Morgunblaðið - 13.06.1998, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998 53
Sumardag-
skrá á Þing’-
völlum
í SUMAR eins og undanfarin sum-
ur verður um helgar boðið upp á
fjölbreytta dagskrá í þjóðgarðinum
á Þingvöllum.
Landverðir verða með náttúru-
túlkunarferðir þar sem fjallað verð-
ur um náttúrufar garðsins og sögu
lands og lýðs á Þingvöllum. Börnin
fá eitthvað við sitt hæfi í barna-
stundum þar sem frætt verður um
þjóðgarðinn, málað undir berum
himni og farið í leiki.
Sr. Heimir Steinsson, staðar-
haldari, tekur á móti gestum auk
þess sem messað verður í Þing-
vallakirkju hvern sunnudag kl. 14.
Sumardagskrá hefst nú á sunnu-
daginn og er þátttaka ókeypis og
allir velkomnir. Nánari upplýsingar
veita landverðir í þjónustumiðstöð
þjóðgarðsins.
Kveðjusamkoma
á Hjálpræðis-
hernum
SÉRSTÖK kveðjusamkoma verður
haldin sunnudaginn 14. júní kl. 20 á
Hjálpræðishemum í Reykjavík fyr-
ir Reidun og Káre Morken, Rannvá
Olsen og Sigurð Ingimarsson.
Hjónin Reldun og Káre Morken
hafa sl. átta ár veitt Gistiheimili
Hjálpræðishersins forstöðu en þau
gegndu einnig starfi á árunum
1967-1972. Nú hafa þau náð eftir-
launaaldri og láta því af störfum
sem foringjar í Hjálpræðishernum
eftir rúmlega fjörutíu ára þjónustu.
Rannvá Olsen og Sigurður Ingi-
marsson, hermenn við Reykjavík-
urflokk, eru á förum til Færeyja en
þar munu þau taka við starfi flokks-
stjóra Hjálpræðishersins í Vogi.
Allir er velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Hafnarganga
á Akranesi
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð með höfn-
inni á Akranesi taugardaginn 13.
júní. Farið verður með Akraborg-
inni úr Reykjavíkurhöfn. Mæting
við skipshlið kl. 9.15.
Siglingaleiðinni og hafnarsvæð-
inu verður lýst af kunnugu fólki.
Litið verður inn í Byggðasafnið að
Görðum og fleira verður í boði. AIl-
ir eru velkomnir í ferð með Hafnar-
gönguhópnum.
LEIÐRÉTT
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MÆLITÆKIÐ Embla er ekki
nema tæpt kíló að þyngd og gerir
rannsakendum kleift að senda
sjúklinga með tækið heim, þar
sem svefh þeirra er tekinn upp.
Myndabrengl
MYNDABRENGL urðu í frétt um
fyrirtækið Flögu í Morgunblaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum og birtist hér rétt
mynd af mælitækinu Emblu.
Kennd við
rangan bæ
í MYNDATEXTA í Morgunblaðinu
í gær um Minjasafn SVFI í Garðin-
um er Kristín Ingimundardóttir
kennd við Gauksstaði. Það skal
áréttað að hún býr á Reynisstað.
LOKAÐIR FJALLVEGIR 11. júní 1998
Hálendisvegir óðum að opnast
VEGIR á hálendinu eru óðum að
opnast en nokkrir fjallvegir verða þó
enn lokaðir um sinn, m.a. Sprengi-
sandsleið og leiðin milli Landmanna-
lauga og Eldgjár. Kjalvegur hefur
hins vegar verið opnaður, svo og
leiðin í Kerlingarfjöll.
Hálendisvegirnir opnast nú held-
ur fyrr en vanalega og þannig er t.d.
áætlað að vegurinn milli Eldgjár og
Landmannalauga verði opnaður 1.
júlí en yfirleitt hefur hann ekki verið
opnaður fyrr en kringum 9. júlí. Þá
er áætlað að opna í Herðubreiðar-
lindir 15. júní en þangað er oftast
ekki opnað fyrr en um og eftir 19.
júní.
