Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999
ERLENT
'MORGUNBL'AÐIÐ
EgyptAir-flugslysið
Megnið af
flakinu
endurheimt
Providence í Bandarikjunum. AP.
BJÖRGUNARMENN hafa endur-
heimt um það bil 70% flaksins af
flugvél egypska flugfélagsins sem
fórst úti fyrir austurströnd Banda-
ríkjanna í lok október sl. Þá er
kominn í leitirnar sá af tveim
hreyflum vélarinnar sem ófundinn
var. Bandaríska samgönguöi’yggis-
ráðið greindi frá þessu.
Formaður ráðsins, James Hall,
sagði að í næstu viku verði flakið
rannsakað ítarlega og ákveðið
hvort þörf sé á að lyfta hreyflinum
af hafsbotni og endurheimta meira
af flakinu. Ráðist þetta af því,
hvort útlit sé fyrir að frekari end-
urheimt veiti meiri upplýsingar en
fengist hafa nú þegar af flugritum
vélarinnar.
Notaður var kafbátur, sem tók
myndir af hafsbotninum, til að
finna seinni hreyfilinn. Á myndun-
um mátti sjá skemmdir sem benda
til þess að hreyfillinn hafi gengið
lítið sem ekkert þegar vélin skall í
hafið. Þykir þetta renna stoðum
undir þær upplýsingar sem fengust
úr flugrita um að slökkt hafi verið
á hreyflunum þegar vélin fórst.
Vélin var af gerðinni Boeing 767
og fórst 31. október skömmu eftir
flugtak í New York. Ailir 217 um
borð fórust. Hall sagði að rannsókn
á orsökum slyssins hefði ekki leitt
neitt afdráttarlaust í ljós.
Finnar
hamstrajoð
Hclsinki. Reuters.
SALA á joðtöflum í Finnlandi
hefur slegið öll met í þessari
viku að sögn vegna ótta Finna
við bilanir í rússneskum
kjarnorkuverum um áramótin.
í mörgum lyfjaverslunum í
landinu eru joðtöflur uppseld-
ar. Joð vinnur gegn áhrifum
geislavirkni á mannslíkamann.
Finnar eru sagðir hafa
áhyggjm- af því að ekki sé
nægilega tryggt að búnaður
rússneskra kjarnorkuvera sé
öruggur fyrir 2000-vandanum.
Eitt rússneskt kjarnorkuver,
Sosnovy Bor, liggur í aðeins
230 kílómetra fjarlægð frá
Helsinki og annað, sem stað-
sett er á Kólaskaga, er í ein-
ungis 100 kílómetra fjarlægð
frá finnsku landamærunum.
Los Angeles. Reuters.
EF þér finnst fötin þín frábær,
biddu þá bara þangað til þau fara
að lesa tölvupóstinn þinn upphátt á
frönsku í stórverslunum - og jakk-
inn þinn roðnar og roðnar eftir því
sem þér rennur í skap vegna þess
hvað röðin á hraðkassanum er
hægfara.
Það er erfitt að ímynda sér
hvernig það verður að sveifla erm-
inni yfir skynjara og borga þannig
fyrir allt sem maður keypti í ný-
lenduvöruversluninni. Og ef ein-
hver tekur jakkann manns og
hleypur í burtu með hann, og stelur
þar með DNA-uppIýsingunum um
mann og öllum upplýsingum um
bankaviðskipti manns, þá er jakk-
inn forritaður þannig að hann kall-
ar hátt og snjallt: „Stöðvið þjófinn!"
Það er ekki það versta að glata
DNA-uppIýsingunum, því þær er
auðvelt að fá aftur. Hitt er verra að
þjófurinn er farinn með jakka sem
einnig veitir nudd og skammtar
geðjöfnunarlýf á ákveðnum tímum,
þannig að hætta er á að geðið fari
að sveiflast.
Aðstoðarföt
Vísindamenn scgja að þess sé
ekki langt að bíða að tölvur verði
svo litlar að hægt verði að setja
þær í fataefni þannig að fötin
manns verði ekki bara til skjóls
heldur beinlínis til aðstoðar. Þá
mun kvikna ljós á einkennisbúning-
Reuters.
Flest bendir til, að stjórnarandstaðan í Króatíu muni bera sigurorð af stjórnarflokknum í kosningunum á mánu-
dag. „Kjósum og sigrum“ stendur á blöðrunni, sem konan er með en hún tók þátt í mótmæluin í höfuðborginni,
Zagreb, í fyrradag.
Mikilvægar kosningar í Króatíu á mánudag
Þjóðernishyg'gja eða
vestræn aðlöarun
Zagreb. Reuters, AFP. ^ ^
Ákæra
íhuguð eftir
snjóflóð
SAKSÓKNARAEMBÆTTIÐ í
Innsbruck í Austurríki hefur
fyrirskipað rannsókn á því
hvort grundvöllur sé fyrir
ákæru í kjölfar þess að níu
manns létust í snjóflóði nálægt
bænum Galtur á þriðjudag.
