Morgunblaðið - 31.12.1999, Síða 39
MORGtíNB LAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 39
Jörðin á börnin
Á fjöllum
uppi
BÆKUR
Nállúriifræðirit
ÞAR SEM LANDIÐ RÍS
HÆST
eftir Snævarr Guðmundsson. 183
bls. Utgefandi er Mál og menning,
1999.
MIKLIR atburðir hafa gerzt á
svæðinu á milli Skeiðarár og Breiða-
merkursands í aldanna rás, en þar
búa menn í meira návígi við eld og ís
en annars staðar. Byggðin hefur
enda heitið mörgum nöfnum, eins og
Ingólfshöfðahverfi og Breiðármörk,
Hérað, Hérað á milli sanda, Litla-
hérað (Minna-hérað) og Öræfi, en í
bók þessari er hún nefnd Öræfasveit.
Saga héraðsins er þekkt í stórum
dráttum og henni hafa oftsinnis verið
gerð skil í máli og myndum. Seint
munu þó öll kurl til grafar koma, því
að enn er margt á huldu um byggða;
sögu, landslag og búskaparhætti. í
Öræfum hafa orðið stórkostlegri
breytingar en í flestum öðrum
byggðum, eins og að þar sem nú er
sandur og auðn, var áður skógur eins
og Breiðármörk gefur til kynna.
Fjöll og jöklar í Öræfum eru af
ýmsum stærðum og gerðum, og þar
er kjörinn staður til þess að stunda
göngur og klifur jafnt við hæfi byrj-
enda sem þrautreyndra. Ekki er
ósennilegt, að þar muni brátt rísa
miðstöð fjallamanna, þar sem lögð
verður áherzla á ferðalög, sem krefj-
ast hugrekkis og atorku. Þessi grein
útivistar hefur vaxið mjög hin síðari
ár og eiga ekki lengur við orð Kára
um Skarphéðin, þegar hann hljóp á
milli höfuðísa á Markarfljóti, karl-
mannlega er að farið, því að kvenfólk
lætur ekki sitt eftir liggja. Með nú-
tíma búnaði eru nær engir staðir
lengur ókleifir en kunnáttuleysi í
meðferð hans getur orðið dýrkeypt
hættuspil. Því þarf að búa vel að
þessari grein íþrótta.
I bókinni Þar sem landið rís hæst
er sagt frá fræknum ferðum á flesta
tinda í Öræfum en þar er einnig vikið
að ýmsu markverðu, sem hefur ekki
komið fram áður. Fyrst er skyggnzt
um í byggðinni og á nálægum fjöll-
um, vísað á forvitnilegar gönguleiðir
í grennd við alfaravegi og lítillega
vikið að lífríki og jarðmyndunum. í
annan stað er mjög ítarlega fjallað
um Öræfajökul. Sagt er frá þjóðtrú,
smalamennsku og gönguferðum í
fjalllendi Öræfajökuls, lýst er ferð-
um á jökulinn bæði að fomu og nýju
og ýmsum athugunum, sem fram
hafa farið þar. Að lokum er svo fjall-
að um fyrstu ferðir á hæstu tinda í
Öræfum og getið um allan búnað,
sem er nauðsynlegur í slíka för.
Sjálfsagt þykir mörgum, sem
fjallaklifur stunda, fengur að lýsing-
um á hinum ýmsu leiðum og hvaða
tindar hafa verið klifnir. Ekki er þó
lakara, að höfundur hefur viðað að
sér gömlum fróðleik og rekur í skýru
máli sögu margra fjallagarpa og
ferða þeirra. Til nýlundu má telja, að
hann færir gild rök fyrir því, að það
var enskur ferðamaður, F.W.W.
Howell að nafni, sem fyi’stur gekk á
Hvannadalshnúk 17. ágúst 1891
ásamt tveimur vöskum Öræfingum,
Páli Jónssyni og Þorláki Þorláks-
syni. Þá er saga um fyrstu landmæl-
ingar á Öræfajökli og fjöllunum í
kring einkar áhugaverð. Það hefur
ekki verið heiglum hent að ferðast
um fjalllendi á þeim árum, en þá var
búnaður til slíkra ferða mun verri en
hann er nú. Á seinni árum hafa menn
einnig komizt í hann krappann, þrátt
fyrir nýjustu tækni, því að veður eru
válynd á jöklum. Sagt er frá nokkr-
um slíkum viðburðum í bókinni.
