúsið í Reykjavík. [...] Loks fór ég uppá Eyafjallajökul síðla vetrar og lá þar í tjaldi til að hafa fyrir augum þann stað þar sem sjálf mitt samsamaðist loftinu í einu éli. Ekkert afl milli himins og jarðar hefði getað dregið mig útí skíðagaungur og útilegur á jöklum nema þetta skáld. En hvers vegna að æða út í sveitir, upp á heiðar og jökla að heimsækja óbreyttan al- múgann? Halldór svarar því óbeint í sömu bók: „Eg kann ekki önnur svör en þrástagast á þeirri reynslu minni að sá sem er skáld- sagnamaður að náttúru og þálfun glati hæfi- leik sagnfræðíngsins til að gera mun á fræg- um mönnum og ófrægum í riti. Sé skáldsaga ósvikin er þar ekki farið í manngreinarálit.“ • • • Eins og margir hafa vafalaust tekið eftir við lestur bóka Halldórs skrifaði hann líka mikið upp til sveita - og erlendis. Þetta segist hann hafa gert til að „losna við daglegt arga- þras heimafyrir og ótal staðbundnar skyldur einsog geingur, í von um að geta einbeitt sér að verkefni." Fyrstu bók Heimsljóss skrifaði (lauk?) Halldór til dæmis á ferðalagi til Suður-Amer- íku, haustið 1936. í Skáldatíma segir Halldór að nóg hafi verið við að vera í skipinu á leið- inni.en-áþví voru rithöfundar á lélð tilskálda- þings í Búenos Aires: [...] og margir höfðu ærið að vinna að skifta um föt allan daginn milli þess sem þeir spók- uðu sig hver fyrir öðrum við máltíðir og leiki. Það sem einkum gladdi hug minn var hinn ágæti skrifsalur á efri þiljum. [...] Ég var í hópi þeirra höfunda sem notuðu þetta kær- komna tækifæri til vinnu, og var kominn of- an snemma á mornana og lét ekki staðar numið fyren ég var örmagna nær kvöldi og tími kominn til að fara í smókíng til kvöld- borðsins. Aðra bók Heimsljóss skrifaði Halldór í Moskvu, veturinn 1937-38, þá þriðju á Laug- arvatni og Þingvöllum, síðsumars 1939 og þá fjórðu og síðustu í Reykjavík og nágrenni, veturinn 1939-40. Að sögn Halldórs Guðmundssonar bók- menntafræðings sem vinnur nú að rannsókn á verkum Halldórs Laxness fyrir fjórða bindi Islensku bókmenntasögunnar, beitti skáldið sig einnig hörðum aga þegar hann vann heima við. „Hann skrifaði á hverjum degi, hóf vinnu um hálf tíu leytið og stóð þá iðulega við púlt í vinnustofu sinni á Gljúfrasteini. Hann lét ekkert trufla sig, sama hvað um var að vera í fjölskyldunni og lokaði að sér ef því var að skipta. Hann vandist fljótt af ritvél og handskrifaði heldur með blýanti. Stundum sagði hann þó Auði konu sinni fyrir sem sat við ritvélina. Klukkan tvö lagði hann frá sér blýantinn og fór út að ganga. Eftir það sagð- ist hann ekki geta hugsað sér að sjá aftur penna eða ritvél þann daginn." • • • Halldór segir í Skeggræðum gegnum tíð- ina að hann hafi oft lagt eyru við orðum og orðatiltækjum sem honum voru kunn og fest sér þau í minni. Sum þeirra hafi hann svo notað í verkum sínum þegar honum þótti við eiga. „En ég hef ekki gert mikið af því að skrifa upp orð sem ég hef heyrt,“ bætir Hall- dór við. Þessi síðustu orð skáldsins stangast svo- lítið á við þá mynd sem blasir við manni þeg- ar fjölmargar glósubækur hans eru skoðað- ar. Hluti þessara bóka er varðveittur á handritadeild Landsbókasafns Íslands-Há- skólasafns í Þjóðarbókhlöðunni. í þessum bókum, sem allar eru með blýantsskrift erf- iðri aflestrar, er meðal annars að finna fjöl- mörg orð og orðtök sem Halldór hefur greinilega skrifað upp eftir fólki sem hann hitti eða upp úr einhverju sem hann var að lesa. I þessum bókum er annars hvað innan um