Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýir áskriftarflokkar
hiá Símanum Internet
SÍMINN Internet og Skíma-Mið-
heimai- munu á næstunni bæta þjón-
ustu við viðskiptavini sína með sjö
nýjum áskriftarflokkum, sem sniðnir
eru að mismunandi þörfum og
áhugamálum. I hverjum flokki er
mismunandi þjónusta og fríðindi
innifalin. I öllum áskriftarflokkum
verður boðið upp á fulla þjónustu
hvað varðar aðgang að verkstæði og
símahjálp í gjaldfrjálsu þjónustu-
númeri.
Frá og með 1. janúar verða allir
viðskiptavinir sjálfkrafa í Plús--
áskiift, sem kostar 990 kr. á mánuði
fyrir þá, sem hafa netaðgang um
venjulegt mótald eða ISDN og 1.490
kr. fyrir þá, sem nota tveggja rása
ISDN-samband.
Þessi áskriftarflokkur hentar
þeim, sem vilja hafa aðgang að
grunnþjónustu á borð við fréttahópa,
heimasíðupláss og að hægt sé að
hringja og fá símtöl meðan verið er á
Netinu án þess að þurfa aðra síma-
línu. Verð annarra áskriftarflokka
verður hærra, hæst fyrir stórnot-
endaáskrift, kr. 2.390 (fyrir mótalds-
eða ISDN-aðgang) eða 2.990 (fyrir
aðgang um tveggja rása ISDN).
Strax í janúar verður einnig boðið
upp á leikjaáskrift, sem er sérsniðin
fyrir þá, sem spila netleiki, m.a. með
afslætti af mótsgjöldum vegna
leikjamóta. í janúar verður einnig
tekin upp margmiðlunaráskrift, sem
er leið fyrir þá sem vilja koma
margmiðlunarefni á framfæri, svo
sem tónlist eða myndböndum.
Á næstu mánuðum bætist svo við
Startgjald
leigubila
hækkar um
25% um
áramótin
VEGNA þess mikla misskiln-
ings er gætir um taxta leigubíla
þessi áramót þar sem almenn-
ingur telur að leigubílar hækki
um allt að helming og að start-
gjaldið verði á bilinu 1.000 kr.
til 1.500 kr. vill Ástgeir Þor-
steinsson, formaður Bandalags
íslenskra leigubifreiðastjóra,
koma því á framfæri að taxti
leigubíla hækkar um 25% um-
fram þann sértaxta er gildir um
áramót, sem þýðir að startgjald
leigubíla fer úr 420 kr. í 530 kr.
um þessi áramót en ekki í 1.500
kr. eins og margur virðist
halda.
fjölskylduáskrift, þar sem boðið er
upp á að allir í fjölskyldunni geti haft
sitt eigið netfang, sótt námskeið um
Netið og haft fjölskylduvæna teng-
ingu, sem lokar fyiir óvelkomið efni.
Á ferð og flugi mun henta vel þeim
sem ferðast mikið, bæði innanlands
og utan, en þeir munu geta tengzt
Netinu nánast hvar sem er í heimin-
um og haft aðgang að vefskrifstofu-
kerfi.
Einnig verður í boði millilanda-
áskrift, fyrir þá sem eiga vini eða
ættingja erlendis, stórnotenda-
áskrift fyrir atvinnumenn og mikla
áhugamenn um Netið og viðskipta-
áskrift fyrir minni fyrirtæki og ein-
yrkja, en henni fylgja m.a. fleiri net-
föng, stærra heimasíðupláss og
aðgangur að einföldu vefumsjónar-
kerfi.
Tilkynnt verður síðar hvenær
byrjað verður að bjóða upp á hvern
nýjan áskriftarflokk, en eins og áður
sagði verða þrír flokkar í boði strax í
byrjun janúar.
UTSALA UTSALA
Tískuverslunin
Sími 588 8488
ÚTSALAN HEFST
mánudaginn
3. janúar
Opið frá kl. 10-19
Óskum landsmönnum öllum
gleðilegs árs með þökk fyrir
viðskiptin á líðandi öld
stofnuð 1916,
Laugavegi 4, sími 551 4473.
Kæru viðskiplavinir
heima og erlendis
Við hittumst hér á síðu 9
eins og við höfum gert í gegnum árin
Fögnum nýrri öld og þökkum fyrir árin 14
sem liðin eru í okkar samskiptum.
Útsalan er hafin - 30-50% afsláttur
TESS
Hlökkum til að sjá ykkur
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
www.creatine.is
-/elina
Fegurðin kemur innan frá
Laugavegi 4, sími 551 4473
2000
Óskum viðskiptavinum okkar
GLEÐILEGS ÁRS OG FRIÐAR.
Þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða.
VEH Salon
Húsi Verslunarinnar
Sími 568 7305
Salon VEH
Glæsibæ
Sími 568 5305
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 9
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
BJÖRG, GÚSTI, ÖSP, EIK OG PRESTUR
iFÓðinsgötu 7 IMISÍWÍÍs,mi 562 8448^
ÚTSALA - ÚTSALA
Vinsæla vetrarútsalan byrjar í
Bæjarlind 6 sunnudaginn 2. janúar
Opið frá kl. 13-18
Ríta
TÍSKUVERSLUN
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10-15.
1 Instant
x. ,v. Radiance
¥ % N°7
L *** * ' w Nýtt töfrakrem
Betra útlit á stundinni þynnka þreyta öldrun Ekki vandamálið
Fæst í apótekinu þínu
m ÆBk A Tilboðkr.2.500
Óskum landsmönnum gleðilegs
árs og þökkum árið sem er að líða.
Silfurpottar í Háspennu frá 16. til 29.des. 1999
Dags. Staður Upphæð
18. des. Háspenna, Laugavegi.........112.697 kr.
19. des. Háspenna, Laugavegi.........136.706 kr.
21. des. Háspenna, Laugavegi.........190.439 kr.
22. des. Háspenna, Laugavegi.........119.599 kr.
22.des. Háspenna, Hafnarstræti..171.759 kr.
27.des. Háspenna, Laugavegi.........165.577 kr.
27.des. Háspenna, Laugavegi..........74.453 kr.
27. des. Háspenna, Laugavegi...........61.477 kr.
28. des. Háspenna, Hafnarstræti..130.719 kr.
29. des. Háspenna, Laugavegi.........117.719 kr.
29.des. Háspenna, Laugavegi......117.719 kr.