Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 HALLDOR KELJAN LAXNESS Hugtakið erfiði var ekki til INNANSVEITARKRONIKA UNDUR að svo lítt gánghnáir menn skyldu eyða ævinni til að reyna sig í þolhlaupi við stökkfráar sauðkindur. Pó það sé lyginni lík- ast höfðu þessir fótstirðu menn, ekld nema í meðallagi sjónskarpir og nokkuð brjóstþúngir, einlægt betur í kapphlaupinu við þessa eldfljótu skepnu, og það kom sig af því held ég, að þeir fóru ætíð svo hægt að sauðkindin misti áhuga á leiknum; sumpart einnig af því að þó sauð- ldndin sé þrá þá voru þessir menn sýnu þrárri. Þeir mistu aldrei þol- inmæðina þó skepnan hlypi undan þeim í fjalli, upp snarbratta urð, sjónvitlaus af stygð. Aldrei töluðu þeir um að þetta væri erfitt, hug- takið erfiði var ekki tíl. Mætti bæta því við að vitrir höfundar telja þá hjátrú sprottna af getuleysi að til séu erfið verk; þau ein verk séu erf- ið sem unnin eru með rángri aðferð. Pó þeir sæu illa kom aldrei fyrir að kind kæmist undan þeim á fjalli; en öllu komu þeir til bygða án þess á þeim sæust þreytumerki ellegar þeir fyndu til mæði. Þeir kunnu ekki að flýta sér en þeir kunnu ekki heldur að vera of seinir. Kýrin er móðir okkar allra BREKKUKOTSANNÁLL NÚ lfður frammundir miðjan aftan, og verður ömmu minni geing- ið útúr kotinu að líta á kálið í góða veðrinu, og geingur hjá mér þar sem ég er að skemta mér í grasinu. Hún tók víst ekki eftir mér; en meðan hún er að skoða kálið, og snýr sér undan mér, þá heyri ég ekki betur en hún segi, einsog hún væri að tala við sjálfa sig: Ég vona mér hafi misheyrst í morgun að einhvur hér á bænum hafi verið að tala ljótt um kúna. Ekki geri ég það, gell ég þá við. Að minstakosti vona ég að einginn hafi heyrt hann Bjöm hér í Brekkukoti gera það, sagði hún. Beljan fór í kálið, sagði ég. Ég veit fátt jafnljótt og tala illa um kú, sagði amma mín, - nema ef vera skyldi að setja á hana hundinn. Kýrin gefur okkur mjólkina, Kýrin er móðir okkar allra. „Lóló min Lappa, sára ber þú tappa“. „Blessuð skepnan", er sagt um kúna. Ég sagði ekki neitt. Hún hélt áfram að skoða undir kálið hvort hvergi væri rófa mátuleg í súpuna. Og sem hún heldur áfram að bogra þama heyri ég hún segir enn innundir kálið: Hvur ætli hafi verið að blessa hund hér útundir vegg í dag? Ekki man ég til að ég hafi verið að því, segi ég. Mér heyrðist einhver vera að blessa hund, sagði hún. Það hefur líklega verið misheym. Um hunda er sagt grey garmur og skam. Að minstakosti hefur einginn heyrt hann Bjöm hérna í Brekkukoti blessa hund. SVERRIR HERMANNSSON valdi Þar sem ég þóttist óhultur um að fólk heyrði til mín GRIKKLANPSÁRIÐ ÞAÐ er nú einusinni keppikefli sérhvers íslendíngs að gefa útaf sér eitthvað í bókarlíki. En ekki verður leingi lifað á skáldfrægð einni, jafnvel ekki í Flatey á Breiðafírði, og þar sem ég hef nú einlægt haft meiri unun af saunglist en ritlist vaknaði hjá mér forvitni um hvort á þessari ey mundi vera til hljóðfæri einsog í Homafirði. í kofforti mínu hafði ég meðferðis, einsog ævinlega, sígild bindin tvö af saunglögum Schuberts, auk heftis með nokkrum íslenskum einsaungvum við píanó og ég er laungu búinn að týna núna. En þar vom þau lög sem heita Hún amma mín það sagði mér, Gissur ríður góðum fáki og Nú ríkir kyrð; og ekki má gleyma Um undrageim í himinveldi háu sem lángt frammeftir ævi