Allmargar myndir og kort eru til
leiðsagnar. Augljóst er, að alúð hefur
verið lögð í að semja skilmerkilega
texta með þeim og er slíkt til fyrir-
myndar. Flestar myndir hefur höf-
undur tekið og er hann sýnilega
slyngur ljósmyndari. Á hinn bóginn
er litgreining ekki sem skyldi; meðal
annars er blái liturinn of sterkur og
myndir nokkuð harðar. Þá njóta
sumar myndanna sín alls ekki, því að
þær eru hafðar út við blaðrönd. Að
öðru.leyti er hönnun góð, þó að lítils
háttar ruglingur hafi orðið á letri
fyrirsagna miðað við efnisyfirlit (sjá
m.a. bls. 64 og 129). Prentvillur og
missagnir eru fáar.
Höfundur bókarinnar er greini-
lega þrautreyndur göngu- og jökla-
maður, en ekki síður athugull ferða-
maður, góður stílisti og fræðimaður.
Bókin er rituð á góðu og látlausu
máli, svo að lýsingar eru allar gagn-
orðar og greinagóðar.
Víða hefur verið leitað fanga og er
alls staðar vitnað í heimildir. Bókin
er því ipjög góð heimild um fjalla-
ferðir í Óræfum, og má höfundur
vera stoltur af verki sínu.
Ágúst H. Bjarnason
Reuters
Listrænir
legsteinar
FRAKKINN Pierre Aubert geng-
ur fram hjá fígtíru sem flatmagar
á Iegsteini í Montparnasse-
kirkjugarðinum í París. Um er að
ræða listaverk eftir Jacques
nokkurn Devilliers en Aubert fer
fyrir sveit myndlistarmanna sem
tekur að sér að hanna legsteina á
listrænum forsendum í þeim til-
gangi að „hressa upp á“ kirkju-
garða. Hann á nú í samn-
ingaviðræðum við umsvifamesta
títfararstjdra Frakklands um það
að sá síðarnefndi hafi milligöngu
um að leiða saman syrgjandi ætt-
ingja og einhvern þeirra þrjú
hundruð listamanna sem Aubert
hefur á sínum snærum.
BÆKUR
Skáldsaga
SÍMON OG EIKURNAR
Höf: Marianne Fredriksson. Þýð:
Sigrtín Ástríður Eiríksdóttir. 404
bls. Vaka-Helgafell. Prentun: Oddi
hf. Reykjavík, 1999.
SÍMON og eikurnar er þroska-
saga drengs. Hann er sonur
sænskrar stúlku og þýsks tónlist-
arkennara af gyðingaættum en elst
upp hjá kjörforeldrum og kemst
ekki að raun um uppruna sinn fyrr
en síðar. Eigi að síður finnur hann
snemma að hann muni vera öðru-
vísi en aðrir, dökkur á brún og brá,
ekki ljós eins og flestir Svíar.
Sagan hefst í þann mund er
seinni heimsstyrjöldin er að hefj-
ast. Heimurinn er á hverfanda
hveli og mikill hiti í pólitíkinni.
Kjörforeldrar drengsins, Símonar,
eru sósíalistar, hafa samúð með
málstað Sovétríkjanna og þurfa að
réttlæta fyrir sér samning þeirra
við Þjóðverja og vetrarstríðið gegn
Finnum. Um haustið 1939 ráðast
Þjóðveijar inn í Pólland, heims-
styrjöldin er hafin. Vorið 1940
hernema Þjóðverjar Danmörku og
Noreg. Hættan nálgast. í skólan-
um bindur Símon vináttu við dreng
sem er af gyðingaættum. Framan
af stríðinu lifðu gyðingar í Svíþjóð
í stöðugum ótta vegna þýskrar inn-
rásar sem gat verið yfirvofandi.
Kjörforeldrar Símonar eru hrædd-
ir um drenginn sinn. En Svíar
sluppu. Stríðið geisaði. Stríðinu
lauk. Og drengurinn hélt áfram að
þroskast og vaxa. Honum gekk vel
í skólanum. Og það gladdi kjörfor-
eldra hans. Áfstaða þeirra til
skólanáms - blandin ótta, tor-
tryggni og öfund en einnig dálitlu
stolti - mótaðist af uppruna þeirra,
stétt og stöðu.
