Morgunblaðið - 13.06.1998, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Sverrir Hermannsson undirbýr sto&un stjómmálasamtaka:
Nú veröur dansinn stiginn|j||
ÞAÐ er ekki seinna vænna að fara að æfa kvótasporin í nýja kosningavalsinum . . .
Tímamót í með-
ferð háþrýstings
Vörugjald
á skot-
vopnum
fellt niður
Afrakstur sjö ára
baráttu Skot-
veiðifélags Islands
ALÞINGI hefur ákveðið að
fella niður vörugjöld af byssum
og skotfærum frá og með 1. júlí
næstkomandi og er þar með
lokið áralangri baráttu Skot-
veiðifélags íslands. Félagið
hefur síðastliðin sjö ár bent á
þann mismun sem verið hefur
á gjaldtöku á frístundaiðkun-
um. Hafa skotveiðimenn þurft
að búa við aukaálögur á sínar
frístundavörur þegar hliðstæð-
ir hópar hafa verið undanskild-
ir. Hafa þeir bent á að ýmsar
vörur eins og veiðistangir,
skíði, golfsett, bogar og sverð
hafi verið undanskilin meðan
byssur og skotfæri hafa búið
við 25% vörugjald.
Sigmar B. Hauksson, for-
maður Skotveiðifélags Islands,
fagnar niðurstöðunni og segir
hana afmælisgjöf til skotveiði-
manna. „Þetta er mikill léttir
eftir sjö ára baráttu og efst í
huga okkar er þakklæti til
Kristjáns Pálssonar alþingis-
manns sem hefur verið, að öðr-
um ólöstuðum, okkar helsti
talsmaður í þessum efnum.
Þetta er í reynd prýðis af-
mælisgjöf þar sem Skot-
veiðifélagið heldur upp á 25
ára afmæli sitt í haust. Það er
nú í höndum okkar skotveiði-
manna að fylgja eftir þessum
ávinningi og sjá til þess að
þessi lækkun skili sér í betra
vöruverði. Næsta baráttumál
okkar er að innleiða skilagjald
á skothylki en það er hluti af
okkar stefnu í bættri náttúru-
vernd sem við viljum vera í
forsvari fyrir.“
Vörugjöld af byssum og
skotfærum skiluðu ríkissjóði
um 14 milljónum króna árið
1995.
NIÐURSTOÐUR svokaUaðrar
HOT-rannsóknar, sem kunngerðar
voru á alþjóðlegu þingi háþrýst-
ingslækna í Hollandi í vikunni,
svara þeirri grundvallarspumingu,
að sögn Axels Sigurðssonar, sér-
fræðings í lyflæknis- og hjarta-
sjúkdómum, hversu mikið er æski-
legt að lækka neðri mörk
blóðþrýstings, svonefnd hlébils-
mörk, þegar sjúklingar með of há-
an blóðþrýsting em meðhöndlaðir.
Hingað til hafa læknar verið í
nokkmm vafa og hefur jafnvel ver-
ið talið að ef hlébilsmörk verði of
lág fari líkur á alvarlegum hjarta-
sjúkdómum og ótímabærum dauða
að aukast að nýju.
Samkvæmt rannsókninni minn-
kaði hættan á alvarlegum hjarta-
sjúkdómi eða dauða mest ef
hlébilsmörk vom lækkuð niður fyr-
ir 83 mmHg. Ohætt er samkvæmt
rannsókninni að lækka hlébils-
mörkin allt niður í 70 mmHg. Ekki
var athugað hvort óhætt er að
hann lækki enn frekar.
Búast forsvarsmenn rannsókn-
arinnar, Svíinn Lennart Hansson
og Italinn Alberto Zanchetti, við að
niðurstöðumar marki tímamót í
meðferð háþrýstings sem nú ætti
að verða enn markvissari en áður
hefur verið mögulegt. Læknar
fylgist vel með og séu fljótir að til-
einka sér niðurstöður rannsókna
sem þessarar. Margir íslenskir sér-
fræðingar á sviði hjarta- og nýma-
lækninga sátu þingið.