var hlægilegast kvæði sem ég kunni: semsé hinn frægi kál- og kartöflugarður íslenskra einsaungvara í sveitum. Nú kom það í ljós að í skólahúsi Flateyar reyndist vera harmóníum með fjölbreyttri stillíngu sem sóknarformaður og kennari leyfðu mér að prófa. Þegar ég var orðinn einn í þessu húsi, og vitaskuld fult af maðkaflugu einsog til ber í skólum og kirkjum á sumrin, þá fór að verða altítt að ókennilegur hávaði bærist úr húsinu alla leið niðrá fiskreiti þorpsins á ólíklegum tímum sólarhríngs. Undirritaður var að sýngja. Það væri vanþakklæti við skaparann að neita því að ég hefði haft eitthvað í áttina við saungrödd: með leyfi að segja, ég hafði bjartan tenór tiltölulega óklemdan og með lítílli æfíngu var hægt að liðka og fá til að taka við sér. Og nú voru upprunnir þeir dagar fyrir mér að ég mátti sýngja einsaung frá morgni til kvölds í húsi þar sem ég þóttist óhultur um að fólk heyrði til mín. Þetta er eina tímabilið á ævi minni sem guð einn hefur haft frið til að heyra mig sýngja; en því miður stóð sú dýrð ekki leingi. Það hefur kanski verið á þriðja degi þessarar saungtíðar að ég gekk útúr skólanum einn hábjartan dag á miðnættí kríngum jónsmessu: þá verður mér litið til hvar prestsfrúin og dóttir hennar sitja skamt undan á mosavöxnum gijótgarði; þær ber við döggina á túnunum í miðnæturhúminu. Konumar stóðu upp og heilsuðu mér af kurteisi og þökkuðu fyrir saunginn, dóttirin eftílvill ögn feimnislega; en frúin bað afsökunar og sagði að það væri víst ekki fallegt til afspumar að fólk færi að þakka opinberlega fyrir það sem það hefði stolist til að heyra. GYRÐIR ELÍASSON valdl Morgunblaðið SVEITUNGAR Halldórs Laxness efndu til samkomu í Hlégarði á áttræð- isafmæli hans 1982. Þar hittu þeir hinn aldna heiðursborgara sinn. Við hlið hans situr Salóme Þorkelsdóttir. Sögur blekbónd- ans dalbúanum mikils virði Heiðursborgari Mosfellssveitar, Nóbelsskáldið Halldór Laxness, er fallinn frá. Þær eru margar perlumar sem hann hefur þrætt á perluband íslenskra bókmennta. Ungur fór hann út í heim en gleymdi aldrei bernskustöðvum sínum og byggði sér að lokum bú- stað í Mosfellsdalnum. Hugstæð eru þau verk hans sem fjalla um fólkið í þessum dal, sem hann ólst upp í frá þriggja ára aldri. Með þeim hefur hann opnað augu okkar Dalbúa fyrir þvi umhverfi og mannlífi sem hér þróaðist. Bæk- umar í túninu heima, Innansveit- arkronika, Heiman ég fór og Sag- an af brauðinu dýra veita okkur innsýn í það líf sem fólkið í Daln- um Úfði. I þeim er að finna hugljúf- ar bernskuminningar sem Halldór færði í letur. í í túninu heima er auðvelt að hverfa með honum aftur í tímann, þegar faðir hans tekur hann sér við hönd fyrsta daginn í sveitinni, þeir ganga austur fyrir tún, sjá þar lítinn læk með rauðum steinum og setjast. Það er vor- morgunn, sólskinsdagur og dreng- urinn sér lóuna í fyrsta sinn og hann langar að grípa fuglinn og taka hann með sér heim og eiga hann - og Sagan af brauðinu dýra um hana Guðrúnu Jónsdóttur, vinnukonu prestsins á Mosfelli, sem villtist í þokunni þegar hún var send að sækja brauð úr seyðslu í hverasandi sunnan við ána. Hún fannst eftir fjóra daga uppi á heiði og var með brauðið ósnert í skjólunni. Aðspurð af hveiju hún hefði ekki fengið sér af brauðinu sagði hún þessi fleygu orð - því sem manni er trúað fyrir er manni trúað fyrir. Hún