Skírnir - 01.01.1894, Side 59
Þýzkaland.
59
er fyrir báðum þessum ráðherrum yakti, enda þðtt hann væri þeim báðum
samþykkur að nokkru leyti. Samkomulagið milli þeirra hafði lengi verið
stirt, en um haustið jókst ágreiningurinn mjög íit af því, hverjar ráðstaf-
anir gera skyldi gegn byltingaflokkunum og vjelum þeirra. Caprivi vildi
sem minnst aðbafast og alls ekki taka til neinna undantekningarlaga nje
annara örþrifsráða. En Eulonberg vildi beita hinni mestu harðneskju gegn
Bósíalistum og anarkistum, og taldi sig eiga víst fylgi keisarans. Að
lyktum virðist hafa orðið snörp deila milli þeirra út af máli þessu í ná-
vist keisarans sjálfs, og lauk henni svo, að báðir urðu að segja af sjer
embættunum.
Keisarinn fjekk nú sama manninum í hendur stjórnarformennsku Þýzka-
lands og Prússlands, innleiddi aptur fyiirkomulagið frá dögumBismarcks. Nýi
kanzlarinn heitir Hohenlohe-Schillingsfttrst. Hann hefur um mörg ár ver-
ið landsstjóri í Elsass og Lothringen og áður um tíma sendiherra í París.
Landstjóra-embættið í umdæmum þessum, sem Þjóðverjar tóku af Frökkum
eptir stríðið 1870—71, eins og kunnugt er, er afarvandasamt. Hefur
Hohenlohe þótt standa vel í þeirri stöðu, sýnt Btaðfestu og þrek, en jafn-
framt látið sjer annt um heill og frarafarir þessara landshluta, og er það
einmitt sú stefna, er keisara gezt vel að.
Þegar Hohenlobe var tekinn við stjóruinni, hófust deilur miklar á
þýzka þinginu um varnaráðstafanir gegn byltingaflokkunum. Kanzlarinn
reyndi að fá ýms ofsóknarlög gegn sósíalistum samþykkt, en það gekk
ekki greitt, Stóreignamenn heimtuðu tolla á kornvörum, til þess að ná
sjer niðri á stjórninni eptir samninginn við Rússland, ef þeir ættu að vera
þessum breytingum sinnandi; og kaþólski flokkurinn krafðist þess af sinni
háifu, að lögin um útilokun Kristsmunka frá ríkinu yrðu úr gildi numin.
Málið var ekki útkljáð um áramótin, en allar horfur á, að stjórnin yrði
að minnsta kosti að kanpa þessi lög dýrt, ef hún ætti að fá ánægjuna af
að eignast þau. Sósíalistar hjeldu vel saman á þinginu gegn þessum lög-
um, þótt þeir sjeu klofnir í tvo flokkn. En heldur þótti mönnum þeir
spilla fyrir sjer 6. dee., þegar þingið var sett í hinni nýju þinghöll Þjóð-
verja, og hrópa skyldi húrra fyrir keisaranum. Þá gerðu sósíalistar það
þinghncyksli að sitja kyrrir og þegja. Aðrir þingmenn atyrtu þá og leiddi
af því hávaða og ryskingar. Var talað nm að láta þá sæta ábyrgð fyrir
hneykslið, en til þess mun ekki samþykki þingsins hafa fengizt.
Mannskaði mikill varð í kolanáma í Korwin, nálægt Troppau í Slesíu;
eldur kom upp í námanum og fórust þar 235 manna.