Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 83
FÓLK í FRÉTTUM
Eina mínútu yfír mið-
nætti í kvöld kemur út
ljóðabókin Bók í mann-
hafíð og er hún því
fyrsta íslenska bókin
sem kemur út á nýju ár-
þúsundi. Dóra Ósk Hall-
dórsdóttir hitti skáld-
mælta aðstandendur
bókarinnar sem er eng-
in venjuleg bók heldur
bók á faraldsfæti.
Morgunblaðið/Ánii Sæberg
Sigtryggur Magnason, Sindri Freysson, Andri Snær Magnason og Sigurbjörg Þrastardóttir eiga öll ljóð í Bók í
mannhafið sem kemur út um miðnættið.
Arþúsunda- og
aldamótakveðja til
allra landsmanna
frá starfsfólki og
,eigendum,
Homið,
Hafnarstæti 15,
sími 551 3340.
Ljóðabókin Bók í mannhafið kemur út eina mínútu eftir miðnætti í kvöld
Engin venjuleg bók
Bók í mannhafið er engin venju-
leg bók. Hún er gefin út í
samvinnu við Reykjavík,
menningarborg Evrópu árið 2000 og
ritstjóri hennar er rithöfundurinn og
skáldið Andri Snær Magnason. I
bókinni eiga ellefu ung skáld ljóð og
eru það þau Andri Snær, Bergsveinn
Birgisson, Davíð Stefánsson, Gerður
Kristný, Margrét Lóa Jónsdóttir,
Kjartan H. Grétarsson, Sigtryggur
Magnason, Sindri Freysson, Sigur-
björg Þrastardóttir, Steinar Bragi og
Vala Þórsdóttir.
En hvað er svona sérstakt við bók
þessara ungu skálda?
Fjögur skáldanna sem eiga ljóð í
bókinni, þau Andri Snær Magnason,
Sindri Freysson, Sigurbjörg Þrast-
ardóttir og Sigtryggur Magnason,
leiddu blaðamann í allan sannleika
um tilurð fyrstu íslensku ljóðabókar
nýs árþúsunds. „Það eru gefin út
2000 eintök af bókinni og það sem er
kannski sérstakast við hana er að
þessa bók á enginn. Þú mátt lesa
hana, skrifa nafnið þitt í gestabókina
á öftustu síðum hennar og koma
henni áleiðis, en hún má ekki rykfalla
uppi í hillu heima hjá þér. Hún á að
velkjast um mannhafið eins og
flöskuskeyti og bera ljóðið sem víð-
ast,“ segir ritstjórinn Andri Snær
sem hefur auk útgáfunnar í nógu að
snúast en hann gekk í hjónaband í
gær.
íslendingar eru bókaþjófar
Fyrstu 300 eintökum bókarinnar
verður dreift á hátíðardagskrá
Reykjavíkur, menningarborgar
Evrópu 2000 í Perlunni í kvöld, en
síðan verður henni dreift meðal ann-
ars í verslunum Bónuss. Eins geta
menn búist við að finna bókina á ólík-
legustu stöðum enda á ljóðið að sögn
skáldanna jafnt heima í mjólkurkæli-
skápum sem hátimbruðum menning-
arhöllum.
Nú nota menn oft tækifærið oglíta
um öxl þegar árið er liðið í aldanna
skaut. Bera Ijóð bókarinnar því end-
urliti vitni?
„Skáldunum var alveg í sjálfsvald
sett hvaða ljóð þau völdu í bókina, og
því ber bókin skáldunum sjálfum
vitni en er ekki samvinnuverkefni um
árþúsundaljóð," segir Andri Snær.
„Við erum líka svo ung að við munum
ekld mikið lengra en síðustu fimmtán
ár,“ bæta skáldsystkin hans glott-
andi við.
En hvað felst íhugmyndinni um að
láta bókina ganga á milli manna ?
„Ætlunin er að ljóðið fari sem víð-
ast. Inn á sólbaðsstofumar, í skurð-
gröfurnar, í strætó, í stjórnarráð-
ið...“ segir Sindri og Sigurbjörg
bætir við að það sé alkunna að erfið-
lega gangi að endurheimta bækur
sem lánaðar séu - í þessu tilviki þui-fi
hins vegar ekki að hafa áhyggjur af
slíku. „Islendingar eru miklir bóka-
þjófar og sá vandi er leystur með því
að meina fólki að eigna sér eintak af
þessari bók,“ segir Sindri. „Þar af
leiðandi verður enginn glæpur að
stela henni,“ bætir Sigurbjörg við.
Andri Snær upplýsir að hann hafi
eitt sinn gefið út bók sem fór á flakk
Þessa bók má ekki eigna sér
heldur skal henni dreift sem víð-
ast svo sem flestir geti notið hins
ljóðræna innihalds.
og hann hafi haft mikið gaman af því
að fylgjast með ferðum hennar. Til
dæmis hafi hann frétt af henni í rútu
á norðurleið og eins hafi hún dvalið
lengi í tölvufyrirtæki einu í bænum
þar sem fjöldi manna kíkti í hana sér
til gamans.