lét sér duga rigningarvatnið af steinun- um. Oft verður mér hugsað til þess hvemig bækur Halldór hefði skrif- að ef hann hefði ekki alist upp í þessum dal við fótskör ömmu sinn- ar sem hann segir svo fallega frá í bókinni Heiman ég fór. Þessar bækur em e.t.v. ekki taldar með merkustu bókmenntaverkum Hall- dórs Laxness en þær eru Dalbúan- um mikils virði sem hefur búið í nábýli við blekbóndann í Gljúfra- steini. í hugum sveitunga hans er Hall- dór Laxness ekki aðeins virtur sem skáld heldur einnig sem mannvinur, dýravinur, náttúru- unnandi og gróðurvemdarmaður. Nokkuð er liðið síðan hann hætti að ganga um holtin ofan við Gljúfrastein ásamt hundinum sín- um. Undanfarin ár hefur hann átt athvarf í Reykjalundi þar sem hann hefur notið umönnunar. Héðan úr Mosfellsdalnum eru sendar hugheilar samúðarkveðjur til Auðar eiginkonu hans og fjöl- skyldunnar allrar. Auður var hon- um stoð og stytta í störfum hans og sem húsmóðir á gestkvæmu heimili, þar sem allir eru boðnir velkomnir, kotungar jafnt sem höfðingjar. Blessuð sé minning Halldórs Laxness. Salome Þorkelsdóttir. Hataðasti maður Islands nú þjóð- ardýrlingur MARGT breytist á nokkrum ára- tugum. Fyrir hálfri öld var Halldór Laxness hataðasti maður íslands. í dag er hann þjóðardýrlingur. Þegar við hyllum sigui’vegara gærdagsins hættir okkur til að gleyma að allt sem er nýtt og merki- legt er nýtt og merkilegt vegna þess að það er ólíkt öllu sem við þekkj- um. Það kemur því eins og skrattinn úr sauðarleggnum og vekur um- svifalaust deilur og andstöðu. Engin persóna hefur haft meiri áhrif á líf mitt og minna en Halldór Laxness. Og án efa gegnir sama máli um þjóðina í heild: Enginn hef- ur markað dýpri spor í vitund henn- ar síðan frelsishetjan, Jón Sigurðs- son, safnaðist til feðra sinna árið 1879. En Halldór Laxness var ekki, fremur en aðrir frumkvöðlar, óskeikull. Ég hugsa oft til þess að sú harða afstaða sem hann tók gegn heimskapítalismanum mótaðist einmitt hér í Los Angeles þegar hann bjó hér, auralaus og smáður, á árunum 1927-1930. Halldór, eins og Guðmundur Kamban síðar, íhugaði að verða þátttakandi í listgrein sem aragrúi listamanna um allan heim leit þá hýru auga. En honum ofbauð svo sá veruleiki sem blasti við hér ytra að hann hrökklaðist frá - um aldur og ævi læknaður af kvikmynda- veirunni. Dauði þöglu myndanna árið 1928 - og þar með endalok 90% af öllum stjömum hvíta tjaldsins - verð- bréfahrunið hrikalega í október 1929 og heimskreppan í kjölfarið sköpuðu ekki beinlínis vinnuskilyrði sem ungur höfundur og hugsjóna- maður sóttist eftír. Það er kaldhæðnislegra en orð fá lýst að einmitt þessar óblíðu mót- tökur urðu til þess að þetta unga séní flæmdist frá Hollywood og hvarf heim á klakann, hóf að skrifa sín bestu verk og gerðist hluthafi í byltingarklíkunni frægu í Garða- stræti 15. Hópurinn sem dafnaði undir vemdarvæng Erlends Guðmunds- sonar, óbreytts en hámenntaðs toll- heimtumanns, taldi ekki hlutverk sitt að spá í bollana í Unuhúsi, held- ur að undirbúa umbyltingu samfé- lagsins - friðsamlega vitaskuld - í nýstárlegra horf. Enn liðu þó mörg ár þar til sá sem þessar fátæklegu línur ritar kviknaði til lífs. Var jafnvel örvænt um hvort ég léti sjá mig áður en allt um þraut. Var sagt að án efa hafi ég 3 dokað við meðan tvær atóm- sprengjur riðu yfir heiminn. Daginn eftir Nagasaki