Morgunblaðið - 31.12.1999, Qupperneq 6
6-' FÖSTUÐAGUR 31. DESEMBER1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Davíð Qddsson forsætisráðherra segir að gerðar verði breytingar á Seðlabankalögum
Skylda til að auglýsa stöðu seðla-1
bankastjóra verði felld niður
Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að
hafín verði vinna vlð undirbúning að breyt-
ingum á Seðlabankalögunum í byrjun
næsta árs og m.a. verði lagt til að afnumin
verði skylda til að auglýsa stöður Seðla-
bankastjóra. Davíð segir í samtali við
Ómar Friðriksson að sú ákvörðun sem
tekin var á sínum tíma að ráða Seðla-
bankastjóra til 5 ára hafí sennilega verið
óskynsamleg. Brotthvarf Finns Ingólfsson-
ar þarf ekki að veikja ríkisstjórnina en
er mikil breyting fyrir Framsóknarflokk-
inn, að mati Davíðs, þar sem margir
litu á hann sem framtíðarleiðtoga.
Finnur Ingólfsson tók við skipunarbréfi í embætti seðlabankastjóra úr hendi
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í gær.
FINNUR Ingólfsson, fráfarandi
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, gekk
á fund Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra kl. 14 í gær og afhenti Dav-
íð honum skipunarbréf í embætti
Seðlabankastjóra frá og með 1. jan-
úar. Finnur afhenti Davíð jafnframt
lausnarbeiðni sína úr ráðherraem-
bætti og mun forsætisráðherra
leggja hana fyrir forseta íslands á
ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag.
Par mun Valgerður Sverrisdóttir
taka við embætti iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
I fréttatilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu í gær segir að sam-
kvæmt erindi bankaráðs Seðlabank-
ans byggðist mat þess á um-
sækjendum um embætti banka-
stjóra á menntun umsækjenda og
þekkingu þeirra á efnahagsmálum
og þjóðmálum almennt. ,Á þeim
grundvelli lagði ráðið til að Finni
Ingólfssyni iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra yrði veitt embættið. For-
sætisráðherra hefur í samræmi við
þá tillögu skipað hann í embættið
frá 1. janúar nk.,“ segir í frétt for-
sætisráðuneytisins.
Brotthvarf Finns þarf ekki að
veikja ríkisstjórnina
Davíð Oddsson sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að sér þætti
miður að svo öflugur stjómmála-
maður sem Finnur væri hefði ákveð-
ið að hverfa úr ríkisstjóminni.
„Þar var hann mjög öflugur liðs-
maður og hann var einnig öflugur í
þinginu en, eins og sagt hefur verið,
þá kemur maður í manns stað,“
sagði Davið.
„Þó ég þekki ekki nægilega mikið
til starfa Valgerðar Sverrisdóttur,
þá tel ég ástæðu til að ætla, af því
sem ég hef séð, að hún geti orðið öfl-
ugur þátttakandi i ríkisstjóminni,
eins og Finnur hefur verið,“ sagði
hann.
Heilmikil breyting fyrir
Framsóknarflokkinn
Aðspurður hvort brotthvarf Finns
veikti ríkisstjómina sagði forsætis-
ráðherra að svo þyrfti ekki að vera.
„Ef hinn nýi ráðherra nær góðum
tökum á sínu embætti, sem ég hef
engar efasemdir um, þá mun það
ekki veikja stjómina.
Þetta er náttúrlega heilmikil
breyting fyrir Framsóknarflokkinn,
því þama er um að ræða ungan
varaformann, sem var að hefja vara-
formannsstarf sitt og margir litu á
sem framtíðarleiðtoga, en ég er viss
um að sá flokkur leysir sín mál far-
sællega," sagði Davið.
Hörð gagnrýni hefur verið höfð
uppi á fyrirkomulag ráðningar í
stæf bankastjóra Seðlabankans.
Hefur hún aðallega beinst að því að
auglýst var eftir umsóknum þar sem
nú liggur fyrir að gert var pólitískt
samkomulag um ráðningu í emb-
ættið. Davíð sagðist aðspurður geta
að hluta til tekið undir gagnrýni á
þetta íyrirkomulag.
„Við auglýsum starfið vegna þess
að við teljum að það sé skylt sam-
kvæmt lögum. Áður var það ákvörð-
un ráðherra hverju sinni hvort starf-
ið yrði auglýst eða ekki. Við nánari
athugun á lögunum tel ég að það
hafi alltaf verið lagaskylda að
auglýsa starfið, þó það hafi ekki ver-
ið gert.
Mér þótti afar undarlegt við tvær
síðustu ráðningar þegar menn
ákváðu sérstaklega að auglýsa stöð-
una, án þess að telja sig þurfa þess
samkvæmt lögum, þótt allir sem að
málinu kæmu, vissu að búið væri að
ákveða fyrirfram hver ætti að fara í
hana. Mér þykir þetta óviðfelldið og
hef jafnan sagt það þegar þetta hef-
ur verið gert.
