Morgunblaðið - 13.06.1998, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KKINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Siglir dreg-
ur Breka til
Reykjavíkur
—- SIGLIR er á leið með Vestmanna-
eyjatogarann Breka til Reykjavíkur
en eldur kom upp í togaranum í gær-
morgun þegar hann var staddur á
Reykjaneshrygg. Skipverjar réðu
sjálfir niðurlögum eldsins og engin
meiðsli urðu á mönnum.
Breki var nýkominn á miðin við
Reykjaneshrygg og var að undirbúa
veiðar í fyrstu ferð sinni eftir mánað-
arklössun í Hafnarfirði. Eldur kom
upp í vélarrúminu og urðu þar
nokkrar skemmdir en Sigurmundur
Einarsson, framkvæmdastjóri Ut-
gerðarfélags Vestmannaeyja, kvaðst
ekki vita nánar um þær. Siglir tók
Breka í tog og héldu skipin af stað
um fimmleytið í gær. Voru þau
___væntanleg til Reykjavikur með
morgninum.
■ Siglir dregur/6
Morgunblaðið/Jim Smart
KRAKKARNIR á smíðavelli í
Laugardal með efni í glæsihýsi.
Mikið að
gera á
« smíðavöllum
Á SÍÐUSTU dögum hefur verið
lagður grunnur að um 250 hús-
um víðsvegar um borgina - og
sköpunargleðin er mikil, að sögn
Sigurðar Más Helgasonar, um-
sjónarmanns smíðavalla barna
hjá fþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur.
Það eru stelpur og strákar á
aldrinum átta til tólf ára sem
þarna eru að verki og smiða sér
hús og kofa af ýmsum stærðum
og gerðum. Sigurður segist ekki
hafa við að keyra timbur til
hinna vinnuglöðu ungu hús-
byggjenda, en hann hefur nú
þegar útvegað þeim um tuttugu
þúsund fjalir.
Smíðavellirnir eru opnir öllum
börnum borgarinnar á aldrinum
8-12 ára og þjónustan stendur
þeim til boða endurgjaldslaust. Á
hveijum velli eru tveir leiðbein-
endur, sem gefa börnunuin góð
ráð um hvernig best sé að bera
sig að við húsbyggingarnar. Sig-
urður segist vera nýfarinn að
bjóða upp á þá þjónustu að flytja
kofana heim fyrir þau börn sem
þess óska, en þeir megi þá ekki
—„vera stærri en 120x80 sm, því
annars geti þau lent upp á kant
við byggingareglugerð.
Aðspurður um hvort jafnrétti
sé ekki í heiðri haft á smíðavöll-
unum segir hann að stúlkurnar
standi sig ekki síður en
drengimir, ef eitthvað er séu
þær jafnvel vandvirkari og taki
*-r_ betur leiðbeiningum.
Morgunblaðið/RAX
Þorskurinn sóttur að Tálkna
Á PATREKSFIRÐI hafa 40-60 handfærabát-
ar Iandað þorski undanfarið og heildaraflinn
farið í 80 tonn á dag. Feðgarnir Björn
Bjömsson og Eggert Björnsson á Smára BA
231 þurftu ekki að leita Iangt eftir þorskinun
í gær. Við Tálknann náðu þeir 1,3 tonnum,
sem landað var á Patreksfirði. Starfsmaður
Hafnarvigtarinnar sagði fisk um allan sjó,
nánast væri sama hvert væri siglt.
Hugsanleg bygging álvers Norsk Hydro á Austurlandi
Fjárfestum hér kynntir
möguleikar á þátttöku
SAMRÆMINGARNEFND íslend-
inga og Norsk Hydro um stóriðju
kynnti innlendum fjárfestum í vik-
unni möguleika á þátttöku þeirra í
fjárfestingu vegna byggingar álvers
í samstarfi við Norsk Hydro á Aust-
urlandi ef í það verður ráðist.
Nefndin hefur meðal annars það
verkefni með höndum að kanna
áhuga innlendra fjárfesta að þessu
leyti og af því tilefni var fundurinn
haldinn. Þórður Friðjónsson, for-
maður samræmingamefndarinnar,
sagði að hlutverk nefndarinnar
væri að undirbúa og leggja grund-
völl að frekari stóriðju. Eitt af
verkefnum nefndarinnar væri að
kanna áhuga innlendra fjárfesta á'
þátttöku í hugsanlegri byggingu ál-
verksmiðju Norsk Hydro á Austur-
landi. Umræddur fundur hefði ver-
ið fyrsta skrefið í þeim efhum. Um
hefði verið að ræða vinnu- og kynn-
ingarfund með mikilvægum aðilum
á fjármagnsmarkaði hérlendis, en
það væri mikilvægt að innlendir að-
ilar tækju þátt í verkefninu með
myndarlegum hætti yrði í það ráð-
ist.
