Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hlutafélagið Matbær stofnað
um verslunarrekstur KEA
NÝTT hlutafélag sem tekur við verslunarrekstri
Kaupfélags Eyfirðinga verður til nú um áramót og
verður það fyrst um sinn rekið undir nafninu Mat-
bær ehf. Það verður að fullu í eigu KE A fyrst í stað,
en gert er ráð fyrir að fleiri muni koma til liðs við
það síðar. Framkvæmdastjóri Matbæjar verður
Sigmundur E. Ófeigsson sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs KEA.
Nettó, Urval og Strax
Nýja félagið er þriðja stærsta matvöruverslunar-
keðja landsins með um 4,5 mOljarða króna ársveltu.
Til samanburðar má nefna að næststærsta mat-
vöruverslunarkeðja landsins er með 9 milljarða
króna ársveltu og sú stærsta 22 milljarða króna árs-
veltu. Starfsmenn Matbæjar verða um 260 talsins.
Verslunum félagsins er skipt upp í þrjá flokka,
lágvöruverðsverslanir undir nafninu Nettó þar sem
Hannes Karlsson er deildarstjóri, stórmarkaði und-
ir nafninu Urval þai- sem Friðrik Sigþórsson er
deildarstjóri og loks svonefndar þægindabúðir sem
hlotið hafa nafnið Strax og er Ellert Gunnsteinsson
deildarstjóri þeirra. Þessu til viðbótar er svo kosta-
sala fyrir skip og báta sem tengist Nettó. Vöruinn-
kaup verða sameiginleg og byggð á þeim gnmni
sem Samland er þekkt fyrir. Deildarstjóri vörainn-
kaupa er Gísli Gíslason.
Matbær mun reka 15 verslanir um land allt, en
langstærstur hluti veltunnar kemur frá Nettóversl-
ununum tveimur, á Akureyri og í Mjódd, en unnið
er að opnun fleiri slíkra verslana.
Stórmarkaðimir, Úrval, era tveir í upphafi, í
Hrísalundi á Akureyri og á Húsavík. Áherslan í
þessari gerð verslana er á kjötborð, mikið úrval í
matvöra og góða þjónustu. I þessum verslunum er
einnig seldur heitur matur eftir vigt, þar era stór
grænmetistorg, mjólkiutorg og kaffiteríur.
Undir Strax heyra ellefu verslanir, tvær á Akur-
eyri, tvær í Kópavogi auk verslana á Siglufirði, Dal-
vík, Húsavík, í Mývatnssveit, Hrísey, Olafsfirði og
Grímsey. í Strax er lögð áhersla á langan af-
greiðslutíma og hnitmiðað vöraúrval. Reynt er að
samræma þessa hluti eftir föngum milli verslana en
á sumum minni staðanna er afgreiðslutíminn þó
styttri og vöraúrval minna.
Flugeldasala nokkru meiri en áður
Nokkuð um
ólöglegar tívolí-
bombur til sölu
FLUGELDASALA hjá Björgunar-
sveitinni Súlum á Akureyri hefur
gengið vel að sögn formannsins,
Ingimars Eydal, og þótt salan hafi
byrjað degi seinna en í fyrra vora
menn famir að sjá stærri tölur í inn-
komunni en þá.
Ingimar sagði þó að salan væri
með nokkram öðram hætti nú en í
fyrra, þá vora annars vegar Hjálpar-
sveit skáta og hins vegar Flugbjörg-
unarsveitin á Akureyri með flugelda-
sölu en sveitirnar hafa nú verið
sameinaðar undir nafni Súlna.
íþróttafélagið Þór hefur einnig um
nokkurra ára skeið verið með flug-
eldasölu en nú bættist í hóp flugelda-
sala á Akureyri svonefndur Dublin-
armarkaður.
Ingimar sagði að um þriðjungi
meira af flugeldum hefði verið keypt
nú en verið hefur á síðustu áram og
því um umtalsvert meira magn að
ræða. Súlur eru með þrjá flugelda-
markaði í bænum og era þeir allir
jafnstórir.
Meira um ólöglegan varning
Að sögn Ingimars virðist meira en
áður um að ólögleg vara, m.a. tívolí-
bombur, sé í umferð. „Við heyrum
meira um þetta núna en áður og höf-
um fengið mikið af fyrirspumum um
hvort við seljum hólka undir slíkar
bombur,“ sagði Ingimar.
Vildi hann eindregið vara fólk við
að kaupa ólöglegan varning en af
honum getur skapast mikil slysa-
hætta. Dæmi væra þess að bombur
af þessu tagi hefðu sprangið með
skelfilegum afleiðingum.
„Við eram vitanlega mjög óhress
með þetta, sala á þessum ólöglega
vamingi kemur niður á okkar sölu,
en hún er mikilvægasta fjáröflun
björgunarsveitarinnar og við eigum
nánast allt undir að hún takist vel.