Beinist rannsóknin að ábyrgð
og ákvörðunum þriggja leið-
sögumanna sem fóru fyrir hópi
tíu þýskra ferðamanna. Níu
þeiira fórust í snjóflóðinu. Að
sögn yfirvalda hélt fólkið, sem
var sumt óvant skíðum, upp í
ferðina þótt varað hefði verið
við snjóflóðahættu á svæðinu.
Dregur úr at-
vinnuleysi í
Frakklandi
ATVINNULEYSI í Frakklandi
mældist 10,8% í nóvembermán-
uði og er það í fyrsta skipti síðan
um mitt ár í fyrra að það fer nið-
ur fýrir 11%. Alls voru 2,6 mil-
ljónir Frakka í atvinnuleit í nó-
vember og hafði þeim fækkað
um rúm 44 þúsund frá því mán-
uðinn á undan. Aukin framleiðni
ÞINGKOSNINGAR verða í Króatíu
á mánudag og stendur slagurinn fyrst
og fremst á milli stjómarflokksins,
sem stýrt hefur landinu í áratug með
öfgafulla þjóðernishyggju að leiðar-
ljósi, og stjómarandstöðu vinstri-
manna, sem heita auknu lýðræði og
nánari tengslum við Evrópu. Eftir
rúmar þijár vikur munu landsmenn
síðan ákveða hver verður eftirmaður
Franjo Tudjmans á forsetastóli, en
hann lést fyrr í þessum mánuði.
Haft er eftir vestrænum sendi-
mönnum, að í þessum tvennum kosn-
ingum fái Króatar sögulegt tækifæri
til að marka nýja stefnu og hasla sér
völl meðal vestrænna lýðræðisþjóða.
Samkvæmt skoðanakönnunum hefur
bandalag jafnaðarmanna, áður
kommúnista, og frjálslyndra, nokkurt
forskot á Króatíska lýðræðisbanda-
lagið, stjómarflokkinn í landinu, en
mun þó þurfa stuðning annars banda-
lags fjögurra stjómarandstöðuflokka
til að geta myndað stjóm að kosning-
um loknum.
Króötum hefur ekki verið boðið að
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu og er ástæðan sú, að stjómvöld
hafa ekki viljað hafa samvinnu við
stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóð-
anna og ekki viljað ábyrgjast almenn
mannréttindi, réttindi minnihluta-
hópa og tjáningarfrelsi. Stjóma-
randstaðan hefur gefið í skyn, að hún
muni snúa við blaðinu að þessu leyti,
en það kann þó að reynast erfitt því
að til að breyta stjómarskránni þarf
aukinn meirihluta, tvo þriðju at-
kvæða, á þingi.
Heiðarlegar kosningar?
Stjómarflokkurinn hefur heitið að
tryggja heiðarlegar kosningar en
margir gmna hann um græsku og
óttast, að hann sé reiðubúinn að falsa
úrslitin, t.d. með því að eiga við tölv-
urnar. Vakni grunsemdir um það að
kosningum loknum, mun Króatía ein-
angrast enn frekar frá samfélagi
þjóðanna.
Stjómarflokkurinn ræður ríkis-
sjónvarpinu og -útvarpinu og notar
það sem áróðurstæki. Langt er í frá,
A nýrri þúsöld
munu fötin tala og
hreinsa sig sjálf
um lögreglumanna, skyrtur skipta
litum eftir því í hvemig skapi mað-
ur er, kjólar lesa tölvupóstinn fyrir
mann og náttfötin rugga manni í
svefn.
Þetta eru ekki eins fjarlægir
möguleikar og manni kann að virð-
ast, segja vísindamennimir Maggie
Orth og Rehmi Post, sem starfa við
Massachusetts-tæknistofnunina
(MIT) í Bandaríkjunum. Þau hafa
fundið upp lyklaborð úr klæði, sem
gerir mögulegt að spila tónlist á
skyrtur, skrifa niður minnisatriði
og skoða tölvupóst. Orth sagði að
innan fimm ára yrðu svona klæði
fáanleg á almennum markaði.
Smám saman muni svo raddstýr-
ing og frekari þróun þráðlausrar
tækni gera lyklaborð á fötunum
óþörf. Verið er að þróa klæði
blönduð efnum á borð við keramík,
gler, kolefni og plast, og föt úr slík-
um blöndum munu meðal annars
geta skammtað manni lyf sem ber-
ast inn í líkamann gegnum húðina.
Þá er ennfremur verið að þróa
Vísir að því sem koma skal: Sýn-
ingarstúlka útbúin mittistölvu
með lyklaborði, skjá og þráð-
lausu mótaldi.
að flokkunum sé öllum gert jafn hátt
undir höfði eins og vera ber og fyrir
skömmu var bannað að sýna mynd-
band með rokkhljómsveit, sem gerði
þó ekki annað en að hvetja ungt fólk
til að kjósa. Þess í stað var sýnd mynd
um fjöldamorð kommúnista á Króöt-
um eftir síðara stríð. Var þar augljós-
lega verið að vísa til þess, að margir
stuðningsmenn jaíhaðarmanna voru
áður kommúnistar.
