Morgunblaðið - 22.01.2000, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.01.2000, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Stj örnur og stj órnmál? Það erkaft á orði að áðurhafi menn í Washington dáðst að hinu Ijúfa lífi í Hollywood, ekki síst kynlífinu, og að í Hollywood hafi menn dáðst að valdinu í Washington. Nú segja menn þessu öfugt farið; í Hollywood horfi menn með að- dáun til Ijúfa lífsins í Washington á sama tíma og menn þar líti valdið í Hollywood aðdáunaraugum. Eftir Hönnu Katrínu Friðriksen Fyrst var þess beðið að bandaríska þjóð- in fengi hláturskast, en það kast kom aldrei. Þá fóru menn að velta fyrir sér af hverju þetta þætti ekki fyndið. Þar með fékk fjöldi fræðimanna nýtt verkefni sem þeir helltu sér út í VinunDE afkraftiog Viununr áhugasvonú er búið að skilgreina bandaríska fjölmiðla, bandaríska skemmtikrafta og bandarískan almenning upp á nýtt. Allt af því að þjóðin fékk ekki hláturskast yfir hugsanlegu forsetaframboði kvikmynda- leikaranna Warrens Beattys og Cybillar Shephard og milljarða- mæringsins Donalds Trump (sem telst eiginlega skemmti- kraftur líka í augum bandarísku þjóðarinnar). Aumingja Arnold Schwarzenegger má ekki bjóða sig fram til forseta Banda- ríkjanna af því hann er ekki fæddur þar í landi, svo hann þarf að láta sér nægja að daðra við hugsanlegt ríkisstjórafram- boð í Kaliforníu. Fleiri skemmtikraftar úr hópi fræga fólksins vestra hafa verið nefndir til sögunnar, svo sem sjónvarpsþáttastjórnandinn Oprah Winfrey (sem skartar Óskarsverðlaunum) og nú síðast kvikmyndaleikarinn Denzel Washington. Þeim síðastnefnda þykir hafa tekist svo vel til í nýj- ustu mynd sinni að hann verði að minnsta kosti tilnefndur til Óskarsverðlauna, ef hann þá fær ekki forsetaembættið. Æ, nei, Óskarinn. Og ef það gengur eft- ir, er hálfur sigurinn unninn. Reyndar herma nýjustu viðtöl við kappann að hann ætli að bíða í önnur átta ár áður en hann reynir við forsetaembættið. Kannski vill hann nýta tímann og safna nokkrum styttum. Kannski þorir hann ekki í Warr- en Beatty. Það er haft á orði að áður hafi menn í Washington dáðst að hinu ljúfa lífi í Hollywood, ekki síst hinu frjálsa kynlífi, og að í Hollywood hafi menn dáðst að valdinu í Washington. Nú segja menn þessu öfugt farið; í Holly- wood horfi menn með aðdáun til ljúfa lífsins í Washington á sama tíma og menn þar líti valdið í Hollywood aðdáunaraugum. Undanfarið hefur margt verið ritað og rætt um ástæður þess að fína og fræga fólkið í Banda- ríkjunum sækist svo stíft eftir frama'í pólitíkinni og þykir sjálf- sagt að þjóðin veiti þeim braut- argengi. Og ekki síður það að þjóðin er þeim ekki endilega af- huga. Sumir telja almenning með þessu sýna þreytu sína á mislitri hjörð stjórnmálamanna, aðrir vilja kenna Mon- icuhneykslinu um, enn aðrir segja gegndarlausa dýrkun fjöl- miðla á skemmtikröftum bera mesta sök á þessari þróun. I nýjasta hefti bandaríska tímaritsins George er því haldið fram, að nú sé að verða grund- vallarbreyting á bandarískum stjórnmálum, sem eigi sér lang- an aðdraganda. Stjórnmál