Ekki er löng bið eftir að Sprengi-
sandsleið verði opnuð en fært er að
sunnan vel inn fýrir virkjunarsvæð-
in og Þórisvatn. Uxahryggjaleið er
opin og sömuleiðis Kaldidalur. Enn
er ófært að Snæfelli og í Kverkfjöll
og sömuleiðis hefur ekki verið opnað
inn á Hlöðuvelli.
Vegagerðin gefur næst út kort um
ástand fjallvega 18. júní.
Vegagerðin og Náttúruverndarráð hafa sent frá sér upplýsingar um hvaða svæði á
hálendinu eru lokuð allri umferð vegna snjóa og/eða aurbleytu, og munu gera svo
vikulega fyrri hluta sumars. Vegir á skyggðu svæðunum eru lokaðir allri umferð þar til
annað verður auglýst. Símar vegagerðarinnar eru: 563-1500 og grænt númer, 800-6315.
0 50 km
GÖNGUHÓPUR á leið niður af Fimmvörðuhálsi. Horft yfir Morinsheið-
ina á leið niður á Goðaland þar sem tjaldsvæði Útivistar eru í Básum.
Jónsmessunætur-
ganga titivistar
ÁRLEG Jónsmessunæturganga Úti-
vistar yfir Fimmvörðuháls verður
helgina 19.-21. júní. Lagt verður af
stað á fostudagskvöld og gengið yfir
hálsinn um nóttina. Þessi ganga hef-
ur verið vinsæl undanfarin ár og
ávallt um og yfir 100 manns tekið
þátt í henni og ekki að vænta að
færri verði í þetta sinn. Farangur
verður fluttur inn í Bása svo fólk
þarf aðeins að mæta með nesti og
nauðsynlegan fatnað til næturgöng-
unnar yfir hálsinn, segir í fréttatil-
kynningu.
Einnig segir: „Fimmvörðuháls
þarf varla að kynna enda ein vin-
sælasta gönguleið um hálendi íslands
í seinni tíð. Hann liggur á milli Eyja-
fjalla- og Mýrdalsjökuls í um 1100
metra hæð yfir sjó J)ar sem hann er
hæstur við skála Utivistar. Gangan
hefst á fóstudagskvöldi við Skógafoss
og henni lýkur á Goðalandi við Þórs-
mörk á laugardagsmorgun. Þetta er
nokkuð löng leið eða um 25 km og
reikna má með að gangan taki 9-10
klukkustundir. Fararstjórar Útivist-
ar sem þekkja Fimmvörðuháls vel
munu leiða hópinn.
Boðið verður upp á veitingar í
VERSLUNARRÁÐ íslands efnir tii
morgunverðarfundar í Sunnusal á
Hótel Sögu þriðjudaginn 16. júní kl.
8-9.30. Á fundinum verður leitast við
að svara þeirri spumingu hvort góð-
ærið í efnahagsmálum sé farið úr
böndunum. Meðal þeirra spurninga
sem varpað er fram af þessu tilefni
eru eftirfarandi: Vinnur hagstjórnin
gegn þenslu? Þolir vinnumarkaður-
inn uppganginn? Hvað getur góðær-
ið varað lengi?
ferðinni. Við göngubrúna yfir Skógá
verður boðið upp á kakó og flatkökur
og þegar kemur upp í skála Útivistar
efst á hálsinum verður einnig boðið
upp á súpu og samloku og í þriðja
sinn verður boðið upp á hressingu
þegar fólk kemur niður í Bása um
morguninn. Síðast en ekki síst verð-
ur boðið til grillveislu á laugardags-
kvöldinu í nýju samkvæmistjaldi
sem hefur verið reist í Básum og síð-
an verður varðeldur með hljóðfæra-
leik og söng.
