Skírnir - 01.01.1894, Side 46
46
Landar vorir fyrir vestan haf.
málaflokkur í Bandaríkjunnm (Demokratar) hafi fengið hann til þess að ferð-
ast um og halda tölur, og hafi hann á svipstundu uunið sér orðstir, sem
einhver fremsti stjórnmálaræðugarpur þar.
Frímann B. Anderson, sem áður hefur verið minnst á, hélt í Reykja-
vík um haustið fyrirlestur um Vesturheim, einkum Bandarikin. Hann fór
þar snjöllum og skáldlegum orðum um kosti lands og lýðs, en lét þó eigi
síður getið gallanna, atvinnuleysis og ánauðar verkmannalýðsins, og ein-
okunarvalds auðkýfinganna. Hann talaði þar og um vesturferðir og kvað
þess eigi von, að binir örgerðari menn og frjálslyndari hættu að leita til
hins stjórnfrjálsa Vesturheims meðan íslendingar sjálfir hefðu ekki fullt
löggjafarvald né framkvæmdarvald og dró dæmi af forfeðrum vorum, hin-
um fyrstu landnámsmönnum. Hann mælti meðal annars svo: „Þessi frelsis-
löngun, þessi frægðarvon er það aðalafl, sem borið hefur íslendinga vestur
um hafið---------og þótt verk vort vestra sé enn þá lítið, þá er nú samt
svo komið, að íslendingar eiga nú tvö ættlönd“.
Þess er að geta, að frumvarp kom fram á alþingi um breytingu á
útflutningalögunum, en dagaði uppi að þessu sinni, eins og frumvarp það,
sem kom fram á alþingi 1893 um sama efni.
Hið tíunda ársþing kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi var haldið
26.—30. júní í kirkju Víkursafnaðar á Mountain í Norður Dakota. í fé-
laginu voru þá 23 söfnuðir og 6 prestar, en skömmu síðar bættist því
prestur heiman af íslandi. Það var séra Oddur V. Gíslason frá Stað í
Grindavík; sagði hann prestakalli sinu lausu um vorið og fór að því búnu
með fjölskyldu sína til Vesturheims, rg gjörðist þar prestur Bræðrnsafnað-
ar í Nýja-íslandi. Á kirkjuþinginu var talað um að koma kirkjufélagi ís-
lendinga í samband við stærra kirkjufélag lúterskt, og til þess nefnt Gene-
ral Council, er áður hafði stutt það, með menntun prestaefna o. fi. Sam-
þykkt var og að fá kirkjufélag íslendinga löggilt, undir lögum Norður-
Dakotarikis. Skólasjóður kirkjufélagsins var nú orðinn 2000 dollarar, en
ekki þótti fært að byrja á skólahaldinu það ár. Bókasafn Eggerts prests
Bríms hefur nú verið keypt til handa skólastofnuninni, og fengið skóla-
nefndinni í hendur. Á kirkjuþinginu var enn rætt um að koma upp minn-
isvarða á leiði séra Páls Þorlákssonar, er verið hefur einhver mestur sæmd-
maður með Vestur-íslondingum, og áhugamestur um hagsæld þeirra. Minn-
isvarði þessi var fullgjör og afhjúpaður um haustið; voru þá liðin 12 ár
frá andláti séra Páls. Fyrirlestra fluttu þeir á kirkjuþínginu, séra Friðrik
Bergmann (Um sársaukann í lífinu) og séra N. Steingrímur Þorláksson