Með því að auglýsa stöðu sem er
þessa eðlis, og er hvergi auglýst
annars staðar í veröldinni, eru menn
að gefa í skyn að þetta sé opin staða
með venjulegum hætti. Mér finnst
rangt að gefa það í skyn, þó fólk hafi
reyndar áttað sig á þessu, eins og
nemendur við Menntaskólann í
Hamrahlíð sýndu svo skemmtilega á
sínum tíma, þegar skólinn sótti nán-
ast allur í heild um embættið.“
Breytlngar gerðar á lögum
um Seðlabankann
Alls bárust 16 umsóknir um emb-
ætti Seðlabankastjóra og var Davíð
spurður álits á því hvernig hann
teldi að þetta mál horfði við öðrum
umsækjendum.
„Þar er um að ræða fólk sem tek-
ur hlutina alvarlega og vekur athygli
á sínum kostum. Það er ekki hægt
að finna að því. Þama voru mörg
nöfn önnur en viðskiptaráðherrans
sem hefðu augljóslega getað valdið
þessu starfi. Að viðskiptaráð-
herranum frátöldum hefði reyndar
verið afar erfitt að gera upp á milli
sumra umsaekjenda sem hafa svip-
aða stöðu, menntun og reynslu,"
sagði Davíð. Hann sagðist vera
þeirrar skoðunar að Finnur Ingólfs-
son byggi yfir góðum kostum, vegna
menntunar sinnar og reynslu sem
viðskiptaráðherra, svo hann gæti
gegnt þessari stjómunarstöðu vel.
Seðlabankinn verður fluttur frá
viðskiptaráðuneytinu og settur und-
ir forsætisráðuneytið frá og með
áramótum. Aðspurður hvort breyt-
ingar verði gerðar á lögunum um
Seðlabankann segist Davíð gera ráð
íyrir að farið verði yfir lögin og lagt
til að skylda til að auglýsa banka-
stjórastöður yrði felld niður. Áfram
verði þó heimilt að auglýsa starfið,
telji menn það eiga við undir ein-
hverjum kringumstæðum.
„Sjálfsagt verða gerðar aðrar
breytingar á bankanum í takt við
tímann. Lögin eru komin til ára
sinna og margt hefur breyst, ekki
síst að allt fjármálakerfið hefur tek-
ið stökkbreytingum.
Ég mun fljótlega nú í ársbyrjun
setja í gang vinnu við að undirbúa
breytingar á lögunum um Seðla-
bankann og færa þau til þess horfs
sem hentar efnahagsstarfseminni
við núverandi aðstæður," sagði Dav-
íð.
Tal um sjálfstæði Seðlabankans
á skjön við veruleikann
Forsætisráðherra var spurður
hvort þessir atburðir hefðu eldd leitt
í ljós að sjálfstæði Seðlabankans
væri lítið, eins og oft væri haldið
fram.
„Ég held að þetta tal um sjálf-
stæði Seðlabankans sé dálítið á
skjön við veruleikann,“ svaraði Dav-
íð.
„Bankinn er afar sjálfstæður í sín-
um málum. Hann þarf að hafa tiltek-
ið samstarf við ríkisstjórnina, og á
að vinna að efnahagsmarkmiðum
ríkisstjómarinnar. Ég fæ ekki séð
að það sé skynsamlegt að hann vinni
að einhveijum öðrum markmiðum
en ríkisstjómin í efnahagsmálum,"
sagði Davíð.
„Ég hygg, þegar grannt er skoð-
að, að munurinn á þessum banka og
öðram bönkum, sem menn hafa vitn-
að til um sjálfstæði, sé miklu minni
en menn hafa haldið. Ég tel þetta
því vera gervivandamál.
Það má kannski segja að það hafi
verið athugunarleysi þegar við
ákváðum að ráða skyldi bankastjóra
aðeins til fimm ára í senn, vegna
þess að þá er náttúrlega framtíð
hvers bankastjóra meira í höndum
ráðherrans en áður og að því leytinu
má segja að sjálfstæði hans hafi ver-
ið veikt. Það var kannski óskynsam-
legt að gera það,“ sagði Davíð.
Frekari breytingar á rflds-
stjórninni standa ekki til
Aðspurður sagði Davíð að ekki
stæði til að gera frekari breytingar á
ríkisstjóminni.
„En strax í upphafi sögðum við ut-
anríkisráðherra að við myndum ekki
útiloka að slíkar breytingar yrðu á
kjörtímabilinu. í því felst þó ekki yf-
irlýsing um að slíkar breytingar
verði,“ sagði hann.
Hefur þú skýringar á skyndilegu
brotthvarfí Finns Ingólfssonar úr
ráðherraembætti og stjórnmálum?
Telurðu að pólitískar ástæður hafí
legið þar að haki?
„Ég tek hans skýringar gildar.
Það kom mér mjög í opna skjöldu
þegar utanríkisráðherra sagði mér
frá því hvernig hans hugur stóð. Þá
ætlaði ég nánast ekki að trúa mínum
eigin eyram. Ég hefði tapað öllum
veðmálum í þessa vera, hefðu þau
verið uppi.