Auk gönguferðarinnar yfir Fimm-
vörðuháls verður hefðbundin helgar-
ferð Útivistar inn í Bása um helgina.
Bæði á laugardag og sunnudags-
morgun verður boðið upp á mismun-
andi gönguferðir undir leiðsögn far-
arstjóra Útivistar. Margar góðar
gönguleiðir er að finna á Goðalandi
og nágrenni eins og til dæmis Bása-
hringurinn margfrægi, ganga á Úti-
gönguhöfða eða Réttarfell, göngu-
ferð inn í Tungur eða upp á Heiðar-
horn og niður Hvanngil og fleira.
Hvað verður fyrir valinu í þetta sinn
fer eftir veðri og aðstæðum þegar á
hólminn er komið en allir munu geta
fundið sér göngu við hæfi.“
Framsögumaður á fundinum verð-
ur Geir H. Haarde, fjármálaráð-
herra, en auk hans munu eftirtaldir
láta í Ijós álit sitt á efninu: Víglundur
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá
BM Vallá hf., Tryggvi Pálsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Islandsbanka hf.
og Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Vinnumálasambandsins.
Morgunverðarfundurinn stendur
frá kl. 8-9.30. Fundargjald er 1.500
kr.
Sumarsól-
stöðuhátíð í
Snæfellsnesi
SNÆFELLSÁS, samfélagið
Hellnum Snæfellsbæ, stendur íýTÍr
sumarsólstöðuhátíð sem mun
standa í fimm daga. Hún hefst 17.
júní og lýkur sunnudaginn 21. júní.
Hátíðargestir taka þátt í jarð-
heilun, hugleiðslum og seiðvinnu að
hætti víkinganna. Farið verður í
bátsferð og ströndin milli Arnar-
stapa og Hellna skoðuð ásamt fjöl-
breyttu fuglalífi. Hvalir verða leit-
aðir uppi og fólki gefst kostur á að
veiða á stöng. Aflinn verður síðan
grillaður um kvöldið fyrir þá sem
þess æskja. Farið verður í grasa-
ferð og gestum kennd notkun ís-
lenskra jurta. Hellnar verða heim-
sóttir og gestum kennt að skynja
orkulínur og sérstaka orkustaði.
Á miðnætti 20. júní verður farið
upp á Snæfellsjökul. Ef veður
hamlar jökulferð verður annar
staður fyrir valinu. Hægt er að
taka þátt í öllum fimm dögunum
eða bara helginni.
Gisting, fæði og allt annað er
innifalið í verðinu, nema ferðin á
Jökulinn. Allur upplýsingar gefur
Snæfellsás samfélagið.
MARÍA Valsdóttir sýnir textfl-
skúlptúra í Galleríi Listakoti.
Ermar í
álögum
MARÍA Valsdóttir opnar sýn-
ingu á textílskúlptúra í Gallerfi
Listakoti Laugavegi 70, 2. hæð.
á morgun laugardaginn 13.
júní.
Verkin eru unnin á þessu ári
og samanstanda af súlum
klæddum silki, bómull og hör.
Verkin eru unnin út frá formi
erma í gegnum aldirnar.
Þetta er fyrsta einkasýning
Maríu, sem útskrifaðist úr
Textfldeild MHÍ 1993. Hún hef-
ur tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum, þ.á.m. Óháðri lista-
hátíð 1993 og 1995, Menning-
arnótt í Reykjavík 1996, Ljós,
Menjar og Gnægtarborðið í
Gallerfi Listakoti 1996-97.
Sýningin er opin á verslunar-
tíma; 10-18 á virkum dögum,
10-16 á Iaugardögum og 14-17
á 17. júní og lýkur 28. júní.
Rætt um góðærið
og liagstjórnina
Hlaut styrk
úr Minningar-
sjóði Jóns
Jóhannessonar
STYRKUR var nýlega veittur úr
Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jó-
hannessonar, prófessors. Halldór
Bjarnason hlaut styrkinn að þessu
sinni. Halldór hefur lokið BA-prófi
og einnig kandídatsprófi í sagnfræði
frá Háskóla Islands. Hann stundar
nú framhaldsnám í hagsögu við Glas-
gow-háskóla.