annað og allt í belg og biðu. Sumar þess- ara bóka hafa eins konar titil, til dæmis „Rússnesk ferðadagbók" frá 1932. Ljóst er að þarna liggur mikið efni órannsakað sem gæti gefið góða vísbendingu um vinnuað- ferðir skáldsins. Við höfum aðeins verið að skoða tilurð Heimsljóss í þessari grein en á handritadeild ekki Heimsljósi á beinan hátt. Talsvert er um orðtök, svo sem að „eiga rúmt um hendur" I sem þýði að „vera efnaður". Og orðtakið „tek- ur sjór til sín“. Hér er sömuleiðis að finna ýmsar færslur eins og um dagbók væri að ræða. Einnig uppkast að útvarpserindi, lista yfir „vinstri framsóknarmenn" og fleira. Svo er þessi skilgreining á menntuðum þjóðum og ómenntuðum: Mismunurinn á menntuðum og ómenntuð- um þjóðum liggur m.a. í því, að þeim fyrr- nefndu þykja yfirnáttúrulegir hlutir rann- sóknarverðir, en þeim síðari þykja yfimátt- úrulegir hlutir sjálfsagðir. (Báðir voru á því stigi að þykja yfimáttúru- legir hlutir sjálfsagðir, hvorum á sinn hátt; en hvorugum þótti aftur á móti náttúrulegir hlutir rannsóknarverðir.) • • • Að mati Halldórs er höfundurinn miðlægur í hverju hugverki, eins og áður sagði. í Skáldatíma segir hann að sú eina persóna sem máli skipti í listaverki sé listamaðurinn sjálfur og að þetta eigi ekki hvað síst við um þá sem segi sögu. „Höfuðpersóna hverrar skáldsögu er höfundurinn sjálfur, sögumað- urinn.“ I Skeggræðunum er ágætis skýring á þessu viðhorfi en þar segist Halldór ekki láta sér detta það í hug að bera á móti því að „bæði Ólafur Kárason og nokkrir tugir af öðrum persónum í sögum mínum séu greini- leg endurspeglun sjálfs mín. í því sambandi má ekki láta sér sjást yfir Bjart í Sumarhús- um. Þetta er allt runnið úr sjálfsvitund höf- undarins, á þar heima og er óaðskiljanlegt henni.“ í Skeggræðunum segir Halldór ennfremur að höfundurinn geti aðeins sagt frá atburð- um, mönnum, hugmyndum, flækjum og árekstrum, sem hann hafi sjálfur lifað; höf- undurinn geti ekki farið út fyrir sína eigin reynslu, en hann ritstýri henni. „Hann býr sér til grind sem er þegar bezt lætur eins rökrétt og grind í húsi, síðan fyllir hann upp í grindina með reynslu sjálfs sín. Maður er ^ andsvar við þeim áhrifum, sem hann verður fyrir í lífinu.“ En höfundurinn verður jafnframt að búa yfir hæfni til að koma þessari reynslu á blað á listrænan hátt, segir Halldór, en það tekst ekki alltaf: „Ymsar ástæður liggja til þess að það mistekst. Það getur stafað af slappri greind höfundarins, sljórri tilfinningu hans um það sem gerist kringum hann, eða af því tjáningarmiðillinn er ekki í lagi. Dögum oftar ber fyrir augu texta, þar sem höfundinum er fyrirmunað að tjá sig.“ Þetta viðhorf Halldórs til hlutverks höf- undarins í skáldskapnum er náskylt hinni rómantísku snillingshugmynd nítjándu aldar- innar. En Halldór lenti líka í töluverðum erf- iðleikum með þennan alltumlykjandi höfund á seinni hluta ferils síns. Sögumaðurinn, þessi Plús-Ex, er hann kallaði svo, var orðinn ein- um of fyrirferðarmikill í verkunum og hann vildi bola honum burt. Þetta var á sjöunda áratugnum og Halldór sneri sér að leikrita- gerð þar sem Plús Ex hefur engan (eða a.m.k. mjög takmarkaðan) þegnrétt. Skáld- sögurnar sem komu í kjölfarið einkenndust líka af þessari viðleitni að láta sögumanninn (höfundinn?, hið innra ég textans) hverfa sem mest í verkinu. Nægir að nefna Kristnihald undir Jökli sem kom út árið 1968 og er at- hyglisverð atlaga að þessu markmiði með hinum hlutlausa