Aspirín einnig
gagnlegt
Markmiðið með HOT-rannsókn-
inni var að finna ákjósanlegust
neðri mörk blóðþrýstings sem
stefna bæri að við meðhöndlun á
háum blóðþrýstingi og minnka þar
með hættu á að sjúklingur fengi al-
varlega hjartasjúkdóma eða hlyti
ótímabæran dauðdaga vegna sjúk-
dómsins. Einnig var ætlunin að
meta hvort lágur skammtur af
aspiríni minnkaði hættu á að
sjúklingur með of háan blóðþrýst-
ing fengi hjartasjúkdóm eða dæi af
völdum hans. Niðurstaða rann-
sóknarinnar er að þeir þátttakend-
ur sem fengu 75 mg af aspiríni á
dag fengu 15% færri alvarleg
hjartaáfoU en þeir sem fengu lyf-
leysu. Aspirín hefur um nokkurt
skeið verið notað til blóðþynningar
við hjarta- og æðasjúkdómum en
þar til nú hafa ekki verið færð rök
fyrir áhrifum þess á meðferð við
háþrýstingi.
Tæplega 19 þúsund sjúklingar
með of háan blóðþrýsting, á aldrin-
um 50-80 ára, í 26 löndum víðsveg-
ar um heiminn tóku þátt í rann-
sókninni. Fylgst var með þeim í að
meðaltali 3,8 ár. Sjúklingamir voru
valdir af handahófi og fengu þeir
allir sama grunnlyfið við háþrýst-
ingnum. Þeir sem blóðþrýstingur-
inn lækkaði ekki hjá fengu viðbót-
armeðferð og voru sumir á allt að
fjómm lyfjum áður en viðunandi
árangur náðist af meðferðinni.
Flestir þátttakendur þurftu slíka
fjöllyfjameðferð. Segja forsvars-
menn rannsóknarinnar að niður-
staða þeirra sé meðal annars sú að
ef góður vilji læknis og sjúklings sé
fyrir hendi og samstarf þeirra á
milli gott sé árangur af háþrýst-
ingsmeðferð mjög góður.
Hár blóðþrýstingur er ein meg-
inorsök þess að fólk fær hjarta- eða
kransæðasjúkdóma og á stóran
þátt í ótímabærum dauðsföllum
þeirra vegna. Alþjóðaheilbrigðis-
stofnun Sameinuðu þjóðanna hefur
áætlað að allt að 691 milljón manna
í heiminum hafi háþrýstingssjúk-
dóma og er talið að um fimmtung-
ur fullorðinna hafi of háan
blóðþrýsing. Sjúkdómurinn er iðu-
lega einkennalaus og er ekki síst
þess vegna erfiður viðureignar, að
sögn Axels. í mörgum tilvikum
greinist háþrýstingur ekki fyrr en
mjög seint og þá hafa skemmdir í
hjarta- og æðakerfi þegar gert vart
við sig. Einnig geti reynst erfitt að
sannfæra fólk sem kennir sér
einskis ills meins að taka inn lyf við
sjúkdómnum.
Aðalfundur Félags Longniðja 20. júní
Stefnt að stóru
niðjamóti á 200
ára afmælinu
Aðalfundur
Félags Longniðja
verður haldinn
hinn 20. júní næstkom-
andi og er sá dagur jafn-
framt formlegur útgáfu-
dagur niðjatals Englend-
ingsins Riehards Long,
verslunarstjóra í Reyðar-
fjarðarkaupstað. Bókaút-
gáfan Þjóðsaga gefur
niðjatalið út, sem er í
þremur bindum. Fjöldi
blaðsíðna er 1.617 og er
ritið prýtt 2.700 ljós-
myndum, þar á meðal úr-
vali af myndverkum
tveggja afkomenda Ric-
hards Long, bræðranna
Finns og Ríkarðs Jóns-
sona. Höfundur verksins
og ritstjóri er Gunnlaug-
ur Haraldsson þjóðhátta-
fræðingur.
- Hver er tilgangur
Félags Longniðja?
„Tilgangur félagsins er sá að
auka samheldni og frændrækni
Longættarinnar með því að
koma upp safni um sögu hennar
og vinna að útgáfu ættarrita.
Félagsmenn geta verið afkom-
endur Richards Long, sem var
enskur að uppruna, fæddur 30.
nóvember 1783, auk maka
þeirra. Félagið á lögheimili í
Reykjavík og þar situr stjóm
þess sem skipuð er fimm mönn-
um. Einnig eru starfandi tvær
þriggja manna nefndir,
niðjamótsnefnd og ritnefnd, sem
skipta með sér verkum og kalla
félagsmenn til starfa. Aðalfund-
ur er haldinn árlega í Reykjavík
á laugardegi, sem næst fæðing-
ardegi Richards Long, nema að
þessu sinni vegna útgáfu bókar-
innar. Fundinn mega sækja nýir
meðlimir og allir skráðir
meðlimir í félagið.