Minningarsjóður dr. phil. Jóns Jó-
hannessonar, prófessors, er eign Há-
skóla íslands. Tekjum sjóðsins er
varið til þess að veita stúdentum eða
kandidötum í íslensku eða sagnfræði
styrki til einstakra rannsóknarverk-
efna sem tengjast námi þeirra.
Fræðslutorg-
við Miðbakka
ÝMISLEGT verður í boði fyrir ein-
staklinga og fjölskyldur á Fræðslu-
torginu á Miðbakka um helgina.
Sýningin Á slóðir saltsins fyrr og nú
í tjaldi á Fræðslutorginu verður opin
alla daga til 12. júlí.
Fastir liðir eins og venjulega eru:
Sælífskerin með nokkrum tegundum
botndýra hafnarinnar. Eimreiðin
Minör er vinsæl, einkum hjá yngri
kynslóðinni, standur með upplýsing-
um um vindátt, vindstig og lofthita
og einnig verða upplýsingar um flóð
og fjöru, sjólag út á sundum og
skipakomur.
Boðið er upp á stuttar fjölskyldu-
sjóferðir með iangskipinu Islend-
ingi frá bryggju í Suðurbugt (við
Ægisgarð).Brottför úr Suðurbugt
verður kl. 14 og 16 laugardag og
sunnudag.
Ijarnardans-
leikur í Iðnó
TJARNARDANSLEIKIR í Iðnó
voru hápunktar skemmtanalífs
landsmanna mestan part aldarinn-
ar. Eftir endurbætur á Iðnó er þessi
sögulega hefð endurvakin. Einungis
verður efnt til örfárra Tjarnardans-
leikja við sérstök hátíðleg tilefni á
næstu árum. Þann 16. júní verður
efnt til fyrsta Tjarnardansleiksins í
tilefni þjóðhátíðardagsins.
Eftir þríréttaðan kvöldverð hefst
dansleikur með hörpuleik, strengja-
kvartett, hátíðarræðum og skemmti-
atriðum. Gestir munu mæta í sínu
fínasta pússi því samkvæmisklæðn-
aður er skilyrði. Dömur mæta í síð-
kjólum, en karlar í kjól og hvítt.
Miðasala er hafin í Iðnó. Miðasalan
er opin frá kl. 12-18. Miðaverð er
6.500 kr. og er innifalinn þríréttaður
matseðill, skemmtiatriði og dans-
leikur. Miðaverð á dansleik er 2.900
kr. Hleypt inn kl. 23.
Athugasemd frá
meinatæknum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
athugasemd frá Ástu Björg Bjöms-
dóttur, formanni Meinatæknafélgs
íslands, vegna athugasemdar Guð-
finnu Ólafsdóttur formanns Félags
íslenskra læknaritara í Morgun-
blaðinu 10. júní sL:
„Ég sem formaður Meinatækna-
félags íslands tek undir lokaorð
Guðfinnu Ólafsdóttur um að ekki
eigi að vega að annarri stétt í kjara-
baráttu. En vegna þess að Guðfinna
vegur að meinatæknastéttinni get
ég ekki annað en svarað.
Hér á landi er nám meinatækna á
háskólastigi þrjú og hálft ár og lýk-
ur með Bs-gráðu og er mikill fag-
legur metnaður í störfum meina-
tækna. I Noregi era meinatæknar
tæknifræðingar og eru í norska
tæknifræðingafélaginu. Það að slá
um sig með tilvitnunum í hvernig
hlutirnir era gerðir á ófaglegan
máta er ekkert nema minnkun á
eigin virði. Því vil ég að félög snúi
bökum saman, ekki bara „kvenna-
stéttir" heldur stéttir sem vinna
innan heilbrigðisgeirans og vinni
saman að bættum kjörum.“