hafi lotið ákveðnum lögmálum í hug- um fólks. Frambjóðendur áttu að vinna að því að ná frama inn- an stjórnmálaflokka, þeir áttu að byrja smátt en hyggja hátt. Ef allt gekk að óskum náðu þeir kjöri til þeirra starfa og em- bætta sem hugur þeirra stóð til. Að því loknu snerust stjórnmál- in um ákvarðanir þeirra og stjórnvisku. Auðvitað voru ýmis hrossakaup í gangi, en grund- vallarhugmyndin var sú, að í heimi stjórnmálanna voru allar mikilsverðar ákvarðanir teknar, hvort sem þær lutu að því hvernig skattpeningum al- mennings var varið, eða hvernig samskiptum við önnur ríki skyldi háttað. Samkvæmt þessum lögmálum hefði enginn tekið mark á fram- boði þess sem gekk með þing- manninn í maganum, ef hann lifði og hrærðist í skemmtana- iðnaðinum, enda litið svo á að hann hlyti að skorta nauðsyn- lega reynslu og þekkingu til að fást við pólitík. En stjórnmála- menn stigu fyrsta skrefið yfir brúna á milli þessara tveggja heima. Með því að sækjast eftir athygli fjölmiðla til að koma sér og sínum hugðarefnum á fram- færi voru þeir um leið farnir að keppa við stjörnurnar um sviðs- ljósið. Stjórnmálamönnum hefur reyndar gjarnan verið legið á hálsi fyrir að vera leiðinlegir (þ.e. þeir tala um alvarleg og þar með leiðinleg málefni). Slíkt orðspor er ekki vænlegt til ár- angurs í heimi þar sem allt snýst um að vera hress. ímynd- arfræðingar duttu niður á lausn- ina og stjórnmálamenn fóru að haga sér eins og skemmtikraft- ar. Það þarf því kannski ekki að undra að skemmtikraftarnir telji sig allt eins hæfa til að leika stjórnmálamenn. Valdamesti þjóðarleiðtogi heims, Bill Clinton, kýs að draga upp saxófóninn í vinsælum sjónvarpsþætti, Hillary, eigin- kona hans og þingmannsefni, aflar sér vinsælda með bröndur- um í spjallþætti og Tipper Gore, eiginkona varaforsetans og frambjóðandans Als Gore, legg- ur sitt af mörkum til að draga úr því orðspori að makinn sé „leið- inlegur", með því að tilkynna þjóðinni að hann sofi nú nakinn. Ef þjóðin vill á annað borð að forseti þeirra sé umfram allt skemmtikraftur og um leið klappstýra sem stappar í þjóðina stálinu, af hverju ekki að velja alvöru skemmtikraft og fá jafn- vel í kaupbæti hasarhetju sem getur kippt öllu í liðinn upp á eigin spýtur, alveg eins og í bíó? MAGNEA GUÐMUNDSDÓTTIR + Magnea Guðmundsdóttir fæddist á Blesastöð- um í Skeiðahreppi í Árnessýslu 20. júlí 1919. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Suður- lands 9. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Magnússon, bóndi á Blesastöðum, f. 11. maí 1878, d. 20. október 1972, og eig- inkona hans, Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1886, d. 2. september 1971. Systkini Magneu eru: 1) Jón, f. 14. mars 1911. 2) Magnús, 17. september 1912, d. 29. júní 1997. 3) Hermann, f. 23. ágúst 1913, d. 18. október 1980. 4) Guðrún, f. 17. desember 1914, d. 22. mars 1997. 5) Elín, f. 10. jan- úar 1916.6) Helga, f. 17. maí 1917. 7) Þorbjörg, f. 1. júlí 1918. 8) Ingi- gerður, f. 1. febrúar 1921. 9) Stúlka, f. 10. febrúar 1922, d. sama dag. 10) Óskar, f. 1. júlí 1923, d. 31. október 1924. 