Félag Longniðja heitir
Longættin og eiga afkomendur
Riehards Long ættingja í Dan-
mörku, Færeyjum, Svíþjóð,
Kanada og Bandaríkjunum auk
Englands. Er hugmyndin sú að
halda stórt og mikið niðjamót
árið 2002, þegar ættin verður
200 ára.“
- Hvernig bar stofnun félags-
ins að?
„Margir niðja Richards Long
hafa skráð hjá sér fróðleik um
ætt sína og forfóður og kom sú
hugmynd upp annað veifið á sín-
um tíma að ástæða væri til þess
að gera frændgarði hans skil í
bókarformi. Þær ráðagerðir
urðu fyrst að alvöru fyrir um
það bil tíu árum síðan og leiddu
smátt og smátt til stofnunar
formlegs félagsskapar. Þrír af-
komendur Richards _________
Longs, ég, Jón Benja-
mínsson og Þór Jak-
obsson, komu síðan
fyrst saman til form-
legs undirbúnings-
fundar árið 1992 og
höfðum við þá hver í sínu lagi og
með aðstoð annarra hafið heim-
ildasöfnun um forfóður okkar og
skyldfólk hans.“
- Átti Richard Long mörg
böm?
„Börn hans voru átta talsins
og vitneskja er um 4.128 niðja
Richards og bamsmæðra hans,
Þórunnar Þorleifsdóttur og
Kristínar Þórarinsdóttur. Við þá
tölu má bæta nokkrum hundruð-
Eyþór Þórðarson
► Eyþór Þórðarson fæddist
hinn 4. nóvember árið 1925 á
Sléttabóli í Vestmannaeyjum.
Hann lauk námi í Barnaskóla
Vestmannaeyja árið 1939, var í
vélvirkjanámi í Vélsmiðjunni
Magna 1943-46, lauk Iðnskóla
Vestmannaeyja árið 1947 og
sveinsprófi sama ár, vélstjóra-
prófí frá Vélskólanum í Reykja-
vík árið 1949 og rafmagnsdeild
árið 1950. Hann sótti jafnframt
námskeið í sjóvinnu í Vest-
mannaeyjum árið 1940, i
félags- og fundarstörfiim í
Keflavík árið 1966, í framsögn í
leiklistarskóla Ævars Kvaran
árið 1967 og nam skjalavörslu
og bókasafnsfræði í Háskóla ís-
Iands árið 1988-1990. Eyþór
hefur verið formaður útgáfu-
nefndar niðjatals Longættar og
stóð að stofnun Félags Longn-
iðja árið 1994 og hefúr verið
formaður þess siðan. Hann var
sæmdur riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu hinn 1. des-
ember árið 1995 fyrir fræði- og
félagsstörf.
Vitneskja er
um 4.128
niðja Richards
Long
um niðja, það er afkomendum
þeirra sem fluttust úr landi fyrr
á árum og ekki hefur reynst
unnt að afla upplýsinga um.“
- Hver er framtíð félagsins?
„Við höfum tekið þá ákvörðun
að halda félaginu áfram þar sem
okkur hefur ekld tekist að hafa
upp á fjölda Longniðja erlendis í
þessum áfanga. Við munum því
einbeita okkur að því í fram-
tíðinni. Þeir skipta væntanlega
einhverjum hundruðum."
- Er það ekki mikil vinna?
„Jú, og við viljum hvetja
Longniðja til þess að hafa þetta
bakvið eyrað í framtíðinni þegar
________ þeir fara erlendis.
Það má ætla að
Longniðjar séu bú-
settir í að minnsta
kosti í fimm löndum
en það hefur oft sýnt
sig, þegar niðjatal er
gefið út, að það ýti við fólki.
Þess vegna búumst við sem höf-
um haft forgöngu um þessa út-
gáfu við því að fá nýjar upplýs-
ingar á næstunni. Margfeld-
isáhrifin eru oft nokkur því fólk
gerir sér ekki alltaf grein fyrir
því hver skyldmenni þess eru.
Ritið ætti að gefa því nokkuð af
vísbendingum. Við munum
halda áfram að treysta bönd
Longniðja.“