mannfræðilega skrásetjara, Umba. Hér var Halldór enn sem fyrr á harðaskeiði með samtímaþróun í bókmenntum heimsins. Einmitt um þetta leyti fór fram byltingarkennd umræða í Frakklandi og fleiri löndum um höf- undarhugtakið, vanda þess og viðgang í bók- ^ menntunum. Arið 1968 skrifaði franski heim- spekingurinn, Roland Barthes, fræga grein sem neindist „Dauði höfundarins". I henni boð- aði Barthes hvarf höfundarins úr bókmenntun- um en þetta hvarf taldi hann að myndi geta af sér nýjar bókmenntir sem hann kallaði skrifen þau eru það „hlutlausa, margþætta og dulda svæði þar sem sjálf okkar rennur undan, það svart-hvíta þar sem sérhver sjálfsmynd er horf- in, einkum þó sjálfsmynd þess sem skrifar." Ári síðar birti svo landi Barthes, Michel Foucault, grein þar sem hann reyndi að svara spuming- unni: Hvað er höfundur? Foucault reyndi að út- skýra hvers vegna bókmenntunum gengi jafh ^. ei-fiðlega og raun ber vitni að losa sig við höf- undinn. Og þá erum við í vissum skilningi aftur komin að upphafsspumingu þessarar greinar: Hvemig verður listaverk til? Það væri vonandi að tilraunir Halldórs, Barthes, Foucaults og fleiri til að átta sig á hlutverki og gildi höfund- arins í því sköpunarferli hafi fært okkur nær svari við þeirri spumingu. HALLDÓR við skriftir á Bókasafninu á Laugarvatni sumarið 1933. Þetta sumar var Halldór að vinna að Sjálfstæðu fólki en fleiri bækur hans urðu til þama. er að finna glósubók sem Halldór segir á titil- blaði (eða fyrstu blaðsíðu) að sé „Minnisatriði fyrir Ljós heimsins". Raunar hefur í fyrstu staðið „Minnisatriði fyrir „Ysta hafen strik hefur verið dregið yfir þennan titil og Ljós heimsins sett í hans stað. Gefur þetta ef til vill til kynna að Halldór hafi í fyrstu ætlað að kalla bókina Ysta haf en þau orð koma einmitt fyrir í Heimsljósi. í þessari tilteknu glósubók, sem Halldór merkir raunar „Nót 3“, standa meðal annars ýmsar efnislegar eða þematískar athuga- semdir um skáldsöguna. Undir yfirski'iftinni, „Stríð Ljósvfkingsins", stendur þetta: Fyrsta bókin hvernig bernskan lamar hann og gerir hann ófæran til að taka nokkurn hlutrænan málstað. Önnur bókin, barátta milli andans og efnis- hyggjunnar, sem lýkur með því að OK. flýr undan báðum, og missir báðar, en hafnar hjá þeirri flogaveiku. Baráttan milli auðvaldsins og hins vakn- andi sósíalisma; ÓK flýr til Skálavíkur á náðir einverunnar og andans. Halldór hripar einnig niður þessa athuga- semd um Ólaf Kárason innan sviga: (Reynir alltaf að flýja undir verndarvæng þess afls, sem hann heldur að sé sigursælt, en afsakar bleyðuskap sinn með ástinni til „and- a ns“ og „fegurðarin nar“.) HALLDÓR í vinnustofu sinni á Gljúfrasteini skömmu eftir að hann og Auður kona hans fluttu þangað 1945. Halldór skrifaði á hverj- um degi, hóf vinnu um hálftíuleytið og stóð þá iðulega við púlt í vinnustofu sinni. Hann vandist fljótt af ritvél og handskrifaði heldur með blýanti. Einnig em hér minnisatriði um eitthvað sem hann telur sig þurfa að skrifa: „Skrifa kapítula þar sem Kristján heimtar að strákn- um sé ekki gefið að éta.“ Athyglisvert er að orðinu „ekki“ er skotið inn með leiðréttinga- tákni seinna; kannski Kristján hafi fyrst átt að heimta að stráknum yrði gefið að éta. Og síðan em þama hugmyndir og setningar sem hann vildi muna, svo sem: „Rímur, vísur og önnur kvæði var ei nema ónytsamur hégómi.“ Hér er ýmislegt annað sem kannski tengist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.