11) Svanlaug, f. 8. júlí 1924. 12) Ingi- björg, f. 2. september 1925. 13) Hrefna, f. 5. júlí 1927.14) Óskar, f. 5. maí 1929. Hálfsystir hennar samfeðra er: 15) Laufey, f. 20. mars 1920. Hinn 9. nóvember 1946 giftist Magnea Þorfínni Tómassyni öku- kennara, f. 24. maí 1920 í Auðs- holti í Biskupstungum, Árn. For- eldrar hans voru Tómas Tómasson, bóndi í Auðsholti, f. 9. október 1874, d. 12. mars 1952, og eiginkona hans Vilborg Jónsdótt- ir, húsfreyja, f. 10. október 1879, d. 22. janúar 1960. Börn Magneu og Þorfínns eru: 1) Vilborg, kennari, f. 14. ágúst 1947, gift Skúla Val- týssyni viðskipta- fræðingi og eiga þau tvö börn. Þorfinnur, íslenskufræðingur, f. 21. mars 1971, í sambúð með Krist- rúnu Höllu Helga- dóttur sagnfræðingi, og eiga þau eina dóttur, Emblu, f. 6. aprfl 1997. Halldóra, nemi í við- skiptafræði, f. 18. júní 1976 í sam- búð með Erlendi Stefánssyni mat- vælafræðingi. 2) Hjördís leikskólakennari, f. 16. júní 1953, gift Guðmundi Inga Karlssyni, skilin, og eiga þau þtjú börn. Karl sjúkraþjálfari, f. 10. apríl 1974, í sambúð með Emih'u Borgþórs- dóttur, ncma í sjúkraþjálfun. Magnea Þóra, nemi í hönnun, f. 17. mars 1978, í sambúð með Þór- arni Böðvari Þórarinssyni, nema í Kennaraháskólanum. Elín nemi, f. 9. febrúar 1984. 3)Kristín fulltrúi, f. 21. maí 1958, gift Kristni Páls- syni trésmiði. Auk húsmóður- starfa vann Magnea við sauma- skap, m.a. hjá Daníel klæðskera. Magnea stofnaði síðar ásamt fleir- um saumastofuna Östru á Sel- fossi. Magnea og Þorfínnur þjuggu alla sina búskapartið að Artúni 11 á Selfossi. Útfor Magneu fer fram frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Harmafregn barst aðfaranótt 9. janúar þegar okkur hjónunum var tilkynnt andlát kæiTar tengdamóður minnar, sem ég hafði haft samneyti við og þekkt gjörla í yfir 30 ár. I val- inn er fallin mikil hetja sem aldrei heyrðist kvarta vegna eigin sjúk- dóms, svo maður gleymdi því að hún var búin að beijast við þennan illvíga sjúkdóm í nærfellt tíu ár þegar kallið kom. Magga, eins og tengdamóðir mín var kölluð, féll frá í blóma lífsins þrátt fyrir að vera orðin áttatíu ára gömul. Maður varð ekki var við aldur hennar fyrr en síðustu mánuðina sem hún lifði, svo mikill var lífsþrótt- ur hennar og lífsgleði. Þegar ég fyrst kom á heimili Möggu kynntist ég strax þeirri alúð og vinsemd sem alltaf fylgdi tengda- foreldrum mínum og síðar kynntist ég af eigin raun hinni óvenjumiklu hjálpsemi, sem þau ætíð sýndu öllum sem hana vildu þiggja. Hámarki náði þessi hjálpsemi þegar við hjónin stóðum í byggingarframkvæmdum á einbýlishúsi okkar, þá var alltaf at- hugað hvort ekki þyrfti að gera eitt- hvað, safna liði til að gera verkið auð- veldara, því oft og tíðum komu tengdaforeldrarnir með aukamann- skap svo verkið gengi betur og aldrei var slegið slöku við og máttu hinir yngri hafa sig alla við til að hafa við þeim „gömlu“ eins og þau voru oft kölluð. Upp í hugann koma ógleymanleg ferðalög um sveitir landsins og um óbyggðir þar sem alltaf var passað upp á að nóg væri til að bíta og brenna, málmkassi