Morgunblaðið - 22.01.2000, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.01.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 29 ERLENT Norskur blaðamaður sakaður um njósnir Ósló. Morgunblaðið. N eitar öllum sakamiftum BLAÐ AMAÐUR norska blaðsins Stavanger Aftenblad, Stein Viks- veen, hefur verið sakaður um að hafa stundað njósnir fyrir leyni- þjónustu Austur-Þýskalands, Stasi, á árunum 1962-1989. Viks- veen, sem starfar í Brussel, er gefið að sök að hafa látið Stasi í hendur leynileg skjöl Atlants- hafsbandalagsins (NATO) og Iiggfur einnig undir grun um að hafa veitt upplýsingar um norsk varnarmál. Verði Viksveen, sem neitar sakargiftum, fundinn sek- ur um njósnir á hann yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Samkvæmt frásögn Stavanger Aftenblad var Viksveen fyrst yf- irheyrður árið 1998 vegna grun- semda um að hafa stundað njósn- ir fyrir Stasi. Hann segir að sér hafi þá verið gefið að sök að hafa hitt austur-þýskan leyniþjónustu- mann, Rössler, í borginni Linz í Austurríki og að Rössler hafi bor- ið við að hafa tekið við skjölum af Svensteen á áttunda áratugnum. Viksveen neitar því að hafa nokkurn tima komið til borgar- innar og segist aðeins þekkja einn mann að nafni Rössler og sá sé norskur ljósmyndari. Hann segist heldur aldrei hafa haft undir höndum leynileg skjöl af nokkru tagi. Aldrei komið til Rostock Fyrr á þessu ári birti danska Extrabladet frétt um að það hefði heimildir fyrir því að norskur njósnari sem gengi undir dul- nefninu „Lanze“ hefði njósnað fyrir Stasi. Norska blaðið Ver- dens Gang hefur sagt að „Lanze“ sé norskur blaðamaður sem norska öryggislögreglan (POT) hafi leitað um árabil. Samkvæmt frásögn blaðsins hafi njósnarinn haft kennitöluna XV/5368/62 í skjölum Stasi og vísi tvær siðustu tölurnar til ársins þegar hann gekk í þjónustu Stasi. Dagblöð í Noregi hafa ennfremur haldið því fram að „Lanze“ muni hafa gengið Stasi á hönd við hátíða- höld í borginni Rostock árið 1962. Extrabladct segir að njósnarinn hafi afhent Stasi 400 skjöl, þ.á m. leyniskjöl um norsk varnarmál. Viksveen segir í samtali við Stavanger Aftenblad að hann hafi aldrei til Rostock komið og því síður tekið þátt í hátíðahöld- um þar. Hann segir einnig að lög- reglan hafi haft mikinn áhuga á að vita hvort bróðir hans, Thor, hafi látið hann hafa gögn eða upplýsingar. Thor starfaði um tíma sem persónulegur aðstoðar- maður Knut Frydenlund, meðan sá síðarnefndi gegndi embætti ut- anrikisráðherra í Noregi. Húsleit óheimil? Viksveen hefur verið fréttarit- ari fyrir nokkur norsk blöð í Brussel undanfama áratugi og hefur starfrækt skrifstofu fyrir þessi blöð á heimili smu. 4. nóvember á síðasta ári fram- kvæmdu belgískir og norskir lög- reglumenn húsleit í íbúð Sven- steens í Brussel og á sama tíma einnig í íbúð sem hann á í Staf- angri. Lögreglan lagði hald á fjórar tölvur í íbúðinni í Brussel, bækur með heimilisföngum og fleiri gögn. Síðan hefur tölvunum verið skilað eftir að skjöl geymd í minni þeirra höfðu verið