Skírnir - 01.01.1832, Blaðsíða 79
79
Einsog afc untlanfórnu ferSaðist konúngr vor
vmkríng í rikinu, og gladili þegna sína með nær-
veru sinni og velgjörSura; ferðaÖist hann þannig
þann 6ta júní afstað til Krosseyrar, eu sigldi þaðan
á dampskipinu Merkúríus yfir til Nýuborgar á Fj(5ni
og þaðan til Jótlauds og til Slésvíkr og Holsetu-
lands, og varð hann hvörvetna fyrir einlægum og
og hátíðligum elsku- og lotníngar-atlotum þegna
sinna. Meðan konúngr var í Altónu komu full-
trúar framandi ríkja, er þar voru umhverfis, og í
Hamborgu, og vottuðu konúngi lotníngu sína, en
Hamborgar stjórnarráð bað hann þiggja veizlu hjá
sér og horfa á sjónarspil í skoðunarspila húsinu,
og fullnægði konúngr bæn þeirra enni síðari, var
tekið ámóti konúngi með gleðiópi og mikilli dýrð
og má það að vísn telja merkiligt lotníngar og
lieiðrs merki í Hamborgu, er í raun réttri amast
við konúngs stjórn og öllu, sem þar að lýtr. A
þessari ferð sinni æfði konúngr herlið sitt á Jót-
landi; lét embættismenn sýna sér embættis-
bækr þeirra og gjöra aðra grein ráðsmennsku sinn-
ar; athugaði og sérhvað það, er laut að eðr tálm-
aði þjóðarheill og hagsæld þegna hans, og vottaði
velþóknan sína, er hann fann eitthvað gott og nyt-
samt á stofn sett; var ferð lians þannig eigi heldr
að þessu sinni án vitnisburðar. Eptir mánaðar
fjærveru koin konúngr aptr til höfuðborgarinnar á
dampskipi sjálfs síns Kiel, og flutti sköinmu síðar
til sumarstaðar síns á Friðriksbergi. Um saraa
leiti ferðaðist hans konúngl. Háheit prins Christ-
ján með konu sinni til umdæmis síns á Fjóni, og
heimsókti konúngr hannþar á ferð sinni, er þeg-