fullur af smurðu brauði og flatkökum, „skrölta“-doll- an sem ætíð var full af sælgæti fyrir bæði yngstu og elstu ferðalangana. Alltaf var vel skammtað þegar mat- ur var annars vegar, sennilega ein- hver arfur frá fyrri tíð þegar ekki var sjálfgefið að allir hefðu nóg að bíta og brenna. Ég minnist þess að ætíð kallaði Magga á mig, þegar hún var að baka pönnukökur, til þess að leyfa mér að borða þær snarpheitar af pönnunni, og alltaf var ég hvattur til að athuga nú hvort ekki fyndust jarðarber, en hvort tveggja vissi hún að ég kunni vel að meta. Ég er ekki viss um að tengdamóð- ir mín væri hrifin af því að ég væri að skrifa um hana eftirmæli, ef hún gæti haft eitthvað um það að segja, því svo var hún hógvær. Ég er hins vegar viss um að hún hefur hlotið góðar móttökur hinum megin landa- mæra og ég er líka viss um að hún mun ekki liggja á liði sínu þar. í valinn er fallin kraftmikil, elsku- leg, glaðleg tengamóðir mín, sem ég mun alltaf sakna. Far þú í friði. Skúli Valtýsson. Þétt faðmlög, kossar og hlátra- sköll voru ávallt ugphafið að ánægju- legri dvöl okkar í Ártúninu. Lífsgleði þeirra hjóna og létt lund var smit- andi og löðuðu þau unga jafnt sem aldna til sín. Magga og Þorfinnur kunnu svo sannarlega að njóta lífs- ins. Umkringd vinum og ættmenn- um nær daglega og með nóg af verk- efnum fyrir höndum varð lífið líkt og ein allsherjar skemmtun fyrir þeim. Saman mynduðu þau hina fullkomnu heild. Þetta voru yndislegar stundir í Artúninu. Nafnarnir eitthvað að bardúsa saman í bílskúrnum. Við Magga saman yfir kaffibolla í stof- unni, skoðandi myndir eða rifjandi upp uppvaxtarár hennar af Blesa- stöðum. Hún var skemmtilegur sögumaður og minningamar stóðu mér sem Ijóslifandi fyrir hugskots- sjónum. A meðan prjónaði hún, saumaði eða heklaði og nýtti þannig sérhveija stund sér til gagns. Samheldni og takmarkalaus um- hyggja fyrir náunganum einkenndi þau hjónin. Ef þau fundu einhvem hjálparþurfi eða ókláruð verk að vinna vom Magga og Þorfinnur mætt á svæðið sem einn maður. Þau létu ekkert framhjá sér fara hvort sem voru veikindi, viðgerðir, hús- byggingar eða annað. Þeim féll aldrei verk úr hendi og bókstaflega elskuðu að hafa nóg fyrir stafni. Verkefnin vom leituð uppi hvort sem beðið var um aðstoð eða ekki. Það var ógleymanleg gleðin sem gagntók Möggu þegar við tilkynnt- um henni að von væri á fyrsta lang- ömmubarninu. Hún var ekki í vafa um að Embla kæmi gagngert eftir hennar pöntun. Þar fann hún sér sannarlega nýtt viðfangsefni. Af- raksturinn má sjá í uppfullum skáp- um og skúffum af kjólum, göllum, sokkum, vettlingum, húfum, peys- um, leikföngum og svo mætti lengi telja. Þegar skáparnir höfðu fyllst var tekið að fata dúkkurnar upp. Allt bjó hún þetta til í höndunum eins og henni einni var lagið. I margmenni var Magga hrókur alls fagnaðar. Öll fjölskylduboð hvort sem voru afmæli, þorrablót eða jólaboð enduðu í dansi eða söng að hennar beiðni. Það er mér minn- istætt frá ættarmótinu í sumar þeg- ar Magga hóf að syngja með systrum sínum að Embla linnti ekki látum fyrr en hún var komin í