Morgunblaðið - 13.06.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998 45
AÐSENDAR GREINAR
Nauðsyn aðhalds
í ríkisíj ármálum
1. Efnahagsstefnan hefur
skilað árangri
ÞAÐ ER óumdeilt að ríkisstjórn-
inni hefur í öllum meginatriðum
tekist að ná efnahagsmarkmiðum
sínum. Gert er ráð fyrir afgangi á
fjárlögum árið 1998 eftir samfelld-
an halla frá miðjum síðasta áratug.
Hagvöxtur er meiri en í flestum ná-
lægum ríkjum. Atvinna hefur auk-
ist og atvinnuleysi að sama skapi
minnkað og er nú minna en í nær
öllum aðildarríkjum OECD. Verð-
bólga hefur einnig verið með
minnsta móti, eða á bilinu lVz-2Vz%
síðustu fimm ár. Kaupmáttur heim-
ilanna hefur jafnframt aukist veru-
lega undanfarin ár, eða um nálægt
20% frá árinu 1995, og gætir þar
meðal annars áhrifa lækkunar
tekjuskatts og skattfrelsis lífeyris-
iðgjalda. Þá hafa vextir farið lækk-
andi.
Aðgerðir ríldsstjómarinnar á
undanfömum árum í því skyni að
bæta rekstrarskilyrði og sam-
keppnisstöðu atvinnulífsins, bæði
með lækkun og niðurfellingu skatta
og öðmm aðgerðum til að treysta
stöðugleikann í efnahagslifinu, eiga
hér ekki síst hlut að máli. Til
frekara marks um þennan árangur
má nefna að traust erlendra aðila á
efnahagsstefnu stjórnvalda hefur
farið vaxandi. Þannig hafa banda-
rísku matsíyrirtækin, Standard &
Poor’s og Moody’s, tvívegis hækkað
lánshæfismatið undanfarin ár. Enn-
fremur hafa íslensk stjómvöld
fengið afar jákvæða umfjöllun í
skýrslum OECD og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (IMF), bæði vegna
þeirra áherslubreytinga sem orðið
hafa í hagstjórn og ýmissa skipu-
lagsbreytinga sem ríkisstjómin
hefur beitt sér fyrir á mörgum svið-
um efnahagslífsins, á fjármála-
markaði, í opinbemm rekstri með
aukinni áherslu á hagræðingu og
markaðsvæðingu, í lífeyrismálum
og víðar.
2. Aukið aðhald að
þjóðarútgjöldum
Það em hins vegar gömul og ný
sannindi að oft er erfiðara að hafa
stjóm á efnahagsmálum í góðæri
líkt og nú ríkir á íslandi en þegar
erfiðleikar steðja að. Þess vegna er
afar mikilvægt að varðveita þennan
árangur og slaka hvergi á við stjórn
efnahagsmála. Þetta á ekki síst við
um ríkisfjármálin, því þau gegna
lykilhlutverki í hagstjóm hér á
landi. Sem fyrr segir hillir undir
það í fyrsta skipti í einn og hálfan
áratug að ríkissjóður verði rekinn
með afgangi tvö ár í röð. Þetta er
auðvitað mikilvægt, því að með
þessu móti getum við greitt niður
skuldir ríkisins og um leið dregið úr
vaxtakostnaðinum. En afgangur á
ríkissjóði er ekki síður mikilvægur
frá öðra sjónarhorni, þ.e. til þess að
auka spamað í þjóðfélaginu og
stuðla að betra jafnvægi í efnahags-
lífinu með aðhaldi að innlendri eft-
irspurn.
Að undanförnu hafa
komið fram nokkrar
vísbendingar um að
hagsveiflan hér á landi
sé komin á það stig að
aukins aðhalds sé þörf
til að halda aftur af
miklum vexti þjóðarút-
gjalda og hamla gegn
aukinni verðbólgu.
Þannig heftir innflutn-
ingur neysluvöra auk-
ist mjög mikið að und-
anfórnu, einkum hefð-
bundins neysluvarn-
ings svo sem bíla,
heimilistækja o.fl. Inn-
heimta tekna ríkis-
sjóðs á fyrstu fjórum
mánuðum ársins gefur einnig vís-
bendingar um aukna veltu og meiri
launabreytingar en áætlað var. Til
marks um það má nefna að launa-
vísitala Hagstofunnar hækkaði um
tæplega 13% frá mars 1997 til mars
1998. Ennfremur hafa birst fregnir
Æskilegt er að grípa
til aðhaldsaðgerða,
segir Geir H. Haarde,
bæði í peninga- og
ríkisfjármálum.
af því að talsverður skortur sé á
vinnuafli í mörgum atvinnugrein-
um, enda hefur veralega dregið úr
atvinnuleysi á síðustu tólf mánuð-
um, en það mældist 3,4% í aprfl á
þessu ári samanborið við 4,7% á
sama tíma í íyrra og 5% árið 1996.
Samkvæmt upplýsingum Seðla-
banka er útlánaaukning bankanna
einnig nokkuð mikil, eða um 14%
síðustu tólf mánuði, sem má rekja
bæði til fyrirtækja og einstaklinga.
Öll þessi atriði era dæmigerð
merki um mikfl umsvif og eftir-
spum í efnahagslífinu sem fyllsta
ástæða er til að hafa góðar gætur á.
Mestu máli skiptir að fylgjast með
verðbólgunni því að lág verðbólga
hefur verið lykilþáttur í því að hér
hefur verið stöðugleiki og efna-
hagslegar framfarir undanfarin ár.
Því er ekki að neita að það veldur
nokkram áhyggjum að verð á inn-
lendum vörum og þjónustu hefur
hækkað meira á síðustu 13-14 mán-
uðum en nokkur undangengin ár,
Geir H.
