Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Viðskipti með hlutabréf innan Verðbréfaþings og utan á árinu
ÁVÖXTUN FYRIRT/EKJA Á VERÐBRÉFAÞINGI 1999
Marel hækkaði um 219,7%
HLUTABRÉF í Marel hf. hækk-
uðu mest allra félaga á Verðbréfa-
þingi íslands á árinu 1999 eða um
219,7%. Lokagengi bréfa í Marel á
síðasta viðskiptadegi Verðbréfa-
þings Islands á árinu var 44,6 en
var 13,95 á síðasta viðskiptadegi í
fyrra. Marel sýndi neikvæða ávöxt-
un um 23% á árinu 1998 en árið
1997 hækkaði það næstmest allra
félaganna.
Viðskipti með hlutabréf Marels á
Verðbréfaþingi íslands námu 2
milljörðum á árinu en utanþingsvið-
skipti með bréf félagsins námu
1.580 milljónum. I gær voru 19 við-
skipti með hlutabréf Marels fyrir
rúmar 25 milljónir en gengið lækk-
aði lítillega eða um 0,2%.
Heildarviðskipti með bankana á
árinu 26 milljarðar króna
Markaðsverðmæti einstakra fé-
laga á Aðallista VÞÍ er allt frá 798,2
milljónum Tanga hf. yfir í Eimskip
sem er metið á 41,2 milljarða.
Markaðsverðmæti Landsbanka Is-
lands er 29,6 milljarðar og FBA
24,5 milljarðar. Islandsbanki er
metinn á 21,9 milljarða og Búnaðar-
bankinn á 20,7 milljarða. Samanlagt
markaðsverðmæti bankanna fjög-
urra er því tæpir 97 milljarðar
króna. Viðskipti á VÞI með hluta-
bréf í bönkunum námu um 10,7
milljörðum á árinu og utanþingsvið-
skipti námu 15,3 milljörðum. Heild-
arviðskipti með bankana á árinu
1999 voru því fyrir um 26 milljarða
króna.
Af 45 félögum
lækka 8
Aðrir hástökkvarar ársins á Aðal-
lista VÞÍ sem á eru skráð 45 félög,
voru Skýrr hf. sem hækkaði um
117,1% á árinu, Sæplast hækkaði
um 95,9%, Nýherji um 95,5% og
Landsbanki íslands um 94%.
SR-mjöl hf. lækkaði mest allra
fyrirtækja á Aðallista eða um 31,3%
á árinu. Hlutabréf SR-mjöls lækk-
uðu einnig á árinu 1998. Alls lækk-
uðu hlutabréf 8 félaga á Aðallista á
árinu, hlutabréf hinna 37 hækkuðu.
Hlutabréf í Fiskiðjusamlagi Húsa-
víkur lækkuðu um 25% á árinu og
Hraðfrystihúss Eskifjarðar um
25,8%.
Meiri velta með hlutabréf á
VÞÍ en áður samanlagt
A árinu námu viðskipti með
hlutabréf á VÞÍ alls 40,08 milljörð-
um króna en á síðasta ári var heild-
arveltan 12,7 milljarðar og er aukn-
ingin 215%. Veltan á árinu er meiri
en samanlögð velta hlutabréfa á
VÞÍ frá upphafi. Utanþingsvið-
skipti með bréf félaga á Aðallista á
árinu 1999 voru tæplega tvöföld við-
skiptin á VÞÍ eða 74,74 milljarðar.
Mest viðskipti á VÞI á árinu voru
með bréf Islandsbanka fyrir 4,8
milljarða, bréf FBA fyrir 3,5 millj-
arða og bréf Eimskipafélags ís-
lands fyrir 3,3 milljarða. Mest utan-
þingsviðskipti voru með bréf FBA
fyrir 8,36 milljarða, bréf Útgerðar-
félags Akureyringa fyrir 6,3 millj-
arða, Samherja fyrir 4,87 milljarða
og íslandsbanka fyrir 4,5 milljarða.
Annar stærsti viðskiptadagur
með hlutabréf frá upphafi
Úrvalsvísitala Aðallista hækkaði
um 46,36% á árinu og er nú 1.618,
36 stig sem er met. Viðskipti með
hlutabréf á þinginu í gær voru fyrir
620 milljónir króna og er dagurinn
sá annar stærsti með hlutabréf frá
upphafi en 18. ágúst sl. urðu við-
skipti fyrir 679 milljónir króna.
Mest viðskipti í gær urðu með
hlutabréf Búnaðarbankans fyrir 80
milljónir, Flugleiða fyrir 61 milljón
og FBA fyrir 50 milljónir. Utan-
þingsviðskipti með hlutabréf í gær
voru fyrir 914,2 milljónir. Heildar-
viðskipti með hlutabréf í gær voru
því fyrir rúman einn og hálfan millj-
arð.
21,3 milljarða
halli á vöru-
skiptum
FYRSTU ellefu mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 133,5 milljarða
króna en inn fyrir 154,8 milljarða.