Ljóð á vergangi
Nú vill maður oft deila því með
öðrum þegar maður les eitthvað
skemmtilegt og flestir kannast við að
hafa heyrt þessa setningu ívinahópn-
um: Pú verður að lesa þessa bók!
„Einmitt, með þessari útgáfu verð-
m- öll þjóðin einn vinahópur,“ segir
Sigurbjörg á jákvæðu nótunum og
bætir því við að ferðalag bókarinnar
geti stuðlað að óvæntum kynnum. í
stað hinnar fleygu veiðisetningar
„Áttu eld?“ geti fólk nú spurt „Áttu
nokkuð ljóð?“
Sindri sér annan og beittari flöt á
útgáfu bókarinnar. „Það má segja að
svona bókaútgáfa ögri öllum viðtekn-
um hugmyndum um eignarhald og
þannig vegur hún að sjálfum rótum
markaðsþjóðfélagsins."
Eru ljóðin þá orðin eins og bömin
ykkar sem eru farin að heiman og
þurfa nú að standa sig íhinum harða
heimi?
„Með þessari bók eru bömin okkar
farin á vergang,“ segir Sigtryggur
kankvíslega „eða em ættleidd tíma-
bundið,“ bæta hin við. „Þessi háttur
gæti líka örvað þann sið að fólk leggi
ljóð á minnið. Þegar það getur ekki
farið í bókahilluna heima og flett upp
Ijóðinu þá er betra að kunna það ut-
anbókar og geta farið með á góðri
stundu,“ segir Andri Snær og við
blaðamanni blasir nýtt árþúsund þar
sem fólk kastar kveðju á náungann í
bundnu máli. „Væri það kannski
ólögleg fjölföldun hugverka?" veltir
Sindri fyrir sér.
Kortlagning Ijóðagensins
Andri Snær bendir á enn einn
kostinn við hina stjómlausu dreif-
ingu Bókar í mannhafið:
„Efth- mínum útreikningum ættu
allir íslendingar að hafa lesið bókina
á tveimur áram ef enginn svíkst und-
an merkjum með því að kyrrsetja
hana í bókahillunni,“ segir Andri
Snær og kveðst reyndar hafa fengið
þá hugmynd að festa á bækumar raf-
ræn merki til þess að geta fylgst með
ferðalagi eintakanna um landið.
„Þetta er nefnUega svolítið eins og að
sleppa seiðum," segir hann en út-
skýrir að senditæki Hafrannsóknast-
ofnunar hafi reynst of fyrirferðar-
mildl tU verksins.
Og kostum útgáfunnar virðast
engin takmörk sett því skáldin benda
á að lesendur taki virkan þátt í lífi og
sköpun Bókar í mannhafið. Annars
vegar með því að stýra stefnu eintak-
anna um landið og hins vegar með því
að rita nöfn sín á gestasíðumar.
„Engin tvö eintök verða þannig eins
og eftir því sem listinn lengist verður
eintakið dýrmætara," segja Sigur-
björg og Áaidri Snær og Sigtryggui’
bætir við: „Það væri vissulega snjall-
ræði fyrir Islenska erfðagreiningu að
fylgja bókinni eftir til þess að kort-
leggja ljóðagenið, en hvert eintak
mun geyma nöfn og fingraíor sem
auðvelda munu slíka kortlagningu
verulega."
Partí
við pýra-
míaana
HÉR sést franski tónlistarmað-
urinn Jean Michel Jarre æfa fyr-
ir stórsýningu sína í dag sem
mun taka tólf klukkustundir.
Þúsundir manna munu skemmta
sér við undirspil Jarre og víst er
að uinhverfið er tilkomuinikið.
Jarre ákvað að nota ljósasýningu
til að gera pýramídana ennþá til-
komumeiri svo búast má við að
ljósadýrðina megi greina um
Iangan veg.
Reuters
ínska Jóa að taka pilluna?
Haf narstræti
Fasteignir á Netinu
ýg) mbl.is
\LLTAT EITTH\SAO fiJÝTT
Nœturqatinn
Gamlárskvöld
Fögnum árinu 2000 með hljóm-
sveitinni Stuóbandalaginu.
Húsið opnað kl. 00.30.
Léttar veitingar í boði hússins
frá kl. 00.30—2.00.
Nýársdag 1. janúar
leika Hilmar Sverrisson
og Anna Vilhjálms.
Húsið opnað kl. 22.00.
Léttar veitingar í boói hússins
frá kl. 22.00—24.00.
Sunnudag 2. janúar
leikur hljómsveit Hjördísar Geirs.
Húsið opnað 21.30.
Ath: Óbreytt verð á veitingum!
Gamlárskvöld
- Áramótadansleikur
Húsið opnar kl. 01
* Hljómsveitin 8-villt leikur
fyrir dansi fram á morgun
Nýárskvöld
- Nyarsgleði *
Gala kvöldverður
★ ásamt dansleik
BORÐAPANTANIR
í Sl'MA 562 5530
■STAÐURINN ÞAR SEM STUÐIÐ ERl