Þórður lagði áherslu á að þarna
hefði einungis verið um það að ræða
að kynna innlendum fjárfestum
þessa möguleika og þar hefði þeirri
spurningu verið varpað fram hvort
þeir myndu hugsanlega hafa áhuga
á þátttöku í þessari fjárfestingu.
Engin ákvörðun hefði verið tekin
um byggingu álversins og þarna
hefði einungis verið um það að ræða
að taka fyrstu skrefin í þessum efn-
um. Áfram yrði unnið að málinu
næstu vikur og mánuði, en næsti
fundur samræmingamefndarinnar
væri fyrirhugaður í lok september í
haust.
Fundurinn hefði verið til þess ætl-
aður að kanna áhugann og leggja
drög að málinu, en í haust væri gert
ráð fyrir að áætlanir um hagkvæmni
og arðsemi fjárfestingarinnar lægju
fyrir. Fyrr en þeir útreikningar
lægju fyrir væri ekki hægt að taka
efnislega afstöðu til málsins, en að
sínu mati gæti þama verið um ágætt
tækifæri að ræða fyrir íslenska fjár-
festa hefðu þeir áhuga.
Aðspurður um viðbrögð fjárfesta
við því sem fram hefði komið á fund-
inum sagði Þórður að það hefði ekki
verið annað að heyra en vilji væri til
þess meðal þeirra að skoða málið af
fyllstu alvöra með fyrirvara um nið-
urstöðu hagkvæmnisathugana. Að
hans mati væri fullt tilefni til að
skoða þetta verkefni gaumgæfilega,
því það gæti verið fyllilega sam-
keppnisfært við aðra fjárfestingar-
kosti sem fyrir hendi væra.
Marel end-
urskoðar
áætlanir
Fjármálaráðherra varar við verðbólguhættu
Utboðum og sölu ríkis-
eigna verði haldið áfram
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
segir að nauðsynlegt verði á næstu
áram að halda aftur af aukningu
rfldsútgjalda á sem flestum sviðum
vegna hættu á verðbólgu. Þó muni
framlög til brýnna málaflokka á
borð við velferðar- og menntamál
aukast, en halda þurfi áfram útboð-
um á vegum rfldsins og selja einka-
aðilum eignir þess.
Hann segir að verði ekki veraleg-
ur afgangur á fjárlögum næstu ára
verði nauðsynlegt að grípa til vaxta-
hækkana, þrátt fyrir að vextir hér á
landi séu mun hærri en í flestum
nálægum ríkjum. Þetta kemur fram
í grein ráðherrans í Morgunblaðinu
ídag.
Geir bendir á að aukinn innflutn-
ingur neysluvöra, launahækkanir
og skortur á vinnuafli í mörgum at-
vinnugreinum séu merki um mikil
umsvif og eftirspurn í efnahagslíf-
inu sem þurfi að hafa góðar gætur
á.
Verð á innlendum vöram og þjón-
ustu hafi hækkað meira á síðustu
13-14 mánuðum en nokkur undan-
gengin ár en verð á innfluttum vör-
um hafi lækkað á sama tíma, eink-
um vegna hækkandi gengis íslensku
krónunnar. Verðlagi sé þannig hald-
ið í skefjum með hækkun gengis en
verðbólga síðustu tólf mánaða hafi
engu að síður verið 2,4%, meiri en í
flestum öðram iðnríkjum.
í úttekt framkvæmdastjórnar
VSÍ á framtíðarhorfum í íslenskum
efnahagsmálum kemur fram að
draga þurfi úr aukningu þjóðarút-
gjalda og þá einkum með aðgerðum
sem stuðla að meiri spamaði. Að
öðrum kosti sé hætta á verðbólgu
og almennu jafnvægisleysi á næsta
ári.
■ Nauðsyn aðhaIds/45
■ Ástandið krefst/22
NOKKURT tap hefur orðið á
rekstri Marels og dótturfyrirtækis
þess Carnitech í Danmörku á fyrri
hluta ársins. Gengi hlutabréfa í fé-
laginu féll í gær úr 17,40 í 13,80 í
kjölfar fréttatilkynningar þess efnis
að fyrirtækið hefði endurskoðað
rekstraráætlanir á yfirstandandi ári
og að gert væri ráð fyrír að nokkur
samdráttur yrði á tekjum vegna
minni fjárfestingar í fiskiðnaði mið-
að við undanfarin ár.
I tilkynningunni var þess getið
að fyrirtækið stefndi að því að auka
sölu í kjúklinga- og kjötiðnaði, sem
ætti að gera Marel betur í stakk
búið til að mæta sveiflum í framtíð-
inni.
■ Varla hagnaður/22