Skírnir - 01.01.1894, Page 69
Noregur og Svíþjóð.
69
prinzins, þangað til hann hæri það af sjer, sera sænskt blað eitt hefði ept-
ir honum haft, að það yrði naumast annað en skeramtiganga að halda
sænskum her til Kristjaníu, ef á þyrfti að halda. Krónprinzinn ljet það
svo komast á prent, að hann teldi það langt fyrir neðan sig að vera að
bera af sjer slíkt slúðnr, og þingið mætti fara með launin eins og því
sýndist. Þegar á átti að herða, gekk þingið í sig, og hætti við að halda
laununum fyrir konungsefni sinn.
Svo tóku Norðmenn að rekja upp aptur vopnamálið frá 1884, þegar
liðstoringjar þeirra ónýttu flestar bissur hersins eptir skipun frá Svíþjóð.
Út úr því máli og svo jafnframt út af skipaninni til foringja herskipa-
flotans um að vigbúa nokkur skip og senda þau til Kristjaníu, sem getið
er um í síðasta Skírni, samþykkti þingið áskorun til konungs ura að sjá
um, að norska j>jóðin raegi óhult vera fyrir þeim er stýra eiga hernum og flot-
anum. Og jafnframt var kosin þingnefnd til þess að hafa gætur á vopn-
um land- og sjóliðsins. Áður en þingi var slitið (25. júlí), var enn sam-
þykkt ályktun um skilnað við Svía í konsúlamálinu á komandi ári, en
þingið veitti útgjöidin til sendiherranna, en þó með þvi Bkilyrði, að Nor-
egi kæmi ekki framvegis noitt við erindareksturinn í Vínarborg, en fyrir
það skilyrði þvertók Stang stjórnarráðsformaður. Samkomulag meiri hlut-
ans á þingi við stjórnina var yfirJeitt hið versta, og framkoma hans gagn-
vart Svíum á þá leið, sem hann mundi ekki skirrast við að láta til vopna-
viðskipta koma, ef ekki yrði undan látið.
Þingkosningar fóru fram um haustið í Noregi, og bjuggust vinstri-
meun við miklnm sigri, vonuðu að þeir mundu auka liðsafla sinn til rauna.
En sú von brást þeim. Á undan kosningnnum höfðu þeir 64 atkv. á þing-
inu gegn 50, en eptir þær höfðu þeir að eins 59 gegn 55. Að hinu leyt-
inn þótti þeim það miklu máli skipta, að höfuðstaðurinn, Kristjanía, sner-
ist á þeirra band, eigi að eins við þingkosningarnar, heldur og við kosn-
ingar til borgarráðsins.
Ráðið var snemma á árinu að leggja járnbraut frá Kristjaníu til Björg-
vinar með mörgum áfangastöðum. 63 mílur á lengd oggizkið á 48 milj-
óna króna kostnað. Brautin á að verða búin eptir 15 ár.
Þann 9. des. var 300 ára afmæli Gústavs Adólfs; var þá stórkostlegt há-
tíðahald í öllum sænskum borgum, en þó mest í Stokkhólmi, enda er þar
mest, sem minnir á hann og frægðarverk Svía um hans daga og þar á
eptir.