Halli á vöruskiptum við útlönd nam
því 21,3 milljörðum króna en á sama
tíma í fyrra voru þau óhagstæð um
26,4 milljarða króna á föstu gengi.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því 5,1
milljarði betri á föstu gengi fyrstu
11 mánuði þessa árs en á sama tíma
árið áður.
í frétt frá Hagstofu íslands kem-
ur fram að í nóvembermánuði voru
fluttar út vörur fyrir 14,8 milljarða
króna og inn fyrir 14,5 milljarða.
Vöruskiptin í nóvember voru því
hagstæð um 300 milljónir en í nóv-
ember í fyrra voru þau óhagstæð um
3,6 milljarða á föstu gengi.
Verðmæti útfluttra sjávar-
afurða 2% minna í ár
Heildarverðmæti vöruútflutnings
var 8,5% meira á föstu gengi en á
sama tímabili í fyrra. Sjávarafurðir
voru 67% alls útflutnings þetta tíma-
bil og var verðmæti þeirra 2%
minna en á sama tíma í fyrra. Verð-
mæti útflutnings á frystum ílökum
jókst um 10% og ferskfiskútflutn-
ings um 31,4%. Aftur á móti dróst
verðmæti lýsisútflutnings saman
um 50,4% og fiskimjöls um 27,5%.
Verðmæti frystrar rækju dróst
saman um 13,6%.
Iðnaðarvörur voru 25% alls út-
flutnings og var verðmæti þeirra
23% meira en á sama tíma árið áður.
Verðmæti álútflutnings jókst um \
27,8% en verðmæti kísiljárns dróst I
saman um 3,1%. Verðmæti annarra
iðnaðarvara jókst um 21,7%.
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ings fyrstu ellefu mánuði ársins var
3,6% meira á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Mikil aukning var á
innflutningi á flutningatækjum á
tímabilinu og nam innflutningur
þeirra 18% alls innflutnings en verð- ,
mæti þeirra var 16% meira en árið á
undan.
Neysluvörur, aðrar en mat- og f
drykkjarvörur, námu 19% alls inn-
flutnings og var verðmæti þeirra
11% meira en á sama tímabili 1998
og vó verðmæti þeirra 23% af
heildarinnflutningi janúar-nóvem-
ber 1999.
VÖRUSKIPTIN^: ^ VIÐ ÚTLÖNDH Verðmæti innflutnings og útflutnings V ^ - jan. - nÓV. 1998 Og 1999 1998 1999 Breytingá (fob virði í milljónum króna) jan.-nóv. jan.-nóv. föstu gengi*
Útfiutningur alls (fob) 122.856,7 133.520,5 +8,5%
Sjávarafurðir 91.630,3 89.966,3 -2,0%
Landbúnaðarafurðir 1.769,3 1.951,5 +10,1%
Iðnaðarvörur 27.704,6 34.034,9 +22,7%
Ál 16.271,9 20.822,6 +27,8%
Kísiljárn 2.899,1 2.814,7 -3,1%
Aðrar vörur 1.752,5 7.567,8 -
Skip og flugvélar 328,5 6.098,1 -
Innflutningur alls (fob) 149.209,4 154.839,4 +3,6%
Matvörur og drykkjarvörur 12.820,4 14.127,3 +10,0%
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 38.802,1 35.660,3 -8,2%
Óunnar 2.417,8 1.320,5 -45,5%
Unnar 36.384,2 34.339,7 -5,8%
Eldsneyti og smurolíur 7.738,6 8.390,3 +8,3%
Óunnið eldsneyti 319,5 227,9 -28,8%
Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 1.580,2 1.724,8 +9,0%
Annað unnið eldsn. og smurolíur 5.838,9 6.437,7 +10,1%
Fjárfestingarvörur 38.389,4 38.344,8 -0,3%
Flutningatæki 24.114,3 28.031,0 +16,1%
Fólksbílar 10.287,7 12.565,7 +22,0%
Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv.) 2.838,7 3.384,5 +19,0%
Skip 3.824,7 4.537,5 +18,5%
Flugvélar 3.502,5 3.403,4 -3,0%
Neysluvörur ót.a. 27.076,7 30.074,1 +10,9%
Vörur ót.a. (t.d endursendar vörur) 268,0 211,6 -21,1%
Vöruskiptajöfnuður -26.352,8 -21.318,9 -
' Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris
í janúar-nóvember 1999 0,2% hærra en árið áður. Heimild: HAGSTOFA ÍSLANDS
Velta á Verðbréfáþingi íslands 1998-99
Upphæðir í
milljörðum kr.
1998
Húsbréf 72,5
Hlutabréf_________________________12,7
Ríkisvíxlar_______________________63,3
Bankayíxlar 68,4
Spariskirteim 50,3
Húsnæðisbréf______________________11,3
Önnur langt. skuldabréf 11,8
Ríkisbréf 10,8
SAMTALS 301,1
1999
75,2
40.1
22,8
21,0
16.2
13,9
10,4
Breyting
+3,7%
-215,2%
-64,0%'
-69,2%
..-67,8%
+22,5%
-11,4%
9,1
208,6
-16,2%
-30,7%
mmw