fremstu röð, henni við hlið. Hún horfði aðdáunar- augum á þessa fjörugu langömmu sína og tók undir sönginn fullum hálsi. Síðustu vikurnar ágerðust veik- indi Möggu og það var erfitt að horfa á hana þjást. Hún lét sem ekkert væri, hélt fullri reisn allt fram að andláti og trúði því einlæglega að allt færi á besta veg eins og ævinlega. Þannig var Magga í hnotskurn. Ég vildi óska að Embla hefði notið þess- arar einstöku langömmu sinnar lengur en við munum hjálpa henni að viðhalda minningunni. Elsku Þorfinnur, ég veit að sorg þín er mikil en haltu áfram að njóta lífsins eins og ykkur Möggu einum var lagið. Halla. Sól í hjarta, sól í sinni. Sólúti, sólinni. Þessar línur lýsa vel lífsspeki ömmu. Þær hafði hún yfir ef henni fannst hallað á bjartar hliðar lífsins. Hjá ömmu á Selfossi skein alltaf sól, sama hvað Veðurstofan sagði. Heim- ili ömmu og afa í Ártúni 11 skipar stóran sess í lífi okkai'. Hljóðið í hurðinni, hljómurinn í bjöllunni, fagnandi fótatak, lykt af pönnukök- um, kleinum og snúðum, allt voru þetta vísbendingar um að notalegar samverustundir væru í vændum. I garðinum og gróðurhúsinu áttu afi og amma margar af sínum bestu stundum saman. Þar hafði amma fegurðina að leiðarljósi en afi leitaði nytseminnar. Rausnarleg og gjöful voru þau á það sem úr moldinni óx. Allir sem inn í gróðurhúsið ráku nef- ið voru leystir út með rósavendi. Þegar afi missti stjórn á klippunum og útsprungnh’ sem óútsprungnir knúpparnir fuku kom það í ömmu hlut að standa á bremsunni. Öll nutum við góðs af náðargáfum ömmu, ekki síst af saumaskapnum. Það skipti ekki máli hversu fáránleg- ar hugmyndir barnabörnin komu með að flíkum; alltaf gerði hún þær að veruleika. Hvort sem fyrirmyndin var mynd á plötuumslagi eða krot á blaði var henni ekkert verk ofviða á þeim vettvangi. Þegar frumhug- myndir að flíkum komu fram fitjaði amma oftar en ekki upp á trýnið, svona eins og til málamynda. Það leið þó ekki á löngu áður en hún var horfin og lágvær niður saumavélar- innar hljómaði innan úr litla her- berginu. Ómmu þótti gaman að vera í ná- vist fólks og sérstaklega kunni hún að meta þegar stórfjölskyldan var samankomin. Þá þótti henni oftar en ekki tilefni til að taka lagið og stíga dans. Gleði hennar smitaði út frá sér og í nærveru hennar þurrkaðist allt kynslóðabil út. Á jóladag var öll fjöl- skyldan samankomin í Ártúninu. Borðið svignaði undan hangikjötinu og í fyrsta sinn f mörg ár gátu allir fjölskyldumeðlimir verið á Selfossi. Ámma settist niður og varð að orði hversu gott væri að sjá alla við borð- ið. Það var sem hennar hinsta ósk væri uppfyllt. Þrátt fyrir erfíðar stundir undir lokin skein persónu- leiki ömmu í gegn og allt fram á síð- ustu stundu lét hún engan bilbug á sér finna. Lífsviðhorf og gildi ömmu hafa veitt okkur veganesti sem ómetan- legt hefur verið að njóta. Minningin um ömmu á Selfossi er og verður sól í hjarta okkar og sinni. Þorfinnur, Karl, Halldóra, Magnea Þóra og Elín. Það er skammt stórra högga á milli hjá fjölskyldunum frá Auðsholti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.