Stefna stjómarflokksins og
stjómarandstöðunnar eru líkar á
pappímum: Lög og regla, barátta
gegn spillingu, aukin atvinna og nán-
ari tengsl við vestræn ríki. Stjómar-
flokkurinn virðist þó kunna fáar skýr-
ingar á því hvers vegna landið er
einangrað og efnahagsmálin í kalda-
koli. Samkvæmt opinberum tölum
em meira en 20% vinnufærra manna
ánatvinnu.
I Króatíu búa 4,5 milljónir manna,
þar af 3,7 millj. Króata, 580.000 Serb-
ar, 43.500 múslimar og 113.000
manns af ýmsu öðm þjóðemi. Er
landið rúmlega 56.000 ferkm.
klæði sem hitnar eða kólnar eftir
því hvernig líkamshitinn er.
Auk þessa mun svonefnd sam-
eindananótækni leiða til fram-
leiðslu nýs klæðis sem tölvur eru
samofnar, að sögn Davids Forrests,
verkfræðings hjá fyrirtækinu Bav-
erstam Associates. Segir hann
mögulegt að þetta verði orðið að
veruleika innan 20 ára.
Gera við sig sjálf
Föt úr svona efni gætu bókstaf-
lega hreinsað sig sjálf með því að
færa stöðugt óhreinindi út til jaðr-
anna með svipuðum hætti og bifhár
halda lungunum hreinum. Þá væri
mögulegt að svona föt gætu gert
við sig sjálf.
„Það væri hægt að koma fyrir
litlum skynjurum sem myndu taka
eftir því ef einhvers staðar rifnaði
og senda þá örsmáar viðgerðarvél-
ar á vettvang," sagði Forrest.
„Þetta væri eins og að fara í nýja
flík á fimmtán minútna fresti og
endurvinnsla yrði algerlega óþörf.“
Þá telur Forrest að nanótækni
muni gera fólki kleift að endurnýja
húðina á sér með auðveldari hætti
og halda þannig unglegu útliti. Þá
muni lýtalæknar heyra sögunni til
- nema þeim takist að fullkomna
það sem þeir eru nú að vinna að,
helgarandlitslyftingu þar sem gert
er við slaka vöðva, fitupokar fjar-
lægðir og strekkt á húðinni, allt án
skurðaðgerða.
hefur haft jákvæð áhrif á fjölda
starfa og er þetta meðbyr fyrir
vinstristjómina sem sagði at-
vinnumálin eitt af forgangsmál-
unum. Christian Sautter, fjár-
málaráðherra Frakka, segir að
sterk staða í efnahagsmálum
muni hjálpa til við að ná hlutfalli
atvinnulausra niður fyrir 10% í
lok næsta árs. Hann segir tjónið
sem óveðrið olli ekki breyta þar
neinu um, þótt of snemmt sé að
meta heildarskaðann.
Skotland
þegar tapað
SKOTLAND verður orðið sjálf-
stætt ríki innan tíu ára að mati
John Majors, íyrrverandi for-
sætisráðherra Breta, og segir
hann það vera stærstu mistök
ríkisstjómar Verkamanna-
flokksins. í grein sem Major
skrifaði í The Spectator segir
hann aðeins visku eða heppni
geta bjargað sambandi Skota og
Englendinga. Verkamanna-
flokkurinn hafi litið fram hjá öll-
um hættumerkjum varðandi
sjálfstæði Skotlands. Verka-
mannaflokkurinn hefur jafnan
haldið því fram að myndun
skosks þjóðarþings styrki sam-
band Englands og Skotlands
því það dragi úr þrýstingi að-
skilnaðarsinna.
Guinness-
gátan leyst
LEYNDARDÓMURINN um
loftbóluílæði Guinness-bjórsins
sem hefur ásótt ráðvillta
knæpugesti ámm saman var
nýlega leystur af áströlskum
vísindamönnum. Eftii' að hafa
starað lengi á bjórglas á knæpu
og eins á eftirlíkingu bjórglass á
tölvuskjá telja vísindamennirnir
sig nú skilja hvers vegna loft-
bólur í Guinness-bjór virðast
sökkva til botns í stað þess að
fljóta upp á við líkt og búast má
við.
Vísindamennirnir segja sann-
leikann þann að stórar loftbólur
leiti upp á við í miðju glassins á
meðan minni loftbólur við glas-
brúnirnar dragist niður á við.
Dökkur litur drykkjarins komi
hins vegar í veg fyrir að hægt sé
að fylgjast með hvað gerist í
miðjunni.
«
I
I
I