Þótt saga þessi sé skáldskapur
og engan veginn sagnfræðileg eru
ártölin og tímasetningin hvergi
óþörf. Svo mjög mótuðu pólitískar
skoðanir - að ekki sé talað um
heimsstyrjöldina sem geisaði allt
um kring - daglegt líf á fyrri hluta
aldarinnar að mikið vantaði ef
horft væri framhjá þeim. Stjórn-
málin urðu ekki aðeins hluti lífs-
reynslunnar. Þau náðu allt að
innstu kviku tilfinningalífsins.
Maður leit á rás viðburðanna í ljósi
þeirrar pólitísku skoðunar sem
hann hafði kjörið sér. Sænskt þjóð-
félag var lengi vel staðnað, stétta-
skiptingin fastmótuð eins og nátt-
úrulögmálin og sérhver viti borinn
einstaklingur meðvitaður um stöðu
sína. Minnisstæð er t.d. frásögnin
af því er Símoni, sem elst upp í
lágstéttarfjölskyldu, er boðið til
kvöldverðar hjá vini sínum sem er
af efnaðra standi. Hann einsetur
sér að taka eftir hvernig aðrir fari
að. Og gera bara eins!
Styrkur sögu þessarar liggur að
meginhluta í stílnum. Hann er svo
fullur af þversagnakenndum húm-
or og frjálslegum staðhæfingum
sem bregða ljósi yfir fólk og at-
burði en lesandinn verður eigi að
síður að taka með hæfilegum fyrir-
vara. Sagan minnir á að lífið sé
sjaldnast rökrétt; miklu fremur
mótsagnakennt og tilviljunum háð.
Maður ræður því ekki sjálfur hvar
né hvernig honum er skotið inn í
heiminn. Börnin, sem fæðast, eru
ýmist velkomin eða óvelkomin.
Stundum vill enginn eiga þau.
„Jörðin á börnin," segir á einum
stað. Ömmur Símonar voru að slig-
ast undan stanslausum barneign-
um. Kjörforeldrar hans áttu ekk-
ert barn. Stutt samtal jafnaldra í
skólanum verður upphaf að varan-
legri vináttu. Eftir stríð, sem hristi
upp í hefðunum, er sýnt að þjóðfé-
lagið muni smásaman taka að
mjakast upp úr sínu þrönga fari.
Skáldsagan Símon og eikurnar
er prýðilega þýdd. Prentun og
annað sem við kemur ytra útliti er
einnig með ágætum.
Erlendur Jónsson
mUm
■? 3S8 í
Námskeið hjá Yoga Studio í janúar
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 11. janúar - þri. og fim. ki. 20.00
4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar fyrir þá
sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum
miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið
frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Yoga - breyttur lífsstíll með Daníel Bergmann
hefst 10. janúar - mán. og mið. kl. 20.00
4ra vikna grunnnámskeið fyrir þá, sem eru að taka sín fyrstu skref í jóga.
Námskeið fyrir fólk á öllum aldri sem vilja læra eitthvað nýtt til að vinna gegn
spennu. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Á námskeiðum hjá Yoga Studio eru eftirfarandi þættir teknir fyrir:
* jógaleikfimi (asana) ★ öndun * slökun ★ mataræði og lífsstíll
★ andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heiisu.
Jóga gegn kvíða er yfirgripsmeira heldur en Yoga - breyttur iífsstíll.
Frír aðgangur að opnum jógatímum og saunu fylgir námskeiðunum.
Stundaskráin tekur gilúi þriðjudaginn 4. janúar 2000
Opnir tímar í Hatha Yoga; jógastöður, öndun og slökun
Laugard.
Kl.9.30
til 10.35
Ýmsir
kenna
Daníel
Tími Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud.
12.10-13.00 Guðrún Daníel Guðrún
16.20-17.10 Guðrún Ingibjörg Guðrún Ingibjörg
17:20-18:20 Daníel Ingibjörg Danlel Ingibjörg Guðrún
17.50-18.20 Hugleiðsla
18.30-19.35 Ásmundur Anna Ásmundur Anna Ásmundur
i
Arskort kr. 25.000 3 mán. kr. 12.900 1. mán. kr. 5.800 Hálfur mán. kr. 3.200 Stakur timi kr. 700.
YOGA^
STU D IO
Kortin gilda í alla jógatíma á stundaskrá og aö saunu
BBO CD
Yoga - Sauna
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560.
HALUR OG SPRUND chf.
Sími 544 5560 og 864 1445
BIOTONE nuddvörur, Oshadhi 100% hágœða
ilmkjamaolíur, nuddbekkir frá Custom Craftworks,
nuddplaköt, slökunartónlist, ilmker, bækur o.m.fl.