skreið ég loks út. Og vití menn. Veröldin sem við mér blasti var ekki síður torræð en sú sem mætti skáldinu hér í Borg englanna fyrir 70 árum. Botnaði ég lengi vel lítið í móður minni, minna í föður mínum og minnst í þeim urmul listafólks sem alla tíð var heimagangar á Reynimel 49. Og verst gekk mér að skilja Hall- dór Laxness. Breytti litlu þótt hann fengi verðlaun kennd við Nóbel þann sem fann upp dýnamítin. Botnaði ég lengi vel ekkert í hvaða dularfulla samband gat verið á milli i þessara ógnvænlegu efna og þess sem þjóðskáldið var að bralla. Ekki bætti úr skák að þá, eins og ævinlega þegar eitthvað spennandi var í uppsiglingu, var mér holað niður hjá ættingjum í annarri sýslu meðan ósköpin dundu yfir. Þegar ég loks fékk aftur að sofa í litla rúminu mínu var hátíðin gengin um garð og ég litlu nær um tilstandið. Engu að síður var skáldið af og til að minna á sig. Oft var upphafið það að faðir minn, Ragnar í Smára, sem var dagfarslega málglaður og laus við vöflur, varð allt í einu þög- ull og dálítið dularfullur í framan eins og maður sem fréttir að konan hans fari ekki einsömul. Var leyndin slík að til undantekn- inga heyrði ef nokkuð kvisaðist um burðinn fyrr en barnið var fætt. A slíkum augnablikum - þegar hand- ritið var komið í höfn og innsti hringur búinn að leggja blessun sína á verldð - var engu líkara en skáldið losnaði úr álögum. Gleymi ég aldrei þegar ég - í jólafríi frá námi við erlendan há- skóla - ásamt foreldrum mínum, sótti skáldið og Auði konu hans heim. Var engu líkara en maðurinn sem fáeinum mánuðum áður virtist öldungis áhugalaus um mannlegan félagsskap hefði haft hamskipti. Hann var í brúnleitum tweedföt- um að breskum sið og hélt á stórum vindli. Hann var alvörugefinn en al- úðlegur og talaði linnulaust þar sem hann gekk um gólf og pataði út í loftið eins og hann þyrfti að fá útrás eftir einangrun og einbeitingu und- angenginna mánaða. Hann minnti mig á enskan aðals- mann, aðeins kúltíveraðri og mál- efnalegri. Málfarið var lýtalaust og gersneytt þeirri skrúðmælgi sem einkenndi ritverk hans. Og í stað þess að reka í vörðumar eins og hann var vanur talaði hann skyndi- lega án minnsta hiks eða efa. Hann talaði hvorki um ísland né Sovétríkin og aldrei um sósíalisma. Þess í stað talaði hann um ástand heimsmála út frá sjónarmiði mann- eskjunnar, einstaklingsins, lítil- magnans. I nær þrotlausri tveggja t£ma ræðu varð ég aldrei var við neitt sem gat kallast fals eða for- dómar. Það var á þessu vetrarkvöldi á Gljúfrasteini fyrir þrjátíu árum sem ég sldldi hvemig í öllu lá. Hann hafði staðið mér of nærri. Öll sú viska sem ég drakk í mig í föður- húsum var frá honum og byltingar- hópnum harðsnúna í Unuhúsi. Og sama gilti um þjóðina alla. En það var aðeins upphafið. Ég var ekki í vafa um að þetta kvöld var hann að leggja mér lífsreglum- ar. Ég veit það hljómar kjánalega en á einni kvöldstund lærði ég meira en á fjóram vetram á hörðum bekkjum háskólans í Edinborg: um sjálfan mig, ísland og umheiminn. En umfram allt skildi ég að það era ekki verðlaunin sem máli skipta, heldur að berjast fyrir því sem þú trúir á. Einungis þeir sem skilja að ekkert í þessum heimi fæst án baráttu, einungis þeir munu sigra. Hinir mæta í jarðarförina. Jón Óttar Ragnarsson, Los Angeles.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.