Ég tek hans skýringar gildai' um
að hann telji ekki eftirsóknarvert að
eiga fleiri ár í stjórnmálum miðað
við það starfsumhverfi sem stjóm-
málamenn búa í, sem hefur ekki að-
eins áhrif á þá, heldur á fjölskyldu
þeirra og fleiri.
Mér finnst það vera umhugsunar-
efni, og þá horfi ég ekki bara á þetta
atvik, heldur til síðustu sex, átta eða
tíu ára, að hæfir menn hverfa úr
pólitík á mjög góðum aldri, raunar á
sama aldri og menn sem era að
byrja í stjórnmálum annars staðar,"
sagði Davíð.
Óvægin umræða um
slj órnmálamenn
Það er eitthvað í hinu pólitíska
umhverfi sem verður til þess að
menn vilja ekki búa við þau óþæg-
indi og þá annmarka sem því fylgja,
þó menn hafi mikinn pólitískan
áhuga eins og til dæmis fráfarandi
viðskiptaráðherra, sem er mjög
áhugasamur um pólitík," sagði Dav-
íð. Aðspurður hvaða ástæður væra
fyrir þessu sagðist hann telja að
ýmsar skýringar væra á því. „Hér
hefur það þó gerst, sem ég tel já-
kvætt, að vald stjómmálamanna
hefur minnkað mikið. Áhrif þeirra
hafa minnkað, allar reglur hafa
breyst og aðrir þættir komið til.
Möguleikar á að komast í álnir
eru bersýnilega ekki fyrir hendi á
stjómmálasviðinu, þó menn tali mik-
ið um launahækkanir til þeirra,“
sagði Davíð. Hann benti einnig á að
ungu og efnilegu fólki þættu ekki
300 þúsund króna þingmannslaun
eftirsóknarverð og teldi sig geta
fengið mun hærri laun annars stað-
ar.
„Umræðan er líka dálítið óvægin.
Hún hefur sjálfsagt alltaf verið það
en menn skynja að þeir geta náð
áhrifum og fengið þokkalegar stöður
annars staðar, án þess að þessir
annmarkar fylgi með, að vera sífellt
undir kastljósi og að reynt sé að
setja menn undir skrítin mæliker.
Því er jafnvel haldið fram að
stjórnmálamenn fari til útlanda, -
rífi sig upp á sunnudegi og komi svo
aftur á þriðjudegi - til þess að reyna
að ná sér í 30 þúsund króna dagpen-
inga. Þess háttar umræða er auð-
vitað niðurlægjandi, fráleit og fárán-
leg. Ég held að alít þetta verði til
þess að menn spyiji sig; hvers vegna
er ég hér og hvers vegna þarf ég að
sitja undir öllu þessu?
Meira að segja dómstólar telja nú
orðið að það megi henda meiri skít í
stjómmálamenn en aðra,“ segir
Davíð. „Stjómmálamaður sem færi í
meiðyrðamál myndi tapa því sem
annar myndi vinna, vegna þess að
hann á að geta búist við því, eins og
sagt er, að á hann sé ráðist persónu-
lega.“
Hefurðu ákveðin dæmi um þetta í
huga?
„Nei, þetta er dómaþróun sem
verið hefur, ekki bara hér á landi
heldur líka í Bretland og fleiri ná-
lægum löndum. Menn spyrja sig
sem svo hvers vegna þeir þurfi að
vera æraminni í þessu starfi en aðrir
menn. Þú þarft að hafa býsna harð-
an skráp til þess að vera í forystu
stjórnmálaflokks."
Telur líkur á Fljótsdalsvirkjun
og álveri óbreyttar
Fljótsdalsvirkjun hefur óneitan-
lega verið umdeildasta mál undan-
farinna mánaða. Telurðu að það mál
haft einhveráhrif á ákvörðun Finns?
„Nei, ekki það eitt og sér. Ég hef
ekki orðið var við í samtölum mínum
við hann að að hann nefni það sér-
staklega.
Þetta mál var á endanum afgreitt
með auknum meirihluta á þinginu,"
sagði Davíð og vísaði til þess að
nokkrir þingmenn stjómarandstöð-
unnar hefðu stutt málið. „Menn áttu
ekki von á því þegar farið var af stað
í haust,“ sagði hann.
Davíð sagði enga breytingu verða
á framgangi virkjunarmálsins vegna
ráðherraskiptanna. „Þingviljinn
liggur fyrir og ríkisstjórnin fylgir,
honum. Svo verður að koma í ljós
hvort verður virkjað eða ekki. Það
ræðst af því hvort viðunandi samn-
ingar nást við Norsk Hydro eða þá
önnur fyrirtæki."
Hafa líkurnar á því eitthvað
breyst að undanförnu ?
„Nei, það finnst mér ekki. Ég held.
að þær hafi verið töluverðar allan
tímann og séu það enn, en því hefur
verið lýst yfir af hálfu ríkisstjórnar-
innar og fyrirtækisins sem í hlut á:
að samningar verða eingöngu gerðir
ef það er hagkvæmt fyrir báða að-
ila,“ sagði Davíð að lokum.