afrituð. Samtök ritstjóra á norskum dagblöðum hafa mótmælt húsleit- inni þar sem húsakynnin í Bruss- el séu skrifstofa ritstjórnar fyrr- nefndra blaða. I Noregi gilda lög sem takmarka leyfi lög- regluyfirvalda til að gera húsleit í skrifstofum fjölmiðla. Skíðasamfestingar • Skíðaúlpur • Skíðabuxur • Vetrarúlpur Barnaúlpur® Dúnúlpur® Húfur* Vettlingar• lceblue sett(jakki og buxur) • Eróbikk fatnaður frá Adidas og Nike og margt, margtfleira. k t Póstsendum samdægurs. Opið mánud. - föstud. kl. 10 -18, laugard. kl. 10 -16. i'JL JLv,‘ ■ ^ J2I12I VVun ide//. 'tf. UTILIF . * WW t GLÆSIBÆ Sími 545 1500 • www.utilif.is Noregur Angelsen lætur af embætti Ósló. Morgunblaðið. KJELL Magne Bondevik, forsætis- ráðherra Noregs, tilkynnti í gær að Peter Angelsen hefði látið af emb- ætti sjávarútvegsráðherra í norsku ríkisstjóminni. Að sögn Bondeviks óskaði Angels- en eftir því að hætta sem ráðherra í október á síðasta ári en ákvað í sam- ráði við Bondevik að bíða með það þar til nú. Bondevik sagði á frétta- mannafundi í gær að full sátt ríkti innan stjórnarinnar um málið. Við embætti sjávarútvegsráð- herra tekur Lars Peder Brekk, fyrr- verandi varaformaður Miðflokksins. Hann er frá Norður-Þrændalögum og er framkvæmdastjóri útgerðar- fyrirtækis þar. Angelsen, sem er 65 ára, bakaði sér óvinsældir hér á landi vegna and- stöðu sinnar við veiðar íslenskra fiskiskipa í „Smugunni". ÞÚ GETUR jtfuu SPARAÐ ÞÚSUNDIR Gleraugnaverslunin SJÓNARHÓLL HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á fslandi Breytinga- I skeíðið og t Heilsa karla saman á Breytíngaskeiðið “Bókm er auSlesm, gefitrgóð ráðþerm konum sem nálgast breytingaskeiðið eða hafa náðþví - ég tnœli með henni. ” Vibeke Mannicbe, Leknir Jyllands-Posten/Morgenavisen. “Þetta er bók sem ég held að sé nauðsynleg jýrir allar konur eldri en 40 ára að lesa. ” Kolbrún Bjömsdóttir, grasalæknir. eftir Ruth Appleby, smáskammtalækni Fjallað er um breytingaskeiðið á Verð raunhæfan hátt. Rakin eru ítarlega ") þau vandamál, sem geta komið upp “ og viðeigandi lausnir kynntar. \J\r invævji TÍU SKREF TIL BETW LÍKAMA OG BETRA LÍFS Heilsa karla eftir Joe Armstrong, Magnús Scheving sknfar formáia. Sumir karlar geta verið mjög ábyrgir á ýmsum sviðum *' tilverunnar en gjörsamlega kærulausir þegar kemur að þeirra eigin heilsu. Þessari bók er ætlað að benda körlum á að þeir þurfa að huga að heilsunni. Bókin hentar öllum, konum sem körlum. "Þessa bók ættu allir karbnerm að tilemka sér, þá myndi heilbrigðis- kostnaður samfélagsins Lekka vertdega. Auðlesin og ódýr bók. ” Elsa Gade, BT Sendag. Þetta er bók fyrir alla sem vilja komast í form, bæta útlitið og auka vellíðan. Oprah og Bob lýsa þeim erfiðleikum, sem tengjast því að ná kjörþyngd sinni og viðhalda henni. Lestu bókina, það er byrjunin á breyttu líferni. r UKLAu útgáfa I TVEIMUR LÖNDUM Ármúli 29 • 108 Reykjavík • pilot@mi.is • s: 568 7054 • gsm: 898 7054 • f: 568 7053 Meilða karla Lífið í jafnvægi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.