Þá er þetta líka slærjit vegna slysa-
hættunnar sem er meiri þegar um
Morgunblaðið/Bjorn Gíslason
Mikill áhugi er á flugeldunum
meðal yngra fólksins á Akur-
eyri. Það er hins vegar óheimilt
að selja þeim flugelda og því
kemur það í hlut þeirra sem
eldri eru.
ólöglega vöru er að ræða,“ sagði
Ingimar.
Lögreglan á Akureyri skoðaði
ábendingar sem henni höfðu borist
þessa efnis í gærdag, en enginn hafði
verið yfirheyrður vegna þess. Hjá
lögreglu fengust þær upplýsingar að
þar á bæ hefðu menn einnig áhyggj-
ur af aukinni slysahættu í kjölfar
þess að mikið er um ólöglegar tívolí-
bombur til sölu fyrir þessi áramót.
Stórfengleg flugeldasýning
Félagar í björgunarsveitinni Súl-
um standa fyrir flugeldasýningu í
kvöld, gamlárskvöld, við áramóta-
brennuna við Réttarhvamm og hefst
hún kl. 21. „Þetta verður flugelda-
sýning aldarinnar, hún verður helm-
ingi stærri en um síðustu áramót,"
sagði Ingimar, en Kaupfélag Eyfirð-
inga stendur straum af kostnaði við
sýninguna.
Vildi Ingimar hvetja sem flesta
sem þess eiga kost að koma gang-
andi á staðinn, þar sem gera má ráð
fyrir mikilli umferð.
Bifreiðastj órar
Hafið bílabænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þig akið.
Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31,
Hljómveri og Shellstöðinni
v/Hörgárbraut, Akureyri, Lida
húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri.
Verð kr. 200.
Orð dagsins, Akureyri
Fegurðin kemur innan frá
Lougavegi 4, sími 551 4473
Morgunblaðið/Bjorn Gíslason
Eins og sjá má er fdlksbíllinn mikið skemmdur eftir áreksturinn.
Fjórir á slysadeild
FJÓRIR vora fluttir á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
eftir harðan árekstur á Hjalteyrar-
götu sem varð laust eftir hádegi í
gær.
Sendibíl var ekið úr suðri til norð-
urs eftir Hjalteyrargötu og kom bíll
úr gagnstæðri átt. Við gatnamótin
hjá Naustatanga niður að Slippstöð-
inni á Akureyri var kyrrstæð bifreið
en þess var beðið að komast yfir
Hjalteyrargötu og inn í Nausta-
tanga. I tilraun til að forða árekstri
við kyrrstæðu bifreiðina reyndi öku-
maður aðvífandi bíls að sveigja frá
henni og lenti þá yfir á röngum veg-
arhelmingi. Við það varð harður
árekstur og hafnaði fólksbíllinn utan
vegar.
Eftir áreksturinn kvörtuðu fjórir,
ökumenn og farþegar, um eymsl í
hálsi og verk í baki og fóru þeir á
slysadeild til aðhlynningar. Eigna-
tjón í árekstrinum var mikið.
Magnús Axelsson, varðstjóri í lög-
reglunni á Akureyri, sagði að mikil
hálka hefði verið á götum bæjarins í
gær og umferð var mjög mikil.
Tveir aðrir árekstrar urðu á Akur-
eyri í gær, nánast á sama tíma, eða
rétt fyrir hádegi. Sá fyrri varð við
gatnamót Hjalteyrargötu og
Tryggvabrautar en þar var forgang-
ur á gatnamótunum ekki virtur með
þeim afleiðingum að tveir bílar
skullu saman. Svipað var upp á ten-
ingnum örfáum mínútum síðar við
gatnamót Glerárgötu, Hörgárbraut-
ar og Dalsbrautar þar sem tveir bílar
lentu í árekstri. Eignatjón varð þó
nokkurt í báðum ákeyrslum, en ekki
slys á fólki.
Leikfélag1
Akureyrar
Jóla-
leikriti
vel tekið
SÝNING Leikfélags Akur-
eyrar á gamanleiknum
„Blessuð jólin“ eftir Arnmund
Backman hefur fengið af-
bragðsviðtökur áhorfenda og
gagnrýnenda. Frumsýning á
verkinu var 17. desember síð-
astliðinn. Þrjár sýningar voru
fyrir jól og svo aftur þrjár nú
milli jóla og nýárs og var
uppselt á þær allar.
Tíu leikarar taka þátt í
þessu fjölskylduverki sem
fjallar um jólastressið á
skemmtilegan og fjörlegan
hátt. Leikstjóri er Hlín Agn-
arsdóttir.
Nú tekur árlegt vetrarfrí
við í leikhúsinu þannig að
næstu sýningar verða 14. og
15. janúar næstkomandi.