Haarde
eða á bilinu 4-6%. Á
sama tíma hefur verð á
innfluttum vöram hins
vegar frekar lækkað,
og gætir þar fyrst og
fremst áhrifa hækkun-
ar á gengi íslensku
krónunnar. Meðal-
hækkun neysluverðs-
vísitölunnar frá mars
1997 til maí 1998 er því
mun minni en nemur
innlendum verðbreyt-
ingum á þessu tímabili,
eða um 2,9%. Þannig
má segja að verðlagi sé
haldið í skeljum með
hækkun gengis, en það
er nú 2,5% yfir mið-
gengi. Engu að síður er verðbólga
hér á landi síðustu tólf mánuði
2,4%, eða meiri en í flestum öðram
iðnríkjum.
3. Mikilvægl að treysta
stöðu ríkisfjármála
Ég tel afar brýnt að stjórnvöld
freisti þess að hamla gegn þessari
þróun og koma í veg fyrir að stöð-
ugleikinn í verðlagsmálum raskist.
Æskilegt er að grípa til aðhaldsað-
gerða bæði í peninga- og ríkisfjár-
málum. Svigrúm til frekara aðhalds
í peningamálum er hins vegar tak-
markað þar sem nú þegar er fylgt
mjög aðhaldssamri peningamála-
stefnu. Þetta kemur meðal annars
fram í mun hærri vöxtum hér á
landi en í flestum nálægum ríkjum.
Engu að síður er ljóst að ef ekki
verður fylgt mjög aðhaldssamri
stefnu í ríkisfjármálum sem skilar
sér í umtalsverðum afgangi á fjár-
lögum næstu ára verður að grípa til
aðgerða í peningamálum, þ.e.
vaxtahækkunar, sem aftur mun
leiða til frekari hækkunar á gengi.
Þetta er ekki æskilegt, þar sem
frekari hækkun vaxta dregur úr
fjárfestingu og hagvexti til lengri
tíma litið og gengishækkun skapar
erfiðleika í útflutnings- og sam-
keppnisgreinunum.
Við þessar aðstæður er því mikil-
vægt að treysta stöðu ríkisfjármála
enn frekar. Það stuðlar að auknum
innlendum spamaði og heldur aftur
af aukningu þjóðarútgjalda. Til
þess að þetta takist þarf að halda
aftur af aukningu rflrisútgjalda á
sem flestum sviðum. I þessu felst
ekki að það þurfi að draga úr út-
gjöldum til brýnna málaflokka eins
og velferðar- og menntamála. Þvert
á móti munu útgjöld til þeirra að
líkindum aukast á þessu og næsta
ári líkt og undanfarin ár. Við þurf-
um hins vegar að beita ítrasta að-
haldi í opinberam resktri, til dæmis
með því að halda áfram að bjóða út
ýmis verkefni á vegum rflrisins.
Einnig mun áframhaldandi sala á
eignum ríkisins til einkaaðila verða
til þess að styrkja afkomu ríkisins.
Enginn vafi er á að aukið aðhald í
ríkisfjármálum er öraggasta leiðin
til að treysta þann stöðugleika í
sessi sem náðst hefur hér á landi að
undanfömu. Afgangur á fjárlögum
næstu ár gerir í senn kleift að
greiða niður opinberar skuldir og
draga úr vaxtakostnaði. Með þvi
skapast svigrúm fyrir aukin útgjöld
á öðrum sviðum eða frekari lækkun
skatta. Ennfremur þarf að hafa í
huga að við búum nú við einstakt
góðæri hér á landi. Við slíkar að-
stæður er mikilvægt að reka ríkis-
sjóð með myndarlegum afgangi til
þess að búa í haginn fyrir framtíð-
ina. Það er ekki sjálfgefið að upp-
sveiflan í efnahagslífinu haldist að
eilífu. Það vitum við Islendingar
manna best af biturri reynslu.
Hötundur er lj:inn;íl;ir:it)hvmi.
afmíeli
D&riVÍst&F ta.nia
VpAy/lé
i tilefni af 20 ára afmæli Dagvistar barna er börnum og
fjölskyldum þeirra boðið í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn,
sunnudaginn 14. júní n.k.
Margt skemmtilegt verður á dagskrá:
Kl. 13.30ogkl. 15.00 Sýningar Brúðubílsins
Hljómsveitin Geirfuglarnir
Sýning MoguleikKössins -
Trítiltoppur og trölíafjölskyldan
Trúðurinn Tumi
Kl. 13:30 til kl. 16:30
Kl. 14.30
Kl. 15:00 tilkl. 16:00
- í görðinum finna börnin margt til skemmtunar og auk þess
' ' verða sþrstök leiktæki fyrir yngstu börnin.
Tilvaliþ er að fjölskyldan taki með sér nestispakka en aðstaða
til að grilla er á staðnum.
|
Gárðurinn opnar kl. 10:00 og verður opinn til kl. 1 8:00.
1 /
1 /
Góða skemmtun!
br
Chef Penq
HM l/EISLA
Þú fœrð önd í
kaupbœti þegar þú
sœkir tilboðsrétti.
VEITINGAHÚSIÐ
i
ÞÖNGLABAKKA 4 í MJÓDD SÍMI 557 2700
U
I
SUÐAUSTAN
NORÐNORÐVESTAN
SUÐVESTAN
T R
NORÐAUSTAN
AKRANES: OZONE - BORGARNES: BORGARSPORT
SPORTBÆR - SPORTLlF - VESTM.EYJAR: AXEL Ó
/
5 0 0
VATNSHELDNI 5000 mm
ÚTÖNDUN 6000 jr/24 klst.
i