Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1894, Page 26

Skírnir - 01.01.1894, Page 26
26 Menntnn. Framhald kom af Ártíðaskrám frá Bðkmenntafélaginu, og af sögu Þuríðar formanns og Kambsránsmanna með Þjóððlfi. Framhald kom og af Smá- sögu-safni Péturs biskups. Af þjóðsagnaritinu „Huld“ kom 4. hepti. Þar er þáttur af Landa-Hrólfi eptir Gísla Konráðsson og Áradalsóður Jóns Guðmundssonar lærða og auk þess ýmsar sagnir og munnmæli. Af íslend- ingasögum, er Sigurður Kristjánsson gefur út, var Njála ein prentuð þetta ár. í Andvara (19. árg.) var æfisaga Guðbrandar Vigfússonar rækileg að maklegleikum, og rituð mcð hlýjnm hug til hins látua fræðimanns af frænda haus Dr. Jóni Þorkelssyni (yngra). Þar var og ferð um Vestur- Skaptafellssýslu sumarið 1893, eptir Þorvald Thoroddsen. Segir þar ná- kvæmlega frá rannsóknum hans, or á var minnst í fyrra. Landsuppdráttur fylgdi til skýringar ritgorðinni, sem er skeinmtileg og fróðleg eins og all- ir aðrar ritgerðir höfundarins um laudfræði og náttúrufræði þessa lands. Síðasta ritgerðin var: Sala á íslenskri vöru í ýmsum löndum eptir Ditlev Thomsen. Er það skýrsla höfundarins um árangur forðar sinnar suður í lönd, þeirrar er alþingi hafði veitt honum styrk til af landsfé árið áður. Að skýrslu hans hefur verið ger gðður rómur, og hefur hún að geyma mikinu hagfræðislegau frððleik nm allar helstu íslenskar vörnr, og fiytur rnargar mikilsverðar bendingar uin þær. Frá Þjóðvinafélaginu kom og Almanak fyrir árið 1895 og voru í því, að vanda, myndir af ýmsum merknm mönnum útlendum, með stuttum ætisögum þeirra, og ýmsar smá- ritgerðir aðrar. Enn gaf Þjóðvinafélagið út bók, er Ólafur Ólafsson, prest- ur að Arnarbæli, íslenskaði og samdi. Er það uppeldis-leiðarvísir og heitir: Foreldrar og böru. Bókin er frumrituð á hollensku af Dr. Ritter og hefir að geyma mörg sannindi með nytsamlegum bendingum, og þykir henni vol sæma hinn íslenski búningur hennar. í Tímariti Bókmenntafélagsins var fyrsta og lengsta ritgerðin eptir Dr. Björn M. Ólsen: Hvar eru Eddu- kvæðin til orðin? Sú ritgerð er einkanlega ítarlegur ritdómur á íslenskri bókmenntasögu eptir Dr. Finn Jónsson, háskólakennara; kemur sú bók- menntasaga út i Kanpmannahöfn á danska tungu og vcrður mikið verk og einkar fróðlegt um margt. Fyrsta bindið er þegar fullbúið (Den old- norske og oldislandske Literaturs Historie I.). 1 bókmenntasögu þessari hefur höfundurinn meðal annars viljað sanna, að meginþorri Eddukvæðanna sé ortur í Noregi, nokkur þeirra á Grænlaudi, en að eins fáein á íslandi, og fært ýmsar ástæður máli sínu til stuðnings. Gegn þessari skoðun hefur Dr. Björn M. Ólsen skráð ritgerð sína í Tímaritinu og færir þar fram með glöggsæi og skarpleik mikil rök fyrir máli sínu, á móti ástæðum

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.