Breyting
á skrán-
ingu fyrir
fólk í at-
vinnuleit
BREYTING verður á fyiár-
komulagi skráningar fyrir at-
vinnuleitendur í Hálshreppi,
Ljósavatnshreppi, Bárðdæla-
hreppi og Reykdælahreppi frá
og með þessum áramótum.
Skráning fer nú ekki lengur
fram á skrifstofum oddvita
sveitarfélaganna heldur flyst á
skrifstofu Svæðisvinnumiðlun-
ar Norðurlands eystra að
Skipagötu 14 á Akureyri. At-
vinnuleitendur í umræddum
sveitarfélögum eru því beðnir
um að snúa sér þangað vegna
ski’áningar.
Stefnt að sameiningu Hólmadrangs og UA
Verulegur ávinningur
af samrunanum
STJÓRNIR Útgerðarfélags Akur-
eyringa og Hólmadrangs samþykktu
á sjórnarfundum í gær tillögu um að
leggja til við hluthafa félaganna að
Hólmadrangur hf. verði sameinaður
Útgerðarfélagi Akureyringa hf. frá
og með 1. janúar 2000.
Sameiningin miðast við stöðu fé-
laganna í dag, 31. desember, og
byggist á endurmetnu eigin fé þeirra
í árslok. Skiptahlutföll liggja því ekki
fyrir íyrr en í byrjun febrúar næst-
komandi þegar búið verður að ganga
frá uppgjöri reikninga félaganna fyr-
ir árið 1999. Stefnt er að því að
leggja fram samrunaáætlun um
miðjan febrúar og leggja svo tillögu
um sameiningu þeirra fyrir hluthafa-
fund í báðum félögum fyrir lok mars
á næsta ári.
Ávinningnr fyrir fyrirtækin
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akur-
eyringa, sagði að fljótlega eftir að
forsvarsmenn fyrirtækjanna fóru að
ræða saman í lok nóvember síðast-
liðnum hefðu þeir fundið að fyrir-
tækin tvö ættu vel saman. „Þeir eru
með rækjuvinnslu og við höfðum
töluverðan rækjukvóta og rækjuskip
og sáum þarna ákveðið tækifæri á að
komast inn í rækjuvinnsluna og
stefnum að því að auka veralega af-
kastagetu verksmiðjunnar á Hólma-
vík,“ sagði Guðbrandur.
Hann sagði Hólmadrang hafa stól-
að mikið á innfjarðaiTækju, en nú
væri enginn slíkur kvóti fyrir hendi
og vissulega hefði það verið nokkuð
áfall fyrir fyrirtækið. „Það er því
ljóst að sú rækja sem við komum
með inn í reksturinn mun styrkja at-
vinnulífið á staðnum. Á móti koma
þeir með veralegar aflaheimildir
þannig að þetta virkar í báðar áttir.
Fyrirtækin hafa þannig bæði veru-
legan ávinning af samrananum,"
sagði Guðbrandur.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
gerir út þrjú frystiskip: Sléttbak,
Svalbak og Rauðanúp; þrjú ísfisk-
skip: Kaldbak, Harðbak og Árbak og
uppsjávarskipið Amarnúp. Þá rekur
félagið þrjár verksmiðjur í landi: á
Akureyri, Grenivík og Raufarhöfn.
Hólmadrangur hf. gerir út frysti-
togarann Hólmadrang og togbátinn
Ásdísi, sem aðallega hefur stundað
veiðai’ á innfjarðarrækju. Þá rekur
félagið rækjuverksmiðju á Hólmavík
og saltfiskvinnslu á Drangsnesi, en
stefnt er að því að heimamenn taki
við saltfiskvinnslunni innan tíðar.
Veltan áætluð um 6 milljarðar
Velta Hólmadrangs hf. nam 720
milljónum króna árið 1998 og 357
milljönum króna íýrstu 6 mánuði yf-
irstandandi árs. Félagið var rekið
með 61 milljónar króna tapi árið
1998 en hagnaður þess eftir fyrstu 6
mánuði yfirstandandi árs nam 4
milljónum króna.
Aflaheimildir Hólmadrangs hf.
nema 2.260 þorskígildistonnum; þar
af er þorskur 1.120 tonn, úthafs-
rækja 440 tonn, rækja á Flæmingja-
granni 313 tonn og grálúða 183 tonn.
Fyrirhugaður samrani styrkir
sameinað félag veralega og er áætl-
að að velta þess verði um 6 milljarðar
króna árið 2000. Sameinað félag hef-
ur yfir að ráða um 6% aflahlutdeild í
úthafsrækju og 7,1% aflahlutdeild í
rækju á Flæmingjagrunni, sem
styrkir rekstur rækjuvinnslunnar á
Hólmavík verulega frá því sem verið
hefur.
nmmm